Morgunblaðið - 14.12.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974
Björn Önundar-
son trygginga-
yfirlæknir
Heilbrigðisráðherra skipaði í
gær Björn Önundarson lækni til
að gegna embætti tryggingayfir-
læknis frá 1. jan. n.k. að telja.
Staðan var auglýst laus til um-
sóknar 5. okt. s.l. og var sfðan
fjallað um umsóknir svo sem lög
mæla. Um stöðuna sóttu auk
Björns þeir Bergþór Smári, Hall-
dór Arinbjarnar, Jón Guðgeirs-
—_________________________ son, Magnús Asmundsson og
"■f/i WV£RS tR SVONA, MAMMA? Ólafur Jónsson.
British Airways
hættir íslandsflugi
BREZKA flugfélagið British Air-
ways hefur ákveðið að hætta flugi
milli tslands og Bretlands frá og
með 1. janúar nk.
Að sögn Joe Kennedys fram-
kvæmdastjóra BA á íslandi eru
ástæðurnar fyrir þessu samdrátt-
ur í farþegaflugi svo og það, að
félagið þarf að endurskipuleggja
nýtingu þeirrar flugvélategund-
ar, sem notuð hefur verið á þess-
ari flugleið. Verður skrifstofu
fyrirtækisins því lokað hér um
áramót. Kennedy sagði, að BA
hefði eftir sem áður flugleyfi á
þessari ieið og ekki væri útilokað
að aftur yrðu teknar upp flugferð-
ir hingað þótt ekki yrði það i
náinni framtíð. BA hefur flogið 2
ferðir í viku yfir sumartímann bg
eina ferð á veturna.
Morgunblaðið spurói Örn John-
son forstjóra Flugieiða hvort
Flugleiðir myndu fjölga ferðum
er BA hætti flugi. Örn svaraði því
til, að málið væri í athugun, en
hann ætti ekki von á ferðafjölgun
fyrst um sinn.
319 atvinnulausir
ALLS voru 319 manns atvinnu-
iausir á öllu landinu 30. nóvem-
ber og hafði atvinnulausum fjöig-
að um 104 í mánuðinum. Flestir
voru atvinnulausir í Reykjavfk,
52, 37 á Vopnafirði, 34 á Stokks-
eyri, 32 á Hofsósi og 29 á Eyrar-
bakka. Kemur þetta fram í
skýrslu Félagsmálaráðuneytisins.
Menntamálaráðherra um dr. Braga:
Átti ekki annars kost en
segja honum upp störfum
Mbl. barst f gær svohljóðandi
fréttatilkynning frá mennta-
máiaráðherra:
HINN 9. þ.m. var dr. Braga
Jósepssyni veitt lausn frá störf-
um deildarstjóra i menntamála-
ráðuneytinu. Þar sem það kom í
minn hlut að taka þessa ákvörð-
un og frásagnir í blöðum und-
anfarna daga gætu valdið mis-
skilningi, þá mun rétt ég greini
frá tildrögum.
í bréfi minu til Braga Jóseps-
sonar, dags. 6. þ.m. segir:
„Ákvörðun þessi er byggð á
því að ýmsar athafnir yðar og
framkoma hafi verið óhæf og
ósamrýmanleg starfi yðar sem
deildarstjóra í ráðuneytinu. Má
í því sambandi nefna ritgerð
yðar i tímaritinu „Heimili og
skóli“, 1. tbl. 1974, formála,
fjölritun og dreifingu skýrslu
dr. Arnórs Hannibalssonar um
hjálparkennslu i skyldunáms-
skólum, án vitundar ráðherra
og ráðuneytisstjóra, svo og
ákærubréf yðar til mennta-
málaráðherra, dags. 10. október
s.l.“
1 þann mund sem ég tók við
ráðherrastörfum las ég grein
Braga Jósepssonar i „Heimili
og skóli“. Þar er m.a. að finna
þessar setningar: „Stjórnunar-
legt aðhald menntamáiaráðu-
neytisins er yfirborðslegt og
fálmandi.“ „Það er ekki fráleitt
að fullyrða, að ráðamenn þessa
stóra málaflokks standi hrein-
lega gegn því að úr verði bætt.“
„Þegar þetta stjórnunarkerfi
okkar verður jafn sjúkt, ráð-
þrota og steinrunnið eins og
raun ber vitni, þá liggur ljóst
fyrir, að báknið verður einung-
is sterkara til niðurrifs og þjóð-
félagslegrar óþurftar."
I 28. gr. laga um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna
segir m.a.: „Hann skal forðast
að hafast nokkuð það að i starfi
sinu eða utan þess, sem er hon-
Framhald á bis. 22
Kveikt á
jólatrénu í
Hafnarfirði
A MORGUN, sunnudaginn 15.
des. kl. 16.00 verður kveikt á
jólatré því, sem Fredriksberg i
Danmörku hefir gefið Hafnar-
fjarðarbæ. Jólatréð er staðsett
áThorsplani v/Strandgötu.
Athöfnin hefst með leik
Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.
Sendiherra Danmerkur, herra
Svend Aage Nilsen, afhendir
tréð.
Frú Svava Storr tendrar
ljósin. Forseti bæjarstjórnar,
Stefán Jónsson, veitir trénu
viðtöku. Að lokum syngur
Karlakórinn Þrestir.
íslenzk geimvísinda-
nefnd stofnuð
VERIÐ er að undirbúa stofnun
sérstakrar geimvisindanefnd-
ar fyrir Island og vinnur Rann-
sóknarráð rikisins að undir-
búningi að sögn Steingrims
Hermannssonar. Með því er
orðið við tilmælum fjar-
könnunarráðstefnunnar, sem
haldin var hér í sept. s.l. á
vegum Rannsóknarráðs, Raun-
vísindastofnunar Hl og verk-
fræðideildar, en þar var lagt
til, að skipuð yrði nefnd til að
gera tillögur um skipulag og
notkun upplýsinga frá gervi-
hnöttum fyrir islenzkt visinda-
starf.
