Morgunblaðið - 30.06.1974, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 30.06.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JUNl 1974 3 . •• * - • . ■ ..... .... p m n ji úr verinu I EFTIR EINAR SIGURÐSSON Tfðarfarið Tíðin var einstaklega mild og veður stillt síðustu viku, oft rjómalogn og dauður sjór, svo að sjómenn töluðu um, að veðurblíð- an væri of mikil til þess að fiskur gæfi sig til: Aflabrögð Greinilega hefur dregið úr aflanum hjá togbátum sfðasta hálfan mánuð. Bendir eindreg- ið til þess, að miðin hreinlega þoli ekki þá miklu örtröð, sem á þeim er. Þannig var það til að mynda um síðustu helgi. Þegar helgarfrí var hjá Eyja- bátum, þá glæddist strax hjá „aðkomubátum austur á Vík“, en svo sótti strax í sama horfið, þegar allir voru komnir þangað. Lágu þá bátar kannski á afla, sem var ekki nema 2 Iestir yfir sólar- hringinn og þykir hreint ekki neitt. Einstaka togbátar voru þá eins og vant er að koma með góðan afla, en frekar var það þó um siðustu helgi en síðar í vikunni. Þannig fengu Eyjabátarnir Álsey 35 lestir og Surtsey 25 lestir, Þor- lákshafnarbáturinn Lárus Sveins- son 35 lestir, Sandgerðisbáturinn Arnarborg 27 lestir og Grinda- víkurbátar 20—25 lestir, allt austan úr bugtum. Algengastur afli hjá togbátum var þó 10—15 lestir og þaðan af minna. Handfærabátar hafa verið að reita þó svolítið og alveg sæmilegt hjá trillunum. Þannig komu Gunnar Hámundarson og Manni til Keflavfkur með 12 lestir hvor, Sjóli kom inn til Reykjavíkur með 22 lestir eftir 5 daga, Haraldur til Akraness með 18 lestir og tveir 11 lesta bátar komu inn til Sand- gerðis með um 10 lestir hvor og voru 3 á. Trillurnar, sem komu til Reykjavfkur, voru að fá allt upp í 5— 6 lestir, voru 3 og 3 á 2—3 daga úti. Einn bátur rær enn með net frá Sandgerði og vitjar um annan hvern dag og hefur verið að fá 6— 7 lestir í róðri. Mönnum þykir humarinn treg- ur, þó hafa bátar frá Þorlákshöfn verið á fá 1000—1700 kg eftir 3 daga, f Grindavík 800—1200 kg og Sandgerðisbátar 600—800 kg, allt slitinn humar. Vestmannaeyja- bátar eru búnir að fá f vor 10 lestir af humri f 36 róðrum. Rækjubátarnir eru nú farnir að hafa með sér Is og vera lengur úti, upp í 2 daga. Hafa þeir verið að koma með upp í 2800 kg, en al- mennur afli hefur verið um 1500 kg. Togararnir Togararnir eru nú allir á heima- miðum og er afli tregur, 150—200 lestir í túr. Til Reykjavíkur komu í vikunni Hjörleifur með 150 lestir, Snorri Sturlaugsson 197 lestir og Bjarni Benediktsson 190 lestir. Hrönn kom inn sfðast f vikunni, en var ekki búin að landa og talið, að hún væri með 200 lestir. mælikvarða á borð við Pompei og Taj Majal, sem báðir blikni þó fyrir Heimaey. Upp úr dúrnum kemur svo, að þessar ungu Eyjastúlkur eru dæt- ur Sigurðar Georgssonar og konu hans, Fríðu Einarsdóttur, en Sigurður er skipstjóri og eigandi vélbátsins „Heimaeyar" VE 1, sem er ný 1.50 lesta stálbátur og veiðir nú aftur frá nöfnu sinni Heimaey. hún nýkomin heim til Noregs úr leiðangrinum með 300 lestir af saltfiski, sem seldist fyrir um 180 krónur kg upp til hópa, og er þetta metverð, farmurinn á um 54 millj. króna. Veiðiferðin tók 5 mánuði og farið verður aftur að losun lok- inni og þá lengra vestur á bóginn, alla leið að Nýfundnalandi. Engir togarar voru á miðunum við Vestur-Grænland nema græn- lenzkir. Sú var þó tíðin, að íslenzkir togarar voru þar og margra annarra þjóða. VEHKSMIÐJAN í FUGLAFIRÐI. Mafgir kannast við síldarverk- smiðjuna Havsbrun í Fuglafirði í Færeyjum, því að íslenzk skip hafa oft selt þar sfld. Þar eru unnin 70% af mjöli og lýsi eyj- anna. Leggja þar nú að staðaldri upp 30—40 lítil togveiðiskip, sem veiða iðnaðarfisk, spærling, sand- sfli o.f.frv. Nýjasta skipið er 220 lesta stáltogari, Atlantis, með 750 hestafla vél, smíðaður í Dan- mörku. Færeyingar láta nú smfða mikið af litlum fiskiskipum þar, þau eru ódýrari en í Noregi og á þeim er gott handbragð. Atlantis kostaði um 60 milljónir króna (3.8 millj. danskar). FÆREYINGAR STANDA SIG. Færeyingar hafa hagstæðan verzlunarjöfnuð fyrir síðastliðið ár, sem nemur 1000 miiljónum