Morgunblaðið - 12.11.1974, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974
Framararnir sem sigruðu í afmælismóti Þróttar: Frá vinstri: Marteinn, Guðgeir, Eggert, Asgeir, Atii,
Símon, Rúnar og Kristinn.
Framarar sigruðu í
afmælismóti Þróttar
íslandsmótið 2, deild
Auðveldur sigur Þórs
yfir mistæku Fylkisliði
A sunnudagskvöldið efndi
Þróttur tii móts f innanhússknatt-
spyrnu í tilefni tuttugu og fimm
ára afmælis félagsins. Leikið var
með útsláttarfyrirkomulagi. Atta
félögum var boðin þátt
taka.
Knattspyrna innan húss er
bráóskemmtileg iþróttagrein,
bæði fyrir þá sem leika, og einnig
fyrir áhorfendur. Samt sem áður
voru áhorfendur ekki ýkja margir
á sunnudagskvöldið, enda
kannski mettir af íþróttaviðburð-
um helgarinnar. Það er ef til vill
nokkuð til í þvi sem gárungarnir
segja, að íþróttakeppni sé orðin
okkar höfuðatvinnuvegur.
Urslit einstakra leíkja í undan-
keppninni voru sem hér segir.
Breiðablik — Keflavík 4—8
Þróttur — Fram 4—8
Akranes — K.R. 7—0
Víkingur — Valur 3—8
I undanúrslitunum mættust svo
sigurvegararnir úr fyrsta og öðr-
um leik, og sigurvegarar í þriðja
og fjórða leiknum.
Fram sigraði Keflvikinga með 6
mörkum gegn 4 og Valur sigraði
FVRSTL' deildar keppni kvenna f
handknattleik hófst á laugardag-
inn þegar Armann heimsótti Þór
á Akureyri. Eins og við mátti
búast var þarna um að ræöa leik
kattarins að músinni. Armanns-
stúlkurnar voru í allt öðrum
gæðaflokki en ungar og reynslu-
lausar Þórsstúlkurnar og spurn-
ingm var aðeins sú hve stór sigur
Armenninganna yrði.
Og í hálfleik var strax orðinn 7
marka munur, 5—12 fyrir Ar-
mann. 1 seinni hálfleiknum var
Axel
kemur
Nú er afráðið að Axel Axels-
son mun koma til landsleikja
tsiands og Austur-Þýzkalands,
sem fram fara n.k. sunnudag
og þriðjudag. Mun Axel koma
heim á föstudagskvöidið. Svo
vel vildi til að félag Axels í
Þýzkalandi á ekki að leika um
næstu helgi, þannig að auðvelt
reyndist fyrir hann að fá leyfi
til íslandsferðarinnar. Er ekki
að efa að landsliðinu verður
mikill styrkur að þvf að fá
Axel til liðs við sig.|
Akranes með sömu markatölu
eftir framlengdan leik.
Til úrslita léku því Fram og
Valur.
I fyrri hálfleik var um jafna og
harða baráttu að ræða. Valsarar
komust í tvö gegn engu, sem
Framarar svo jöfnuóu, en Valur
2. deild kvenna
Um helgina fóru fram þrír leik-
ir í 2. deild kvenna. Úrslit urðu
sem hér segir:
Ú.M.F.N. — l.R. 16—9
Haukar — Fylkir 19—5
l.B.K. — U.M.F.G. 19—7
Lið U.M.F.N. virðist einna lík-
legast þessara liða til að öðlast
sæti í 1. deild. Raunar hafa stúlk-
urnar úr Njarðvíkunum leikíð
þar áður, en höfðu skamma við-
dvöl. Nú virðast þær aftur á móti
hafa sterkara liði á að skipa, og
verður gaman að fylgjast með lið-
inu í vetur.
svo áframhaldandi stórskotahrfð
að Þórsmarkinu og væru þær
Guðrún Sigurþórsdóttir og Erla
Sverrisdóttir iðnastar við að snúa
slaka Þórsvörnina af sér og skora.
Úrslit leiksins urðu 28—11 fyrir
Armann — óvenjulega há marka-
tala f kvennaleik.
Lið Þórs er örugglega með
yngstan meðalaldur allra liða í 1.
deild og flestar stúlknanna hafa
litla sem enga reynslu að baki.
Þeirra bíður örugglega það hlut-
skipti að falla niður í 2. deild,
nema kraftaverk gerist. Vörn liðs-
ins var sem gatastigi og í sóknar-
leiknum söknuðu menn Önnir
Grétu Halldórsdóttur, sem verið
hefur langbezt í líðinu undan-
farin ár, sem er nú hætt hand-
knattleiknum, ásamt nokkrum
öðrum stúlkum í Þór og hafa
kornungar stúlkur tekið vió hlut-
verki þeirra. Aðalbjörg Ölafs-
dóttir var einna bezt í liði Þórs að
þessu sinni.
