Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNl 1974 31 Þorsteinn Antonsson; Turn í Babilon Rithöfundur er maður, sem sel- ur afnotarétt eignar, er hann býr sjálfur til; í öðru lagi áskilur hann sér rétt til að ákveða, hvern- ig sú smíð skuli vera, Hann er þvt framleiðandi og eftir að vera orð- inn félagsmaður í hagsmunasam- tökum rithöfunda til verndar fjárhagslegu mati rithöfunda á verkum sínum, kapítalisti. Sam- staða eigenda framleiðslutækja um hag sinn af þeim og að þau séu i einkaeign nefnist kapítal- ismi. Teljt höfundur, sem er fé- lagsmaður hinna nýstofnuðu hagsmunasamtaka nú að afstöðnu rithöfundaþingi, að kapítalismi eigi ekki rétt á sér, er sá kálhaus. Þinginu má líkja við, að leiguhaf- ar þungavinnuvéla kæmu saman til að ákveða sín í milli hækkun eða taxta yfir leigu þessara véla. Höfundur selur afnotarétt af verki sínu með útgáfu þess — ákveðinn fjöldi eintaka er prent- aður í eitt skipti og seldur; með flutningi þess i fjölmiðli; upp- færslu i leikhúsi; útláni ákveðins fjölda eintaka úr bókasafni. Sé framleiðsla svo kostnaðarsöm sem sú, er hér um ræðir. að verðleggja verður hana undir kostnaðar- verði, eða um fram markaðsgengi, hlýtur sú framleiðsla að leggjast niður, eða að beina verður til hennar fjármagni annars staðar frá, þótt þriðji kosturinn sé til i þessu tilviki, að tapa alltaf eru hinir miklu oftar teknir, sem von er, að hætta eöa reka framleiðsl- una á sérstökum fjárveitingum til hennar. Hið síðasttalda er gert í þessu tilviki og af nefndri ástæðu; hið opinbera kemur sem milligönguaðili til móts við rithöf- unda í kostnaði þeirra. Hér er því um forréttindaframleiðsluein- ingu að ræða. Málflutning, sem hafður er i frammi til stuðnings þessum forréttindum, getur höf- undur hiklaust tekið undir, þvi að hann hlýtur eins og aðrir fram- leiðendur að auglýsa vöru sina, ef hann vill leggja áherslu á sölu hennar. En þó ekki svo, að rök um þjóðarhag komi niöur á frumkröf- unni um frjálsræði hans við rit- störfin, vilji hann ekki koma sér i einokunaraðstöðu í nafni félags- skapar síns og vinna gegn „frelsi orðsins". Bændur hafa forrétt- indaaðstöðu i samanburði við aðra framleiðendur; vörur þeírra eru niðurgreiddar, enda nauðsyn i f.vrsta lagi sjálfar og í öðru lagi. að gæði þeirra séu sem mest. Það er ógerlegt að sýna fram á nauð- syn skáldskapar. A hinn bóginn liggur strax ljóst fyrir, að hann er ónauðsynlegur, þegar litið er á það, að fjöldi fólks lifir sæmilegu lífi án hans, í þ.m. án þess að skáldskapur skipti það nokkru máli. Talað er linnulítið um menningargildi skáldskapar og um list, en hvort tveggja er, sé ekki um hjal að ræða, starfsemi sem ætluð er til viðhalds og bygg- ingar gerviþarfar. Frá sjónarmiði manns, sem tekið hefur í arf manngildishugmyndír Popes og annarra heimsspekinga 18jándu og 19jándu aldar, er líf hversdags- mannsins e.t.v. ekki mannsæm- andi. en það verður svo auðveld- lega komist hjá því að uppfylla kröfur gömlu meistaranna, að nærri liggur að telja það lúxus að vera manneskja.. Sé það rétt — og svo er — er skáldskapur einnig lúxus. Hér er verið að leita eftir þegnrétti i heiini efnahagslegs raunsæis, og þvi hljóta þeir menn. sem beita f.vrir sig orðum eins og „gerviþörf" að nota annað tveggja það eða þetta, munaður, um skáldskap — a.m.k. sin í milli. Það er hæðilegt. Vitandi eða óvitað Ijúga allir að visu. En eftir þetta geta rithöf- undar ekki einu sinni reynt að segja satt nema í skáldskap sín- um. Nú kann einhver að segja sem svo, að ég fari með staðlausa stafi, því að skáldskapur