Morgunblaðið - 30.06.1974, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JUNl 1974
35
Skuggamynd i fjarska
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MARIU LANG,
PÝÐANDI: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR.
44
— Þú gerðir þó visst gagn með
því, sagði Christer íhugandi, „ því
að þú lokaðir þar með leiðinni
fyrir morðingjann að komast
undan. Við vitum sem sagt að sá
þorpari, sem lamdi Ingimar Gran-
stedt til bana klukkan tíu er enn í
húsinu. Og ég get ekki neitað því,
að ég bíð með nokkurri eftir-
væntingu eftir að hitta hann...
Fótatak heyrðist fyrir utan. . .
rólegt ákveðið. Við þögnuðum og
litum til dyra.
Og þar stóð Karl Gustaf Seger-
berg með hönd í vasa og blá augu
horfðu spyrjandi til okkar bak við
þykk gleraugum.
Christer réðst samstundis til at-
lögu.
— Mig fýsir að spyrja yður,
Segerberg, hvað þér voruð að
gera á tímabilinu milli klukkan
tíu og tuttugu mínútur yfir tfu.
Hann svaraði að bragði:
— Ég sat inni f reykstofunni
með Kersti Ryd. Ég hitti hana á
kaffihúsi um hálfníuleytið, og
hún kom með mér hingað og við
sátum og spjölluðum saman.
— Um hvað, ef ég má spyrja?
— Til dæmis um doktorsvörn
Pelle Bremmer. Það er satt að
segja varla annað, sem ég hef í
kollinum þessa dagana. Doktors-
vörnin verður á morgun. En ég
verð að játa, að Kersti var ekki
nærri eins áhugasöm um málið og
ég. Þess í stað spurði hún mig
hinna kynlegustu spurninga:
hvemig ég væri staddur fjárhags-
lega, hvort ég skuldaði mikið og
hvers vegna ég hefði aldrei trú-
lofast. Satt að segja varð ég
feginn í aðra röndina, þegar
Einar kom, svo að við gátum slitið
þessum samræðum.
— Voruð þið ein allan tfmann?
— Puck kom niður til að
hringja, en ég þori ekki að segja
um, hvort það var fyrir eða eftir
klukkan tíu, því að maður situr
nú ekki og horfir á úrið... Annars
sá ég engan.
Honum var bent að færa sig á
annan stól þar sem minna fór
fyrir honum, og Kersti var nú
hleypt inn. Hún staðfesti nánast
orðrétt, það sem Karl Gustaf
hafði sagt.
— Jú, við hittumst af tilviljun,
og ég varð honum samferða
hingað. Við fórum rakleitt inn í
reykstofuna og höfðum setið
þangað til nú. Karl Gustaf vildi
ekki tala um neitt annað en
doktorsvörnina og meira að segja
lögfræðinemi eins og ég var
honum kærkominn áheyrandi.
Þegar hún brosti til Karls
Gustafs uppgötvaði ég allt í einu
að hún var falleg. Svo settist hún
við hlið hans og ég horfði með
athygli á þau. Þau klæddu hvort
annað, Ijóshærði Dalamaðurinn
og sorgmædda svartklædda
stúlkan... Hver hafði sagt, að hún
hefði engan áhuga á karl-
mönnum?
En nú kom röðin að Jan Hede.
Hann stóð í dyrunum og pfrði
augunum í loftljósið. Ég sá, að
hann furðaði sig á spurningu
Christers, en hann svaraði fús-
lega:
— Aldrei þessu vant hef ég
setið á sama stað f allt kvöldið og
ekki einu sinni gefið mér tíma til
að fá mér sígarettu. Ég heyrði til
Pucks og Ingimars frammi í
gangi, held ég ábyggilega, og rétt
á eftir minnir mig, að ég hafi
greint Görel ganga fyrir dyrnar,
annað er það nú ekki.
— Heyrðuð þér hvað þau voru
að tala um?
