Morgunblaðið - 13.06.1974, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FI'MMTUDAGUR 13. JUNÍ 1974
íslandsmótið I. deild
í kvöld kl. 20. leika
á Laugardalsvelli
• Æ
Fram — I. A.
Knattspyrnudeild FRAM
Framboðsfundir
í Norðurlandskjördæmi vestra
Framboðsfundir í Norðurlandskjördæmi vestra
vegna alþingiskosninganna 30. júní n.k. verða
sem hér segir:
Siglufjörður,
Þriðjudaginn 1 8. júní kl. 8.30
Sauðárkrókur,
miðvikudaginn 1 9. júní kl. 8.30
Blönduósi,
fimmtudaginn 20. júní kl. 8.30
Hvammstanga,
föstudaginn 2 1. júní kl. 8.30 og
Skagaströnd
laugardaginn 22. júní kl. 3.00
Frambjóðendur
GEÐVERND
— happdrætti '74
VINNINGASKRÁ
nr.
1) DATSUN „Cherry" 43319
2) DATSUN „Cherry” 45914
3) Píanó 1 8549
4) Hi Fi — Stereo-samstæða 26384
5) Uppþvottavél 9746
Sími 1 21 39,-----Hafnarstræti 5, 2. hæð.
Vinningshöfum ber að tala við Ásgeir
Bjarnason.
— Þökkum þáttöku yðar.
GEÐVERND — happdrættið.
Geðverndarfélag íslands.
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
Blaðburðarfólk óskast.
Arnarnes og Flatir.
Ólafsvfk
Vantar umboðsmann strax
Uppl. á afgreiðslunni í síma
10100.
Hvammstangi
Umboðsmaður óskast
strax. Upplýsingar hjá
Karli Sigurgeirssyni í síma
1 350 og hjá afgreiðslunni
í síma 1 01 00.
Innri-Njarðvík
Umboðsmaður óskast til að
annast dreifingu og inn-
heimtu fyrir Mbl. Uppl. hjá
umboðsmanni. Sími 6057
og hjá afgreiðslumanni í
Reykjavík. Sími 10100.
Þórður Hilmarsson skorar úr vítaspyrnunni.
ÁRMENNINGAR HAFA EKKI
ENN UNNIÐ LEIK f SUMAR
ARMENNINGAR töpudu öllum
leikjum sínum í Reykjavfkur-
mótinu í knattspyrnu og byrjunin
á íslandsmótinu er einnig mjög
léleg. Lióið hefur nú leikió fjóra
leiki og tapaði þeim öllum. I
fyrrakvöld mættu Armenningar
Þrótturum á velli Armanns við
Sigtún og úrslitin urðu 4:2
Þrótturum 1 vil.
I þessum leik léku Ármenn-
ingar nokkuð vel i einar 60 mín-
útur, en þá var úthaldið líka búið
og Þróttarar breyttu stöðunni úr
1:2 í 4:2. Byrjun ieiksins var ekki
umtalsverð, liðin skiptust á um að
sækja, fengu nokkrum sinnum
sæmilegustu marktækifæri, sem
jafn oft var klúðrað. Þegar stutt
var eftir af fyrri hálfleiknum
skoraði Sigurður Leifsson fyrir
Ármann, en Þórður Hilmarsson
jafnaði skömmu síðar úr víta-
spyrnu, sem dæmd var á Halldór,
en hann varði skot Jóhannesar á
marklínu.
Í upphafi s.h. kom Sigurður
Ármanni aftur yfir, en síðan ekki
söguna meir. Þegar um 15 mín-
útur voru af seinni hálfleiknum
höfðu Þróttarar tekið öll völd á
vellinum. Skoruðu þeir þrjú mörk
á stuttum tíma, fyrst Aðalsteinn,
þá Þorgeir og loks Jóhann. Komu
öll þessi mörk eftir mistök í vörn
Ármanns eða hjá markverði.
