Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 20

Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 20
MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JUNÍ 1974 19 Frá Ferða- félagi Islands: Sumar- leyfis- ferðir iiman- lands HVAÐ skal gera f sumarleyf- inu? Á ég að fara til suðlægra landa, á ég að ferðast um landið og auka kynni mfn af því, eða á ég að sitja heima og taka það rólega? Slíkar spurningar eru á vörum margra um þessar mundir og er það eðlilegt, því þær aðstæður eru nú fyrir hendi, að allir, sem viija, geta án mikillar fyrirhafnar látið að óskum sínum hvað þetta varð- ar. Ferðafélag Islands hefur allt frá stofnun haft það markmið, að stuðla að aukinni þekkingu á landi okkar. Hefur það verið gert með útgáfu blaða og bóka, myndasýningum, fyrirlestrum og sfðast en ekki sízt vel skipu- lögðum og ódýrum ferðalögum fyrir almenning. Þessi kynning hefur farið fram við þær að- stæður, sem fyrir voru á hverj- þaðan farið ríðandi í Þórsmörk og til baka sama dag.“ Þessi fáu dæmi af mörgum sýna þær aðstæður, sem við var búið fyrir tæpum 40 árum. En með bættum samgöngum og betri samgöngutækjum hafa þær gjörbreytzt. Það, sem olli erfiðleikum og töfum í þá tíð, er leikur einn nú. Á þessu sumri hyggst félagið efna til 22 sumarleyfisferða um landið þvert og endilangt. Sú lengsta verður í 17 daga, en þær stytztu í 4 daga. Auk þess eru farnar á vegum félagsins fjöldi stuttra ferða, eins og öll- um er kunnugt. Tvær fyrstu sumarleyfisferð- irnar standa nú yfir, en 4. júlí hefst þriðja ferð Ferðafélags- ins. Er förinni heitið að Skafta- felli. Ekið verður þangað eftir nýja hringveginum á einum degi og dvalið þar í tjöldum í fjóra daga. Þeim tíma verður varið til gönguferða um þjóð- garðinn og ökuferðar að Breiða- merkurlóni og út í Ingólfs- höfða. Á Skaftafelli þykir náttúrufegurð vera meiri en víðast hvar annars staðar á ís- landi. Hafa margir ferðamenn bæði innlendir og erlendir róm- að fegurð staðarins og próf. Ahlmann frá Stokkhólmi sagði: „að Skaftafell væri ólíkt öllu því, sem hann hefði séð 1 öðrum löndum, og að það muni hvergi á jörðinni eiga sinn líka.“ í gönguferðunum um þjóðgarð- inn gefst fólki færi á að skoða gilin hjá bænum, Svartafoss, Bæjarstaðaskóg, Morsárjökul og ganga á Kristínartinda og fá þar gott útsýni yfir þjóðgarðinn og nágrenni. Fjögurra daga dvöl í Skaftafelli er ekki nema til að finna „reykinn af réttun- um“. Þar er unnt að eyða marg- falt fleiri dögum við náttúru- skoðun og til gönguferða. Gróð- urfar þar er einstakt og fylgir því mikil veðursæld. Þetta er Paradísarland jöklamanna, og ganga á Öræfajökul er á dag- skránni, ef einhverja fýsir að fást við hann, en sú ferð tekur 12—15 tíma. Til skamms tíma var hálendi íslands ókunnugt öllum nema gangnamönnum eða vísinda- mönnum, sem eingöngu ferðuðust um landið f sambandi við starf sitt. En með bættum samgöngum og auknum bfla- kosti hefur orðið hér breyting á. Hefur Ferðafélag Islands oft á tíðum haft forgöngu um könn- un nýrra leiða um óbyggðir landsins. Fjórða ferðin, sem hefst 6. júlí og mun standa yfir í 9 daga, er einmitt inn í óbyggðir. Verður ferðinni heit- ið til Hvannalinda og inn í Kverkfjöll. Ekið verður um byggð á tveimur dögum til Kverkfjalla. Þar hafa ötulir félagar