Morgunblaðið - 01.06.1974, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.06.1974, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAKDAGUR 1. JUNÍ 1974 LISTAHATIÐ 1974 Dönsku leikkonuna Lone Hertz þekkja menn úr kvikmyndum. Hún er ein þriggja listamanna, sem flytja texta og tóna í Norræna húsinu á listahátfð. túlkandi nútimatónlistar i Dan- mörku og mjög vinsæll. F.vrir alla fjölsk.vlduna Frá Danmörku hefur bætzt inn á dagskrána danski leik- flokkurinn Banden, sem er nokkurs konar farandflokkur og sýnir í Norræna húsinu tvo leikþætti Sök og Sláðu mig ekki. Þessi hópur setur upp leikþætti, sem hægt er að fara með í skóla og víðar. Hann sýn- ir jafnt fyrir börn sem full- orðna og eru sýningar ókeypis. Er þarna atriði. sem gaman er að skreppa á með fjölskylduna, en sýningar eru laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. júní. Þjóðleg tónlist frá Noregi Astæða þótti til að hafa með á listahátíð þjóðlega tónlist og hana fengum við frá Noregi, sagði ' Maj Britt Menander. Ríkisútvarpið norska gaf okkur þá hugmynd að fá hjónin Knut og Hanne Kjersti frá Tuddal í Þelamörk, en þar stendur þjóð- leg tónlist föstum rótum. A dag- skránni, sem þau hjónin flytja í Norræna húsinu 18. júní, er bæði ljóðræn músik og dansa- tónlist. Hann leikur á harðangursfiðlu og hún kveður. Hún kveður m.a. Draumkvæðiö og þjóðkvæðið um Margit Hjuska, sem varð bergnumin og fer með barnavisur og kall- kvæði og í dagskránni eru bæði Hallingjadans o.fl. Knut Buen hefur unnið sam- keppnír þar sem beztu harð- angursfiðluleikarar Noregs áttust við. Ættmenni hans hafa lengi verið fremstu menn á þessu sviði, og hann er sem þeir einnig kunnur rósa- málari og hefur ræktað þann arf. Hanne Kjersti Buen stundaði nám í tónlist og málaralist áður en hún fluttist með manni sínum til Þelamerk- ur og lærði að kveða. Hún hefur unnið þar að söfnun þjóðlaga og þjóðhátta og haldið ásamt manni sínum tónleika 1 Noregi og Svíþjóð og komið fram í út- varpi og sjónvarpi. Hún vann titilinn Noregsmeistari í lands- keppni kvæðamanna 1972. Bassasöngvari og jazzhljómsveit Erá Finnlandi kemur Martti Talvela, bassasöngvarinn frægi, sem hér mun syngja i Háskólabíói við undirleik Vladimirs Ashkenazy lög eftir Schubert, lagaflokk eftir Brahms við texta úr bibiiunni, 5 lög eftir Finnann Yrjö Kilpin- in og lög eftir Rachmaninoff, en með þá dagskrá hefur hann farið í vetur um Evrópu og fengið stórkostlega dóma. Verð- ur hann kvnntur annars staðar nánar. Á siðustu stundu var ákveðið að finnski söngvarinn Lasse Martenson tæki þátt í Lista- hátíð í Reykjavík, en hann er kunnur hér frá þvi hann söng og lék með Lilla Teatern i Iðnó. Með honum verður kvartett Esko Linnavallis, sem er talin ein bezta og þekktasta jass- hljómsveit Finnlands og hefur m.a. oft komið fram í sjónvarpi. Esko Linnavllis leikur á pianó, saxófónleikarinn er einn þekktasti jasshljómsveitarmað- ur Finna, Eero Koivisoinin og semur tónlist við leikrit og kvikmyndir, og bassaleikari er Pekka Sarmanto, trumbu- leikari Esko Rosnell. Koivistoinen hefur hlotið verð- laun viða um heim og verið krýndur maður ársins tvisvar í Finnlandi. Lasse Martinson er fjölhæfur listamaður, söngvari, leikari, hljómsveitarstjóri, dægurlaga- söngvari og leikari góður. Hann kemur fram ásamt kvartett Esko Linnavallis í Hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð sunnudaginn 16. júni Úr sýningu á Vanja frænda, sem Dramaten flytur í Þjóðleikhúsinu. Þarna eru ýau Georg Arlin, sem leikur Serehrjakov og Margaretha Byström sem Sonja. Norrænt listafólk með Iétt og alvarlegt efni „húmóristisk'' Ekki leikið á grátmildan hátt, eins og venjan hefur verid um Tchekov. Enda hélt hann því fram sjálfur að þetta væri komedia. Eg sá þessa sýningu og hreifst verulega af henni. Um þetta ber öll gagnrýni í sænskum blöðum merki. Þar segir í fyrirsögnum Nýr Tchekov, Nýþveginn Techekov, Sprunginn grátklökkvi. Og leik- stjórinn Gunnel Lindblom og flokkurinn allur