Morgunblaðið - 14.12.1974, Síða 4

Morgunblaðið - 14.12.1974, Síða 4
Fa /7 níi.t /./ 'if. i \ iLfft; 22-0-22- RAUÐARÁRSTIG 31 LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 LOFTLE/Ð/R Q BÍLALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL 24460 28810 piONŒen Útvarp og stereo kasettutæki HVAÐ GAMALL TEMUR UNGUR > SAMVINNUBANKINN FERÐABILAR Bílaleiga, sími 81260. Fólksbílar, — stationbilar, - sendibílar, — hópferðabilar. MEKA JÓLASKEIÐIN 1974 Fæst hjá flestum skartgripasölum. Glöggt er það enn hvað þeir vilja Á fundi trúnaðarmanna í Framsóknarflokknum fyrir tveimur árum lýsti Ólafur Ragnar Grfmsson, sem þá hafði ekki farið úr „framsóknar- fölunum", því yfir að nú réðu vinstri menn á Islandi f fyrsta sinni yfir sterkari fjölmiðfi en Morgunblaðið væri. Hann var þá nýkjörinn f útvarpsráð, sem stýrir málum hljóðvarps og sjónvarps. Sá hugsunarháttur, sem í þessum orðum fólst og sfðar endurspeglaðist á maig- vfslegan hátt f efnisvali og flutningi hinna rfkisreknu fjöl- miðla, hefur framkallað óánægju og andúð almennings, til sjávar og sveita, f garð meirihluta núverandi útvarps- ráðs. Það hefur vissulega ekki farið fram hjá neinum, að vinstri menn hafa ráðið hljóð- varpi og sjónvarpi. Efni, sem ætlað var ungbörnum, fékk jafnvel ekki að fara ómengað áleiðis. Sú almenna gagnrýni, sem fram hefur komið á efnis- val þessa fjölmiðils, talar þar skýru máli. 1 þessu sambandi er þó skylt að geta þess, að fréttamenn og fast starfslið eiga hér yfirleitt ekki hlut að máli. Það hefur rækt störf sfn af trúmennsku og óhlutdrægni. Sem betur fer var takmarkað- ur jarðvegur fyrir þau frækorn misnotkunar f Framsóknar- flokknum, sem róttæk vinstri öfl reyndu að sá þar. Þau hafa og sfast ofan f aðrar stjórnmála- hreyfingar. En þau eru enn til staðar, enn að verki, þó dagar þeirra við stjórnvöl ríkisfjöl- miðla séu senn á enda. Frum- varp menntamálaráðherra Framsóknarflokksins um kjör nýs útvarpsráðs á tvímælalaust hljómgrunn f hugum alls þorra almennings f landinu. Raforka og jarðvarmi Orkumál hafa verið tfmafrek f störfum og umræðum þing- manna undanfarið. Það kemur engum á óvart, enda vandræða- ástand f þeim efnum f flestum landshlutum, jafnvel hættu- ástand, eins og þingmenn orð- uðu það, er orkumál Aust- firðinga og Norðlendinga voru nýverið rædd f þingsölum. Þrátt fyrir brýna þörf hefur ekkert gerzt f orkumálum Norðlendinga öll vinstri stjórn- ar árin. Tvö ár í röð synjaði vinstri stjórnin um nauðsyn- legar fjárveitingar til könnun- ar og undirbúnings Kröflu- virkjunar, sem er gufuafls- virkjun. Þar af leiðandi er sú virkjun mun seinna á ferð en efni stóðu til. Aðrir valkostir f virkjunargerð á Norðurlandi voru með öllu settir til hliðar öll vinstri stjórnar árin, þó að æskilegra og hagkvæmara hefði verið, að myndarleg vatnsaflsvirkjun á Norðurlandi hefði verið undanfari eðlilegr- ar tengingar orkusvæðanna Sunnan- og Norðanlands. Al- gjörlega var forsómað að tryggja fjármagn til gerðar Norðurlfnu, sem og að skipa nauðsynlegan framkvæmda- aðila til þess verks, af orkuráð- herra vinstri stjórnarinnar. Sú framkvæmd er því seinna á ferð en ella. Á sama tfma og meginhluti raforku á Norður- landi vestra er dieselfram- leiddur, með margföldum kostnaði vatnsorku, var látið undjr höfuð leggjast að tengja saman veitusvæði Skagafjarðar og Skeiðfossvirkjunar, þó að sú virkjun hefði afgangsorku, am.k. suma hluta árs. Við- bótarvirkjun í Skeiðsfossi, sem leyfð var á þessu ári og nú er að unnið, gerir þessa samtengingu enn brýnni og hagkvæmari. Þessi viðbótarvirkjun f Skeiðs- fossi hefði getað komið tveimur árum fyrr, ef óskum Siglfirð- inga hefði verið fyrr sinnt af þáverandi orkuráðherra, sem