Morgunblaðið - 30.06.1974, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.06.1974, Blaðsíða 40
nUGIVSHIGRR ^^-«22480 129.436 á kiörskrá SAMTALS eru kjósendur á öllu landinu 129.436, en þar eru þó með taldir þeir, sem tvftugir verða á þessu ári, en aðeins þeir, sem afmælisdag eiga 30. júnf eða fyrr á árinu hafa kosningarétt. Við Alþingiskosningarnar 1971 var tala kjósenda á kjörskrá 118.289 eða 57,6% af fbúatölu landsins. Tala kjósenda í Reykjavík er nú 54.181, en var við Alþingiskosn- ingarnar 1971 50.170. 1 Reykja- nesi eru nú á kjörskrá 23.735, en voru við síðustu Alþingiskosning- ar 20.100. 1 Vesturlandskjördæmi eru á kjörskrá 7.934, en voru 1971 7.365. I Vestfjarðarkjördæmi eru nú 5.751, en við síðustu þingkosn- ingar 5.586. í Norðurlandskjör- dæmi vestra eru nú 6.163 á kjör- skrá, en voru síðast 5.835. 1 Norðurlandskjördæmi eystra eru á kjörskrá 13.781, en voru 1971 12.563. 1 Austurlands- kjördæmi eru nú á kjörskrá 6.965, en voru fyrir fjórum árum 6.419.1 Suðurlandskjördæmi eru nú 10.926 kjósendur, en voru árið 1971 10.233. Talning atkvæða ÚTVARP frá kosningaúrslit- unum verður með sama hætti og verið hefur, en kosningasjónvarp- ið hefst kl. 11 í kvöld, þegar kjör- stöðum hefur verið lokað. Verður sjónvarpað fram eftir nóttu, a.m.k. til kl. 4. Talningu atkvæða verður hrað- að eins og kostur er. Helztu skrifstofur D-listans í Reykja- neskjördæmi KJÖSENDUM f Reykjaneskjör- dæmi skal bent á, að kosninga- stjórn Sjálfstæðisflokksins í kjör- dæminu er í Sjálfstæðishúsinu f Strandgötu, sími 52576, en þar verða upplýsingar fyrir allar kosningaskrifstofur kjördæmis- ins. Bílasímar í Hafnarfirði eru 50228 og 53727. Kosningastjórn er í sfma 53725 og upplýsingar um kjörskrá í 53726. 1 Garða- og Bessastaðahreppum er kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins að Furugrund 1, Garða- hreppi, sími 42729. 1 Grindavík er sími sjálfstæðis- manna 92-8148. í Keflavík eru kosningaskrif- stofurnar í Sjálfstæðishúsinu, Hafnargötu 46. Bílasfmi er 92- 3050 og upplýsingasími 92-3051. í Kópavogi er kosningaskrif- stofan í Sjálfstæðishúsinu, Borg- arholtsbraut 6. Bílasímar eru 40708 og 43725. A Seltjarnarnesi er kosninga- skrifstofa sjálfstæðismanna að Sævarhöfða 18, sími 21887. í Reykjavík hefst talning um kl. 7 og má búast við fyrstu tölum strax upp úr kl. 11 í kvöld. 1 Reykjaneskjördæmi er gert ráð fyrir að talning hefjist ki. 12.30. Búast má við fyrstu tölum úr Vesturlandskjördæmi síðari hluta nætur. Það fer eftir flugskilyrðum, hvenær talning hefst á Vestfjörð- um. 1 síðustu kosningum lauk talningu þar síðdegis á mánudegi. Búast má við úrslitum f Norður- landi vestra strax í nótt. Talning hefst í Norðurlandi eystra skömmu eftir kl. 11. Vonast er til að talning hef jist á Austurlandi milli kl. 3 og 4 í nótt. Óvfst er hvenær, talning hefst á Suðurlandi, en þaðan bárust úr- slit síðast í kosningunum 1971. Verður reynt að bæta úr því nú. 7.358 utankjör- staðaatkvæði Á HÁDEGl f gær höfðu 7.358 kos- ið á utankjörstaðaskrifstofunni f Hafnarbúðum. Þessi kosninga- þátttaka utankjörstaðar er all- miklu meiri en f alþingiskosning- unum 1971, en þá höfðu um 4.200 manns kosið á hádegi daginn fyr- ir kjördag. Þannig er kjörsókn utan kjörstaðar allt að 80% meiri nú en 1971. Kjörsókn var þvf á hádegi f gær þegar orðin eitthvað á milli 5 og 6%. FRÁ HAFNARFIRÐI Sextán kjörstaðir í Reykjaneskjördæmi KJÓSENDUR í Reykjaneskjör- dæmi eru samkvæmt upplýsing- um Hagstofu tslands 23.735 og verður kjörfundur f samtals 15 hreppum. Kjörfundur hefst á mis- jöfnum tíma, en þó á flestum stöð- um frá klukkan 9 til 10. í Hafnarfirði hefst kjörfundur kl. 9.30 í Lækjarskóla. 