sé, þegar á alll er litið, tilbúningur, hann sé ekki neitt og ekki sé hægt að kalla ekki neitt vöru; annaðhvort sé skáld- skapurinn vitnisburður um eitt- hvað, sem einhver maður var að hugsa í f'yrra eða hitteðfyrra, höf- undurinn, og hann að selja að- gang að hugsunum sínum, eða í skáldskapnum sé að finna upplýs- ingar, skoðanir og stefnumótun f félagslega veru, sem að visu séu bornar uppi af tilbúinni undir- stöðu, en undirstöðu, sem skipti engu veruiegu máli i samanburði við hitt. En sá, sem þannig hugs- ar, dregur rangar ályktanir. Það, sem úrslitum ræður um gildi skáldskapar, fellur utan við þessa upptalningu, það er einmitt til- veruleysi hans, einkar mannlegur áhrifavaldur, sem er hinn verð- lagsákvarðandi eiginleiki, „var- an". I veruleik þeim, sem við lif- um í og látlaust tekur yfirvarps- breytingum og grundvallaður er á mótsegjandi kenningum um, hvað séu staðreyndir hvað ímyndun er augljóst, að hið síðarnefnda leiðir til gerða, jafn vel byltinga, ekki síður en áþreifanleikinn eða skynsamleg hyggja. I hélugráum en með sama hætti tilvistarlaus- um kerfum finna menn rúm til- finningum sínum og ástríðum í popplögum, sem í sefmætti sínum eru ekki annað en sálfræðilegar og hljómfræðilegar staðre.vndir; þegar vinsældalistinn hefur viðað burt hráann, situr eftir eitthvað, sem ekki er, en er þó eitthvað mjög mikið samt. Og allir sjá, að popp er framleitt. Lagið vara. Inn i þennan sama veruleik koma rithöfundar nú í fyrsta sinn sameinaðir sem kröfuhafar. Skil- yrði, sem við setjum okkur sjálfir þar með, eru tvenn, í fvrsta lagi að tala sama mál og tíðkast i þess- um þjóðfélagsveruleik og i öðru lagi að viðurkenna hver f.vrir sig hina nýju stéttarlegu vitund, hverjar svo sem þær kenndir eru. sem næm skilningarvit vekja um þann veruleik. Málið er hagfræð- ínnar, já, borgaralegrar miðstétt- arhagfræði, svo lengi sem ekki fyrirfinnast önnur riik til réttlæt- ingar tjáningarfrelsi en hennar; vitundin kapítalismi: anker i tim- ann. Að lokum þetta. 1 hvert sinn, sem ég hef tekið við borgun fyrir ritsmfó, hef ég blygðast mín. Er ég. maður i hópnum, að taka viö borgun fyrir að gerast mál- svari sjálfs min? Mér hefur fund- ist, að með því væri ég að gangast inn á að tjáningin væri einskonar sýning á mér, einskonar sk.vndi- leg verðmætisaukning sjálfs mín. Eða hvers vegna skyldi ég hafa fjárhagslegan hag af þvi að láta í ljós skoðanir mínar, alveg öháð því, hverjar þær eru? Mér hefur þvert á móti fundist liggja beinna við, að ég borgaði með mér, líkt og auglýsendur t.d. gera, þegar þeir kaupa sér tíma eða rúm i fjöl- miðli. En svona er það samt: eitt- hvert afl leiðir til þess, að menn fá borgað fyrir að láta i sér hevra, þaðan sem nema má mál þeirra viða að. Og þegar ég var búinn að hugsa mig betur um, áttaði ég mig á, að tilefnið er hugsjón. sem fá okkar þekkja. færri skilja og flestir þeirra hafa gleymt. en er þó samrunnin og óaðskiljanleg sjálfsímynd Islendinga. Og hér er hún enn, nú i gervi hinna nýju kröfuhafa, sem eru annað tveggja málsvarar sjálfra sin eða leigu- byssur, nú, eftir að hroki hefur sundrað babilonarturni nítjándu- aldar bjartsýni og menn skilja ekki lengur hver annan nema á máli hagfræði. Skoðanir, sem þannig eru fram settar, hafa sjaldnast önnur áhrif en þau að vera höfundi til upphefðar likt og um mansal væri að ræða, í mesta lagi að menn sliti þær sundur og skipi niður i óræð kerfi sin. I heimi vélrænnar tjáningar hentar best að vera leigubvssa: maður, sem tjáir hugsanir annarra. sem þeir ekki vita af, svart fyrir