Morgunblaðið - 12.11.1974, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974
KB danskur meistari
Dönsku 1. deildar keppninni I
knattspyrnu lauk nýlega með
sigri Kaupmannahafnariiðsins
KB, sem vann mótið að þessu
sinni með umtalsverðum yfir-
burðum. Hlaut liðið 33 stig úr
leikjum sínurn. en Vejle, sem
varð f öðru sæti, hlaut 25 stig.
Meistarar fyrra árs, Hvidovre,
urðu hins vegar að bíta í það súra
epli að faila niður f aðra deild.
Miklar breytingar verða gerðar
á fyrirkomulagi knattspyrnumóta
í Danmörku frá og með þessu
keppnistimabili. Hingað til hafa
verið 12 lið í fyrstu deild, en
verða framvegis 16. Fjögur efstu
liðin í 2. deildar keppninni kom-
ust því upp í 1. deíld. Þriðju
deildar keppninni i Danmörku
hefur verið tvískipt hingað til og
efstu liðin úr hvorum riðli hafa
komizt upp í 2. deild, sem skipuð
var 12 liðum. Nú verður riðla-
skiptingin í 3. deildinni felld nið-
ur og leika þar framvegis 16 lið,
og 16 lið í 2. deild. Fjögur efstu
liðin í hvorum riðli í 3. deild kom-
ust upp i 2. deild.
Úrslit 1. deildar keppninnar
urðu annars sem hér segir:
KB 22 15 3 4 48—24 33
Vejle 22 11 3 8 47—35 25
R 1903 22 9 6 7 37—28 24
9 6 7 33—30 24
9 5 8 40—38 23
8 7 7 34—36 23
10 2 10 37—36 22
Næstved 22 8 5 9 40—38 21
7 6 9 31—42 20
6 7 9 35—41 19
6 511 29—38 17
Hvidovre 22 4 5 13 24—49 13
Holbæk
B 1901
Randers
Frem
Köge
AaB
Slagelse
22
22
22
22
22
22
22
Liðin, sem nú komast upp í 1.
deild, eru eftirtalin: Vaniöse, B
93, Fremad A, B 1909 og Esbjerg.
Markhæsti leikmaðurinn í
dönsku 1. deildar keppninni í ár
var Niels Chr. Holmström, KB,
sem skoraði 24 mörk, en næstur í
röðinni var Kárl Age Skouborg,
KB, sem skoraði 10 mörk.
Það lið, sem fékk flesta
áhorfendur á leiki sína í sumar,
var Næstved, samtals 103.528.
AaB fékk 102.997 áhorfendur og
KB fékk 102.052 áhorfendur.
Fæsta áhorfendur fengu Frem,
73.218, og B 1901, 67.372.
UMSS heiðrar Guð-
jón Ingimundarson
Á ÁRSÞINGI Ungmennasam-
bands Skagafjarðar s.l. vor var
Guðjón Ingimundarson, fþrótta-
kennari á Sauðárkróki, kjörinn
heiðursfélagi sambandsins, en
Guðjón lét af störfum sem for-
maður UMSS árið 1973, eftir að
hafa gegnt þvf starfi af einstök-
um áhuga og samvizkusemi um 29
ára skeið.
Á formannaráðstefnu UMSS,
sem haldin var fimmtudaginn 31.
október s.l., afhenti svo formaður
sambandsins, Stefán Pedersen,
Guðjóni vandað gullúr sem gjöf
frá öllum ungmennafélögum
Skagafjarðar.
Með gjöf þessari vildu ung-
mennafélagar þakka Guðjóni far-
sæla forystu um áratuga skeið og
ómetanlegan þátt hans í því æsku-
lýðsstarfi sem unnið hefur verið á
sambandssvæðinu. Guðjón stjórn-
aði t.d. uppbyggingu þeirra glæsi-
legu íþróttamannvirkja sem eru á
Sauðárkróki, allt frá upphafi, af
mikilli framsýni og áræði.
******
Yfirburðir Júdófélagsmanna í
fyrri umferð sveitakeppninnar
Niels G'hr. Holmström varð mark-
hæstur í 1. deildar keppninni
dönsku í sumar, skoraði 24 mörk.
Hann varð einnig markhæstur
1968 og skoraði þá líka 24 mörk.
JÚDÓFÉLAG Reykjavfkur hafði
algera yfirburði f fyrri umferð
sveitakeppninnar, sem háð var
31. október sl. Keppendur þess
unnu allar sfnar glímur með
mesta mun, sem hægt er að ná,
nema yngsti keppandi þess, sem
er aðeins 16 ára, hann tapaði fyrir
Islandsmcistaranum f léttvigt,
Jóhannesi Jóhannesi Haralds-
syni, Grindavfk.
