Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNI 1974 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 1 00. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 35,00 kr. eintakið. Aö jafnaöi þætti okkur Islendingum það sæmdarauki aö erlend blöð hvetji menn til þess aó fara námsferð til íslands og kynna sér stjórnarhætti hér á lándi. Þannig gerðist það fyrir nokkru að eitt virtasta biað í Noregi „Norges Handels- og Sjö- fartstidende“ birti forystu- grein, þar sem eindregið var hvatt til þess, að full- trúar ríkisvaldsins, fjár- málaráðuneytisins, norska alþýðusambandsins, sam- vinnufélaganna og fleiri stórfyrirtækja héldu í námsferð til íslands. En því miður var tilgangur þessarar námsferðar ekki slíkur, að viö getum verið stoltir af. Þvert á móti sýn- ir þessi forystugrein í hinu norska biaði hve djúpt við íslendingar erum sokknir i augum annarra þjóöa. Norska blaðið hvatti nefni- lega til námsferðar til ís- lands í því skyni, að Norð- menn mættu læra, hvernig ekki ætti að stjórna. í forystugrein blaðsins segir m.a. um efnahags- ástand á íslandi: „Vanda- málin eru orðin svo stór- kostleg, að það er spurn- ing, hvort leysa megi þau á venjulegan hátt eftir al- gengustu hagstjórnarregl- um. Við höfum ekki trú á því. Þaö verður að grípa til óvenjulegra aðgerða, að- gerða, sem grípa ekki að- eins til hluta þjóðfélagsins heidur alls þess. En ef slfkt á að takast, þarf sterka stjórn á íslandi, en stjórn- málaþróunin á íslandi hef- ur verið slík, að frekar má búast við stjórnmálaóró- leika en festu. Það eitt get- ur haft alvarlegar afieió- ingar í för með sér. Við höfum skrifað þennan leið- ara m.a. vegna þess, að norskir sérfræðingar hafa bent á, aö Noregur sé á góóri leið með að lenda í miðju verðbólgubálinu: Kaupið í dag, verið á undan öðrum að kaupa, kaupið meðan þið getið — mjólk- urlítrinn kostar 32 kr. á íslandi og bílarnir svo mik- ið, að þeir verða því sem næst heilagir við fyrstu kynni. Það er þó verðmæti í bifreið, en íslenzka krónu er ekki einu sinni hægt að nota sem skiptimynt. Að lesa eða heyra svona lýsingu er ekki skemmti- legt, allra sízt þegar góðir vinir eiga í hlut. En þetta getur verið lærdómsríkt, sérstaklega fyrir okkur Norðmenn. Við erum á tveimur bátum, sem halda sömu stefnu — ísland siglir í átt að verð- bólguöngþveitinu með svo miklum hraða, að boðaföll- in standa í allar áttir. Nor- egur rær ágætlega í kjöl- farið, en á sem betur fer langa leið fyrir höndum áð- ur en hann nær íslending- um. Þess vegna ættum við að athuga róóralag þeirra, þeirra stjórnmálaviöhorf og þeirra hugsunarhátt.