ferðafélagsdeildanna á Húsavík, í Vopnafirði og á Fljótsdalshéraði byggt glæsi- legan skála, sem verður heimili ferðalanganna næstu fjórar nætur. Kverkfjöllin er fjalla- bálkur í norðurjaðri Vatna- jökuls milli Dyngju- og Brúar- jökuls. Eru þau allt að 1900 m að hæð. Auk hins hrikalega landslags eru furður náttúr- unnar þar miklar og merkileg- ar. Þar er mikið jarðhitasvæði, bullandi leirhverir og mesti gufuhver landsins. Aðalhverasvæðið er í Hvera- dal, sem er þröngur dalur eða sprunga, sem gengur inn f vest- urhlíð fjallanna. Mun hvera- svæðið ná yfir 10 ferkílómetra. En þó munu íshellarnir vera eftirminnilegri. Geta menn gengið mörg hundruð metra inn undir jökulinn, því þar eru heitar uppsprettur, sem hafa brætt ísinn og myndað hellana. í ferð þessari verður einnig komið við í Hvannalindum, en það er hagablettur umhverfis uppsprettur og læki nálægt miðri Krepputungu. Gróður- lendi þetta er einstakt vegna þess, hversu hátt það liggur yf- ir sjó, 630 m. En þekktast er það f sögunni vegna þess, að þar hafa fundizt menjar um byggð útilegumanna og er hald manna, að þar hafi Fjalla-Ey vindur dvalið, þótt ekki sé það sannað mál. Heimleiðis verður haldið um Sprengisand og gist í hinu glæsilega húsi Ferðafélagsins við Tungnafellsjökul. Mun í leiðinni verða skroppið inn í Vonarskarð eða gengið á Tungnafellsjökul, en þó verður að taka eitthvert tillit til veður guðanna, því að á þessu svæði skiptast oft skjótt veður í lofti. Eitt hrikalegasta fjalllendi Framhald á bls. 29. Svartifoss f öræfum. um tíma, en eins og annað f þjóðfélaginu er orðin breyting á, og margt með öðrum hætti en var f fyrstu. Þá var ferðum hag- að á Snæfellsjökul þannig, að farið var með skipi frá Reykja- vík til Ólafsvíkur eða Arnar- stapa og gengið þaðan á jökulinn. Með sama skipi til baka. Á Skarðsheiði var farið með þeim hætti, að siglt var snemma morguns upp á Akra- nes, þaðan f bflum að Laxá, en á hestum yfir ána. Síðan gengið á Heiðarhorn, til baka með sömu farartækjum um kvöldið. Til Þórsmerkur var farið árið 1937 og er ferðinni lýst þannig: „Ekið f bflum að Múlakoti og að Stóru- Mörk undir Eyjafjöllum, A Kverkjökli s 'n * % - ole AUGLYSIR URVAL KLAPPARSTIG 37 BRJOSTAHOLD m | STUTT & SÍÐ wmmm BUXNABELTI m MEÐ & ÁN SKÁLMA BUXNACORSELETT SLANKBELTI Kaníer's NÝR SKÓLI í ÞÓRSHÖFN fyrir hönd stjórnar sérskóla Færeyja í Þórshöfn býður skólanefndin hér með til útboðs i byggingu sérskóla á svæði Frælsinum i Þórshöfn. Þau verktakafyrirtæki utan Færeyja, sem hafa áhuga, geta fengið útboðs- afgreiðslu- og greiðsluskilmála á timabilinu 1. júli til 10. júli 1974. Bygging þarf að hefjast um miðjan október 1 974 og Ijúka i október 1 975. Socialstyrelsens byggeadministration, postbox 864, 2100 Köbenhavn Ö. Laxveiði Miðfjarðará Nokkur veiöileyfi í Miöfjarðará eru til sölu í SPORTVAL v/Hlemmtorg, sími 14390 GRUNDTVIGS HÖJSKOLE FREDERIKSBORG Grunditvig höjskole Danskur lýðháskóli (35 km norður af Kaup- mannahöfn) með sérstökum deildum í norður- landa — evrópskum landsmálum, og utanríkis- málum ofl. Leikfimikennsla. Ný stundaskrá með mörgum möguleikum. Námskeið frá sept. nóv. og jan. Hringið eða skrifið eftir stundaskrá. Sv. Erik Bjerre, sími (03) 260350, 3400 Hilleröd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.