Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974 7 Það er svo ákaflega gaman að lif a og alltaf eitthvað að gerast 1 kringum mann ÞAU voru að spila tveggja manna vist, þegar blaðam. Mbl. bar að garði, og sögðust alltaf spila ákveðinn tíma á dag. — Stundum byrjum við klukkan sjö á morgnana, sagði Arnór og kímdi við, en Helga sagði að þau spiluðu alltaf fern spil fyrir hádegið og átta eftir hádegið. Aldrei fleiri. Þau hafa búið hér í Ási i tvö ár og hafa sín eigin húsgögn, og í stofunni og i vinnuherbergi Arnórs eru veggir bókum þakt- ir. — Ég er að grúska þetta, sagði Arnór aðspurður um iðju sina. — Glugga í fornbréfasafninu, en ég vil ekkert gera úr þessu. Stundum er ég í jarðakaupum, stundum í dómum eða skrifta- málum. — Hann er aliur í 15., 16. og 17. öldinni eins og þú sérð, skaut Helga inn í. Hún sagðist vera nýbúin að lesa „I Forsæludal“. Svo læsi hún blöðin, alltaf íþrótta- fréttirnar og útlendu fréttirn- ar. — Nú annars vinn ég hús- verkin. Og ég hef verið með einn og einn í enskutímum. En svo var Arnór beðinn að taka að sér bókasafn heimilisins, svo að ég sé alveg um það. — Það ku vera háttur karla að láta konur sinar vinna, sagði Arnór og gekk um gólf meó hendur fyrir aftan bak. — Þegar ég tók við safninu voru bækur þar um 2 þúsund og nú nýlega hefur bætzt við heilmikið af smáritum og bækl- ingum. Safnið er opið tvisvar í viku, þriójudögum og laugar- dögum, og það er mikið notað. Ég hef haft fjarska mikla ánægju af þvi að vinna við safnið. Það er gaman aó fá svona hugðarefni á fullorðins- árum. Þau eru bæði 81 árs, en spræk og hress eins og sjá má. Helga segist vera að skrifa endurminningar sínar, enda hefur hún haldið dagbækur meira og minna í mörg ár. Þegar Arnór þarf að rifja eitt- hvað sérstakt upp, til dæmis í sambandi við ritstörf sin, flettir hann upp í bókum Helgu og finnst það ekki ónýtt. — En ég ætla ekki að gefa þetta út, segir Helga ákveðin. — En ég hef svo ákaflega gaman af að lifa og reyna að setja á blað það sem gerist. Það skeður svo margt í kringum mann á hverjum degi, í manns eigin fjölskyldu, í þjóðlífinu, úti í heimi og þaó er gaman að festa þetta á blað. Við víkjum talinu aftur að spilamennsku. — Ég lærði stelpuspil, þegar ég var ungur, segir Arnór — í því er það svo, að þeim sem gengur verr, hann eltir svo og svo margar stelpur. En spilið lærði ég af manni, sem var kall- aður mesti lygari í Þingeyjar- sýslu. Óg ég get sagt þér sögu til marks um hvað hann var góður. Einu sinni sagði hann þessa sögu — það var um það leyti, sem andatrúin var að koma — „Þrir menn mættust og sögðu frægðarsögur af þeim sem léku sér við andana. Sá fyrsti sagði að hann hefði séð stúlku lyfta borði án þess að hreyfa það. Hinum næsta þótti ekki mikið til um það, hann hafði séð stúlku lyfta fullu eikarolíufati, án þess að hreyfa það. Sá þriðji bætti heldur en ekki um betur og sagði: „Hvað er það? í Reykjavík sá ég olíufat fullt af vatni elta stúlku upp stiga .. .“ Þau eru bæði úr Þingeyjar- sýslu og Helga rifjar upp, að Stephan G. Stephansson var í þrjú ár á heimili föður hennar í Bárðardal og fyrri konu hans, áður en hann fór til Ameríku. Hún segist alltaf hafa verið þeirrar skoðunar, að sú dvöl hafi síðar haft áhrif á hann. — Ég er ættuð efst úr Bárðar- dalnum, heldur Helga áfram. — Þar voru nú margir skrítnir karlar í þann tíð. Þeir fóru yfir sandana og keyptu kornvöru í Reykjavík. Þeir voru ratvísir, þessir menn. Faðir minn fór sjö ferðir yfir sandinn. Einhverju sinni er hann þar á ferð með öðrum. Þegar þeir eru komnir á aðalsandinn, lítur pabbi aftur fyrir sig og segir: „Vill ekki einhver finná pontuna mína, ég týndi henni hérna í fyrra." Og þegar þeir eru komnir ögn lengra tekur einn samferðar- manna pontuna upp og spyr, hvort þar sé ekki pontan hans. Svona voru þeir nú nákvæmir. Það munaði engu á leið frá ári til árs. Þarna voru 200 km milli byggða, það er vænn spölur. — Það var vinátta með þeim og Gesti eldra á Hæli, segir Arnór. Gestur