“ Þegar norska blaðið hef- ur með þessum hætti lýst ástandinu í efnahags- og at- vinnumálum okkar íslend- inga, segir það: „Við höld- um því fram, að þetta þurfi að gera og það strax. Við vildum sjá fulltrúa ríkis- ins, fjármálaráðuneytisins, norska alþýðusambandsins og t.d. norsku samvinnufé- laganna og fleiri stórfyrir- tækja halda í námsferð til Islands. Þessir aðilar ættu að kynna sér alla atvinnu- hætti landsins, hvar sem er á íslandi og finna mein- semdina. Ekki er víst að meinsemdin finnist f fyrstu, en útkoman verður vafalaust sú sama hjá öll- um: Verðbólgan skaðar okkur öll, eyðileggur það gamla og eyðileggur hugs- anagang unga fólksins og skaðar stjórnmálamennina og skaðar landið og síðast en ekki sízt veikir hún lýð- ræðið. Það þarf því að eyði- leggja verðbólguna. Stjórnmálamenn og hag- fræðingar: Farið í náms- ferð til íslands.“ Óhætt er að fullyrða, að áskorun um námsferð af þessu tagi til íslands hefur aldrei fyrr birzt í erlendu blaði. Óhætt er að fullyrða, að slík lýsing á ástandi ís- lenzkra efnahagsmála hef- ur aldrei fyrr birzt í er- lendu blaði, enda ekkert tilefni gefizt til þess. En vissulega er það íhugunar- vert fyrir okkur íslendinga að sjá hvernig erlendir menn líta á okkar vanda- mál og þá ekki sízt vinveitt- ir frændur okkar í Noregi. Við gerum okkur grein fyr- ir því, að mikill vandi er á höndum í efnahagslífi okk- ar, en höfum við í raun og veru gert okkur þess grein, hversu alvarlegur hann er? Verðbólguþróunin á ís- landi nálgast nú að vera um 40% á ársgrundvelli. Þetta er margfalt meiri verðbólga en í nálægum löndum. Þetta er margfalt meiri verðbólga heldur en við sjálfir höfum nokkru sinni kynnzt. Hverjum ein- asta landsmanni er ljóst, að það hefur enga þýðingu að leggja fé til hliðar, krónan er verðminni á morgun en hún var í gær. Þessi verð- bólguhugsunarháttur hef- ur gegnsýrt allt þjóðfélagið og við stefnum hraðar og hraðar út í slíkt ógurlegt fen, að engin orð fá lýst. Haldi vinstri stjórn áfram um stjórnvölinn eft- ir kosningarnar 30. júní n.k. mun öngþveitið í efna- hagsmálum aukast og óvissan magnast og þar með kvíði fólksins í land- inu. Þess vegna ríður nú á, að þjóðin snúi sér til Sjálf- stæðisflokksins, sem þeirr- ar einu kjölfestu í okkar þjóðfélagi í dag, sem tryggt getur ró á ný, tekið efna- hagsöngþveitið föstum og ábyrgum tökum og tekið af öll tvímæli um stööu ís- lands í hinum vestræna heimi. I námsferð til Islands! Enginn fær reynslu af að takast á við óvænta atburði „ÉG VIL gjarnan fara vestur, en fengi ég nóg að borða? Gæti ég fengið atvinnu? Og hve lengi yrði ég að komast yfir eigin fbúð?“ Þannig sp.vr 23 ára gamali leiktjaldahönnuður í austur-Berlín. „Þú verður að skilja,“ bætti hann við, „að ég hef það nokkuð gott hér. Það er allt öruggt hér. Hvað sem fyrir kann að koma, mun ég aidrei svelta." Stjórn Erichs Honeskers hef- ur tekizt að koma því til leiðar, að unga fólkinu I Autur-þýzka lýðveldinu finnst öryggi þess mest heima. A þeim 25 árum, sem liðin eru frá stofnun Aust- ur-þýzka lýðveldisins, eru Aust- ur Þjóðverjarorðnirmjög ólíkir bræðrum sínum I VesturÞýzka- landi. Þeir hafa ólík sjónar- mið, skapgerðin er ólík og jafn- vel tungumálið. Vestur-Þjóð verjar hafa bætt allls kyns amrerískum orðum við orða- forða sinn, en Austur-Þjóðverj ar hafa aftur á móti vanizt á að nota marxísk hugtök. En lífshættir eru einnig mjög ólíkir. Strax og ég kom yfir