Morgunblaðið - 13.06.1974, Side 1
32 SIÐUR
97. tbl. 61. árg. FIMMTUDAGUR 13. JUNl 1974 Prentsmiðja Morgynblaðsins.
Hötui Kissingers ým-
ist hörmuð eða fordæmd
Víða tjón í Borgarfirði
Fólk flúði sums staðar bæi
I GÆR urðu tveir mjög snarpir jarðskjálftar, sem áttu
upptök sín í Síðufjalli í Borgarfirði, á um 10 km dýpi.
Mældist sá fyrri 5,4 stig á Richterkvarða og sá seinni 6,3
stig. Er hann með öflugustu skjáiftum sem hér hafa
mælzt. Skjálftanna varð vart mjög víða um land, og í
nágrenni við upptök skjáiftanna, í uppsveitum Borgar-
fjarðar, varð víða tjón, og sums staðar hefur fólk flúið
bæi. Samfelld hrina smákippa var f allt gærkvöldi á
þessum stöðum.
Blaðamaður og Ijðsmyndari
IVIbl. voru á ferð í Þverárhlíð og
Hvftarsfðu f gærkvöldi. Sögðu
þeir að tjón hefði vfða orðið, en
þö ekki eins mikið og óttazt var f
fyrstu. Mjög vfða köstuðust
munir fram úr hillum og sprung-
ur komu f veggi. Stafn fór alveg f
gömlu íbúðarhúsi í Þverárhlíð, en
bærinn þar fór f eyði fyrir 3—4
árum.
Fólk er mjög óttaslegið af eðli- -
legum ástæðum, og á mörgum
stöðum þora menn ekki að sofa í
fbúðarhúsum af ótta við frekari
jarðskjálfta. Til dæmis fór fólk
úr Norðtungu niður að Munaðar-
nesi, og ætlaði að gista þar f nótt,
alls 7 manns. Þá flúði fólk úr
íbúðarhúsum að Kvíum, og ætlaði
það í nótt að sofa f gömlum kofa
við hliðina á fjósinu. Sem dæmi
um kraftinn f skjálftanum má
nefna, að kýr féllu á hliðina bæði
á básum og f högum úti. Sverrir
Markússon dýralæknir sem var á
ferð á bfl sfnum, hélt að sprungið
væri á bílnum, þvf hann lét svo
illa á veginum. Þegar hann kom
út sá hann ekkert athugavert, og
brá þvf óneitanlega í brún.
Að Norðtungu höfðu orðið tölu-
verðar skemmdir á nýju og full-
komnu fjósi, sem byggt var 1972.
Þar höfðu veggir sprungið og
gliðnað, svo óvfst er hvort hægt er
að gera við það. Tveggja tonna
mjólkurtankur í fjósinu fór af
stað í látunum. Almennt munu
menn þó ekki vera búnir að átta
sig á skemmdunum, en þær eru
almennt ekki taldar eins miklar
og óttazt var í fyrstu.
Engin meiðsli urðu á mönnum f
þessum hamförum. og f aðeins
einu tilfelli þurfti að kalla á
lækni. Ung stúlka fékk tauga-
áfall, og var hún flutt til læknis.
Að Helgavatni hvarf gjörsamlega
heitavatnshver sem þar hefur
verið um langan aldur, og sömu
sögu er að segja frá Kvígum.
Skriður hafa hlaupið úr Síðufjalli
á mörgum stöðum. Fólk f Þverár-
hlíð og Hvftársfðu óttast mjög, að
Framhald á bls. 18
ísland vann
í SJÖTTU umferð Ólympiuskák-
mótsins i Nissa sigraði islenzka
sveitin Trinidad 2V4:1W. Vestur-
Þjóðverjar eru efstir í 5. riðli
eftir 5 umferðir, næst kemur
sveit Suður-Afríku og þá Portú-
gal.
„Allah blessi
Nixon
ráðherrann hafði sjálfur lagt
drög að.
