Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 4

Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 4
4 Fa /7 /tíi.i /./;#f.i v ALUR! *Sk 22-0-22- RAUOARÁRSTÍG 31 LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 LOFTLEIÐIR BÍLALEIGA car rental Hverf isgötu 18 27060 Bílaleiga CAR RENTAL Sendum U* 41660 - 42902 /pt BÍLALEIGAN ^51EYSIR CAR RENTAL W24460 í HVERJUM BÍL PIONŒCER ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI |Rox-0unl>lnMíi morgfaldor markad vðor Starfandi prestur í stórborg nútímans Sú hugmynd, að prestsstarfið sé svo að segja eingöngu bundið altari og predikunarstól, kirkjuhúsi og helgisiðum, er enn svo rótföst f hugum flestra íslendinga, að vart er enn talin guðsþjónusta annað en messa eftir fornu formi. Og þeir prest- ar, sem ekki predika helzt hvem helgan dag eru varla taldir vaxnir sínu hlutverki. Samt hefur hugmyndin aðeins breytzt við tilkomu æskulýðsprests, eða ungmenna- fulltrúa, fangelsisprests og sjúkrahúsprests. En þetta eru samt svo nýleg störf á vegum fslenzku þjóðkirkjunnar að þau eru öll að heita má stofnuð alveg á sfðustu áratugum og jafnvel síðustu árum. Segja má samt, að þetta sé alls staðar að breytast. Og þótt messan í kirkjunni sé enn hinn fasti punktur, brennidepill, sem sindrar frá sér lffsljósi kenninga og kraftar Krists, þá sé guðsþjónustan utan kirkju alltaf að vinna á, eignast veg- legri sess og víðtækari skilning í vitund kristins manns. Hér mun f örstuttu máli sagt frá starfsemi eins manns í er- lendri stórborg, prests, sem sjaldan predikar í kirkju að minnsta kosti, en vinnur þó prestsstarf verklangan dag og leggur stundum nótt með degi. Þar eru orð eiginkonu hans ágætur vitnisburður: „Eg sé hann sjaldan á daginn, en oftast að nóttunni." Og hann sagði sjálfur: „Laugardaga helga ég fjölskyldu minni, konunni og dætrunum tveim, og sunnudag- inn hef ég oftast frjálsan fram á kvöld. Þá erum við í sumarbú- stað, sem ég á úti í sveit. Ég mála og leik á fiðluna mína, safna steinum og gömlum lykl- um f grenndinni. Steinana hef ég til fyrir- myndar í málverkum mínum. Ég mála ljósbrotin sem leika f þeim. Fiðlutónarnir eru mfn eigin hjartaslög og mínar bæn- ir, en lyklarnir samband við sögu og fortíð.“ Ég sá hann fyrst á maí- morgni, þar sem hann stóð við gamla bflinn sinn og beið á hlaði hallarinnar þar sem ég bjó. Hrokkið skolbrúnt hár hans blakti fyrir morgunblæn- um. I því voru hvítir þræðir, sem voru í mótsetningu við morgunblænum. í þvf voru hvítir þræðir, sem voru í mót- setningu við unglegt en svip- mikið andlit, sem virtist um þrftugt, en hann er fjörutfu og þriggja ára Svisslendingur, sem vinnur fyrir lúthersku kirkju- deildina í Vínarborg, hár og grannur á „tweed“ jakka og í brúnni skyrtu, bindislaus, eng- inn „öfugur hvítflibbi", sem annars einkennir marga presta. Hann var einmitt að koma snemma á mánudagsmorgni til að sækja mig og sýna mér eitthvað af þeim stofnunum fyrir aldraða, umkomulausa, hrakta, hrjáða, sjúka og særða, sem hann hefur umsjón með og heimsækir nær daglega. Mikinn hluta dags eða ákveð- inn tíma daglega vinnur hann þó á skrifstofu sinni, svarar bréfum og fyrirspurnum, anzar í síma, annast um aðstoð fyrir