landamærin, fór ég að leita að leigubíl fyrir mig og farang- ur minn. Ömögulegt. Lögreglu- þjónn benti mér á að biðja ein- hvern vegfaranda að bera með mér farangurinn á járnbrautar- stöðina. Allur þjónustuiðnaður landsins — leigubílaakstur og þjónusta á veitingahúsum og allt þar á milli — er lamaður. Skortur á vínnuafli á vissan þátt I þessu, en mikilvægasta atriðið eru launamál. Póstþjónusta er til dæmis ótrúlega silaleg. Bréf frá Aust- ur-Berlín til Dresden er fjóra daga á leiðinni. Sú skýring er gefin, að þar sem póstburðar- gjöld hafi ekki hækkað í 20 ár, þá séu ekki til nógir peningar til þess að hægt sé að hafa nógu margt strafsfólk. Fáir nýir póst- vagnar hafa bætzt við á síðasta áratug, þó að þeir gömlu hafi verið endurbættir. Eins og þjónustan er núna, þarf jafnvel að sækja pakka á pósthúsið. Þó það sé ekki viðurkennt, þarf að yfirborga alla óæðri þjónustu. Rithöfundur og kona hans sögðu mér, að þau borg- uðu húshjálp sinni fimm mörk á klukkutíma (nærri 1 sterl- ingspund). Launaskalinn, sem ríkið setur, er svo lágur, að það vill enginn vinna eftir honum. Bakarar, fisksalar og sótarar eru svo fáir, að þeir anna ekki eftirspurn. Þetta er staðreynd I Austur-Þýzkalandi í dag. Til þess að vekja sjálfstraust verkafólksins hafa verið teknir upp að nýju titlar og heiðurs- veitingar, með nokkuð góðum árangri. Kaup hefur einnig ver- ið hækkað svo mikið, að múr- aralæriingur hefur hærra kaup en venjulegur skólakennari. „Hve þetta er ólíkt því, sem ég hélt að það yrði... og hve miklu erfiðara en okkur óraði fyrir,1' sagði rithöfundurinn, sem er ákafur sósíalisti. Hann bætti við: „25 ár eru ekki nógu lang- ur tími. Við verðum að vera þolinmóð. Þrátt fyrir allt hefur sófalisminn hvergi reynzt betur en í Austur-Þýzkalandi." „EKKERT BYLTINGAR- KENNT“ „Vandamál okkar er, að hér er ekkert byltingarkennt,“ sagði 17 ára gamall nemandi, sem ég hóf samræður við, þegar við vorum að horfa yfir borgina úr hinum nýja, 365 metra háa sjónvarpsturni. „Ég sá nokkrar myndir á vestur-þýzka sjón- varpinu fyrir nokkrum vikum,“ sagði hann, ,,þar voru stúdent ar að slást við lögregluna í Frankfurt. Ég öfundaði þá. Við höfum ekkert lengur til að berj- ast fyrir. Hér eru allir sofandi. Og þar að auki hefur ríkis- stjórnin alltaf rétt fyrir sér.“ Þegar ég sagði rithöfindinum frá þessu samtali, þá var hann sammála. Lífið er alltof skipu- lagt fyrir börnin hans tvö. „Ég veit ekki hvernig sonur minn hefði hagað sér undir óörugg- um kringumstæðum, þar sem hann hefði fengið að velja sjálf- ur,“ játaði hann. „Enginn af hans kynslóð hefur neina reynslu af að takast á við óvænta atburði. Ég segi fyrir sjálfan mig, að ef ég væri ungl- ingur, þá gæti ég ekki sam- þykkt sósíalistiska kerfið. En börnin mín eru öðruvísi," sagði hann I örvæntingartón. Þó að Austur-Þjóðverjar gagnrýni kerfið, þá aðhyllast þeir ekki kapitalísku leiðina heldur. Meirihlutinn af 17 milljónum eru stoltir af nýja landinu sínu og þeim árangri, sem þar hefur náðst. Allmargir íbúanna