Morgunblaðið - 15.11.1974, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.11.1974, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1974 35 ÍÞRÓnáFRÍniR MORCUnDSINS 1 Kraftlyft- ingamót Meistaramót Reykjavíkur f kraftlyftingum fer fram í sænsk-íslenzka frystihúsinu laugardaginn 30. nóvember n.k. Hefst mótið kl. 14.30, en kepp- endur eiga að mæta kl. 13.30 til vigtunar. Væntanlegir þátttakendur í mótinu þurfa að skila þátttöku- tilkynningum til Ömars Olfars- sonar, Grettisgötu 53 B, sfmi 27032, ásamt þátttökugjaldi, kr. 250,00, eigi síðar en sunnudag- inn 23. nóvember n.k. Haukar á Akureyri 1. deildar lið Hauka í hand- knattleik fer til Akureyrar um helgina og leikur þar við lið heimamanna, KA og Þór. Leika Haukarnir fyrst við KA og hefst sá leikur kl. 20.15 i kvöld, en á laugardaginn leika Hauk- arnir við Þór og hefst sá leikur kl. 15.30. Víkingur Opnir tfmar fyrir félaga í badmintondeild Víkings eru í Réttarholtsskóla á laugar- dögum frá kl. 18.00 — 19.40. Nokkrir hádegistimar lausir á miðvikudögum f Laugardals- höllinni. UL-mót í badminton Reykjavíkurmeistaramót unglinga í badminton verður haldið 16. og 17. nóvember n.k. Badmintondeild Vals sér um mótið, sem fram fer í íþrótta- húsi Vals við Hlfðarenda. Undankeppnin hefst á laugar- dag kl. 13.30 og úrslitaleikir á sunnudag kl. 14.00. Þjálfara- fundur LAUGARDAGINN 16. nóvem- ber verður haldinn fundur með þjálfurum 4. og 5. flokks karla og 3. flokks kvenna í hand- knattleik. Er það umsjónar- þjálfari HSI, Hilmar Björnsson, sem stendur fyrir fundi þess- um, og verður þar fjallað um hinar ýmsu hliðar þjálfunar- málefnanna, samræmingu þeirra og fl. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimili Vals við Hlíðarenda og hefst hann kl. 13.00. Ajax vann HOLLENZKA liðið Ajax frá Amsterdam tryggði sér í fyrra- kvöld þátttökurétt í þriðju um- ferð UEFAEvrópubikarkeppn- innar í knattspyrnu, þrátt fyrir, að liðið tapaði fyrir Royal Antwerp FC frá Belgíu 1:2. Leikurinn fór fram f Belgfu, en fyrri leikinn hafði Ajax unnið 1:0 og er því samanlögð marka- tala úr leikjunum tveimur 2:2, en Ajax kemst áfram á mark- inu, sem liðið skoraði á útivelli. I leiknum í fyrrakvöld var staðan í hálfleik 1:1. Mörk Belgfumannanna gerðu Kodat á 40. mín. og Riedl á 61. min., en Geels gerði mark Ajax á 10. mínútu. Ahorfendur voru 45.000. spyrnan I FYRRAKVÖLD fór fram einn leikur í ensku 1. deildar keppn- inni f knattspyrnu. Chelsea og Coventry gerðu jafntefli, 3:3. Markhæstir MARKHÆSTU leikmenn f ensku knattspyrnunni eru eftirtaldir: 1. deild: Lee (Derby) 11, Francis (Birmingham) Wort- hington (Leicester) 10, Kidd (Arsenal), Hector (Derby) og Macdonald (Newcastle) 9. 2. deild: Graydon (Aston ViIIa) 13, Channon (Southampton) 9, Busby (Fulham) Hughes (Sunderland), MacDonald (Norwich) Osgodd (Southamp- ton), Pearson (Man.Utd.) og Wagstaff (Hull) 8. 3. deild: Buckley (Walsall), McNell (Hereford), Moss (Chesterfield) og Svarc (Colchester) 13. 4. deild: Clarke (Mansfield) og Habbin (Reading) 14. FIF vann DANSKA kvennaliðið FIF sigr- aði tékkneska liðið Gottwaldo 13:10 í fyrri leik liðanna í Evrópubikarkeppni kvenna i handknattleik, sem fram fór í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Staðan i hálfleik var 7:2 fyrir dönsku stúlkurnar. Mark- hæst FIF-stúlkna var Anetta Tullberg með 5 mörk, en mark- hæst f liði Gottwaldo varð Foltynova með 8 mörk. NORSKU meistararnir Refstad, kepptu fyrri leik sinn við tékkneska liðið Skoda Pilzen f Evrópubikarkeppni karla í handknattleik um sfðustu helgi. Leikið var í Prag og sigr- aði Skoda með 21:16, eftir að staðan hafði verið 11:6 í hálf- leik. Eins og skýrt var frá í blað- inu fyrir helgi, leit um tfma út fyrir