fær mikið lof. Upphaflega var ætlunin að fá Strlndbergsýningu i uppsetn- ingu Ingmars Bergmans, en hún var ekki tiltæk og mátti i staðinn velja um tvær klassisk- ar sýningar. En Vanja frændi þótti meira spennandi. ný túlk- un og meira í samhengi við það sem við þekkjum. Dramaten er eitt af leiðandi leikhúsum í ver- öldinni ídag og hefur umfangs- mikla starfsemi. bæði innan leikhúss og utan, hefur m.a. verið boðið í gestaleiki til Paris- ar, London og stokkhólms. Það er eitt af rótgrónustu leikhús- um í heimi, stofnað 1908. Lengi hefur veriö ætlunin að fá leik- flokk þaðan, en Sveinn vakti athygli okkar á þvi að 22 ár eru siðan við höfum fengið leik- flokka með sýningu frá öðru leikhúsi á Norðurlöndum. — Það er mikill ávinningur fyrir okkur að fá þessa sýningu nú, sagði hann. Við fáum of sjaldan tækifæri til að sjá það bézta sem gert er í veröldinni. Frægir leikarar leika í Vanja frænda. Erland Josepson, leik- hússtjórinn, sem við þekkjum af Bergmansýningum, verður fararstjóri og Margareta Byström, sem kom hér vegna Vestmannaeyjasöfnunarinnar, leikur Sonju, auk annarra kunnra leikara. Þrjár sýningar verða hér á Vanja frænda i Þjóðleikhúsinu og hefjast laugardaginn 8. júni. Norsku hjónin Knut og Hanne Kjersti Buen, sem flytja okkur norska þjóðlega list á þjóðhátíð. Létt dagskrá í texta og tónum Að vera til, heitir dagskráin, sem dönsku listamennirnir þrir fiytja í Norræna húsinu mið- vikudaginn 12. júní. Er það dagskrá í texta og tónum, og þar sem listamennirnir þrir vínna mikið saman er hún að nokkru blönduð á staðnum, en sum lögin eru samin fyrir lista- hátíð. Ein vinsælasta leikkona Dana, Bonna Söndberg, er ein þremenninganna. Hana þekkja menn m.a. af kvikmyndatjald- inu, en hún hefur lika starfað við Konunglega leikhúsið i Kaupmannahöfn. Hún les Ijóð og texta allt frá Oehlenslager og H.C. Andersen til Piet Hein og Stein Kalö. Bonna Söndberg er óperusöngkona, sem hefur hlotið mörg verðlaun og viður- kenningu og syngur í dag- skránni dönsk lög. En múskin er samantengd með tónlíst, sem tónskáldið og píanóleikarinn Torben Petersen hefur samið. Dagskráin verður létt og leik- andi og má nefna af frum- sömdu efni blues, sem jazz- hljómsveitarmaður ársíns í Danmörku Ole Kock Hansen samdi við texta Bodi Bechs og Bonna Söndberg ílytur. En Torben Petersen, sem lék undir með dönsku óperusöngkonun- um á norræria Vestmannaeyja- kvöldinu í apríl, er einn fremsti Norrænt listafólk kemur á listahátíð og flvtur okkur Iist sína. Eru þar margir góðir og sumir heimsfrægir listamenn frá hinum Norðurlöndunum fjórum með hæði aivarlegt og létt efni. Frá Svíþjóð kemur leikhúsið Dramaten og flvtur Vanja frænda í Þjóðleikhúsinu, frá Danmörku verður dagskrá Kjersti Buen frá Noregi með þjóðlega tónlist og flytja í Norr- æna húsinu. En þar verður eins og áður er getið vefjarsýning, þar sem sýnd verða teppi eftir listamenn frá ölium Norður- löndunum, þ.á m. Islandi. Norr- æna húsið hefur haft milli- göngu, enda sumt af þessu styrkt með norrænu fé eins og með texta og tónum í Norræna húsinu með þremur frægum leikurum Lonu Hertz, Bonna Söndberg og Torben Petersen, auk þess sem farandleikflokk- urinn Banden flvtur leikþætti. Frá Ftnnlandi kemur bassa- söngvarinn frægi Martti Tal- vela og efnir til tónleika í Há- skólabíói og finnsk jazzhijöm- sveit, kvartett Esko Linnavallis hefur nú óvænt bætzt í höp litahátíðargesta ásamt söngvar- anum Lasse Martensson. Loks koma hjónin Knut og Hanne heimsókn Dramaten. Maj Britt Menander skýrði frá hinum norrænu listaheimsóknum á blaðamannafundi. Nýþvegin Tchekov-sýning Sýning Dramaten á Vanja frænda eftir Anton Tchekov er einhver albezta Tchekov sýn- tng, sem ég hefi séð, sagði Sveinn Einarsson, þjóðleikhús- stjóri. Þetta er ákaflega fín sýn- ing, sem hreif mig. Þetta er alveg ný þýðíng og ný túlkun á leikritinu. iéttari og meira ÍJr leikþættinum Sök, sem finnskur leikflokkur flytur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.