Morgunblaðið - 12.11.1974, Page 31

Morgunblaðið - 12.11.1974, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÖVEMBER 1974 31 leit, var ég svo heppinn að kynn- ast þessum heiðurshjónum, Jóni og Rebekku, og sú kynning varð til þess að ég er búinn að eiga heima hjá þeim í 43 ár samfleytt. Þessar línur eiga að vera ofurlítill þakklætisvottur fyrir alla þá miklu umhyggju, sem þau báru fyrir mér, fyrst sem óhörðnuðum unglingi og síðar í miklu heilsu- leysi mínu um margra ára skeið. Við Jón bundumst órjúfandi vináttuböndum, sem entust allt til þess siðasta. Þö að miður góðar tungur reyndu að stinga fleyg í þá vináttu okkar, tókst það ekki. Margt gæti ég sagt um Jón, sem halda mætti á loft, en hér læt ég staðar numið. Ég veit manna best hvað Rebekka og börnin hafa misst, en við megum öll vera þakklát fyrir það að hann skuli vera búinn að fá hvíldina án þess að líða mikið. Ég veit að minningarnar um góðan mann, föður og vin eiga eftir að ylja okkur um hjarta, það sem við eigum eftir ólifað. Halldór Guðmundsson. Guðjón Sveinsson Scheving, málara meistari - Minning F. II. sept. 1898. D. 9. okt. 1974. Guðjón var fæddur að Dalbæ í Vestmannaeyjum 11. sept. 1898, og voru foreldrar hans Kristólina Bergsdóttir og Sveinn Pálsson Scheving lögregluþjónn og með- hjálpari i Vestmannaeyjum. Guðjón var elstur fjögurra syst- kina, en þau eru Anna húsfrú i: Reykjavik, Páll, sem býr i Vest- mannaeyjum, og Sigurður, sem fluttist að Hellu. Uppvaxtarár Guðjóns I Vestmannaeyjum voru eins og svo titt var með unglinga á þeim árum, það þurfti snemma að byrja að bjarga sér. Lífsbaráttan var hörð á þeim dögum, snemma byrjaði hann að afla fanga, róa til fiskjar og sækja fugl og egg í björg. Guðjón var góður bjarg- maður, og hafði til að bera allt sem til þess þurfti, snöggur, áræð- inn og sterkur. Hann minntist þess sem sinna bestú stunda í uppvextinum, er hann fylgdi félaga sinum, Sigurgeiri í Suður- garði, um björg og syllur í eggja- tínslu. En sjórinn heillaði, þrátt fyrir töfra f jallana og Seyð úteyj- anna kaus hann að gerast sjó- maður. Hann stundaði sjó í mörg ár, fyrst á opnum skipum og siðan á stærri farkostum. Hann réðst i utanlandssiglingar á seglskipi og sigldu þeir aðallega til Spánar með fisk, en fluttu salt til baka. Hann hafði ekki verið nema rúmt ár í þessum siglingum er hann varð veikur i hálsi og hætti sjó- mennsku. Guðjón nam málaraiðn i Reykjavík á árunum uppúr 1920 en að námi loknu fluttist hann aftur til Vestmannaeyja og stund- aði iðn sína þar um áratuga skeið við góðan orðstir. Árið 1923, þann 1. desember, gekk hann aó eiga eftirlifandi konu sina, Ólafíu K. Jónsdóttur Stefánssonar skip- stjóra i Uthlið, og varð þeim þriggja barna auðið. Elstur er Jón, atvinnurekandi í Reykjavik, Aðalheiður Steina, hjúkrunar- kona, og Sveinn, vélstjóri hjá Orkustofnun. Guðjón og Ölafía bjuggu lengst af i Langholti í Vestmannaeyjum. Guðjón var mikill félagshyggjumaður og sá snemma þörfina fyrir samstarf stéttanna. Hann var frumkvöðull og stofnandi margra félaga og félagasamtaka i Vestmannaeyj- um. Guðjón var maður einarður og ákveðinn og alls ófeiminn að halda fram skoðunum sinum um menn og málefni. Skipti þá litlu hver i hlut átti. Snemma aðhyllt- ist Guðjón stefnu Sjálfstæðis- flokksins og var forvígismaður að stofnun Sjálfstæðisfélags Vest- mannaeyja og sat i fulltrúaráði þess þar til hann flutti til Reykja- víkur fyrir tveim árum. Mest af starfsorku sinni helgaði hann Iðnaðarmannafélagi Vestmanna- eyja, var formaður þess í meira en aldarfjórðung. Var hann full- trúi þess á iðnþingum og sat í ótal nefndum og ráðum fyrir hönd félagsins. Hann vann ötullega að betri kjörum og