— Nei, að vfsu ekki. En samt
fór dálítið f taugarnar á mér að
heyra raddir þeirra, því að þau
trufluðu mig. En svo fóru þau
fljótlega.
— Hvenær urðuð þér svo varir
við, að Görel Fahlgren gekk fyrir
dyrnar. Rétt eftir að samtalinu í
forstofunni var lokið?
— Tja, ég veit það ekki. Svona
tveimur eða þremur mfnútum
síðar
— I hvaða átt gekk hún?
— I áttina að sögustofunni.
Hann settist svo við hliðina á
mér í gluggakistunni og ég
heyrði, að hann greip andann á
lofti, þegar Görel kom inn. Eins
og fyrri daginn var hún mjög
glæsilega klædd. Hún var enn í
hvítu silkikápunni og hún hafði
um höfuðið svarta slæðu og hélt á
handtösku og svörtum hönzkum.
Fögur heildarmynd það. Hún lyfti
brúnum óþolinmóð og spurði:
— Og hvað er nú að, ef ég má
spyrja?
Christer hneigði sig kurteis-
lega.
— Það er reyndar ég, sem hef
áhuga á að spyrja, hvað þér hafið
verið að gera hér í kvöld?
Og þegar hún opnaði munninn í
mótmælaskyni, greip hann fram í
fyrir henni. ■
— Ég held þér ættuð að vita það
nú orðið, ungfrú Fahlgren, að það
er öllum fyrir beztu, að þér reynið
ekki að skrökva eða snúa út úr.
Ég vil fá sannleikann, og ekkert
annað. Ég kemst hvort sem er að
honum fyrr eða síðar. . . Hvenær
komuð þér hingað?
Varir hennar titruðu ofurlítið,
en hún svaraði rólega.
— Þegar klukkuna vantaði
tuttugu mínútur í tíu.
— Hvers vegna komuð þér
svona síðla kvölds?
Ég .. . ég þurfti að tala við Pelle
Bremmer. Mig langaði að vita,
hvernig honum liði.......vegna
doktorsvarnarinnar á morgun
— Og hittuð þér hann?
— Ekki strax. Ég hélt hann
væri inni í vélritunarherberginu
en þar var aðeins Staffan að störf-
um og f sögustofunni var hann
ekki heldur...
— Töluðuð þér við einhvern?
— Ég spurði Ingimar, hvort
hann hefði séð Pelle og hann
vísaði mér inn f bókmennta-
stofuna. En þar var enginn
heldur. Svo fór ég aðra ferð: ég
fór líka niður og gægðist inn í
reykherbergið, en ég er ekki viss
um, að Kersti og Karl Gustaf hafi
tekið eftir mér, þau voru svo
niðursokkin í samræður sfnar —
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi
til föstudags.
# Hvftflibba-
flokkurinn og
verkalýðurinn
Hér er bréf, sem Velvak-
anda barst um daginn og er það
frá Birni Jónssyni, sem þó mun
ekki vera Björn Jónsson fyrrver-
andi ráðherra, þótt svo virðist
sem skoðanir þeirra fari saman að
nokkru:
„Velvakandi sæll.
Ég gat ekki á mér setið heldur
settist við að skrifa þér, þegar ég
las Þjóðviljann 31. mai sl. Þar
birtist framboðslisti Alþýðu-
bandalagsins, allathyglisverður
eins og við var að búast.
Alþýðubandalagið hefur alla
tfð, bæði meðan það þorði að
kannast við að vera kommúnista-
flokkur og siðan, gumað óskap-
lega af þvf að vera flokkur verka-
lýðsins í landinu — hinn sanni
málsvari lftilmagnans í þjóðfélag-
inu og allt það.
Þess vegna gat ég ekki að mér
gert að hlæja, þegar ég svo leit
augum framboðslista kommanna í
þetta skipti, vegna þess að þeir
eru með þann hreinræktaðasta
hvftflibbalista, sem hingað til hef-
ur sézt.