Ýmsir nýir júdómenn komu
fram i þessu móti, og má mikils
vænta af sumum þeirra, þegar
þeir hafa öðlast meiri reynslu. Má
þar fyrst nefna léttþungavigtar-
manninn i JR, Benedikt Pálsson,
og þungavigtarann, Hannes
Ragnarsson, JR, en þeir eru mjög
rammir að afli og þrekmiklir.
Unnu þeir allar sínar viðureignir,
nema Benedikt tapaði fyrir félaga
sínum, Sigurði Kr. Jóhannssyni,
sem sýndi venjulegt öryggi og
sigraði i léttþungavigt, en Sig-
urður er okkar reyndasti júdó-
maður og hefur unnið flest mót
hér undanfarin ár. Svavar M.
Carlsen keppti ekki að þessu
sinni. Af öðrum nýliðum JR má
einkum nefna yngsta keppand-
ann, Gunnar Hallgrímsson. Hann
sýndi góða kunnáttu og tapaði
aðeins fyrir hinum keppnis-
reynda Jóhannesi úr Grindavík.
Hinir reyndari menn Júdófélags-
ins, Sigurjón Kristjánsson, Hall-
dór Guðbjörnsson og Kári Jakobs-
son sýndu mikla framför, einkum
vakti keppni Kára við Sigurjón
mikla athygli. Kári vann þá
keppni, en Sigurjón er
„tekniskasti" júdómaður okkar.
Júdódeild Ármanns, sem varð
næst aó stigatölu, sendi nokkra
efnilega byrjendur fram, en
þeirra aðalkeppnismenn voru
þeir Garðar Skaftason, Sigurjón
Ingvarsson og Gísli Þorsteinsson.
Þeir eru skæðir júdómenn og
sýndu góða kunnáttu, en virtist
skorta keppnisreynslu á við Júdó-
félagsmenn. Er ekki að efa, að
þeir verða harðir 14. des. n.k., en
þá fer fram seinni hluti keppn-
innar.
Gerpla í Kópavogi sendi ekki
fullskipaða sveit fremur en
Suðurnesjamenn, en í Gerplu er
að vaxa upp einn af meiri háttar
júdókeppnismönnum okkar, Þor-
geir Sigurðsson. Hann er í mikilli
framför, enda innan við tvitugt,
og má mikils af honum vænta i
alþjóðaunglingamótum. Þjálfari
Gerplu, össur Torfason, er einn
af mestu kunnáttumönnum hér i
júdó, og sýndi mjög góða keppni á
mótinu. Hann er í mikilli framför,
þótt kominn sé á fertugsaldur.
Suðurnesjamenn, Grindvíkinga
og Keflvíkinga má með sanni
kalla júdóharðjaxla. Þeir eru
sýnilega ekki komnir í æfihgu
enn, nema Jóhannes Haraldsson,
sem er mjög góður, og vann allar
sinar viðureignir. Ómar Sigurðs-
son, Keflavik, er ungur og vafa-
laust verðandi landsliðsmaður, ef
hann æfir vel, en hinn harð-
skeytti Gunnar Guðmundsson
virðist ekki vera kominn i æfingu
enn.
Þegar litið er yfir þetta fyrsta
Aðrir hafa gert betur en AIi
NÚ DEILA menn ákaft um það
hvort Muhammed AIi hafi með
sigri sfnum yfir George Fore-
man í bardaga þeírra í Zaire á
dögunum unnið meira afrek i
sögu hnefaleikanna en nokkur
annar. Haida margir fram, að
svo sé, en aðrir benda á eftir-
farandi: Aðrir hafa varið titil
sinn oftar en Ali; hann er ekki
elztur þeirra sem unnið hafa
titilinn; hann varð ekki fyrstur
til þess að vinna aftur til titils,
sem hann hafði tapað.
En víst er, aó afrek Muhamm-
eds Ali er hið glæsilegasta.
Þetta var í tólfta skiptið, sem
hann tók þátt i einvigi um
beimsmeistaratitilinn frá því
að hann vann hann í fyrsta
skipti 25. febrúar 1964 með
mjög óvæntum sigri yfir Sonny
Liston, sem gafst upp í hléi
milli 7. og 8. lotu i viðureign
þeirra í Miami i Flórída. Á
þeim tíma var Liston talinn
ósigrandi, rétt eins og Foreman
nú.
11 sinnum hefur Muhammed
AIi unnið heimsmeistarakeppni
og aóeins tveir andstæðingar
hans hafa staðið á fótunum eft-
ir 15 lotur, þeir George Chuvalo
og Ernie Terrell. Eina tap AIis í
keppni um titilinn er ósigur
hans fyrir Joe Frazier á stigum
í keppni þeirra 8. marz 1971, í
New York.
