Morgunblaðið - 15.11.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÖVEMBER 1974
13
Oðir Bretar teknir
við innbrot á Þingeyri
FJÖRIR skipverjar af brezka tog-
aranum Crystal Palace frá Grims-
by reyndu að stinga nokkra Is-
lendinga með hnífum og öðrum
vopnum þegar þeir voru teknir
við innbrot 1 kaupfélaginu á Þing-
eyri f fyrrinótt. Þar voru þeir
búnir að setja fatnað og fleira í
töskur fyrir nokkur hundruð þús.
kr.
Útgerð skipsins hefur nú sett
tryggingu fyrir broti þeirra.
Crystal Palace fór frá Þingeyri
um hádegisbilið i gær. íslending-
arnir, sem stöðvuðu þjófnað Bret-
anna, hafa farið fram á skaðabæt-
ur vegna áverka, sem þeir hlutu
við að afvopna Bretana.
„Ég var ræstur út um kl. 3 í
fyrrinótt af þeim Gunnari
Sigurðssyni og Halldóri Egilssyni,
og þeir tilkynntu mér, að ein-
hverjir menn hefðu brotizt inn i
Kaupfélagið og sennilega væru
það skipverjar af brezkum togara.
Við fórum strax af stað og þegar
við komum að Kaupfélaginu sá
ég, að búið var að brjóta rúður
þar. Sjálfur hélt ég beint upp á
aðra hæð hússins, en þar hafði ég
séð Breta skoða vörur i fyrradag.
Skipti það engum togum, að þegar
ég var á leið upp stigann, mætti
ég einum Bretanum. Hann reyndi
strax að sparka mér niður stig-
ann, en tókst ekki. Mér tókst að
hafa manninn með mér niður til
félaga minna, en þá spruttu upp
tveir Bretar til viðbótar," sagði
Guðjón Ömar Hauksson,
verzlunarstjóri Kaupfélags Dýr-
firðinga, þegar Mbl. ræddi við
hann i gær.
„Ég man ekki glöggt hvað gerð-
izt næst,“ sagði Guðjón Ómar en
Myndavél
tapaðist
Á HLJÓMLEIKUM Slade i fyrra-
kvöld tapaði ung stúlka Kodak
Instamatic 166 myndavél. Þegar
hún tapaði vélinni, stóð hún
framarlega í salnum til vinstri við
sviðið. Myndavélin var geymd í
vettling, sem stúlkan missti, og
þegar hún fór að leita fann hún
vettlinginn en myndavélin fannst
hvergi. Þeir, sem kunna að vita
um myndavélina, eru beðnir að
hringja i sima 3 33 96 og verða góð
fundarlaun veitt
bætti við,„þegar Bretarnir sáu, að
við vorum þrir og þar að auki
sterkari en þeir, þá gripu þeir til
vopna. Tveir hófu hnífa á loft og
einn melspíru. Réðust þeir nú að
okkur, og tókst að rispa einn okk-
ar á handlegg með hnifi. Okkur
tókst samt að afvopna þá og þegar
það var búið tók einn þeirra tóma
kókflösku, sem stóð á borðinu,
braut af henni botninn og reyndi
að skera okkur í framan með
henni. Það tókst ekki en um svip-
að leyti bættist einn Englending-
urinn enn i hópinn, og í þann
mund, sem hann kom til hjálpar
félögum sínum, bættist okkur
einnig liðsstyrkur, en það var
Matthías Guðmundsson, umboðs-
maður brezkra togara á Þingeyri.
Fljótlega tókst okkur að yfirbuga
þá og við það fór mesti rostinn úr
þeim. Samt sem áður reyndu þeir
að brjótast út með því að reyna að
slá okkur, en við héldum þeim í
skefjum. Hreppstjóri staðarins
kom síðan á vettvang og var farið
með Bretana til skips.“
Þá sagði Guðjón Ómar, að
hann og félagar hans væru bólgn-
ir í andliti eftir högg, sem þeir
hefðu fengið og einn væri rispað-
ur á handiegg eftir hnífsstungu.
Ekki væri gott að segja hvernig
þessi átök hefðu endað, ef Islend-
ingarnir hefðu ekki verið bæði
sterkari og fimari en Bretarnir og
því getað varizt hnífsstungunum.
Bretarnir voru búnir að bera út
úr verzlunninni tvær f ullar ferða-
töskur af fötum, úrum og skart-
gripum. I þeim voru m.a. 7—8
úlpur, nokkrar kápur og arm-
bandsúr. Er að var komið voru
þeir að raða niður í þriðju tösk-
una á annarri hæð verzlunarhúss-
ins. Þýfið er metið á um 250 þús.
kr.
Páll Andreasson, kaupfélags-
stjóri á Þingeyri, sagði, er við
ræddum við hann, að 4 togarar
hefðu legið á Þingeyri í gær og á
þeim væri um 120 menn, sem
flestir kæmu í land. Það væri því
vægast sagt slæmt ástand á staðn-
um, þegar slíkur ribbaldalýður
kæmi og engin löggæzla væri á
staðnum. Hann hefði farið fram á,
að togarinn yrði kyrrsettur, en
sýslumaðurinn á ísafirði hefði
mælt með því, að útgerðin yrði
fengin til að setja tryggingu fyrir
þvi tjóni, sem áhöfn skipsins
hefði unnið. Það hefði nú verið
gert og togarinn hefði þvi haldið
úr höfn um hádegisbilið í gær. Sá
maður, sem átti að vera á vakt um
borð í togaranum og fylgjast með
ferðum félaga sinna, var með í
innbrotinu.
Moroz áfram í
hungurverkfalli
FRÁ Moskvu berast þær fréttir að
sagnfræðingurinn Valentin
Moroz hafi ákveðið að halda
áfram hungurverkfalli því, sem
hann hefur verið i frá þvi i sumar.
Eiginkona hans var send til
fangelsis þess sem hann er í og
átti hún að reyna að telja honurn
hughvarf, en sú viðleitni mun
hafa verið árangurslaus. Kvaðst
Moroz staðráðinn i að halda verk-
fallinu áfram til áramóta og muni
heldur deyja en láta af áformum
sinum. Hann hefur krafizt þess að
vera fluttur úr fanglesinu í vinnu-
búðir.
Moroz sagði eiginkonu sinni að
hann myndi svipta sig lífi ef líðar.
hans yrði óbærileg, en hann hvik-
aði ekki frá ákvörðun sinni. Hann
sagði henni að hann hefði fengið
maga- og hálsblæðingar vegna
þess að fangelsisverðir hefðu
neytt ofan í hann mat öðru hverju
upp á siðkastið.
GOLFTEPPI OG GLÆSILEGAR
TEPPAMOTTUR 1 ÚRVALI
OPIÐ LAUGARDAGA
GEísIP
Allar hendur þarfnast verndar
og snyrtingar.
Allar hendur þarfnast atrix.
Atrix inniheldur Silikon,
sem hylur húöina eins og
ósýnilegur hanski:
Jafnvel óhreinindi og
ýmis kemísk efni geta
ekki skaðað hana.
Og Glyzerín, sem fegrar
húðina: Húðin verður fínleg,
mjúk og slétt. Berið atrix á
hendur yðar að loknum handþvotti
með því verndið þér hendurnar best.