að ekki gæti orðið af leik þessum, þar sem tékknesk yfir- völd ætluðu að neita norskum blaðamönnum um vegabréfs- áritun. Þau gáfu sig þó á síð- ustu stundu og fengu blaða- mennirnir f ararleyfi. DANSKI hástökkvarinn Jesper Törring setti nýtt danskt met f hástökki innanhúss á móti sem fram fór f Linköping fyrir skömmu. Stökk hann 2,18 metra og er þetta afrek hans þeim mun athyglisverðara að hann stökk á strigaskóm. Enska knatt- Norðmenn töpuðu rp.. • 1 orring setti met Aukin samskipti við Breta í frjálsum íþróttum Þrfr tslendingar: örn Eiðsson, völl með tartan eða öðru sambæri- Svavar Markússon og Sigurður Helgason sátu hið árlega þing frjálsfþróttasambands Evrópu, sem fram fór I Zagreb I Júgó- slavfu dagana 1.—3. nóvembers.l. Helztu verkefni þessa þings var niðurröðun móta fyrir næsta ár og viðræður þingfulltrúa um sam- skipti næstu árin. Þá hélt og stjórn sambandsins marga og stranga fundi. Fulltrúar FRl á þinginu átti viðræður við fulltrúa margra ann- arra þjóða um samskipti. Aðal- lega var rætt við fulltrúa Norður- landaþjóðanna, en einnig mikið við fulltrúa frá Bretlandseyjum og írlandi og varð árangur þeirra viðræðna sá, að telja má nú öruggt að tekin verði upp frekari og reglubundnari samskipti við landslið þessara þjóða. Var t.d. stungið upp á að fram færi árleg keppni til skiptis í Irlandi, Wales, Skotlandi og Islandi. Eftir er að ganga endanlega frá samningum um slíka keppni, en fulltrúi írska sambandsins stakk upp á þvi, að fyrsta keppnin færi fram á Ir- landi, en siðan yrói keppt 1977, 1978 og 1979. Þá hafði landslið Spánverja og Portúgal mikinn áhuga á að keppa á tslandi árið 1976. Verður nánar gengið frá samningum um þetta í sumar, en þá fer fram einn riðill Evrópubikarkeppninnar f Lissabon og verða Islendingar þar meðal þátttakenda. Forystumenn FRl telja, að ef unnt verður að koma á reglu- bundinni landskeppnissamvinnu við áðúrnefndar þjóðir, auk Karlottkeppninnar, sem nú er að komast á reglubundið stig, megi segja að ekki skorti verkefni fyrir frjálsíþróttafólkið, þar sem fyrir utan þetta er svo þátttaka í Evrópumótum, Evrópubikar- keppninni og Olympiuleikunum. A fundi sem stjórn FRl hélt með fréttamönnum kom fram, að brýnast væri nú fyrir islenzkt frjálsíþróttafólk að fá hér fþrótta- legu efni. Sögðu þeir, að á þing- inu hefði oft verið spurt um hvaða efni væri á völlunum á Is- landi. Allir héldu að hér væri komið gerfiefni á vellina, enda nú svo komið að bezta frjálsiþrótta- fólkið vill helzt ekki keppa á völl- um sem ekki hafa slfkar brautir. Fulltrúar FRl sögðust og hafa lagt á það áherzlu á þinginu að kynna afrek íslenzks frjálsíþrótta fólks i sumar, enda slikt mjög mikilvægt til þess bæði að koma þvi inn f mót erlendis og eins til þess að fá gott frjálsiþróttafólk til að koma hingað. Sögðu þeir að afrek Erlends Valdimarssonar f kringiukasti, 64,32 metrar væri hátt skrifað, og væri mjög senni- legt að honum myndu berast boð um þátttöku í stórmótum næsta sumar. Hið sama mætti raunar segja um kúluvarpsafrek Hreins Halldórssonar og einnig spjótkast Óskars Jakobssonar en það mun vera með betri afrekum unglings í Evrópu í ár. T.d. eiga Finnar, sem lengi hafa staðið f fremstu röð spjótkastara, engan ungling sem kastaði spjóti lengra en Óskar í ár. Mót erlendis: Þau mót erlendis sem íslenzk þátttaka er þegar ákveðin f á næsta keppnistímabili eru eftir- talin: Evrópumeistaramót innanhúss í Katowice í Póllandi, 8.—9. marz. Evrópubikarkeppni karla i Lissabon i Portúgal, 14.—15. júní. Evrópubikarkeppni kvenna sem fram fer i Osijek i Júgóslavíu 15. júní. Evrópubikarkeppni í tugþraut og fimmtarþraut kvenna í Barcelona á Spáni 19.—20. júlí. Evrópumeistaramót unglinga sem fram fer 21.