Morgunblaðið - 13.06.1974, Side 32
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1974
JHor0í>nblat>ifo
nucivsmcnR
|^-*22480
KIR RIIKR
uiesKiPTm SEm
nUCLVSR I
JHðrgiittiblatiitm
Hrun gjaldeyrisvarasjóðsins:
Aðeins 2900 milljónir
— 4 vikna innfhitningur
Gjaldeyrisvarasjóður Is-
lendinga hefur beinlínis
hrunið frá því um áramót.
svo hratt hefur gengið á
hann. I maílok var hann
kominn niður í 2900 millj.
kr., sem er innan við 4
vikna innflutningur, en
innflutningur landsmanna
nam í aprílmánuði einum
nokkuð yfir 3000 millj. kr.
Um síðustu áramót nam
gjaldeyrisvarasjóðurinn
tæplega 6800 millj. kr. og
hefur því minnkað um tæp-
lega 4000 millj. á fyrstu 5
Hækkar
kaffi?
SAMKVÆMT þeim upp-
lýsingum sem Mbl. hef-
ur aflað sér, mun verð-
lagsnefnd hafa ákveðió
verðhækkun á kaffi á
fundi sínum í gær-
morgun. Vegna verð-
stöðvunar í landinu þarf
hækkunin staðfestingu
ríkisstjórnarinnar, og
þess vegna var ekki
hægt að afla upplýsinga
um það í gær, hve hækk-
unin verður mikil, ef
hún hlýtur staðfestingu.
Nú eru rúmar tvær vikur
liðnar síðan flestar kaffi-
brennslurnar hættu fram-
leiðslu. Þær telja sig ekki geta
selt kaffi á því verði sem heim-
ilað er. Síðast var leyfð hækk-
un á kaffi 19. júlí 1973. Kaffi-
þurrð hefur þegar gert vart við
sig i verzlunum.
Hannes
Jónsson
sendiherra
í Moskvu!
Olafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra og Ginar Ágústsson
utanrikisráðherra hafa tekið þá
einstæðu ákvörðun, að skipa
Hannes Jónsson, biaðafulltrúa
rfkisstjórnarinnar, sendiherra
íslands f Moskvu, og til þess að
koma þvf fram hefur dr. Oddi
Guðjónssyni, sem gegnt hefur
sendiherraembætti f Moskvu
frá árinu 1968 verið skipað að
koma heim. Á hann að verða
ráðunautur ríkisstjórnarinnar í
viðskiptamálum.
Hannes Jónsson hefur verið
blaðafulltrúi vinstri stjórn-
arinnar frá þvf að hún tók við
völdum f júlímánuði 1971 og
mánuðum yfirstandandi
árs.
Þegar vinstri stjórnin
komst að, tók hún við gjald-
eyrisvarasjóði, sem nægði
til þess að standa undir
þriggja og hálfs mánaðar
innflutningi. I lok apríl-
mánaðar sl. hafði gjald-
eyrisvarasjóðurinn minnk-
að svo mjög, að hann nam
tæplega tveggja mánaða
innflutningi, og í maílok
hafði svo mjög gengið á
sjóðinn, að hann nam
innan við fjögurra vikna
innflutningi.
Gott verð
á síld í
Danmörku
ÞRJÚ íslenzk sildveiðiskip seldu
afla í Hirtshalds í gær og fengu
yfirleitt ágætis verð fyrir aflann.
Hilmir SU seldi 54,8 lestir fyrir
1,8 millj. kr. Meðalverð kr. 34.57.
Þorsteinn RE seldi 76,4 lestir
fyrir 2,6 millj. kr. Meðalverð kr.
34,85 og Sveinn Sveinbjörnsson
NK seldi 34,7 lestir fyrir 1,2 millj.
kr. Meðalverð er kr. 35,09.
Sinfóníuhljómsveit Lundúna hélt í Laugardalshöll
fyrri hljómleika sína undir stjórn André Previns á
þriðjudagskvöld. Einleikari var Vladimir
Ashkenazy. Húsið var alveg fullskipað, upp undir
4000 manns. Fögnuðu áheyrendur hljómsveitar-
stjóra, einleikara og hljómsveitinni geysilega vel
og lengi. Ljósm. Sv. Þorm.
