Morgunblaðið - 12.11.1974, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974
Þorsteinn Jónsson:
Svar til Eyjólfs
og Grindvíkinga
Agæti Eyjólfur.
Þakka þér fyrir nafngiftirnar,
sem þú valdir okkur Ölafi í orð-
sendingu þinni, og líkingarnar.
Mig langaði til að segja þér, að
þú hefur alls ekki verið skotinn í
kaf í sjóræningjaleiknum. Trúðu
því ekki. Kannski færðu ein-
hverntíma orðu fyrir að fletta
ofan af mótandi áhrifum
skólanna. Það er erfitt að spá um
framtíðina.
En mér finnst leitt að hafa
móógað þig með því að nafn-
greina ekki höfund söngleiksins
og svara ekki spurningunni, sem
varpað er fram, hvort einhver
sé ekki að semja tónlist i þorp
inu. Við nafngreinum engan
í kvikmyndinni, hvorki
höfund söngleiksins né þig,
né krakkana í skólanum,
né fólkið í fyrstihúsinu,
né íbúa Grindavikur yfirleitt,
vegna þess að það skiptir engu
máli fyrir boðskap kvikmyndar-
innar. Þarna hefði getað verið
annað fólk i öðru þorpi hvar á
landi sem er án þess að breyta
kvikmyndinni að neinu ráði. Hún
er nefnilega sjálfstætt verk, sem
við Ólafur höfum búið til. Henni
var ekki ætlað að fjalla um
Grindavik eða Grindvíkinga frem-
ur en aðra landsmenn. En hún
fær merkingu fyrir hvern og einn
áhorfanda eftir hans eigin
reynslu.
Ég skil reiði þina, vegna þess að
vera þín í myndkaflanum úr skól-
anum fær þar allt aðra merkingu
en þin persóna eða þitt starf
hefur í raun og veru. Þú sérð
sjálfan þig í öðru Ijósi en þú ert
vanur. Það er kannski sárt, en
margir eru þér þakklátir.
Þú bregður okkur um fals. Það
er vegna þess að þú veist ekki
hvernig kvikmyndin er unnin.
Kvikmyndatökuvélin er nefnilega
ekki alsjáandi auga, sem sér alltaf
sannleikann í öllum greinum.
Henni er beint i ýmsar áttir eftir
vilja höfundarins. Segulbands-
tækið heyrir þaó, sem stjórnandi
þess vill að þaó heyri. Mynd og
hljóð eru sett saman í klipping-
unni eftir vilja höfundarins.
Kvikmynd hefur alltaf verið og
verður alltaf einföldun, alveg
eins og bókmenntir og myndlist.
Hvernig er hægt að gera kröfu til
nokkurs manns um, að verk hans
séu fullkomin og segi allan sann-
leikann? Erum við ekki alltaf að
leiðrétta hitt og þetta, sem talið
var heilagur sannleikur áður?
Eitt árið fáum við fólk á gullfati i
útvarpinu næstum daglega með
veðurfregnunum og í sjónvarpinu
brosmilt eins og lúxuskynbombu
með kvöldsteikinni, og næsta ár
segja þessi sömu tæki okkur, að
bak vió brosið hafi falist bófar
eins og við hér i borginni ölumst
upp við á þrjúsýningum kvik-
myndahúsanna. Og hver veit
nema í ljós komi að einhverjir,
sem fljúga nú eins og gervitungl
milli heimsálfa að sætta menn og
þjóðir samkvæmt upplýsingum
þessara tækja, hafi í raun og veru
verið að æsa sömu þjóðir upp til
að koma fyrir stórri tímasprengju
undir Islandi og hafi sett klukk-
una á næstu þjóðhátíð?
Mig langaði til að segja þér, að
vitneskja okkar um heiminn
kemur í fjölmiðlum frá fólki eins
mér og þér með misjafna reynslu
og þekkingu. Það er erfitt að átta
sig á þvi, hver hefur rétt fyrir sér
og hver ekki. Við megum alls ekki
fella dóm um upplýsingar eftir
þvi hvort þær eru óþægilegar eða
ekki. Manstu eftir því, hve langan
tíka tók að viðurkenna, að jörðin
væri hnöttótt?
