Morgunblaðið - 15.11.1974, Blaðsíða 1
36 SIÐUR
226. tb. 61. árg.
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vill samræmingu vopna-
búnaðar NATO-ríkjanna
London, 14. nóv. REUTER
HERMÁLANEFND þingmanna-
sambands Atlantshafsbandalags-
ins hefur iagt tii, að bandalagið,
geri áætlanir um mótleiki gegn
vaxandi flotaveidi Sovétrfkjanna
og vinni að sameiginlegu vopna-
kerfi með hliðsjón af bættum her-
búnaði Varsjárbandalagsins.
Nefndin hefur gert drög að tveim-
ur ályktunum um þessi mál, sem
lagðar verða fyrir fund þing-
mannasambandsins { þessari
viku.
Talsmaður nefndarinnar sagði í
dag, að sérstaklega yrði farið
fram á að bandalagið gerði ein-
hverjar gagnráðstafanir vegna
vaxandi umsvifa sovézka flotans á
Indlandshafi, jafnvel með því að
senda þangað sameiginlegan lið-
styrk. Benti hann á, að Rússar
hefðu beitt sívaxandi flotaumsvif-
um á Miðjarðarhafi í pólitiskum
Nixon fer af sjúkrahúsi
Long Beach, Kaliforníu,
14. nóvember. Reuter.
RICHARD Nixon, fyrrverandi
Bandarfkjaforseti, fór af
Memorialsjúkrahúsinu í dag, en
einkalæknir hans dr. Lundgren
hefur varað við þvf að blæðingar
geti hafizt á ný, við rannsókn
læknanna þriggja sem Sirica
dómari ætlar að senda á hans
fund.
Nixon var í slopp yfir náttklæði
sín og í hjölastól, er honum var
ekið út úr sjúkrahúsinu i bíl sem
beið eftir honum og ók honum til
heimilis hans i San Clemente,
sem er 80 km frá sjúkrahúsinu.
Sirica dómari hafði afráðið að
senda þrjá sérfræðinga til að
skoða Nixon og fá úrskurð þeirra
um, hvort hann væri nægilega
hraustur til að bera vitni fyrir
rétti eða ef svo væri ekki, hvort
yfirheyra mætti hann á heimili
hans. Dr. Lundgren sagði að-
spurður við blaðamenn i dag, að
hann óttaðist að heimsókn lækna
þessara gæti haft slæm áhrif á
óreglulegan blóðþrýsting Nixons.
Ekki er vitað, hvenær von er á
þeim til Nixons.
Fréttamenn segja að Nixon hafi
verið fölur og þreytulegur þegar
hann fór af sjúkrahúsinu og ekki
stökk honum bros. Eiginkona
hans var með honum.
Polsky £ær að
fara frá Sovét
Moskvu, 14. nóv. Reuter.
EÐLISFRÆÐINGURINN Viktor
Polsky, einn þekktastur baráttu-
S-Afríka
úr SÞ?
Sameinuðu þjóðunum,
14. nóv. Reuter
SENDIHERRA S-Afríku hjá
Sameinuóu þjóðunum fer
heimleiðis f kvöid og leiða
fréttamenn f aðalstöðvum sam-
takanna getum að því, að hann
muni mæla með því við stjórn
S-Afríku, að rfkið segi sig úr
samtökum hinna Sameinuðu
þjóða.
John Vorster, forsætisráð-
herra, kallaði sendiherrann,
Roelof Botha, heim eftir að
núverandi forseti Allsherjar-
þings S.Þ., Abdel Aziz
Bouteflika, utanríkisráðherra
Alsír, úrskurðaði, að S-Afríka
skyldi ekki iengur taka þátt í
starfsemi þingsins. Fylgdi sú
ákvörðun í kjölfar þess, er
þingið neitaði að viðurkenna
skilríki s-afríku sendinefndar-
innar til þingsetu. Var það gert
í atkvæðagreiðslu, þar sem 91
greiddu atkvæði gegn setu S-
Afríku, 22 með en 19 ríki sátu
hjá. Enda þótt ákvörðun
Bouteflika eigi eingöngu vió
þetta þing, sem nú situr og á að
ljúka 17. desember næstkom-
andi, þykir víst, að þannig
muni áfram haldið á næstu
þingum. Er talið, að Botha
muni fremur mæla með því að
S-Afríka segi sig úr samtökun-
um en að ríkið verði einskonar
„skuggameðlimur“, án nokk-
urra réttinda á þinginu eða í
nefndarsturfum.
manna sovézkra Gyðinga, skýrði
frá þvi i dag að hann hefði fengið
leyfi til að flytjast úr landi og til
Israel innan næstu sex daga.
