Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 23

Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 23
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JUNl 1974 Ný sending af Citroen-bílum var aö koma. Eigum óráöstafaö örfáum bílum af þessum tveimur gerðum. Globusn CITROEN* Afmæliskveöja: Jóhannes Jóhannes- son kaupmaður RIF á Snæfellsnesi er vaxandi útgerðarstaður og undanfarandi vetrarvertíðir hafa ekki brugðist. Þar er þvf lífvænlegt að setjast að, enda hafa framtakssamir dugnaðarmenn haslað sér þar völl á sviði útgerðarinnar, sem orðið hefir til þess, að byggð er þar ört vaxandi. Reisulegar fisk- verkunarstöðvar standa f skipu- lagðri röð upp af höfninni þar sem gull hafsins er unnið daga og[ nætur á vertíðum, en til þess að ein blómleg útgerðarstöð vaxi á eðlilegan hátt þarf fleira til að koma, m.a. verslun, sem veitir al- hliðaþjónustu við bátaflotann og fiskverkunarstöðvarnar. Þarna á hafnarsvæðinu á Rifi virðist líka vel hafa verið fyrir því séð. Myndarlegt verslunarhús stendur við sömu götu og fisk- verkunarhúsin og ber heitið Hafnarbúðin, Rifi. Þegar vertíðin stóð sem hæst í vor, þegar menn unnu daga og nætur, þegar enginn ann sér hvildar, tók eigandi þessarar verslunar upp á því að verða sex- tugur, en sá heitir Jóhannes Jó- hannesson: Hver sá, er inn kemur um dyr Hafnarbúðarinnar, mætti halda, að eigandinn væri gamal- gróinn auðmaður, sem léti sér nú nægja að flatmaga í velsæld ára- langrar söfnunar. Þvf fer þó fjarri, Jóhannes kaupmaður unn- ir sér aldrei hvíldar, hvorki nótt né dag, ekki frekar en sjómaður- inn og verkamaðurinn, hann veit, að hann er hlekkur í þeirri keðju, sem ekki má slitna f önn dagsins. Og þegar litið er til baka kemur f ljós, að lífið hefir ekki hlaðið und- ir hann frekar en svo margan SINCLAIR vasareiknivélin, sem gerir allt nema kosta mikla peninga. ★ Fljótandi komma, 4 reikningsaðferðir, ★ +, —, X, -5- ★ Konstant. ★ Sýnir 8 stafi. kr Vinnur vikum saman ★ á 4 rafhlöðum o.fl. o.fl. ir Stærð aðeins: ★ 50x110x18 mm. heimilistæki sf Sætún 8, sími 1 5655, 24000. tslendinginn, sem komizt hefir áfram sem kallað er. Jóhannes er fæddur á Hóli á Tjörnesi í S-Þingeyjarsýslu 22. apríl 1914, og voru foreldrar hans hjónin Jóhannes Jóhannesson og Sigþrúður Stefánsdóttir. Jó- hannes missti föður sinn og var skírður við kistu hans. Fluttist hann þá að Syðri-Tungu í sömu sveit og er þar hjá afa sínum og ömmu til 9 ára aldurs, sfðan til móður sinnar og stjúpföður að Kvíslarhóli og er hann hjá þeim til 16 ára aldurs. Tilbreytingarík og stormasöm bernska sem ein- kenndist af vinnusemi og strang- leik og ef til vill sá skóli, sem að gagni kom sfðar meir. 16 ára byrj- ar Jóhannes að vinna fyrir sínu eigin kaupi og sjá sér farborða á eigin spýtur. 21 árs gamall byrjar hann bú- skap á Kvíslarhóli og býr þar f 12—14 ár. Kom þá f ljós framsýni hans og hagsýni, sem einkenndust af þvf, hvað hann fylgdist með öllum nýjungum á sviði búskapar, eignaðist hann m.a. heyvinnu- traktor úr fyrstu slíkri sendingu, sem til landsins kom. Var það mikið fyrirtæki fátækum bónda, en trausts góðra manna naut hann snemma, þannig lánaði Karl Kristjánsson fyrrv. alþm., er þá var sparisjóðsstjóri Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík, honum fyrir traktomum. Þessa sama sum ar heyjaði hann sitt eigið tún á sjö dögum og hóf svo heyslátt fyrir Húsvíkinga og aðra og hafði um haustið unnió traktorinn upp og gat nú greitt skuld sfna að fullu. En hart hefir Jóhannes lagt að sér sumarið þetta. Af öllum búskaparstörfum var jarðræktin honum hugfólgnust, gleði sína og hamingju fann hann í þvf að um- bylta kargaþýfi og gera að græn um ökrum. Svo fór, að heilsan leyfði ekki þetta mikla álag og varð hann að hætta búskap, var hann nú heilsu- veill í mörg ár og vann hann þá ýmis störf, m.a. á bókalager í Reykjavík. Var bústjóri f ölfusi um skeið, smiður og verkstjóri á Keflavíkurflugvelli. Kemst Jóhannes fyrst í kynni við verslun hjá Kaupfélagi Suður- nesja í Keflavík, en þar vann hann í 3 ár og síðan f Síld og fisk í Reykjavík. I gegnum þessi verslunarstörf fær Jóhannes góða undirstöðuþekkingu, sem kemur honum svo að ómetanlegu gagni síðar. Þegar lóranstöðin á Gufuskál- um er byggð, ræðst Jóhannes þangað sem smiður og ætlaði sér aðeins að undirbúa komu aðal- vinnuflokksins og fara síðan, en dvöl hans verður lengri en hann hafði ráð fyrir gert. Hann byrjar með smáverslun fyrir vinnuflokk- ana á Gufuskálum, sem smá þró- ast svo upp í það, sem verslun hans er í dag og er honum og byggðarlaginu til sóma. Á þessari upptalningu á atrið- um úr lífi Jóhannesar kaupmanns sést, að hann hefir á margt lagt gjörva hönd og lífið ekki verið leikur einn. Hann hefir svo sann- Framhald á bls. 38

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.