Framkvæmdasjóð
ar 1000 milljónír
FYRIRHUHAÐAR lánveitingar
Framkvæmdasjóðs islands til
ýmissa fjárfestingarsjóða hafa nú
Hannes Jónsson.
hafa ýmsar tiltektir hans f því
embætti vakið athygli, svo ekki
sé meira sagt, eins og fram hef-
ur komið hér í hlaðinu. Þegar
blaðafulltrúinn tók við núver-
andi starfi sfnu, hafði hann
gegnt ýmsum störfum f utan-
ríkisráðuneytinu og utanríkis-
þjónustunni frá árinu 1954, en
fyrir þann tíma hafði hann ver-
ið erindreki Framsóknar-
flokksins. Hannes Jónsson var
verið skornar niður um 25%. Ætl-
að hafði verið, að Framkvæmda-
sjóður veitti til stofnlánasjóða
sendiráðsritari f Bonn og
London og sfðar sendiráðunaut-
ur í Moskvu og varafastafull-
trúi tslands hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Fullyrt er, að þessi embættis-
veiting hafi verið mjög
umdeild innan Framsóknar-
flokksins og að Einar Ágústs-
son utanrfkisráðherra hafi
verið skipun hans and-
vígur, en orðið að veita
blaðafulltrúanum sendiherra-
embættið vegna mjög eindreg-
innar kröfu Ólafs Jóhannes-
sonar, enda er blaðafulltrúinn
sérstakur skjólstæðingur hans.
Þegar Hannes Jónsson tók við
blaðafulltrúastarfi sfnu var
hann titlaður blaðafulltrúi
ríkisstjórnarinnar, en er hann
hafði gegnt því starfi um nokk-
urra mánaða skeið, tók utan-
rfkisráðherra ákvörðun um að
skipa sérstakan blaðafulltrúa
utanrfkisráðuneytisins og
bendir það til þess, að hann
hafi ekki haft áhuga á þjónustu
Hannesar Jónssonar.
tæplega 2600 millj. kr., en þessi
upphæð hefur nú verið lækkuð f
um 1940 millj. kr. Þrátt fyrir
þennan niðurskurð skortir Fram-
kvæmdasjóð enn, a.m.k. 1000
millj. kr. til þess að standa undir
þessum skertu lánveitingum, og
fyrirhuguð fjáröflun frá innlend-
um bönkum að upphæð 536 millj.
kr. verður að teljast óviss með
hliðsjón af þvf, að viðskiptabank-
arnir eru nú með þúsundir millj.
kr í yfirdráttarskuld við Seðla-
bankann, sem þeir verða að borga
sérstaka refsivexti af.
Þótt einungis sé miðað við, að
fjárskortur Framkvæmdasjóðs
nemi um 1000 millj. kr., er nú
ljóst, að þrjá sjóði, Byggingarsjóð
rikisins, Vegasjóð og Fram-
kvæmdasjóð skortir samtals 4400
millj. kr. til þess að standa undir
fyrirhugaðri starfrækslu á þessu
ári.
Þar sem Framkvæmdasjóður
ríkisins á að lána verulegt fjár-
magn til hinna ýmsu fjárfest-
ingarsjóða er ljóst, að fjárskortur
hans getur haft hinar alvarleg-
ustu afleiðingar fyrir starfsemi
fjárfestingarsjóðanna og þar með
þeirra atvinnugreina, sem þeir
eiga lögum samkvæmt að lána til,
og sem dæmi um það má nefna, að
vant-
— þrátt fyrir
25% niðurskurð
upphaflega var Framkvæmda-
sjóði ætlað að lána 1250 millj. kr.
á þessu ári til Fiskveiðasjóðs.
ÓVISSA UM FJÁRÖFLUN
Af þeim 1943 millj., sem Fram-
kvæmdasjóði er ætlað að leggja til
fjarfestingarsjóða má telja, að
hann hafi einungis vissu fyrir 354
milljónum. Ráðstöfunarfé sjóðs-
ins í ár er talið 154 millj. og víst
er, að hann fær lán frá Við-
reisnarsjóði Evrópuráðsins að
upphæð 200 millj. Þá var hug-
myndin, að sjóðurinn fengi 236
millj. frá innlendum bönkum,
sem eru eftirstöðvar lánveitinga
til hans frá þeim frá árinu 1973 og
ennfremur hafði sjóðurinn hugs-
að sér að taka lán að upphæó 300
millj. kr. til viðbótar frá innlend-
um bönkum í ár, eða samtals 536
millj. út úr bankakerfinu á þessu
ári. Sem fyrr segir er staða við-
skiptabankanna nú mjög erfið og
þeir eru komnir í þúsundir
milljóna króna yfirdrátt hjá
Seðlabanka með refsivöxtum, og
verður því að telja, að þessi fjár-
öflun sé hæpin i meira lagi. Eh
jafnvel þótt hún fáist, standa eftir
um 1000 milljónir, sem Fram-
kvæmdasjóð skortir og er fyrir-
Framhald á bls. 18