Bezti maður Armanns í þessum
leik var Jens Jensson, en Sig-
urður Leifsson átti einnig góða
spretti. Gömlu mennirnir Halldór
Bragason og Gunnar Ingvason
voru sterkastir Þróttara ásamt
framherjunum.
áij.
FH kærir
Haukana
FH-INGAR og Haukar gerðu jafn-
tefli í f.vrri leik liðanna í 2. deild
islandsmótsins, sem fram fór á
mánudaginn. Hafa FH-ingar nú
ákveðið að kæra þennan leik, þar
sem þeir telja, að Haukarnir hafi
verið með ólöglegt lið 1 leiknum.
Þeir hafi notað 6 pilta, sem eru á
fyrsta og öðru ári í 2. flokki, en
I ekki mun vera leyfilegt að nota
nema 4.
Þakkarávarp
Innilegar þakkir til allra þeirra
skyldra- og vandalausra, fjær og
nær, sem sýndu mér vinarhug
með heimsóknum, gjöfum og
skeytum og gjörðu mér 80 ára
afmælisdaginn ógleymanlegan.
Sigur/ón Jónsson
Syðra-Langholti
Skrifstofu-
húsnæði
í M iðborginni
Til leigu fljótlega eru 4 skrif-
stofuherbergi.
Þeir sem hafa áhuga vinsam-
legast sendi umsóknir til skrif-
stofu blaðsins merkt Skrifstofa
— 1103 fyrir 1 9. þ.m.
Skagfirska
söngsveitin
Heldur miðnæturhljómleika fyrir styrktarfélaga
sína fimmtudaginn 1 3. þ.m. kl. 1 1.30 í Austur-
bæjarbíói söngstjóri, Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir
undirleikari Olafur Vignir Albertsson
einsöngvari Guðrún Tómasdóttir og Margrét
Matthíasdóttir.
Lausir miðar seldir við innganginn.
Skagfirska söngsveitin.
Stööur
2ja fulltrúa í fjölskyldudeild
stofnunarinnar eru lausartil umsóknar.
Umsækjendur með próf í félagsráðgjöf ganga fyrir. Laun samkvæmt
kjarasamningi við starfsmannafélag Reykjavikurborgar.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf þurfa að
berast fyrir 3. júli n.k.
____________________________________________X
Sff! Felagsmálástofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 sími 25500
**» •*<!
i|f
Leikfélag
Hafnarfjarðar
Frumsýnir í Bæjarbíó í Hafnarfirði
Leikritið:
Leifur Lilla Brúður og Blómi.
Föstudaginn 14. júní kl. 20.30. önnur sýning
laugardaginn 1 5. júní kl. 20.30.
Athugið aðeins þessar tvær sýningar í Hafnar-
firði í sumar. Miðasala í Bæjarbíó fimmtudag
frá kl. 16 —19 og föstudag og laugardag frá
16 — 20.30.
Góður árang-
ur IR-inga
JULÍUS Hjörleifsson, ÍR, náði
bezta tima isiendings í 800 metra
hlaupi í ár á móti, sem hann
keppti í í Vesterás í Svíþjóð um
helgina. Hijóp hann á 1:55,8 mín.
Varð Júlíus þriðji i hlaupinu. Í
fimmta sæti varð Gunnar Páll
Jóakimsson, ÍR, sem náði þarna
sínum bezta árangri, hljóp á
1:58,5 mín. Á sama móti keppti
Óskar Jakobsson, ÍR, i spjótkasti
og kastaði 59,88 metra.
Fyrsta stúlknaliðið
hingað í heimsókn
I LOK þessa mánaðar er væntan-
legur hingað til lands stór hópur
skozkra unglinga. Er þetta knatt-
spyrnufólk frá ýmsum félögum í
Skotlandi, sem hingað kemur í
boði FH, Stjörnunnar, Þróttar og
Ármanns. i þessum hópi er m.a.
stúlknaiið frá St. Rocks og koma
stúlkurnar hingaö í boói FH, er
þetta fyrsta heimsokn erlends
kvennaknattspyrnuliðs hingað til
lands.