Eyjólfur, manstu eftir mynd-
inni, sem þú málaðir á sviðið I
gamla kvenfélagshúsinu? Þar er
Þorbjörn, fjall Grindvíkinga, í
baksýn og tjörn í forgrunni.
Myndin er máluð á það, sem
menningarpostularnir kalla
natúralískan hátt.
Ég spurði þig, hvort herstöðin
sæist ekki frá þessu sjónarhorni?
BifreíÖa-
eigendur
Við bendum á eftirfarandi atriði sem vert er
að ihuga fyrir veturinn:
# Mótorstillingar með fullkomnustu mælitækjum
og þjólfuðum starfskröftum.
# Hjólastillingar og hjólajafnvægi, ný og
fullkomin tæki.
(Til ath. þegar skift er yfir í vetrarhjólbarða.)
# Rafmagnsviðgerðir:
Mæling ó rafkerfi og viðgerð ó rafölum, ræsum, o.fl.
Ford eigendum er bent á að panta
tíma fyrir reglulegar 5 og 10 þús. km.
skoðanir, samkvæmt leiðbeiningum í
eftirlitsbókum sem fylgja öllum Ford-
bílum.
^ FORD
SVEINN
EGILSSON HF
VERKSTÆÐIÐ
Skeifunni 17 sími 85100
Án þess að svara spurningunni
sagðirðu þetta ekki vera pólitiska
n»ynd.
Þaö er semsagt ópólitískt að sjá
ekki herstöðina, þótt maður hafi
hana fyrir augunum. Er það ópóli-
tískt að viðurkenna aldrei neitt,
sem er óþægilegt?
En hvort er meira fals, Eyjólf-
ur, málverkið þitt af Þorbirni, þar
sem þú sleppir herstöðinni og
stöngunum, sem blasa við all-
staðar, eða myndskeiðið í kvik-
myndinni, þar sem ,,súmmað“ er
á herstöðina?
Svo ég minnist aftur á þessa
hræðilegu kvikmynd „Fiskur
undir steini,“ þá fjallar sú kvik-
mynd um óhóflegan vinnutíma.
Eftir að hafa lesið orðsendingu
þina og skrif, sem orðið hafa út af
þessari kvikmynd og strikað út
dóma, sem stafa af misskilningi,
blindu eða þekkingarskorti á
myndrænni frásögn, þá finnst
mér verða eftir reiði og sárindi
yfir því, hversu nálægt sannleik-
anum þessi lélega, yfirborðs-
kennda, fordómafulla, falsaða,
ósanngjarna, heimskulega, hroka-
fulla kvikmund er.
1 trúnaði get ég sagt þér, að
þessi viðbrögó vió kvikmyndinni
minna mig á mann, sem sér sjálf-
an sig í spegli. Myndin í speglin-
um kemur ekki heim og saman
við myndina, sem hann hefur ósk-
að að sjá af sér. í stað þess að laga
sig að óskamyndinni beinir hann
reiði sinni að verkamönnunum,
sem settu spegilinn upp.
Við höfundarnir höfum marg-
sinnis endurtekið, að kvikmyndin
fjallaði ekki um Grindavík sem
slíka heldur væri hugsuð sem
dæmisaga til að lýsa ákveðnu
ástandi. Samt eru Grindvíkingar
sárir yfir þeirri mynd, sem hún
gefur af Grindavík. Sennilega
hefðum við eins getað sagt að
kvikmyndin væri ekki um neitt.
Samt hefðu Grindvíkingar orðið
sárir yfir þeirri mynd, sem hún
gæfi af Grindavík, Vestmannaey-
ingar sárir yfir þeirri mynd, sem
hún gæfi af Vestmannaeyjum og
Reykvíkingar sárir yfir þeirri
mynd, sem hún gæfi af Reykja-
vik.