nauðstadda. Eina nótt og tvo daga í viku hverri annast hann svonefnda „Telefonseelesorge" — Síma- sálgæzlu ásamt öðrum presti frá kakþólsku kirkjunni — Daritasstofnun hennar. Stundum heimsækir hann saumaklúbba eldri kvenna eða kemur á fundi áfengissjúkl- inga, flytur þar bænir og ritn- ingarorð, útvegar ræðumenn, söngfólk og skemmtikrafta f sönglist eða orðlist. Stundum heimsækir hann sjúkrahús og hjúkrunarheimili, barna- og dagheimili, en mót- mælendakirkjurnar hafa margt slfkt á starfsskrá sinni, þótt þær séu mjög fámennar miðað við kaþólsku kirkjuna. Þessi þjónusta er því mjög umfangsmikil. Og það er varla hægt að hugsa sér, hvernig borgin kæmist af án slfkrar starfsemi. Og samt er hún svo að segja nýlega hafin. Hún nær til fangelsa og fatl- aðra, heimilislausra og hrjáðra, ekki sízt flóttafólks, sem ótrú- lega margt gistir þessa fögru og frjálsu borg, sem er stundum líkt við gróðurvin frelsis og friðar f auðn kúgunar og sundr- ungar. Erfiðast er starfið fyrir hús- næðislausa og heimilislausa fólkið, hverjar svo sem orsak- irnar eru fyrir böli þess og vandræðum. En úr þvf er reynt að finna leiðir með reglubundn- um fundarhöldum, þar sem leitað er bæði til samfélags og kirkju um styrk og aðstoð, en fyrir þessu gengst presturinn. Auk heimsókna, hálpar og leiðbeininga fyrir aldraða, und- irbýr presturinn ferðalög aldr- vió gluggann eftirsr. Árelius Níelsson aðra, svonefndar sóknarferðir — Sonnenzug — heimsækir óreiðuh'eimili og hefur umsjá með börnum fráskilinna hjóna og raunar með hjónunum sjálf- um meðan hjónaskilnaðurinn gengur yfir. Og að síðustu skal svo minnzt á sfmasálgæzluna. Hana má telja eina nýjustu og sérstæð- ustu starfsgreinkirkjunnarvíða um lönd og er þekktust hér fyrir starfsemi í St. Nikolai- kirkjunni við Störget í Kaup- mannahöfn. Það er á stað í nágrenni St. Stephensdómkirkjunnar í Vfn- arborg, sem prsturinn svarar í sfmann. Flestir þeirra sem hringja þjást af uppgjöf, angist og örvæntingu og eru sjálfs- morði nær. Með hugþekku viðmóti, róleg- um orðum og hughreystingu eru gerðar tilraunir á ótrúlega einfaldan hátt til að sefa við- mælendur. En um þá starfsemi eina mætti skrifa langa ritgerð. Þótt ótrúlegt sé er þessi fjöl- þætta starfsemi evangelisku safnaðanna og félagsráðgjöf prestsins, sem hér er kynntur, varla áratugar gömul. En hún hefur orðið prédikurum áhrifa- ríkari, flutt anda og kraft Krists út í lífsbaráttu fólksins og presturinn heitir Pfarrer. Leikári Þjóðleikhússins lokið: Sýningargestir 100 þús- und — 309 sýningar LEIKÁRI Þjóðleikhúss- ins lauk sl. þriðjudags- kvöld með sýningu á óperunni Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson. Var húsið þéttsetið og þegar hefur verið ákveðið að taka upp sýningar á óper- unni í haust, þar eð hún hefur hlotið óvenjulegar vinsældir og mikla að- sókn. Þessi sýning var 309. sýningin í vetur og hafa þær aldrei verið fleiri á einu leikári. Fjöldi sýningargesta var einnig óvenjumikill, munu þeir hafa verið 100 þúsund og aðeins 2—3 sinnum áður í sögu leik- hússins hafa þeir náð þeirri tölu. I fréttatilkynningu frá leik- húsinu segir, að það sem fyrst og fremst hafi aukið tölu sýn- inga, sé sú nýja stefna að