uppfræðslu iðnaðarmanna. Guðjón var sæmd- ur heiðursmerki Landssambands iðnaðarmanna og kosinn heiðurs- félagi i Iðnaðarmannafélagi Vest- mannaeyja fyrir trúverðug og giftudrjúg störf i þágu félagsins. Guðjón lagði gjörva hönd á margt i lífinu, stundaði útgerð og versl- un um áratuga skeið auk ótalinna trúnaðarstarfa fyrir heimabyggð sina. Guðjón hafði lengi kennt þess sjúkdóms, er að lokum varð honum að aldurtila. Er þau Ólafia og Guðjón héidu uppá gullbrúð- kaup sitt fyrir tæpu ári með börn- um sínum, barnabörnum og vin- um, svo hress og ánægð, grunaði fæsta, að svo stutt væri eftir hjá honum. Guðjón lést á Borgar- spítalanum 9. október s.l. eftir erfið veikindi. Dóttir hans, sem hann treysti svo mjög á i veikind- um sinum, sat hjá honum síðustu stundirnar og studdi hann styrkri hendi þar til yfir lauk. Guðjón var trúaður maóur og kirkjurækinn en hann baf ekki trú sina á torg, hún bjó í huga hans og sinni. Hann vissi, að guðstrúin gaf öryggi og traust i lifinu hverjum þeim, er hennar naut. Því vildi hann leiða börn sin til kirkju og á þann hátt hjálpa þeim að finna sinn guð og sina trú, er mætti verða þeim hlíf á brautum lífsins. Og þær voru ófáar feróirnar hans til kirkjunnar sinnar með börnum og barnabörnum. Ég bið góðan guð að styrkja og styója eigin- konu hans í sorg hennar og veikindum en hún varð fyrir þeirri ógæfu að lærbrotna og liggja á sjúkrahúsi er Guðjón kvaddi þennan heim. Við hjónin og börnin okkar þökkum honum alla þá elsku og vináttu, sem var milli heimila okkar og fyrir allt, sem hann var okkur og börnum okkar fyrr og siðar. Guð blessi minningu hans. Tengdasonur. FUS Kjósarsýslu Aðalfundur félags ungra sjálfstæðismanna i Kjósarsýslu verður haldinn i Hlégarði þriðjudaginn 1 2. nóvember n.k. Fundurinn hefst kl. 21.00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér nýja félaga. Bakka- og Stekkjahverfi Aðalfundur félags Sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi verður haldinn miðvikudaginn 13. nóvember i Miðbæ v/Háaleitisbraut 58—60. Fundurinn hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ræðumaður: Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður fjallar um stjórnmálaviðhorfið. Félagar fjölmennið og takið með nýja félaga. Stjórnin. Huginn FUS Garðahreppur Huginn FUS i Garða- og Bessastaðahreppi boðar til stofnfundar byggingarfélags ungs sjálfstæðisfólks fimmtudaginn 14. nóvember n.k. Fundurinn verður haldinn að Lyngási 1 2 og hefst kl. 8.30. Gestur fundarinns verður Skúli Sigurðsson skrifstofustjóri Húsnæðis- málastjórnar. Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna heldur aðalfund þriðjudaginn 12. nóvember kl. 20:30 í Átthagasal Hótel Sögu. Venjuleg aðalfundarstörf. Tillögur um lagabreytingar. Stjórnin. Kópavogur Kópavogur Sjálfstæðiskvennafélagið Edda heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 12. nóv. n.k. i Sjálfstæðishúsinu, Borgarholtsbraut 6. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Fundartækni Vel undirbúinn fundur hæfir vel reknu fyrirtæki. Það er dýrt og tímafrekt að halda fundi, þess vegna mega þeir ekki leiðast út í málæði. Tilgangi fundarins náið þér bezt með því að nota 3M MYNDVÖRPU og skýra mál yðar þannig á Ijósan, einfaldan og sannfærandi hátt. Árangurinn verður hraðari skilningur, efnið festist betur í minni, betri stjórn. Hringið í (91)20235 og biðjið um sýningarheimsókn án skuldbindingar. 3M-UMBOÐIÐ Á ISLANDI: G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON H/F. ÁRMÚLA 1 — REYKJAVIK, SlMI (91)85533 SÖLUUMBOÐ OG ÞJÓNUSTA: FILMUR & VÉLAR S/F. SKÓLAVÖRÐUSTlG 41, REYKJAVÍK, SlMI (91)20235.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.