Ármannsliðið sýndi góðan leik,
en geta þess verður þó ekki metin
— til þess var mótstaðan of lítil.
Þó er greinilegt, að Arnar Guð-
laugsson, þjálfari liðsins, er á
góðri leið með að koma þarna upp
mjög sterku liði og mikið má vera
ef Ármann verður ekki í topp-
baráttunni i vetur.
Mörk Þórs í leiknum: Magnea
Friðriksdóttir 3, Aðalbjörg Ölafs-
dóttir 2, Guðrún Stefánsdóttir 2,
Soffía Finnsdóttir 2, Guðrún
átti síðasta orðið í hálfleiknum og
höfðu yfir 3—2.
1 siðari hálfleiknum gekk Völs-
urunum öllu verr, skoruðu ekkert
mark, en Framarar settu fjögur
og sigruðu því með sex mörkum
gegn þremur.
Fyrir Fram skoraði Marteinn
Geirsson fjögur og Eggert tvö.
Fyrir Val skoruðu þeir Ingi
Björn, Bergsveinn og Helgi sitt
markið hver.
I mótslok var Fram veittur fag-
ur gripur til eignar og minja um
þetta skemmtilega mót.
Áður en úrslitaleikurinn hófst,
mættust lið Þróttar og K.R. frá
árunum upp úr 1960. Mátti þar
sjá margar kunnar kempur svo
sem þá Ellert Schram, Bjarna Fel.
og Þórð Jónsson í K.R. og Axel
Axelsson, Ómar Magnússon og
Þorvarð Björnsson hjá Þrótti svo
einhverjir séu nefndir. Leiknum
lauk með yfirburðasigri Þróttar, 9
mörk gegn 2 K.R.-inga. Það hefði
eflaust þótt saga til næsta bæjar,
ef Þróttur hefði sigrað K.R. á
árunum í kring um 1960.
Bergvinsdóttir 1, Sólveig Sigur-
geirsdóttir 1.
Mörk Ármanns: Guðrún Sigur-
þórsdóttir 9, Erla Sverrisdóttir 8,
Auður Rafnsdóttir2, AnnaGunn-
arsdóttir 2, Jóhanna Ásmunds-
dóttir 2, Sigríður Rafnsdóttir 2.
Dómarar voru Björn Kristjáns-
son og Óii Olsen og dæmdu þeir
óaðfinnanlega.
Fyrsti leikurinn I 2. deild íslands
mótsins I handknattleik, sunnan
heiða, var háður I fþróttahúsinu I
Njarðvík á sunnudag. Þar mættust
Keflvlkingar og K.R.-ingar, sem
margir telja liklega til að endur-
heimta sæti sitt 11. deild.
í leiknum á sunnudag sýndu K.R.-
ingar þó ekki það sem við var búizt.
Lengi vel var leikur þeirra i molum,
t.d. höfðu þeir ekki skorað nema tvö
mörk þeg»r tittugu mín. voru liðnar
af leiktimanum, þar af annað úr víti.
Það var þó ekki vegna þess að Kefl-
vikingar sýndu það góðan leik, lið
þeirra er mjög ámóta og það hefir
verið undanfarin ár, og ekki liklegt
til stórræða.
í fyrri hálfleiknum höfðu Keflvik-
ingar alltaf frumkvæðið. Þeir höfðu
mest þrjú mörk yfir 5—2. í lok
hálfleiksins náðu K.R.-ingar sér
heldur á strik, og þegar flautan gall
var jafnt, sex mörk gegn sex.
f upphafi siðari hálfleiks náðu
K.R.-ingar þegar forystu, sem entist
þeim út leikinn. Það er skemmst frá
ÍSLANDSMÓTIÐ i 2. deild i hand
knattleik hófst á Akureyri á laugar-
daginn með leik Þórs og Fylkis.
Nokkrar mannabreytingar hafa orðið
hjá báðum þessum liðum frá þvi i
fyrra. T.d. leika Þórsarar F vetur án
Sigtryggs Guðlaugssonar og Ólafs
Sverrissonar. Sigtryggur sem nú
leikur með ÍR var einn af marka-
hæstu leikmönnum 1. deildar keppn-
innar i fyrra. f Fylkisliðið vantaði
Ásbjörn Skúlason og Ásgeir Ólafs-
son.