Polsky sagði vestrænum frétta-
mönnum frá þessu í dag, en bætti
því við að hann hefði skýrt emb-
ættismönnum i innanríkisráðu-
neytinu frá því að honum væri
ógerningur að ganga frá málum
sínum á svo stuttum tíma sem
honum væri gefinn.
Hann sagði að sér hefði þá verið
tjáó að hann ætti þar með á hættu
að leyfi hans yrði afturkallað.
Kvaðst hann mundu reyna að
komast fyrir tilsettan tíma.
Polsky sótti um útflytjendaleyfi
árið 1970, en fékk neitun á þeirri
forsendu að vegna sérþekkingar
hans gæti hann orðið ógnun við
öryggi Sovétrikjanna ef hann
byggi erlendis.
tilgangi og þeir kynnu að gera hið
sama á Indlandshafi.
Talsmaðurinn sagói, að nefndin
mundi hvetja til algerrar endur-
skoðunar vopnabúnaðar banda-
lagsrikjanna með það fyrir
augum að koma upp sameiginlegu
vopnakerfi þeirra.
Á fundi nefndarinnar í gær
lýsti formaður hennar, brezki
fiotaforinginn Sir Peter Hill-
Norton, því yfir, að Rússar héldu
áfram að byggja upp landher
sinn, flugher og flota langt um-
fram það, sem með nokkru móti
væri hægt að segja eingöngu til
varnar. Sir Peter sagði, aó ekki
væri þar meó sagt, að Rússar
hefðu þar með hafnað hugmynd-
inni um friðsamlega sambúð; en
þeir væru líklega þeirrar skoð-
unar, að friði yrði bezt haldið með
því að þeir væru sjálfir sterkir.
Hvatti hann NATO ríkin til að
fara eins að.
Sir Peter sagði í viðtali við
fréttamenn, að það væri miklum
erfiðleikum bundið að sannfæra
stjórnir Vesturlanda um, að verja
þyrfti meira fé til landvarna. Þess
vegna væri bráð nauðsyn að nýta
sem bezt það sem til reiðu væri.
Því vildi hann hvetja bandalags-
ríkin til að samræma vopnabúnað
sinn. Kvaóst hann álita, að um
2000 milljónir dollara töpuðust
árlega í bandalagsríkjunum
samanlagt vegna tvíverknaðar —
þar sem unnið væri að rannsókn-
um og framleiðslu sömu tegunda
vopna á fleiri en einum stað.
Yasser Arafat, foringi PLO-skæruliðasamtakanna,
sést hér flytja ræðu sína á Allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna í fyrradag. Honum var mjög ákaft
fagnað er hann gekk í salinn og fréttastofum ber
saman um að mál hans hafi fengið góðar undirtektir
Arafat er nú í Havana
r
Harkaleg viðbrögð við ræðu hans í Israel
New York, Havana,
Tel Aviv, 14. nóv.
Reuter. AP.
YASSER Arafat kom til Havana á
Kúbu f dag og mun eiga þar
skamma viðdvöl, áóur en hann
flýgur áleiðis til Kairó. Fidel
Castro og fleiri áhrifamenn tóku
hjartanlega á móti Arafat, en
hann hefur ekki áður komið til
Kúbu. Við brottförina frá New
York voru gerðar viðlfka öryggis-
Dalurinn lækkar
hækkar
gullið
Frankfurt, Ztirich, 14. nóv.
REUTER.
BANDARlKJADOLLARINN féll
mjög f verði í dag gagnvart
ýmsum gjaldmiðli öðrum, sér-
staklega gagnvart v-þýzka mark-
inu og svissneska frankanum. Fór
dollarinn úr 2.81 franka f 2.72 og
allt niður f 2.5180 v-þýzk mörk,
sem er mesta gengisfelling hans
gagnvart þeim gjaldmiðli í fjóra
mánuði.