1 Kópavogi er kosið á tveimur stöðum og hefst kjörfundur kl. 10. Þeir, sem búa í Vesturbæ kjósa í Kársnesskóla, en Austurbæingar kjósa í Víghólaskóla. I Garðahreppi hefst kjörfundur kl. 9 og verður kosið í barnaskóla Garðahrepps. 1 Bessastaðahreppi hefst kjör- fundur kl. 12 á hádegi. Kosið er í skólanum á Bjarnastöðum. I Keflavfk hefst kjörfundur kl. 10. Kosið er f barnaskólanum við Sólvallagötu. t Grindavfk er kosið í barna- skólanum. t Hafnarhreppi er kosið f barna- skólanum. Kjörfundur hefst klukkan 12 á hádegi. í Kjalarneshreppi verður kosið í Fólkvangi. Kosning hefst kl. 12 á hádegi. I Kjósahreppi verður kosið í Félagsgarði. Kjörfundur hefst kl. 12. t Miðneshreppi verður kosið f barnaskólanum. Kjörfundur hefst kl. 10. I Mosfelishreppi verður kosið í Hlégarði og hefst kosning kl. 10. A Seltjarnarnesi verður kosið f Mýrarhúsaskóla. Kjörfundur hefst kl. 9. I Njarðvíkurhreppi verður kos- ið f Stapa. Kjörfundur hefst þar kl. 10. t Vatnsleysustrandarhreppi hefst kjörfundur klukkan 12 á hádegi. Kosið er f barnaskólanum. I Gerðahreppi verður kosið í samkomuhúsinu, Gerðum. Kosn- ing hefst klukkan 10. Utankjör- staðakosning U tank j örst aðakosn- ing fyrir fólk utan af landi fer fram í Hafnarbúðum f Reykjavík í dag sunnu- dag kl. 14—18. r Matthías A. Mathiesen: Til íbúa Reykjaneskjördæmis Hornsteinn þjóðfélags- ins er heimilið og fjöl- skyldan. Eins og góður heimilisfaðir leggur megin áherzlu á velferð sérhvers innan fjölskyld- unnar, er það frumskylda forystu þjóðfélagsins að tryggja velferð og þroska hvers einstaks þjóðfé- lagsþegns. Til þess að svo megi verða, ber stjórnvöldum að setja f öndvegi at- vinnuöryggi, menntun og félagslega samhjálp og tryggja með því mann- helgi og jafnrétti, en um- fram allt sjálfstæði hvers einstaklings og þjóð- arinnar. Hina sterku ein- staklingsvitund ís- lendinga má rekja til uppruna þeirra. Það er því andstætt eðli okkar að ljá eyra málflutningi, sem á rætur sínar í er- lendum kennisetningum. Því miður er 'nú svo komið, að heilir stjórn- málaflokkar berjast fyrir því, að íslendingar kasti einstaklingshyggju sinni og sjálfstæðisvitund fyr- ir róða, en taki þess í stað upp ríkisforsjá fárra út- valdra. Þess vegna verðum við að vera vel á varðbergi og heyja einbeitta bar- áttu á grundvelli sjálf- stæðisstefnunnar, sem er mótuð eins og þjóðin sjálf í persónuþroska og skoðanafrelsi. Áhrif einstaklingsins í fámennu þjóðfélagi eru mikil og aldrei meiri en þann dag, sem þjóðin velur sér stjórnar- forystu. Til þess að efla traust og festu, trú á landið og framtíð þjóð- arinnar kjósum við Sjálf- stæðisflokkinn, sem er sterkasta aflið í þjóðfé- laginu, en í lífsskoðun sjálfstæðisstefnunnar felst kjölfesta kynslóð- anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.