—24. ágúst í Aþenu í Grikklandi. Norðurlandameistaramót í fjöl- þrautum sem fram fer i Finnlandi 30.—31. ágúst. Karlottkeppnin sem fer að Hátt fall meistaranna Erlendur Valdimarsson — afrek hans opnar honum leið á stórmótin erlendis. þessu sinni fram í Tromsö í Noregi dagana 26.—27. júlí. Landskeppni Bretland — Frakkland — Island I tugþraut sem fram fer í Wales 4.—5. október. Iþróttamót hérlendis. Fjallað var um frjálsiþróttamót hér innanlands næsta sumar, en endanlega verður gengið frá dag- setningu þeirra móta sem fram fara á vegum FRl á ársþingi sam- bandsins sem haldið verður á Akureyri. Er þetta í fyrsta sinn sem frjálsíþróttaþing er haldið utan Reykjavikur. Sögðu tals- menn FRÍ, að af þvi tilefni yrði lögð sérstök áherzla á að auka frjálsíþróttastarfið úti á landi. Einn liðurinn i því yrði tillaga stjórnarinnar um, að úrvalsflokk- ur frjálsiþróttafólks færi í hring- ferð um landið sfðla sumars og keppti á ýmsum stöðum. Þá hefur stjórn FRl mikinn áhuga á að fram fari keppni Reykjavík — landið, og telur aó áhugavert væri, að slík keppni færi fram á hinum nýja velli í Kópavogi. Óvæntustu úrslitin, sem orðið hafa í ensku knattspyrnunni, ekki aðeins á þessu ári heldur í langan tíma, uróu i fyrrakvöld, er Leeds United, ensku meistararnir 1974, töpuðu fyrir 4. deildar liðinu Chester i leik liðanna í deildar- bikarkeppninni. Reyndar hefur Leeds áður fengið ámóta skell í bikarkeppninni, er liðið tapaði fyrir Colchester á árunum, sem frægt er orðið. Chester, sem er ofarlega í fjórðu deildinni, hefur ekki tapað leik á heimavelli sfnum í rúmt ár. Enginn átti þó von á því, að liðinu tækist að standast Englands- meisturunum snúning, hvað þá að það sigraði með þremur mörkum gegn engu. Fyrsta mark leiksins skoraði miðherji Chester, John James, á 15. minútu. Trevor Storton bætti öðru marki við á 35. minútu og þriðja markið kom svo á 58. minútu. Það gerði John James. Skemmtilegasti leikurinn í fyrrakvöld var viðureign Manchester United og Burnley. Hrikaleg varnarmistök United kostuðu liðið það, að tvívegis var það undir í leiknum, en tvö falleg mörk, sem Lou Macari skoraði, og eitt mark Willie Morgan færðu því sigur. Eins og jafnan þar sem United er á ferðinni var fjöl- menni á áhorfendapöllunum, eða 46.269 manns. I fyrrakvöld gerðu svo Colchest- er og Southampton markalaust jafntefli og verða þvi að leika að nýju en Newcastle vann öruggan sigur yfir Fulham, 3:0. Golfsambandið ARSÞING Golfsambands Islands verður haldið laugardaginn 16. nóvember í Þingholti við Berg- staðastræti. Hefst þinghald kl. 10.00. Fimleikasambandið ARSÞING Fimleikasambands Is- lands verður haldið laugardaginn 16. nóvember að Hótel Esju og hefst það kl. 14.00. Lyftingasambandið ARSÞING Lyftingasambands Is- lands verður haldið að Hótel Loft- leiðum láugardaginn 16. nóvem- ber og hefst kl. 14.00. Norðurlandaþing. Þá var á fundinum með frétta- mönnum fjallað um þing norræna frjálsíþróttaleiðtoga, er fór fram i Reykjavík dagana 19.—20. okt. s.l. Þingið, sem var hið 31. f röðinni tókst með ágætum. Komu hingað 10 fulltrúar frá öllum hinum Norðurlöndunum. Umræður á þingi þessu voru mjög jákvæðar og gagnlegar og sú tillaga sem Island lagði mesta áherzlu á, að efnt yrði til Norður- landameistaramóts unglinga, hlaut góðar undirtektir. Málið verður tekið til endanlegrar af- greiðslu á næsta þingi sem haldið verður i Osló, og er áformað að fyrsta mótið fari fram árió 1976, og þá i Reykjavik, en síðan yrði það haldið annað hvert ár. Jafntefli UNGVERJALAND og Búlgaria gerðu jafntefli í landsleik i knattspyrnu sem fram fór f Varna í Búlgaríu um síðustu helgi. Hvorugt liðið skoraði mark.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.