Það byrjar nú náttúrlega á
Magnúsi Kjartanssyni fyrrver-
andi ritstjóra, ráðherra og flokks-
foringja, síðan kemur Eðvarð
Sigurðsson, sem einhvern tíma í
æsku sinni mun hafa verið
verkamaður, en hefur svo
lengi sem elztu menn muna
setið í höfuðstöðvunum, þá er
í þriðja sæti kvenrithöfundur
og í fjórða sætinu er svo blaða-
kona. Sigurður Magnússon
vélvirki var í sæti blaðakonunnar
fyrir síðustu kosningar og kom
nokkrum sinnum inn á þing sem
varaþingmaður, og ég frétti, að
allt hefði ætlað vitlaust að verða,
þegar menntamannaklfkan f
flokknum heimtaði, að blaðakon-
an yrði sett f sæti hans. í 6. sæti
setur verkalýðsflokkurinn sjálf-
nefndi svo hagfræðing, f það 7.
varaformann stúdentasamtaka,
en 8. sætið fær sjómaður. Skrif-
stofumaður (liðhlaupi úr Fram-
sóknarflokknum og þvf sérstakur
dýrgripur) er svo f 9. sæti og svo
kemur rúsínan í 10. sæti, en það
er verkakona.
Lengra nenni ég nú ekki að
rekja þennan dæmalausa lista, en
áframhaldið er alveg f sama dúr,
þ.e.a.s. fulltrúar verkalýðsins eru
þar aðeins í mýflugumynd.
0 Þegar blaðakonan
fór „sight-seeing“
í frystihúsið
A sömu opnu og listinn birtist
er lífsreynslusaga blaðakonunn-
ar, sem sett var fram fyrir raf-
vélavirkjann. I grein einni segist
hún hafa tekið sér það fyrir hend-
ur í prentaraverkfallinu að
„kynnast vinnustöðum verkafólks
innanfrá."
Blaðakonan skýrir skilmerki-
lega frá þeim fyrstu áhrifum, sem
„vinnustaður verkafólks" hefur á
hana, og þau eru ekki þannig, að
hún vildi vinna það nema svona
til hátfðabrigða.
Meira að segja finnst henni
verkafólkið (þetta makalausa
þjóðfélagsfyrirbrigði) ekkert
mjög alúðlegt við sig, nýliðann.
Þó er þarna einn ljúflingur, sem
blaðakonan hefur aldrei hitt fyrr,
en tekur hana þó undir sinn
verndarvæng þegar f upphafi og
sýnir henni, hvernig hún á að
hengja upp svuntuna sína o.s.frv.
Þessi öðlingskona, sem hún
kynnist þarna, heitir Stella
Stefánsdóttir.
Þegar hér var komið lestri
greinarinnar varð mér litið yfir á
næstu blaðsíðu og sjá — var ekki
Stella Stefánsdóttir þar komin f
10. sæti lista Alþýðubandalagsins
f Reykjavík.
Og nú er ég kominn að kjarnan-
um: Getur það virkilega verið, að
Alþýðubandalagið sé komið svo
langt frá uppruna sínum, að það
þurfi að senda menntafólkið
„sight-seeing“ á vinnustaði verka-
fólksins til þess beinlfnis að grafa
upp fulltrúa þess til að stilla upp
á lista sinn í alþíngiskosningum?
Og svo til að kóróna allt saman,
þá berst þessi flokkur undir
kjörorðinu „stétt gegn stétt“.
Það er svo kannski óþarfi að
geta þess, að þessi fjársjóður, sem
Vilborg Harðardóttir blaðakona
fann f frystihúsinu, virðist vera
eini frambjóðandinn á þessum
margnefnda lista, sem hefur lffs-
viðurværi sitt af því að
vinna erfiðisvinnu, — hinir eru
með tölu starfandi við skrifstofu-
störf og annað þvf um lfkt.
Velvakandi góður, þetta átti að-
eins að verða örstutt ábending, en
er nú orðið heil langloka, svo að
ég kveð þig að sinni.