króna, eða hvorki meira né minna en 15%. Það eru aðeins mjög fá lönd í Evrópu, sem hafa hagstæð- an verzlunarjöfnuð, meðal þeirra eru Sviss og Vestur-Þýzkalands. Að undanteknu einu ári sfðastlið- in 4 ár hefur meira verið flutt út frá Færeyjum en inn. Af þessu gætu Islendingar lært að eyða ekki meir en aflað er. Olíkt þægi- legra og öruggara lff. SPÁNSKI FISKIFLOTINN. Spánverjar eiga nú einhvern stærsta og nýtízkulegasta fiski- skipaflota í Evrópu. Keppa þeir að því að verða sjálfum sér nógir með sjávarafurðir. Tveir nýir spænskir skuttogar- ar veiða nú iðnaðarfisk milli Fær- eyja og Noregs, austur af eyjun- um og ekki langt frá þeim, en að sjálfsögðu fyrir utan 12 mflurnar. SUMARLOÐNAN HJÁ NORSKUM. Loðnan er nú á stærra veiði- svæði hjá Norðmönnum f Barentshafi og meira af henni, en í fyrra, en hún er smærri, meðal- tal 12,5 sm. LOÐNAN VIÐ NÝFUNDALAND OG SÍLDIN 1 NORÐURSJÓNUM. Norgalobal-leiðangurinn, sem i er stórt verksmiðjuskip og mörg veiðiskip, er nú búinn að fá um 10.000 lestir af loðnu við Ný- fundnaland og gengur veiðin vel. Kvótinn, sem Norðmenn hafa þarna, er 43.000 lestir eða 13.000 lestum meiri en síldarkvóti Is- lendinga í Norðursjónum, sem nú horfir til vandræða með að verði alltof lítill, svo að skipin verði að hætta á miðju veiðitimabili. Ofaná bætist svo, að mikið af síld hefur verið selt úr islenzku skip- unum fyrir bræðslusíldarverð. 4—6 krónur kg í stað 30—35 króna,' sem var verðið á manneldissfld í vor, en er nú stór- lækkað, kannski allt að um helm- ing. Svona er hrunið á afurðum sjávarútvegsins, hvert sem litið er. Stærri myndin: Heimaey VE I — Minni myndin: Tveir Noregsfaranna, Adda og Bára Sigurðardætur, selja merki á sjómannadaginn heima f Vestmannaeyjum. Rjúkandi eldfellið f baksýn. ^ Til Akraness kom Víkingur með 140 Iestir og Krossvík með 109 lestir. „Heimaey“ til Heimaeyjar I norska blaðinu „fiskaren“ á þjóðhátíðardaginn 17. júní er heilsíðu grein með myndum, sem ber heitið: „Heimaey" veiðir aftur frá heimahöfn. Blaðamaðurinn hittir tvær litlar systur, 10 og 11 ára, öddu og Báru, þar sem þær eru að selja slysavarnamerki, sennilega á lokadaginn, með merkin í kara- melludós og peningana í klút. Þær fara hús úr húsi og bjóða merkin og inn i þetta flettar blaðamaðurinn, en þeir eru reyndar tveir, piltur og stúlka, lýsingu á Vestmannaeyjabæ eftir eldgosið, sem þeir segja að sé nú að verða ferðamannabær á heims- Fjölskyldan, sem er 6 manns, er flutt aftur til Eyja og býr í leigu- húsnæði, því að splunkunýtt og vandað fbúðarhús þeirra hjóna er nú undir 25 metra þykkri hraun- hellu. Ætlunin er að byggja á ný í sumar. Systurnar buðu blaða- mönnunum heim og kom þá í ljós, að þær og bróðir þeirra höfðu öll verið í boði Norðmanna í fyrra- sumar ásamt fjölda annarra Eyja- barna. Yngsta barnið f fjölskyld- unni, Vigdís 6 mánaða, fæddist í útlegðinni í Reykjavík. Hún verður ein af nýju kynslóðinni, sem ekki kemur til með að muna eftir Heimaey með aðeins einu eldfjalli. GRÆNLANDSFAR Aðeins einn norskur bátur veiddi með Iínu við Vestur-Græn- land síðustu vertfð, „Björnöy". Er Nú eru síöustu sætin í Utsýnarferöum sumarsins á þrotum: Þægilegt þotuflug. Kvöldflug lengirsumarleyfið. Útsýnarþjónusta tryggir ánægjulega ferð. Fyrsta flokks gæði — sama lága verðið. rCOSTA DELSOU TRYGGASTI SÓLSTAÐUR ÁLFUNNAR BEZTU GISTISTAOIRNIR alv«g við ströndina 3. júlf — 6 s. laus 15. júlf — 16. s. laus 17. júll — 8 s. laus 24. júlí — 20 s. laus 29. júH — 12 s. laus 31. júll — uppsalt 12. ágúst — uppsalt 14. ágúst — uppsah 21. ágúst — uppssh 26. ágúst — uppsalt l 28. ágúst — uppsalt FEROASKRIFSTOFAN AUSTURSTRÆTI 17 SfMi 26611 — 20100 lOltnur, Einkaumboð ð íslandi TJÆREBORG AMERICAN EXPRESS. ITALIA HEILLAR GULLNA STRÓNOIN STAOUR SEM SLÆR Í GEGN 31.maí —uppselt 15. júnl . —uppselt 2. júll — 4 s. laus 16. júll — uppselt 30. júll — uppselt 13. égúst — uppselt 27. ágúst — uppselt 10. sept. —uppselt STÆRSTA OG VANDAÐASTA FERÐAÚRVALIÐ Kaupmannahöfn London Rinarlönd Austurríki Gardavatn Grikkland Rhodos Costa Brava Mallorca

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.