sögðu, að þrátt fyrir allt væri Austur-Þýzkaland nú áttunda stærsta iðnríki heims. Það er algengt I þessari borg að heyra, að engin vandamál þrífist undir kerfinu. Stjórnin er traust. Það er enginn olíu- skortur. Verðbólga er enn ekki til í þessu sósfalistíska ríki. Glæpir eru mjög fátíðir. En þrátt fyrir allar aðgerðir til að hafa verkafólkið ánægt, flýðu 6,500 Austur-Þjóðverjar til Vestur-Þýzkalands sfðastliðið ár. • Svo Berlínarmúrinn mun standa enn um ófyrirsjáanlega framtíð. Austur-Þjóðverjarnir verja miklum tima í að horfa á vest- ur-þýzkt sjónvarp, með öllum þess auglýsingum. Vörunöfn og auglýsingaáróður vestursins eru þekkt á hverju heimili i Austur-Þýzkalandi, en vörurn- ar yfirleitt ófánanlegar. „Við erum ef til vill fátækari en hin- ir kapitalístísku bræður okk- ar,“ sagði leigubílstjóri bros- andi, „en ég held að við séum ánægðari. Allar lífsnauðsynjar okkar eru mjög ódýrar hér. Húsaleiga er líklega sú lægsta, sem til er í nokkru þróuðu iðn- aðarlandi heims. Aðeins mun- aðarvörur eru dýrar." Allir Austur-Berlínarbúar, sem ég talaði við, vildu fá að sjá meira af vestrinu. Yfirvöld hér segja, áð þrjár og hálf milljón Austur-Þjóðverja hafi heimsótt Vestur-Þýzkaland á síðastliðnu ári. En Bonn telur, að það hafi aðeins verið þriðjungur af þeirri tölu. „Eftir að hafa séð Frankfurt 1972 þá held ég, að ég vildi ekki búa þar,“ sagði sjúkraþjálfari frá Madgeburg. Hún hélt, að það væri ómögu- legt fyrir konu að vera ein á ferð að kvöldi til í Vestur-Þýzka landi. „Ég ,held, að tilfinning um bæði líkamlegt og fjárhags- legt óöryggi myndi hindra mig í að flytjast," sagði hún. Þegar minnzt var á heimsmál- in, komu fram undarlega barnaleg og sakleysisleg sjónar- mið. „Af hverju stöðva þeir ekki þessa hræðilegu verðbólgu í Bretlandi?" spurði sjúkra- þjálfarinn. Hún var sannfærð um að rikisstjórnin gæti slökkt verðbólgubálið með einu höggi. I Austur-Þýzkalandi hefði rikis- forum world features Eftir Yorick Blumenfeld stjórnin sannarlega getað það. Af heimildakvikmyndum sem hún hafði séð, trúði hún því virkilega, að ástandið I Bret- landi væri sambærilegt við ástandið í Þýzkalandi 1947—1948. Afstaða Austur-Berlfnarbúa til Watergate-málsins var jafn undarleg. Opinberlega hafa fjölmiðlar I Austur-Þýzkalandi ekki minnst á hneykslið. En ungi leiktjaldahönnuðurinn sagði, að hann gæti ekki trúað „öllu málæðinu I Rödd Ameríku útvarpsstöðinni um Nixón“. Með undrunarglámpa í augum sagði hann: „Ég hélt að hann væri opinber embættis- maður. Ef hann væri sekur, þá yæri hann búinn að segja af sýr, er það ekki?“ En þegar ég spurði vin minn, efnaverkfræðing, þá svaraði hann blátt áfram, að hvorki pólitísk vandamál Bretlands né Watergatemálið skiptu miklu máli. „Það eina, sem skiptir máli, er heimsfriðurinn. Núna, þegar allir stjórnmálamenn tala um frið, er ég áhyggjufull- ur: verður stríð milli Rússlands og Kína? Ég held ekki.“ Hann bætti við: „Afleiðingin yrði hörmuleg fyrir okkur öll.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.