Björn Jónsson.“
# Reikningsskil
I dag fá kjósendur það
tækifæri, sem þeir hafa beðið eft-
ir með óþreyju nú um hrið, og
þetta tækifæri má enginn láta sér
úr greipum ganga. Fólkið f land-
inu er orðið langþreytt á vinstri
stjórninni, þótt ekki hafi henni
tekizt að sitja út eitt kjörtímabil
frekar en venja er um slfkar
stjórnir.
Það er ástæða til að hvetja fólk
til að kjósa snemma — og sérstak-
lega er ástæða til að minna þá,
sem hyggjast leggja land undir
fót, á að kjósa áður en þeir fara úr
bænum. Það léttir störf þeirra,
sem standa í baráttunni f dag.
Þau þrjú ár, sem vinstri stjórn-
in hefur ráðsmennskazt hér, hef-
ur henni ekki einungis tekizt að
stöðva þá framþróunarstefnu,
sem fylgt var í tíð viðreisnar-
stjórnarinnar, heldur hefur
sundrungarliðinu tekizt að gera
svo mikinn óskunda, að nú má
enginn frestur verða á því, að
örugg og úrræðagóð stjórn taki
við.
Nú er komið að skuldadögun-
um — nú gerir fólkið f landinu
upp reikninga sína við vinstri
(Stjórnina.
Ur því sem komið er þýðir ekk-
ert að sakast um orðinn hlut —
vinstri stjórnin hefur runnið sitt
skeið og allir þekkja verk hennar.
Við hrindum henni af höndum
okkar og hefjum nýtt framfara-
skeið til farsældar og heilla fyrir
okkur «11.
B3P S\GGA V/6GA í 1/LVtRAKI
W S'feMoR V/í'RA/A AV
É, löKWfc VÆ^/ fum £KV(/ \\L
— Stöðunefnd
Framhald af bls. 4
sækja varla um ofannefndar
stöður, nema ofangreindum
skilyrðum sé fullnægt.
Við teljum ótvfrætt, að með
skipun þessarar nefndar, sem
þar að auki hefur heimild til að
kveðja 2 sérfróða menn til
ráðuneytis, við mat á ítæfni um-
sækjenda, hgfi Jöggjafinn ætlað
nefndarmönnum að velja á
milli umsækjenda þ.e. raða
þeim eftir faglegri hæfni, ef
unnt reynist.
Guðmundur Jóhannesson
læknir, fulltrúi Læknafélags
lslands.
Þorvaldur V. Guðmundsson
læknir, fulltrúi Læknadeildar
Háskóla tslands.
Ólafur Olafsson
landlæknir.
JRoriumWníiiíi
margfoldar
markad vðar
Sólarströnd SuSur Spánar býr
yfir sérstæSum töfrum, og þaSan
«r stutt að fara til margra fagurra
og eftirsóknarverðra staða svo
sem Granada. Sevitla og Tangier I
Afriku. FlogiS er beint til Costa
del Sol með stærstu og glæsileg-
ustu Boeingþotum Islendinga.
sem bjóða upp á þægindi I flugi,
sem ísiendingum hefir ekki boð-
izt fyrr. Brottför er á taugardög-
um kl. 10 að morgni eins og
raunar í öllum öðrum flugferðum
Sunnu. Það eru þvi ekki þreyt-
andi næturflug og svefnleysi.
sem næturflugum fylgir, sem ger-
ir fólk utanveltu dasaS og þreytt
dagana á eftir.
Á Costa del Sol hefir Sunna mikið
úrval af góðum ibúðum og hótel-
um i Torremolinos, eftirsóttasta
baðstrandarbænum á Costa del
Sol, þar hefir Sunna skrifstófuað-
stöSu fyrir sitt Isfenzka starfsfólk
é Costa del Sol, sem auk þess
heimsækir gestina reglulega á
hótelum þess og íbúðum.
nrmi
FERflASKRIFSTOFAN
SIINNA i
SIWAR1B4D012070 C