svart- an, hvítt fyir hvítan. en er sjálfur. bak við vtri lögin. ósnortinn. óháður, eins og bandarískur stjórnmálamaður. eða hetja i sál- rænuin vestra. Eða kálhaus. Baldur Jónsson: I Miðjarðarhafsbotnum I lesendabréfi. sem birtist í dálkum Velvakanda 20. marz sl„ er spurzt fvrir um það, hver af fréttamönnum útvarpsins eigi heðurinn af orðinu Miðjarðar- hafsbotnar. Bréfritara þykir sým- lega lítið til koma og sp.vr enn fremur, hvort þess megi vænta, að „framvegis verði t.d. sagt frá olíu- borun á Atlantshafsbotnum og rannsóknum á Kyrrahafsbotn- um..“ Með þvi að ég get ekki með öllu skotið mér undan ábyrgðinni á því, að orðið Miðjaröarhafsbotnar hefir nú um skeið verið notað i fréttum útvarpsins, er ekki nema sanngjarnt, að ég geri einhverja grein fyrir því, úr því að það virðist geta boðið heim misskiln- ingi eftir ofangreindu bréfi að dæma. Eins og kunnugt er, hafa at- burðir „i löndunum fyrir botni Miðjararhafs" verið eitt helzta fréttaefnið undanfarna mánuði og þau orð, sem hér eru höfð innan tilvitnunarmerkja, orðin svo margtuggin, áð ekki er að undra, þótt fréttamenn yrðu fegn- ir’einhverri tilbreytni í orðavali. Því var það, að fréttastjóri út- varpsins, Margrét Indriðadóttir, færði það i tal við mig, hvort ekki mætti segja ,i Miðjarðarhafsbotn- um" í stað áðurgreindra orða, kvaðst ekki muna betur en Hail- dör Laxness hefði einhvern tím- ann komizt svo að orði á prenti. Hugmyndin var ekki sú að út- rýma gamla orðalaginu, enda hef- ir það ekki verið gert, heldur ein- ungis að hafa þetta með í tilbreyt- ingar skyni. Mér leizt undir eins vel á þessa hugmynd, en gaf mér þó góðan tíma til að íhuga málið og mælti ekki með henni fyrr en ég hafði fengið góðar undirtektir manna, sem mér eru málspakari. Af hálfu Fréttastofu útvarpsins hefir því ekki verið hrapað að neinu í þessu efni. Orðið botn er haft um enda á einhverju, hvort sem miðað er við lárétta stefnu eða lóðrétta. Orðin dal(s)botn og jarðarbotn eru því a.m.k. tviræð, þótt þau merki oft- ast nær innsta hluta dais eða fjarðar (lárétt horf). Svipað er að segja um orðið hafsbotn. Nú á dögum er það venjulega notað um sjávarbotn (lóðrétt horf), en í fornu máli var það haft um flóa eða innhöf, þ.e. hafsenda, lárétt séð. „Af hafinu gengr langr hafs- botn til landnorðrs, er heitir Svarfahaf", segir í fyrsta kapitula Yngiina sögu (i Heimskringlu). Önnur dæmi má finna i upphafs- kafla Landnámabókar, í Konungs- skuggsjá og viðar. Þessi gamla merking lifir enn í fleirtölunni hafsbotnar, og í orðasambandinu „löndin fyrir botni Miðjarðar- hafs" (eða „Miðjarðarhafsbotni") er botn sama og hafsbotn í fornri merkingu. Almennt mun gert ráð fyrir, að undir hafi sé aðeins einn botn, en flóar og firðir að sama skapi margir. Þegar talað er um hafs- botna (í fleirtölu), er því varla um annað að pæða en hafsenda (lárétt séð). Nú er algengt, að nöfn á fjörðum, víkum og vogum taki ekki aöeins til sjávarins, heldur einnig til landsins upp af honum. Héraðið fyrir botni E.vja- fjarðar heitir t.d. Eyjaf jörður. Bæir eru nefndir Grund í Evja- firði, Mööruvellir í Evjafirði o.s.frv, og skilur þó enginn svo, að þeir séu umflotnir sjó. Húsavík er bæði vík og kaupstaður við vík- ina, Kópavogur bæði vogur og kaupstaður við voginn. Enn fremur er alþekkt, að byggð við árós dragi nafn af ósnum, og er Blönduós gott dænn um það. Loks má minna á, að landsvæöi, þar sem lækir koma upp, er kallaö lækjarbotnar, og munu margir þekkja það orð sem örnefni skammt fyrir ofan Reykjavík. Nafnið Miðjarðarhafsbotnar er til komið á svipaðan