Fylkir byrjaði með knöttinn í þess-
um leik og áður en ein minúta var
liðin hafði Gisli Halldórsson skorað
fyrsta mark 2. deildar, þessa
keppnistimabils. En Þórsliðið lét
þetta ekkert á sig fá. Þorbjörn jafn-
aði strax og eftir 10 min. höfðu
Þórsarar bætt fjórum mörkum við og
staðan var 5:1. Næstu mínútur voru
nokkuð jafnar, en undir lok hálfleiks-
ins voru þeir Fylkismenn ákaflega
mistækir og munurinn jókst jafnt og
þétt, og var staðan í hálfleik orðin
15:7, og þar með nánast formsatriði
að Ijúka leiknum, svo miklir höfðu
yfirburðir Þórsaranna verið. Sérstak-
lega var munur á varnarleik liðanna.
en góður varnarleikur hefur raunar
verið einkennandi fyrir Þórsliðið
undanfarin ár.
Seinni hálfleikur var mun jafnari
en sá fyrri, en ekki var sá handknatt-
leikur sem liðin buðu uppá rismikill.
Þórsliðið komst mest 11 mörkum
yfir, er staðan var 19:8, þá brugðu
Fylkismenn á það ráð að taka Þor-
björn Jensson úr umferð. Varð
sóknarleikur Þórs heldur vandræða-
legur eftir það, og skorti alla ógnun.
Tókst Fylki að hala inn nokkuð af
forskoti Þórs og var þar aðallega að
verki Birgir Guðjónsson, snaggara-
Fylkir sprakk
og KA vann
KA vann auðveldan sigur F sinum
fyrsta leik i 2. deildar keppninni í
handknattleik að þessu sinni. Það
leit þó ekki út fyrir KA-sigur I leikn-
um til að byrja með, þar sem and-
stæðingarnir, Fylkir, höfðu yfir
mestan hluta fyrri hálfleiksins. En i
seinni hálfleiknum dofnaði mjög yfir
Fylkismönnum og um leið fór að
ganga betur hjá KA. Úrslitin urðu
24—15, stórsigur norðanmanna, þó
svo að þeir sýndu engan veginn
góðan leik.
Fæstir bjuggust við miklu af Fylki
eftir slakan leik liðsins gegn Þór á
laugardaginn, en það virtist vera allt
annað lið sem hóf leikinn á móti KA
á sunnudag. Fylkir skoraði 3 fyrstu
mörkin og um miðjan fyrri hálfleik-
inn var staðan 7—4 fyrir Fylki. Þá
loks tókst KA að þétta hjá sér
vörnina og betur tók að ganga að
koma knettinum framhjá Arnþóri
Óskarssyni í Fylkismarkinu. Var
staðan orðin 10—8 fyrir KA F hálf-
leik.
Fylkir skoraði fyrsta markið i
seinni hálfleik, en eftir það seig
stöðugt á ógæfuhliðina hjá þeim. KA
þvi að segja að K.R. sigraði með 18
mörkum gegn 1 2 Keflvikinga.
Eins og fyrr getur olli lið K.R.
nokkrum vonbrigðum Þess ber þó
að gæta, að F liðið vantaði tvo leik-
menn, þá Hauk Ottesen og Þorvarð
Guðmundsson. Einnig er hugsanlegt
að Ingólfur Óskarsson, sem þjálfar
K.R. leiki með þeim F vetur. Þegar
þessir menn og þeir sem fyrir eru
koma saman ætti K.R. að geta gert
stóra hluti. En betur þurfa K.R.-ingar
að gera i vetur en á sunnudaginn, ef
1. deildarsætið á að verða þeirra.
Eins og fyrr getur er lið Keflvik-
inga ósköp áþekkt þvi sem það hefir
verið undanfarin ár, og ekki liklegt
til stórátaka.
Morkin K.R.: Hilmar 9 (4 v.),
Simon 3. Haraldur 2. Bjöm, Bogi,
Ingi, Steinn og Hallur (v.) eitt hver.
Keflavik: Þorsteinn 7 (2v), Ást-
ráður 3, Sigurbjörn og Sigurður eitt
hvor.
Slakir dómarar voru þeir Árni
Júlíusson og Vilhjálmur Jónsson.
legur nýliði. Lokastaðan var 23:16,
og var það meiri munur en búizt var
við.
Hvorugt liðanna lék skemmtilegan
handknattleik að þessu sinni, en þó
er vert að geta góðs varnarleiks
Þórsaranna, sem sýnir að þeir verða
erfiðir heim að sækja i vetur. Þor-
björn átti góðan leik að þessu sinni,
en verður sennilega að gera sér það
að góðu að fá „yfirfrakka" í öllum
leikjunum, þar sem hann er eina
skytta Þórsliðsins sem eitthvað
kveður að. Óskír Gunnarsson er
efnilegur leikmaður i Þórsliðinu og
vakti athygli fyrir frábærar linusend-
ingar. En bezti maður Þórs i þessum
leik var Árni Gunnarsson, hin harð-
skeytti linumaður liðsins, sem skap-
ar jafnan mikla hættu með hraða
sínum og krafti. Þá er og vert að
geta frammistöðu Sigurðar Þorleifs-
sonar, nýliða frá Vestmannaeyjum,
en hann gerði marga laglega hluti
þann stutta tima sem hann var inná.
Hjá Fylki sýndi aðeins einn leik-
maður umtalsverða getu: Birgir
Guðjónsson. Var hann tvímælalaust
bezti maður þessa leiks. Aðrir leik-
menn fylkis ollu vonbrigðum, sér-
staklega Einar Einarsson og Einar
Ágústsson sem verið hafa máttar-
stólpar Fylkisliðsins. Var hins
hávaxna Einars Einarssonar reyndar
mjög vel gætt i leiknum.
Mörk Þórs: Árni Gunnarsson 7,
Þorbjörn Jensson 4, Aðalsteinn
Sigurgeirsson 4, Benedikt
Guðmundsson 3, Óskar Gunnarsson
2, Gunnar Gunnarsson 1, Ragnar
Sverrisson 1, Sigurður Þorleifsson 1.
Mörk Fylkis: Birgir Guðjónsson 8.
Einar Einarsson 3, Einar Ágústsson
2, Gisli Halldórsson 1, Jón Magnús-
son 1, Öm Jensson 1. — HH
á limminu
sigur 24:15
komst i 15—10 og 10 min. fyrir
leikslok mátti sjá 20—12 á marka-
töflunni. Úrslitin voru ráðin og leik-
urinn leystist upp i leikleysu á sið-
ustu minútunum.
Lið Fylkis virðist mun lélegra nú
en i fyrra, hverju sem um er að
kenna. Það stóð sig þokkalega F
þessum leik framan af. en gafst
algjörlega upp i seinni hálfleik. og
þvi fór sem fór. Beztu menn liðsins I
þessum leik voru Einar Ágústsson og
Birgir Guðjónsson. Sá síðarnefndi er
mjög ungur að árum og á örugglega
erindi i unglingalandsliðið. Þá varði
Arnþór lengst af með prýði.
KA-liðið er eitt stórt spurningar-
merki, eins og svo oft áður. Liðið
dettur niður á ágæta leiki, en leikur
þess á milli sem byrjandi. í þessum
leik gerðu liðsmenn sig seka um
vitleysur sem jafnvel byrjendur
myndu skammast sin fyrir. Það sem
varð KA öðru fremur til bjargar var
að markvarzlan var betri en oftast
áður.
Þorleifur Ananiasson átti beztan
leik KA manna, en annars var liðið
fremur jafnt. Ármann Sverrisson var
góður meðan hans naut við, en hann
nefbrotnaði í byrjun seinni hálfleiks
ins. Hann var ekki sá eini sem varð
að vikja af velli vegna meiðsla, þar
sem Jóhann Jakobsson hafði fingur-
brotnað um miðjan fyrri hálfleikinn.
Það er sama sagan með Ármann og
Birgi, að hann gæti styrkt unglinga-
landsliðið, ef nefndin sæi ástæðu til
þess að velja mann utan StórReykja-
vikursvæðisins i liðið. Þá varði Gauti
Gautason vel í KA-markinu og svo
Viðar Kristmundsson siðast i
leiknum Auk ofantalinna er ástæða
til þess að minnast á Hörð Hilmars-
son, sem átti góðar línusendingar,
en skotanýting hans var ekki góð.
Mörk KA: Þorleifur Ananiasson 6,
Hörður Hilmarsson 4, Ármann
Sverrisson 4, Halldór Rafnsson 3,
Guðmundur Lárusson 2, Árni Bjarna
son 2, Páll Kristjánsson 2, Hermann
Haraldsson 1.
Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 5,
Birgir Guðjónsson 3, Einar Einarsson
2, Jón Magnússon 1, Gunnar
Baldursson 1, Steinar Birgisson 1,
Örn Jensson 1.
Dómarar voru Björn Kristjánsson
og Óli Olsen. Dæmdu þeir sérlega
vel og voru l allt öðrum gæðaflokki
en aðrir þátttakendur i leiknum.
Algjör einstefna
Armann vann Þór 28:11
KR vann ÍBK í slökum Ieik