fara út fyrir sjálfa leikhúsbygging- una með fámennar sýningar og svo tilkoma litla Ieiksviðsins í kjallaranum, en þar voru sýnd 4 verk í vetur. Aðsókn var yfirleitt mikil, mest að Leðurblökunni, en á henni voru 50 sýningar fyrir 26.290 gesti. Aðsókn að öðrum verkum var það mikil, að tekn- ar verða upp sýningar á þeim I haust. Þetta á t.d. við um Klukkustrengi Jökuls Jakobs- sonar og Ég vil auðga mitt land eftir Þórð Breiðfjörð, eða Matt- hildinga. í tilefni þjóðhátfðarinnai verða sérstakar sumarsýningar. Dagana 25. júlí til 8. ágúst verður leikhúsið með 9 leiksýn- ingar, 3 á Jóni Arasyni, 3 á Ég vil auðga mitt land og 3 á Litlu flugunni. Um 30 leikarar voru fastráðn- ir við leikhúsið á starfsárinu, en auk þess komu þar fram í hlutverkum 30 aðrir leikarar og 10 óperusöngvarar. 1 íslenzka dansflokknum eru 10 manns og ef allir eru taldir með, sem þátt tóku í sýningum, kórfólk í Þjóð- leikhúskórnum, sem fram kom í óvenjulega mörgum sýningum og aukaleikarar, eru þetta sam- tals um 230 manns. Leikstjórar voru 11 og leikmyndateiknarar 12. Stöðunefnd lækna ósam- mála túlkun ráðuneytisins BLAÐINU hefur borizt eftir- farandi athugasemd við greinargerð heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins við veitingu héraðslæknisemb- ættisins f Eyrabakkahéraði frá nefnd þeirri, sem samkvæmt lögum á að meta hæfni um- sækjenda um læknastöður: I greinargerð frá ráðuneyt- inu, dags. 12. þ.m., sem birzt hefur a.m.k. í dagblaðinu Tímanum, lýsir ráðuneytið yfir því, að hlutverk stöðunefndar skv. 33. grein laga urn heil- brigðisþjónustu, nr. 56/1973, sé ekki að raða umsækjendum um læknastöður eftir hæfni, heldur einungis að dæma um, hvort þeir séu hæfir eða ekki hæfir. I 33. gr. laganna segir: „Ráðherra skipar 3 lækna í nefnd, er metur hæfni um- sækjenda um stöðu Iandlæknis, stöður yfirlækna, sérfræðinga, héraðslækna og lækna heilsu- gæzlustöðva. Nefndin skal þannig skipuð: 1 tilnefndur af Læknafélagi íslands, 1 til- nefndur af læknadeild Háskóla Islands og landlæknir, og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.“ Og ennfremur „Þegar um er að ræða stöður yfirlækna og sérfræðinga, hefur nefndin heimild til að kveðja 2 sérfræðinga sér til ráðuneytis." Nefndinni er vitaskuld full- ljós réttur ráðherra til að skipa í embætti hvern þann umsækj- anda, sem hæfur er talinn. Hinsvegar er nefndin ósam- mála túlkun ráðuneytisins á hlutverki hennar og telur, að sú túlkun geti ekki verið í sam- ræmi við vilja löggjafans. Fyrir þessu eru eftirtalin rök: Lækningaleyfi gerir alla lækna faglega hæfa til þess að gegna hverri þeirri læknis- stöðu, sem ekki krefst sér- fræðingsviðurkénningar, svo sem til þess að vera heilsu- gæzlulæknar eða héraðslæknar skv. eldri lögum, en engu að síður gætu þeir verið mjög mis- hæfir. Sérfræðingsviðurkenning gerir alla sérfræðinga að auki faglega hæfa til þess að gegna öllum sérfræðingsstöðum í sér- grein viðkomandi læknis, svo sem til þess að vera yfirlæknar eða sérfræðingar á sjúkra- húsum, en um sérfræðinga gegnir vitanlega sama mál og um almenna lækna, að þeir gætu verið mjög mishæfir. I reynd er það svo, að læknar Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.