Hinn þekkti Joe Louis átti þó
lengri og meiri frægðarferil en
Ali. Á árunum 1937 til 1950
keppti hann 28 sinnum um titil-
inn og sigraði 27 sinnum. Að-
eins þrír þessara leikja stóðu í
15 lotur. En Ali hefur það hins.
vegar fram yfir Louis, að hann
hætti keppni í þrjú ár
1968—1971 og það var einmitt í
lok þess tima, sem hann tapaði
fyrir Frazier.
Afrekaskrá Muhammeds Ali f
baráttunni um heimsmeistara-
titilinn er annars þessi:
25. febrúar 1964: Sigur yfir
Sonny Liston á rothöggi í 7.
lotu.
25. marz 1965: Sigur yfir Sonny
Liston á rothöggi í 1. lotu.
22. nóvember 1965: Sigur yfir
Floyd Patterson á rothöggi í 12
lotu.
29. marz 1966: Sigur yfir
George Chuvalo á stigum eftir
15 lotur.
21. maí 1966: Sigur yfjr Henry
Cooper á rothöggi í 6. lotu.
6. ágúst 1966: Sigur yfir Brian
London á röthöggi í 3. lotu.
10. september 1966: Sigur yfir
Karl Mildenberger á rothöggi í
2.lotu.
14. nóvember 1966: Sigur yfir
Cleveland Williams á rothöggi i
3.lotu.
6. febrúar 1967: Sigur yfir
Ernie Terrell á stigum eftir 15
lotur.
22. marz 1967: Sigur yfir Zora
Folley á rothöggi í 7. lotu.
8. marz 1971: Tap fyrir Joe
Frazier á stigum eftir 15 lotur.
30. október 1974: Sigur yfir
George Foreman á rothöggi i 8.
lotu.
Floyd Patterson barðist alls
13 sinnum um heimsmeistara-
titilinn, en hann tapaði alls
fjórum þeirra leikja. Einum
fyrir Svíanum Ingemar Johans-
son, tveimur fyrir Sonny Liston
og einum fyrir Muhammed Ali.
Ali er nú 32 ára og er ekki
elstur þeirra, sem unnið hafa
til heimsmeistaratitilsins. Það
met á Joe Walcottt, sem var 37
ára þegar hann vann Ezzard
Charles á rothöggi i 7. lotu í
keppni þeirra um titilinn 1951.
mót þessa starfsárs júdófélag-
anna, er ekki hægt annaó en að
vera bjartsýnn á framtíðina.
Menn eru alls ekki komnir í fulla
æfingu ennþá, en samt voru flest-
ar viðureignir mjög harðar, og oft
brá fyrir góðri tækni. Við erum
svo heppnir aó hafa hér Iands-
þjálfara, sem er á heimsmæli-
kvarða, og nú veltur mikið á því
að fá sem flesta af þessum efni-
legu júdómönnum á æfingar til
hans. Það er mikið i húfi fyrir
júdómenn okkar að verja silfur-
verðlaunin frá síðasta Norður-
landamóti, og helzt að vinna gull-
verðlaun í vetur þegar Norður-
landamótið verður háð hér á
landi, 19. og 20. april. Ef þeir
mæta á þeim æfingum, sem þeir
eiga kost á nú, og æfa hressilega,
eru miklar líkur til að þetta
takist.
Úrslit mótsins þann 31. okt sl.
urðu sem hér segir: (Sveit fékk 2
stig fyrir vinning, eitt fyrir jafn-
tefli. Síðan voru taldir vinningar
einstaklinga og síðast á hvern
hátt þeir unnu. Hæst 10 stig, 7, 5
og 3.)
A-sveit Júdófélags Rvk. — 5
menn
12 — 29:1 — 269:10
B-sveit Júdófélags Rvk. — 3
menn
10—15:12—150:111
B-sveit Ármanns — 5 menn
8 — 16:30 — 160:130
A-sveit Ármanns — 5 menn
4—11:18—105:166
Sveit UMFK — 3 menn
4 — 8:17 — 80:160
Sveit Gerplu — 3 menn
2 — 9:16—90:155
Sveit Grindavíkur — 2 menn
0 — 7:18 — 58:180.
Þess ber að geta, að mennirnir í
sveit Grindavíkur voru á sérstakri
undanþágu í keppninni og að full-
skipuð sveit fær vinning og fulla
stigatölu fyrir þá menn, sem
ófullskipuð sveit sendir ekki á
móti, og standa því rriiklu betur að
vígi með að hafa tryggða vinninga
án keppni.