0 Stjórnmálamenn tóku margir í
svipaðan streng. í þinginu skipt-
ust menn á að lýsa yfir trausti á
Kissinger og harma yfirlýsingar
hans á þessum tíma. Barrv (iold-
water öldungadeildarþingmaður
Framhald á bls. 18
Kairó 12. júni AP—NTB
„ALLAH blessi Nixon“, —
„Nixon friðarvinur". Hundruð
þúsunda Kairóbúa báru skilti
með þvílfkum áletrunum og
hrópaði: „Nixon, Nixon, Sadat,
Sadat“ við komu Richard Nixons
Bandarfkjaforseta til Egypta-
lands í dag. Kairo er fyrsti við-
komustaðar hans f ferðinni um
fimm Miðausturlönd. Viðtiikur
þær sem Nixon fékk hjá almenn-
ingi og fjölmiðlum voru svo stór-
kostlegar, að f Kairó var talið að
enginn erlendur þjóðhöfðingi
hefði hlotið slfkar móttökur í
Egyptalandi. Embættismenn
sögðu fréttamönnum, að slfkur
mannfjöldi hefði ekki sést f Kairó
sfðan útför Nassers forseta var
gerð árið 1970. Anwar Sadat for-
seti og öll ríkisstjórn hans tók á
móti Bandarfkjaforseta á flug-
vellinum.
„Þetta er mikill dagur fyrir
lönd okkar bæði", sagði Nixon á
flugvellinum. Og Sadat svaraði:
Það voru kátir forsetar sem fóru
af flugvellinum í Kairó í gær.
„Þetta er mikill dagur fyrir okk-
ur. Ég er glaður að þér skulið
hafa komið. I ávörpum sem þeir
fluttu síðar, sögðu forsetarnir að
heimsókn Nixons kæmi sambandi
landa þeirra á traustan grundvöll,
eftir margra ára togstreitu. Eins
og til þess að sýna Nixon stuðning
vegna erfiðleika hans heima
fyrir, sagði Sadat, að það væri
mikilvægt að hann héldi áfram
starfi sínu sem forseti.
Nixon lagði i ávarpi sínu
áherzlu á varanlegan frið og efna-
hagslega uppbyggingu í Egypta-
landi, og hét stuðningi Banda-
ríkjamanna í þeim efnum.
Myndirnar eru allar teknar f Norðtungu f gær. A þeirri efstu er heimilisfólkið; nokkru eftir að hún var
tekin voru börnin flutt að Munaðarnesi. A myndinni til vinstri bendir Magnús bóndi í Norðtungu á
f jósvegg sem gliðnaði f skjálftanum. Myndin til hægri sýnir hvernig umhorfs var þarna á bænum eftir
að bækur tóku flugið fram á gólfið. — Ljósm. Br.H.
Washington 12. júní AP—NTB.
• VIDBRÖGÐ bandarískra fjöl-
tniðla við hinni óvæntu hótun
Henry Kissingers um, að segja af
sér vegna ásakana um að hann
hafi f.vrirskipað símhleranir,
voru ekki á einn veg, en flestir
lýstu furðu sinni yfir þessari
hegðun utanrfkisráðherrans. Því
var haldið fram að hann hlyti að
hafa ofreynt sig í friðarsamn-
ingunum undanfarnar vikur, eða
væri farinn að taka sjáifan sig of
hátiðlega og tæki persónulega
stöðu sína fram yfir þjóðarhag.
Einkum er Kissinger gagnrýndur
fyrir að velja þennan tíma til
slíkrar yfirlýsingar, þ.e. rétt f.vrir
mikilvæga ferð Nixons forseta til
Miðausturlanda. sem utanríkis-
Þarf 2—3
hafréttar-
ráðstefnur
í viðbót?
□ -----------------a
Sjá einnig bls. 15
□ -----------------□
Sameinuðu þjóðunum
12. júní -AP.
HAFRÉTTARFRÆÐINGAR
vfðs vegar að úr heiminum
flvkkjast nú á Alþjóðahaf-
réttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna sem hefst f Caracas í
Venezuela 20. þessa mánaðar.
Er búizt við að ráðstefnan verði
fjölmennasti alþjóðlegi fund-
ur, sem haldinn hefur verið
fyrr og sfðar. Eru um 5000 full-
trúar, alira rfkja heims nema
Norður-Víetnam og Taiwan,
saman komnir f þvf augnamiði
að komast að samningum um
nýja sáttmála um landhelgi,
siglingarétt, fiskveiðar, boranir
og vinnslu efna úr hafsbotnin-
um, og mengun sjávarins. Þjóð-
ernissinnastjórninni á Taiwan
var ekki boðin þátttaka. en
Norður-Víetnamar neituðu að
koma vegna þess að Viet Cong
hafði ekki verið boðið líka.
□ Þess er vænzt að fyrsta vik-
an af tíu muni fara í að koma á
málamiðlunarsatnkomulagi
milli siglinga- og fiskveiði-
þjóða og iðnaðarveldanna ann-
ars vegar og annarra ríkja hins
Framhald á bls. 18
Með öflugustu skjálft-
um sem hér hafa mælzt