Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.06.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JUNl 1974 — Hirðingjum hjálpað Framhald af bls. 14 voru orðin, sem hún sagði við okkur á hverjum degi. Við sett- um grautinn langt frá rúminu hennar, því að við vildum gefa henni matinn í skömmtum. En Elma vissi vel um grautar- pottinn, og hún kom sér fram úr rúminu, datt á gólfið, af því hvað hún var þróttlaus, en hélt áfram skríðandi og náði í graut- inn. Þegar við komum, var grautarpotturinn hreinsaður í botn. Hún kallaði mig Kalíttu. Ég gat ekki annað en brosað, þegar Marta sagði mér, hvað orðið þýddi. Höfðingi alls Bórana- þjóðflokksins heitir Kaíó, „konungur þjóðflokksins". Eiginkona Kalós heitir Kalítta, þ.e. drottning. Kalítta er mesta sæmdarheiti, sem Bóranakona getur fengið. 1 augum Elmu var útlendingurinn Kalitta. Hún hafði hlotið lífið aó nýju fyrir mína hjálp, og þar með fékk ég drottningarheitið. Það var hrífandi að sjá Elmu spenna magrar greipar til bænar. Daglega fékk hún að heyra Guðs orð, og hún tók við trúnni á Jesúm. Dag nokkurn fann ég látúnshringi bundna í knýti við rúmið hennar. „Þú átt að fá þetta. Ég á ekkert annað að gefa þér, kæra Kalítta," sagði hún. Mánuði síðar hélt hún gangandi heím aftur í tóma kofann sinn á steppunni. Á hverju skyldi hún lifa núna? Daglega koma karlar og konur víða að úr Bórana til þess að freista gæfunnar hjá okkur útlendingunum. Þeir bjóða varning sinn til sölu: Skinn, horn, strútsfjaðrir, tréskeiðar, kúabjöllur, einfalda ilskó, tré- kamba, gírafatagl og hvers konar hringi. Áður var engin leið að ná í slíka hluti. Þeir tilheyrðu búningi Bóranakonunnar. Nú eru hringir seldir í hundraða- tali. Það er neyðin, sem rekur fólk til þess að rjúfa forna hefó. Það tekur marga mánuði að búa til ,,gorfa“, mjólkurkrús Bóranamanna. Hún er gerð úr þunnum grasstráum. Aldrei fyrr hefur slík krukka verið söluvara í Bórana. Aftur á móti hafa Bóranamenn stundað vöruskiptaverzlun, og „gorfa“ varð að borga með kú. Einn daginn var móðir ein komin að sjúkravarðstofunni til þess að selja slíka krús. Hún bað um tíu dollara (400 krónur), en fékk miklu meira. Glöð og þakklát sneri hún aftur til kofans síns, 50 km leið. Ferð- in hafði heppnazt. Nú gat hún keypt mat og mettað svöng börnin sin. önnur móðir, sem einnig barðist hart fyrir lífi ástvina sinna, átti enga „gorfa" til að selja. En hún fór út á sléttuna og batt saman hrís i Bórana- rúm. Kveinstafir sjö hungraðra barna knúðu hana áfram. Hún var ekki alveg viss um, hvort útlendingurinn hafði þörf fyrir slíkt rúm, en þetta var síðasta úrræðið, og hún varð að reyna. Ég gleymi ekki þessari sjón, Bóranakonunni með rúmið á bakinu. Auðvitað keypti ég það! Konan fékk tvöfalt verð fyrir það. Við ætlum, að einungis hér í Bórana séu um 50 þúsund manns, sem þarfnist hjálpar nú þegar. Þetta er ábyrgðin, sem á okkur hvílir. Þetta er kallið, sem hljómar til okkar frá bróður og systur, sem þjást. (Benedikt Arnkelsson þýddi.) A KA ATV Tæknifræðingar Hafnamálastofnun ríkisins óskar að ráða tæknifræðing til starfa í mælingadeild. Kona óskast í sumarvinnu að barnaheimili Reykja- víkurdeildar Rauða kross íslands. Upplýs- inqar hiá forstöðukonu í síma 84143 eða 27596. Aðstoðarmaður Aðstoðarmaður óskast sem fyrst. Þarf að hafa bílpróf. Uppl. í bakaríinu Álfheimim 6, sími 36280. Stúlka Dugleg og reglusöm óskast til afgreiðslu- starfa í snyrtivöruverzlun í Miðbænum. Tilboð, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Morgunblaðinu fyrir 6. júní merkt: „Stundvís — 3408". Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar, Skúla- túni 1 óskar eftir bifvélavirkjum Uppl.hjá yfirverkstjóra, sími 1 8000. Vana skrifstofustúlku vantar við Heildverslun. Vélritun, enskar bréfaskriftir og almenn skrifstofustörf. Framtíðarvinna fyrir samviskusama stúlku. Tilboð merkt: 1 47 1, sendist Morgunblað- inu fyrir 8. júní 1974. Sölumaður óskast Stórt fyrirtæki óskar að ráða sem fyrst sölumann til sölu á snyrti- og hjúkrunar- vörum. Reynsla í sölustörfum og ensku- kunnátta nauðsynleg. Gott og lifandi starf fyrir áhugasaman mann. Umsóknir sem greini aldur, menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 555 Reykja- vík merkt: „sölumaður". Múrarar óskast strax til að múrhúða að innan tveggja hæða einbýlishús í Reykjavík. Uppl. í síma 8221 1. Egilsstaðir Atvinna Starfsfólk 1 6 ára og eldri óskast í létta vinnu í stuttan tíma í júli n.k. Vinnutími eftir samkomulagi, Upplýsingar í síma 1 208 síð- degis miðvikudaginn 5. júní. Auglýsingastofan Form óskar að ráða stúlku til aðstoðar á teiknistofu. AUGLÝSINGASTOFAN FORM, LAUGAVEGI 28, SfMI 12577. Karl eða kona með Samvinnuskóla, Verzlunarskóla eða hliðstæða menntun óskast til starfa á Skagaströnd. Uppl. í síma 4620 eða 4690 Skaga- strönd. Matvælatæknifræðingur óskar eftir starfi innan fiskiðnaðarins Lýkur 4 ára námi í matvælatækni í Noregi í n.k. júlímánuði. Hefur auk þess lokið nárrii við norskan fiskiðnskóla, starfaði áður 2—3 ár í hraðfrystihúsi á íslandi. Þeir, sem óska nánari upplýsinga, sendi nöfn sín í pósthólf 1052 í Reykjavík, fyrir 10. júní Merkt: „Pósthólf 1052. Mat- vælatæknifræðingur". Skrifstofustarf Traust fyrirtæki óskar að ráða karlmann eða kvenmann til starfa á skrifstofu. Starfið er aðallega við verðreíkninga og tollskýrslugerð. Æskilegt er að umsækjandi hafi einhverja þjálfun í skrifstofustörfum. Umsókn með upplýsingum um aldur, menntun og starfsreynslu sendist afgr. Mbl. fyrir 5. júní n.k. merkt: „Framtíð — 3409". Skrifstofustúlka vön vélritun og með skíra rithönd óskast. Umsóknir merktar: „Skrifstofustarf — 1 065" sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 5. júní. Iðnskólinn í Reykjavík Staða bókavarðar við bókasafn skólans er laus til umsóknar. Upplýsingar í skólanum. Skó/astjóri Málarameistarar Tilboð óskast í að mála að utan fiskiðjuver Bæjarútgerðar Reykjavíkur, við Granda- garð. Nánari upplýsingar um verkið gefur verkstjóri. Bjarútgerð Reykjavíkur. Stýrmann háseta og matsvein vantar á Árna Kristjánsson B.A. 100. Siglt verður með aflann. Upplýsingar í L.Í.Ú. og 94-21 64. Meinatæknir óskast að Reykjalundi í tvo mánuði frá 1. júní. Upplýsingar gefur meinatæknir staðarins, Steinunn Theódórsdóttir, sími 66200, heimssími 661 53. Vinnuheimi/ið að Reykjaiundi. Sveitarstjóri óskast Stykkishólmshreppur óskar að ráða sveitarstjóra, helst tæknifræðing eða verkfræðing. Umsóknir ásamt uppl. um aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu Stykkishólmshrepps fyrir 10. júní n.k. Allar nánari uppl. um starfið eru veittar í síma 93-8136. Hreppsnefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.