Mikil gjaldeyrisviðskipti fóru
fram f Ziirich og Frankfurt f dag
og var órólegt mjög á markaði,
að sögn kunnugra. Samtfmis falli
dollarans steig gullverð enn einu
sinni og komst únsan nú f 190
dollara áður en verðið stöðvaðist f
kvöld við 187.50 og 189.50 dali,
sem þó var hálfum fimmta dal
hærra verð cn f gær.
Svissneski ríkisbankinn gerði
engar ráðstafanir til þess að
styðja gengi dalsins með kaupum,
það gerði hinsvegar v-þýzki
Centralbankinn um hríð, hann
keypti 10.450 dollara. Stöðvaðist
þá fali dollarans um stund en
gengið byrjaði aftur að síga
skömmu siðar og var þá ekki að
gert.
Ýmsar skýringar hafa veriö
gefnar á þessu falli dollarans,
m.a. hækkandi framfærsluvisitala
í Bandaríkjunum og viðukenning
bandarísku stjórnarinnar á því,
að efnahagslíf landsins rambi á
barmi kreppuástans. I Þýzkalandi
hafði og áhrif ræða, sem kanzlari
landsins, Helmut Schmidt, hélt í
kvöldvarðarboði fyrir erlenda
fréttamenn i gærkvöldi, þar sem
Framhald á bls. 22
ráðstafanir og þegar Arafat kom
þangað sólarhring áður.
I ísrael hafa viðbrögð við ræðu
Arafats verið mjög harkaleg.
Rabin forsætisráðherra sagði að
ræðan væri bein ógnun við
Israelsrfki og þjóð þess. Augljóst
væri af ræðunni, sagði Rabin, að
Arafat teldi Gyðinga ekki eiga
neinn tilverurétt og þær ættu að
halda áfram að vera minnihluta-
hópur, dreifður um alla heims-
byggðina. Hann itrekaði fyrri
yfirlýsingar talsmanna stjórnar
sinnar og ráðherra að engin skipti
yrðu höfð við PLO í neinum
samningum, en haldið yrði áfram
friðarumleitunum. Hins vegar
hvarflaði það ekki að stjórn sinni
að setjast að samningaborði með
hryðjuverkamönnum og glæpa-
mönnum.
I sama streng tóku ýmsir aðrir
ráðamenn í Israel í dag, meðal
annars Allon utanrikisráðherra
og Peres varnarmálaráðherra.
i veizlu, sem haldin var hjá
egypska sendiherranum hjá S.þ. í
gær, Arafat til heiðurs, komu
engir fulltrúar frá Bandaríkja
mönnum og aðalfulltrúi Breta
sendi annan i sinn stað. Meðal
aðalfulltrúa sem komu til sam-
sætisins var franski fulltrúinn,
Louis de Guiringuad.
Innan sendisveita hjá Samein-
uðu þjóðunum voru viðbrögð við
ræðu Arafats á ýmsan veg, eins og
við hafði verið búizt. Fulltrúar
Arabaríkja og fylgismenn þeirra
létu hrifningu sína óspart í ljós,
en fulltrúar ýmissa vestrænna
rikja sögóust vera fullir vandlæt-
ingar og ótta við að ræðan yrði til
að draga úr friðarhorfum i Mió-
austurlöndum.
1 morgun gerðu Israelar all-
harða hríð að skæruliðabúðum
Palestínumanna í Libanon og
segjast hafa fellt nokkra og gert
talsverðan usla. Er þetta talið
svar við ræðu Arafats á Alls-
herjarþinginu.
Þýzkt át:
Fimm naut
á 70 árum-
ogllþús. 1.
af mjólk
Bonn 14. nóvember Reuter.
SJÖTUGUR Þjóðverji hefur
að mcðaltali etið samtals 32
svín um ævina, 5 naut, 21 þús-
und egg og 550 kjúklinga.
Kemur þetta fram I könnun
sem Stern hefur látið gera og
birti í dag. Þar segir að sami
aðili hafi látið ofan f sig um
það bil 2,300 kálhausa um dag-
ana, rúmiega sjö tonn af
kartöflum, 2,210 hveitibrauð
og skolað niður um það bil
ellefu þúsund lítrum af mjólk.
Stern birti greinina í tengsl-
um við frásögn af Matvælaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Rómaborg og vakti athygli á að
áreiðanlega mætti draga veru-
lega úr ne.vzlu f ríkari lönd-
unum, til að hjálpa hinum,
sem minna hefðu.