hátt sem heiti á löndum. Hið eina. sem er frábrugðið ofangreindum dæm- um, er það, að í landaheitinu er botn í fleirtölu, en oftast í eintölu, þegar átt er við austurenda Mið- Þórshöfn í Færeyjum FÆREYINGAR eru bjartsýnir á möguleika þess, að olía finnist á færevska landgrunninu vegna fréttanna um, að Norðmenn og Bretar hafi fundið olfu I miklum mæli f grennd við Hjaltland. Um fimmtán erlend f.vrirtæki hafa sótt um le.vfi til þess aö leita að olíu við Færeyjar og sérstök færevsk nefnd, sem hefur verið skipuð, sendir landst jórninni jarðarhafs. Um þessa fleírtölu- notkun má að nokkru le.vti vísa til þess, sem áður er sagt, en að öðru levti skýrist hún af dæmum hér á eftir. Bein hliðstæða er Kirjáia- botn (um sjóinn) og Kirjálabotn- ar (um landið). Notkun orðsins Miðjarðarhafs- botnar í fréttum útvarpsins er ekki nýjung í íslenzku máli. Eins og fréttastjóra rak minni til. hefir Halldór Laxness notað þetta orð á prenti. m.a.s. hvað eftir annað. Ég hefi að vfsu ekki gert neina alls- herjarkönnun á þessu, en án telj- andi fyrirhafnar hefi ég ratað á fjögur dæmi úr ritum Halldórs. og hið fimmta er náskvlt. Elzta dæmið, sem ég kann að nefna, er úr Brekkukotsannáli frá 1957. Þar er talaö um „forna sér- vitrínga úr Miðjarðarhafsbotn- um" (bls. 25). I Skáldatíma 1963 er sagt frá hótelsmiðum í Khar- kov, sem „revndu að herma eftir stíl sem þeir imynduðu sér að væri ráðandi í Miðjarðarhafsbotn- um" (bls. 160). I ritgerðinni „Mannlif hér fvrir landnámstið" í Tímariti Mals og menningar 1965 er talað um „kristni Miðjarðar- hafsbotna" (bls. 131), og í ritgerð- inni „Nokkrir hnýsilegir staðir í fornkvæðum" í sama tímariti álitsgerð í sumar um þau skilvrði, sem setja skuli fvrir undirhún- ingsrannsóknum slíkra félaga. Ef þessar rannsóknir leiða í ljós, að grundvöllur er f.vrir frek- ari rannsóknum verður tekin af- staða til þess, hvernig veita eigi levfi til þeirra og reglur settar um skiptingu gróða af hugsanlegri olíuvinnslu við Fære.vjar milli Færevinga og fyrirtækjanna. Færeyska embættisinanna- 1970 er sagt. að Kaldear hafi fundið upp stjörnuspáfræði ,og kenndu hana í Miðjarðarhafs- botnum" (bls. 14). Loks má geta þess. að í ritgerð- arkorni. sem birtist undir fyrir- sögninni „Gitanjali á Islandi" í Timariti Máls og menningar 1961 kemst Halldór svo að orði (bls. 35). að guð sá. sem f.vrirhittist í einstaka sálmi úr bókmenntum Gyðinga. Biblíunni. sé kynjaður úr austurbotnuin Miðjaróarhafs. Þó að mér sé ekki kunnugt um Miðjarðarhafsbotna úr rituin ann- arra en Halldórs Laxness. er notk- un þessa orðs á allan hátt eðlileg, eins og útskýrt hefir verið. og ástæðulaust að lita á það sem sér- vizkuorð eins manns. Hver veit nema Heljarslóðarorrusta Grönd- als búi hér á bak við? Þar er sagt frá steingráum hesti. ættuðum norðan úr Grandvíkurbotnum. og kúnni góðu sem Djúnki hafi keypt austur i Kirjálabotnum. Af framansögðu ætti að vera ljóst. að við því er ekki að búast, að „framvegis verði t.d. sagt frá olíuborun á Atlantshafsbotnum", því að annaðhvort yrði að bora á Atlantshafsbotni eða í Atlants- hafsbotnum, ef þeir væru til. 29. marz 1974. nefndin hefur í starfi sínu staðið í allnánu sambandi við danska Grænlandsmálaráðuneytið. sem hefur nýlega lokið allmiklu starfi vegna rannsókna á möguieikum þess að finna megi oliu á Græn- landi. Formaður færeysku nefndarinnar er Johan Djurhuus skrifstofustjón. 1 nefndinni eiga saúi jarðfræðingar, skattasér- fræðingar og fleiri. — Jogvan Arge. Finnst olía við Færeyjar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.