Vonandi eru íslendingar ekki
þannig, að þeir geti ekki séð sig á
kvikmynd nema spariklædda á
sjómannadeginum. Ef svo væri,
mættum við búast við þvi að Al-
þingi setti lög, sem bönnuðu allar
kvikmyndatökur á Islandi nema á
frídögum.
Með kveðju
Þorsteinn Jónsson.
Elli- og hjúkrunarheimili
tekið í notkun á Hornafirði
Höfn Hornafirði, 9. nóv. —
NVTT elli- og hjúkrunarheimili
var formlega opnað i gær á Höfn f
Hornafirði að viðstöddum for-
mönnum kvenfélaga sýslunnar,
fréttamönnum, hreppsnefnd
Hafnarhrepps og fleiri gestum.
Formaóur framkvæmdanefnd-
ar, Friðjón Guðröðarson lögreglu-
stjóri, bauð gesti velkomna og gat
þess, að heilbrigðisráðuneytið
hefói hinn 21. október samþykkt
leyfi til reksturs húsa þessara.
Síðan lýsti hann húsunum, sem
eru tvö viðlagasjóðshús, annað
keypt af sýslusjóði, en hitt af
Hafnarhreppi. Hvort hús er 120
fermetrar. Hús þessi eru númer 3
og 5 við Hvannabraut á fögrum
stað. Húsið á Hvannabraut 3 er
eingöngu notað fyrir hjúkrunar-
sjúklinga. Það hefur fimm rúm og
aðstöðu fyrir sængurkonur, eitt
til tvö rúm, og eitt rúm fyrir
slasaða. Húsið á Hvannabraut 5 er
fyrir fótaaðgerðarsjúklinga. Eru
þar 4 herbergi og möguleikar
fyrir 7 til 8 vistmenn. Gætu því
vistmenn orðið samtals 15. Mjög
miklar lagfæringar hafa verið
gerðar á húsunum og eru þau
björt og vistleg.
Fastráðið starfsfólk er nú 10
manns, þó sumt aðeins með hluta
úr starfi. Kjartan Árnason,
héraðslæknir, mun verða læknir
stofnunarinnar, Vilborg Einars-
dóttir ljósmóðir er forstöðukona,
en yfirhjúkrunarkona Sigrún
Hermannsdóttir. 12 vistmenn
hafa þegar fengið dvöl á heimil-
unum.
Auk Friðjóns fluttu ræður við
þetta tækifæri Oskar Helgason,
oddviti Höfn, og frú Sigurlaug
Árnadóttir í Hraunkoti, formaður
Kvenfélagssambandsins, og við
þetta tækifæri færði hún heimil-
unum 600 þúsund króna gjöf frá
sambandinu til aðstoðar við
kostnað á búnaði húsanna, en
hann er nú þegar ein og hálf
milljón króna.
í stjórn framkvæmdanefndar
eru frú Margrét Gísladóttir, Gísli
Björnsson og Friðjón Guðröðar-
son, sem jafnframt er formaður
nefndarinnar.
Þá má geta þess í þessu sam-
bandi, að hafin er framkvæmd við
hina fyrirhuguðu læknamiðstöð
og reisa á siðar í tengslum við
hana elli- og hjúkrunarheimili.
— Gunnar.
jiloroiúuþlaiiiíi
margfaldar
markad vdar
Tilkynning
frá H.f. Eimskipafélagi íslands um breyttan afgreiðslu-
tíma vörugeymsluhúsa.
Vegna breytts vinnufyrirkomulags verður af-
greiðslutími í vörugeymslum Eimskipafélagsins
í Reykjavík hér eftir mánudaga til föstudaga:
frá kl. 08,00 til kl. 09.40
frá kl. 10.00 til kl. 1 1 .45
frá kl. 1 3.00 til kl. 16.40
Viðskiptamönnum er vinsamlega bent á að
koma með bifreiðir sínar góðri stund fyrir
lokunartíma, svo að tími vinnist til að afgreiða
vörurnar áður en vinnu lýkur.
Reykjavík, 8. nóvember 1974
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS