Morgunblaðið - 12.11.1974, Side 30

Morgunblaðið - 12.11.1974, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974 t Föðurbróðir minn, RAGNAR R. HALDORSEN, andaðist að Eliiheimilinu Grund 8. þ m. ÞorlákurR. Haldorsen. t Systir okkar, GUÐLAUG TEITSDÓTTIR, hjúkrunarkona, andaðist8. nóvember. Systkinin. t Eiginkona mín og móðir. ÁSTRlÐUR ágústa SIGUROARDÓTTIR, Digranesveg 42, lést í Landakotsspítala aðfaranótt 9. nóvember. Geir Magnússon, Ástbjörg Geirsdóttir. t Móðir mln, SESSELJA H. SIGMUNDSDÓTTIR, forstöðukona, Sólheimum, Grímsnesi, andaðist I Borgarspitalanum 8. nóv. Fríða Sigmundsdóttir, Sigurður Kristjánsson, systkini hinnar látnu, fósturbörn og barnabörn. t Eiginmaður minn og faðir okkar LOFTUR JÚLÍUSSON, Kvisthaga 18, léztað heimili sínu, Kvisthaga 18, laugardaginn 9. nóv. Jarðarförin auglýst siðar. Margrét Guðmundsdóttir og börn. t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURÍNA EYLEIFSDÓTTIR, Sogaveg 38, andaðist í Vífilsstaðaspítala laugardaginn 9 nóv. Bjarni Sigurður Helgason, Bjarni Bjarnason, Sigrtður Ólafsdóttir, Tryggvi Bjarnason, Kristjana Guðmundsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Ámi Finnbogason. Leifur Bjarnason, Eltnborg Sigurðardóttir og barnaborn Hjartkaer eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BÁRÐUR S. BÁRÐARSON bifreiðastjóri, Stangarholti 26, lézt 8. nóv. Heiga Guðjónsdóttir, Bárður Bárðarson, Ágústa Bárðardóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðbjörg Bárðardóttir, Garðar Einarsson, Eltnborg Bárðardóttir, Magnús Hauksson, Sigurbjörn Bárðarson, Matthildur Harðardóttir og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, stjúpföður og afn, ÞÓRÐAR BJARUASONAR, prentara, Skaftshltð 34 fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. nóvember kl 3.00 e.h. Sigrtður Einarsdóttir Kristbjörg Þórðardóttir Bjöm Ómar Jónsson Valgerður Eyjólfsdóttir jón E. Guðmundsson Rósa Eyjólfsdóttir |ngi Hallbjörnsson Einar Eyjólfsson Guðbjörg Jónsdóttir Erla Eyjólfsdóttir Gunnar Þorkelsson og barnaböm. Blóm eru vtnsamlega afbeðin en þeir sem vildu minnast hans er bent á lóknarstofnanir. Jón Andrésson vélstjóri - Minning I dag fer fram frá Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði útför Jóns Andréssonar vélstjóra, Merkur- götu 7, Hafnarfirði. Hann andað- ist 3. nóv. sl. á Jósepssystraspítala í Hafnarfirði. Jón var fæddur 22. desember 1891 í Hafnarfirði, foreldrar hans voru hjónin Helga Grímsdóttir og Andrés Guðmundsson. Þau eignuðust 12 börn, þar af komust 6 til fullorðinsára. Jón var næst- yngstur af þeim sem upp komust. Jón átti heima í Hafnarfirði allan sinn aldur. Bær foreldra hans, þar sem hann fæddist hét Guðnýjarbær og stóð á lóð þeirri er hús hans stendur á. Jón og Grímur bróðir hans byggðu þetta hús árið 1909, með foreldrum sínum, og bjuggu foreldrar þeirra þar hjá þeim meðan þau lifðu. Jón var ungur að árum er hann fór að hjálpa foreldrum sínum í lífsbaráttunni, var hann fljótt lið- tækur í því, enda bráðþroska og hamhleypa til vinnu. Sextán ára gamall fór hann fyrst til sjóróðra, og þá suður í Voga. Upp frá því var sjórinn hans vinnustaður. Síð- an ræðst hann á togara, fyrst sem kyndari og síðar sem vélstjóri og varð það hans ævistarf um 50 ára skeið. Jón sigldi á togurum til Englands í báðum heimsstyrjöld- unum, árin 1914—18 og 1939—45. Hann var lengst vélstjóri á togaranum Rán, sem hann átti eignarhluta í, eða frá 1922—38, er hún var seld h/f Djúpavík. Og aftur fer hann á Rán árið 1939 og er á henni þar til hún er seld úr landi, eftir síðari heimsstyrjöld- ina. Eftir það er Jón á ýmsum togurum lengri og skemmri tíma, þar til að hann ræðst á togarann Júlí og er á honum i 8 ár, að hann hætti á sjónum, þá 67 ára gamall, var það nokkrum mánuðum áður en skipið hvarf i veióiferð við Grænland. En Jón lét ekki staðar numið með aó vinna er í land var komið, hann réðst til áhaldahúss Hafnar- fjaróarbæjar og vann þar um 12 ára skeið, er hann varð að láta af störfum vegna vanheilsu. 18. september 1920 gengur Jón i hjónaband með sinni elskulegu konu, Rebekku Ingvarsdóttur, og stofna þau heimili að Vesturbrú 1 í Hafnarfirði, en þaó hús átti Jón að hálfu á móti Grími bróóur sin- um. Þar búa þau til vors 1921, að þau flytja á Merkurgötu 7, og hafði Jón eignaskipti við Grim á hans hluta í því húsi. Og þar hafa þau búið síðan eða í rúm 53 ár. Jón og Rebekka eignuðust 3 börn, auk þess ólu þau upp stúlku, er þau tóku eins og hálfs árs gamla, þegar hún missti föður sinn. Varö hún augasteinn allra á heimilinu því að þá var yngsta barn þeirra hjóna orðið 16 ára. Börn þeirra eru þessi talin I aldursröð: Inga Halldóra, húsmóðir, búsett í Hafnarfirði, Vilhjálmur, skipa- smiður, búsettur í Svíþjóð, Andrés Guðmundur, járnsmiður, búsettur í Rvík. og fósturdóttirin, Sonja Sveinsdóttir, hjúkrunar- kona, búsett á Akureyri. Jón Andrésson var einstakur heimilisfaðir, heimilið, konan og börnin voru honum allt. Þau hjón- in voru innilega samhent með að láta öllum líða vel á sínu heimili. Þar fór saman að hann var mikill aflamaður og hún sérstök myndarkona að nýta vel það sem hann aflaði, enda heimilí þeirra rómað fyrir myndarskap. Jón var aldrei ríkur maður, en hafði ávallt nóg fyrir sig og sína. Hann var með afbrigðum hjálpsamur og þau hjón bæði, það er ótalið hvað þau hjón létu af hendi rakna við þá sem undir urðu i lifsbarátt- unni. Jón var einstakt ljúfmenni í allri umgengni við sína sam- ferðarmenn, enda virtur af öllum sem honum kynntust. Hann var afar glaðlyndur maður og kom mönnum oft í gott skap með sín- um eindæma snjöllu tilsvörum, sem eru sum hver landfleyg orð- in. Hann var hreinlyndur maður og sagði meiningu sína umbúða- laust hver sem í hlut átti. Síðustu tvö árin var Jón mjög farinn að heilsu, en hafði fótavist þar til í endaðan september sl., að hægri fótur hans lamaðist. Var hann þá fluttur í sjúkrahús, eftir það fór heilsu hans ört hrakandi, uns hann andaðist. Jón var innilega þakklátur konu sinni fyrir alla þá miklu umönnun, sem hún veitti honum er kraftar hans fóru að þverra. Það mátti heita að hún viki ekki frá honum nokkra stund síðustu tvö árin sem hann lifði. Ég sem þessar linur rita þykist vel dómbær á það sem hér er sagt frá, þvi að þegar ég 16 ára gamall kom til Hafnarfjarðar í atvinnu- t Maðurinn minn, ÁSBJÖRN ÞÓROARSON, Brekkustíg 12, andaðist að Landakotsspítala, 10. nóv. Jóhanna Guðmundsdóttir. S. Helgason hf. STEINIDJA tlnholli 4 Slmar 24477 og 14254 Móðir okkar. t VALBORG BJARNADÓTTIR, Sttgshúsi, Stokkseyri, andaðist 1 0 nóv að Elliheimilinu Grund. Synir hinnar látnu. t GUÐMUNDUR BENÓNÝSSON frá Laxárdal, húsvörður við Víghólaskóla i Kópavogi, andaðist að heimili slnu Digranesvegi 48, Kópavogi, 9. nóvember sl Dagmar Friðriksdóttir, börn og tengdabörn. t Móðir okkar, ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR, er lézt að heimili sínu Njaðargötu 3, Ketlavík 7. nóvember, verður jarðsettfrá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 13. nóvember kl. 2 e.h Jónina Einarsdóttir, Jóhanna Einarsdóttir, Ólavta Einarsdóttir. t Útför mannsins mins, föður okkar og fósturföður, JÓNS ANDRÉSSONAR vélstjóra, Merkurgötu 7, Hafnarfirði, fer fram frá Þjóðkirkjunni t Hafnarfirði þriðjudaginn 1 2 nóvember kl 2. Rebekka Ingvarsdóttir, Inga H. Jónsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, Andrés G. Jónsson, Sonja Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.