eldri var uppi á Kambránstímanúm og þá var nú yfirvaldið ekki vinsælt. Ein- hverju sinni kom Gestur heim á bæ og fékk skyr. Hann vildi færa félögum sinum, sem bióu hans, skyrspón, svo að hann lét skyr í hattinn sinn. Á leiðinni mætti hann yfirvaldinu og segir þá: „Framhjá þessu hel- viti ríð ég ekki berhöfóaður", og setti upp hattinn með skyr- inu í .. . — Þær eru margar sögurnar af gömlum Þingeyingum, bætir Arnór við, — og margar eru þær góðar, t.d. sögurnar af Havsteen sýslumanni. Margar benda til þess aó hann hafi — þótt sérkennilegur væri um margt — notið virðingar og þótt mikil manneskja. Einu sinni var stelsjúkur strákur á Húsa- vík. Júlíus ákvað að fara með strák til Reykjavíkur og leita honum lækninga. Þeir gista á Blönduósi. Júlíus ætlar að reiða fram fé fyrir gistinguna. Þá er strákur búinn að stela pyngju hans. Júlíus kippti sér ekki upp við þetta og sagði hinn rólegasti „Borga þú strákur, þú ert hvort sem er með alla peningana." Hann var ekkert að æsa sig upp út af þessu og fer ekki sögum af öðru en strákur hafi síðan skilað honum pyngjunni að minnsta kosti í bili ... h.k. Rætt við Helgu Kristjánsdóttur og Arnór Sigurjónsson 1 Asi í Överagerði Arnór Sigurjónsson og Helga Kristjánsdóttir fólk — fólk — fólk — fólk íbúð óskast Einhleypan mann vantar sem fyrst 1 til 2 herb. eldhús og bað. Uppl. í síma 86566 á daginn kl. 9 — 1 7. Brotamálmar Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27 Simi 25891. Trésmíðavélar Walker Törner bandsög og 6" afréttari óskast, til kaups. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „4476", fyrir 15. þ.m. Ytri — Njarðvík Til sölu vel með farin 4ra herb. rishæð. Losnar fljótlega. Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavik, simi 1 420. Miðaldra maður úti á landi óskar eftir að kynnast konu með sambúð ! huga. Þær, sem hefðu áhuga sendi tilboð merkt: „8766" til Mbl. fyrir 26. nóv. 500 þús 500 þúsund til láns gegn háum vöxtum og tryggingu, Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir föstudagskvöld, merkt: „peningar — 4475". Bronco Til sölu yfirbyggður Bronco árg. '68. Sjálfskiptur V8 með lituðu gleri. Selst aðeins gegn stað- greiðslu. Uppl. veittar á Iðu, Biskupstungum. Sími um Ara- tungu. Er vaskurinn stíflaður? Tek stiflur úr handlaugum, baðkör- um, eldhúsvöskum og niðurföll- um. Baldur Kristiansen Pipulagningameistari. Simi 19131. VW 1300 árgerð 1971 Til sölu Volkswagen 1 300 árgerð 1971. Bíll í toppstandi. Upp- lýsingar í síma 3 1 236. Húsnæði óskast. Herbergi óskast til leigu, helst með eldhúsaðgangi. Uppl. i sima 26700 frá 9 — 5. Ytri — Njarðvík Til sölu nýtt einbýlishús ásamt stórum bílskúr. Söluverð 6,2 millj. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Losnar fljótlega. Fasteignasalan Hafnargötu 2 7 Keflavik, simi 1 420. JWorgmiI)lat>tí» RUCLVSII1CRR ^-«22480 3ja herb. í Hafnarfirði 3ja herb. mjög góð íbúð á 1 . hasð (miðhæð) i 6 íbúða húsi við Arnarhraun um 80 fm. Þvottahús á sömu hæð. Teppalagðir stigagang- ar. íbúðin er með harðviðarinnréttingum. Teppalögð. Útb. aðeins 2,5 — 2,6 millj., sem má skiptast. Laus i desember. Samningar og fasteignir, Austurstræti 10A, 5. hæð. Simi 24850, heimasimi 37272. Hafnarfjörður Norðurbær Til sölu sem ný 3ja herb. íbúð um 95 ferm. á 3. hæð (efstu hæð) í fjölbýlishúsi á góðum út- sýnisstað við Miðvang. Sér þvottahús. Suður- svalir. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10 Hafnarfiröi. Sími 50764. Hafnarfjörður Fyrirtæki til sölu Til sölu gott fyrirtæki, sem rekur þjónustustarf- semi. Hentugt fyrir þá, sem vildu skapa sér atvinnu við eigin atvinnurekstur. Uppl. ekki gefnar í síma. Árni Grétar Finnsson hrf, Strandgötu 25, Hafnarfirði. ............ — ROSENGRENS VIÐURKENNDAR ELDTRAUSTAR — fyrir kyndiklefa — hvar sem eldvörn þarf — Standard stærðir SÆNSK GÆÐAVARA VIÐURKENNING •RUNAMALASTOFNUNAR RlKISINS. E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGÖTU 4 HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.