Viðræður
við Rússa
í janúar
SAMKVÆMT upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur afiað
sér hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna um væntanlegar
viðræður milli SH og SlS við
Prodintorg, matvælainnkaupa-
stofnun Sovétrfkjanna i
Moskvu, um sölur á hraðfryst-
um fiski frá Islandi á næsta
ári, munu viðræður hefjast
fljótlega eftir áramótin.
íslandsufsi til Þýzka-
lands frá Belgíu L“‘“ýá
„ALLT bendir til þess, að
allur stórufsi frá íslandi,
sem landað er i Ostende i
Belgíu, sé fluttur beint
þaðan í Vestur-þýzkar
Silfurslátta
Seðlabankans
hækkar um 25%
SEÐLABANKI Islands hefur nú
hækkað söluverð á sérsleginni
silfurmynt ( tilefni þjóðhátfðar-
innar um 25% eða úr 3200 kr. í
4000 kr., öskjum með tveimur
peningum f. Sigurður Örn Einars-
son skrifstofustjóri hjá Seðla-
bankanum kvað ástæðuna vera
Framhald á bls. 22
SKIPVERJAR af vélbátnum
Verðanda Kó-40 urðu að yfirgefa
skip sitt um kl. 2 í fyrrinótt, þar
sem það er strandað á Landeyjar-
fjörum. Þá hafði Vestmannaey
frá Vestmannaeyjum mistekizt að
draga skipið út.
Björgunarsveitir S.V.F.I. á
Hvolsvelli og I Landeyjum fóru
snemma á laugardag á strandstað
og biðu þar. Þegar útséð var um
að ekki tækist að ná bátnum út,
var farið að hugsa um björgun
verksmiðjur,“ sagði Ingi-
mar Einarsson hjá LlÚ
þegar við inntum frétta af
sölum í gær. I fyrradag
seldi Steinunn RE i
Grimsby 30,5 tonn fyrir 2,6
millj. kr. eða 84 kr. kg. I
fyrradag seldi Álsey VE í
Ostende, 74 tonn fyrir 5
millj. kr. eóa 68,10 kr. kg.
Helga Guðmundsdóttir frá
Patreksfirði seldi einnig
þar 116 tonn fyrir 7,9 millj.
kr. eða 68,10 á kg, einnig.
Þá seldi Sturlaugur II., Fá-
skrúðsfirði, í fyrradag 43
tonn af netaþorski fyrir
fyrir 2,6 millj. kr. eða 60,75
á kg, en netaþorskur
virðist ekki hentug mark-
mannanna. I för með sér höfðu
björgunarsveitarmenn jarðýtu og
var hún látin ýta upp garði út að
Framhald á bls. 22
aðsvara fyrir brezka mark-
aðinn.
Aðeins þrir bátar eiga nú
eftir óselt í Belgíu fyrir jól,
en það eru Jón Helgason
frá Þorlákshöfn, Gunnar
frá Reyðarfirði og Árni í
Görðum frá Vestmannaeyj-
um.
TVEIR menn, sem teknir hafa
verið fyrir hrossaþjófnaði fyrir
rúmum mánuði, eru nú lausir úr
gæzluvarðhaldi. Var þeim sleppt
í fyrradag eftir að þeir höfðu
setið inni f 30 daga hjá rann-
sóknarlögreglunni f Hafnarfirði.
Viðurkenndu þeir að hafa stolið 9
hestum, þar af höfðu þeir slátrað
4 hestum og selt kjötið. Þeir
viðurkenndu einnig, að hafa
ætlað að hefja hrossaþjófnað f
stórum stfl, og voru þeir m.a.
búnir að athuga með slátrunarað-
stöðu í verbúð f Reykjavfk og f
Heilbrigðisráðherra Matt-
hfas Bjarnason, hélt f gær-
kvöldi veizlu f ráðherrabú-
staðnum til heiðurs augnlækn-
unum Bergsveini Ólafssyni og
Kristjáni Sveinssyni fyrir
störf þeirra f þágu heilbrigðis-
mála og sérstaklega augn-
lækningaferðalög þeirra f 40
ár um landið. Að sögn Páls
Sigurðssonar ráðuneytisstjóra
hefur Bergsveinn ávallt farið á
hverju sumri um Austur-
land f augnlækningaferðir og
Kristján hefur farið um Vest-
urland. A myndinni, sem
ÓI.K.M. tók f gærkvöldi f ráð-
herrabústaðnum, eru frá
vinstri: Bergsveinn Ólafsson
augnlæknir, Matthfas Bjarna-
son heilbrigðisráðherra og
Kristján Sveinsson augn-
læknir.
Garði. Sumir þeirra hesta, sem
þeir slátruðu, voru gæðingar, og
hafa eigendur þeirra sett fram
kröfur sem nema hundruðum
þúsunda. Mál mannanna fara á
næstunni til saksóknara til
ákvörðunar.
Eldri maðurinn er úr Reykja-
vfk, 43 ára, og sá yngri af Kjalar-
nesi 20 ára. Upp komst um
þjófnaðina þegar mennirnir
komu til Hvammstanga með hross
til slátrunar i haust og þóttu
ferðir þeirra grunsamlegar.
Framhald á bls. 22
Jarðýta notuð við
að bjarga mönnunum
Hrossaþjófunum sleppt:
Viðurkenndu stuld
á alls 9 hrossum