þýtt hefði mun ódýrari og hag- kvæmari virkjun. Það er fyrst nú, eftir stjórnarskiptin, sem nýr fjör- kippur kemur f athuganir og framkvæmdir f raforku- og hitaveitumálum, þrátt fyrir mun bágara efnahagsástand en á árum fyrri stjórnar. En lands- menn eru reynslunni ríkari og hún er út af fyrir sig nokkurs virði. Nýtt leiðakerfi SVK Opnun jarðgangna og biðskglis á Digraneshálsi UM síðustu helgi var tekið f notkun nýtt leiðakerfi Strætis- vagna Kópavogs. Eru ferðir SVK nú tengdar ferðum strætisvagna f Reykjavfk og hafa skiptimiða- kerfi SVK og SVR verið sam- ræmd þannig, að farmiðar gilda jafnt á báðum stöðum. Samgöngur innan Kópavogs verða nú mun greiðari en áður var. Ferðum verður þannig hátt- að, að sami vagn fer bæði í vestur- og austurbæinn. Viðkoma verður á Digraneshálsi í báðum leiðum, þannig að farþegi, sem kemur úr öðrum bæjarhlutanum getur skipt um vagn þar og komizt beint til Reykjavfkur án þess að fara óþarfa hring. Endastöð Kópavogsvagnanna hefur til þessa verið f Lækjar- götu, en verður eftirleiðis á Hlemmi. Þó verður ekið niður i Lækjargötu á timabilinu 6.42 til 8.41, þannig að síðasti vagn úr Kópavogi i miðborgina kemur þangað laust fyrir kl. 9 á morgn- ana. Ferðum SVK hefur verið fjölg- að verulega. Fara vagnar nú á 12 mínútna fresti í stað þess að fara á hálftíma fresti eins og áður var. Um helgina var einnig tekið i notkun nýtt biðskýli á Digranes- hálsi og jarðgöng að því. Byrjað var á göngunum fyrri hluta árs 1972. Göngin eru hönnuð i tækni- deild Kópavogs, en hugmynd að skreytingu í göngunum á Benja- mín Magnússon arkitekt. Sá hluti ganganna, sem nú hefur verið tekinn í notkun, er um 500 fermetrar að stærð, en gert er ráð fyrir viðbótaráfanga síðar. 1 biðskýlinu er verzlun, sem Leikfélag Kópavogs starfrækir. Þar fer fram sala farmiða og varzla óskilamuna. Jafnframt annast leikfélagið eftirlit og ræstingu ganganna og biðskýlis- ins, en hvort tveggja verður lokað um nætur. Heildarkostnaður við göngin og biðskýlið nemur nú um 30 millj- ónum króna. Verulegur hluti þess fjár greiðist úr ríkissjóði þar sem hluti þessara framkvæmda telst til gerðar Hafnarfjarðarvegarins, sem liggur um Kópavog yfir Digranesháls. Á næstunni hefst bygging brú- ar milli Hábrautar og Alfhólsveg- ar. Verkið hefur verið boðið út og verða tilboðin opnuð 17. desem- ber n.k. Gert er ráð fyrir, að fram- kvæmdirnar hefjist í janúar n.k. Gjáin milli Digranesvegar- brúarinnar og nýju brúarinnar verður yfirbyggð og er ráðgert að reisa þar ibúðar- og verzlunarhús, þar sem ýmis þjónustufyrirtæki verða. Á nýju brúnni verða þrjár akreinar og göngubraut. Ekki er gert ráð fyrir þvi að gangandi vegfarendur leggi leið sína yfir Digranesvegarbrúna, heldur er fólk eindregið hvatt til að fara um jarðgöngin. 40 ár í Eyjum Bók Helga í Vesturhúsum FJÖRUTlU ÁR I EYJUM heit- ir ný bók, sem Helgi Benónýs- son frá Vesturhúsum í Vest- mannaeyjum hefur gefið út og er þar um að ræða frásagnir úr atvinnulífi Vestmannaeyja. Söluumboð bókarinnar er hjá Ægisútgáfunni. Helgi I Vestur- húsum kemur víða við i bðk sinni og kennir þar margra grasa bæði um sögusvið, sem nú er horfið undir hraun, og hitt, sem enn safnar söguþræð- inum i andrúmi sfnu. Heigi tileinkar þessa bók 1100 ára afmæli Islandsbyggð- ar með þætti um landnám Vest- mannaeyja, 100 ára búsetu Guðmundar Þórarinssonar og afkomenda hans í Vesturhús- úm, 80 ára afmæli frystihúsa á Islandi meðþættinum um ls- félag Vestmannaeyja og 50 ára afmæli Búnaðarfélags Vest- mannaeyja með þáttum um ræktun og búnaðarmál. Þá ritar Helgi ýmsar sagnir frá Eyjum og ágrip um ýmsa athafnamenn þar. Messur á morgun Dómkirkja Krists Konungs Landakoti Lágmessa kl. 8.30 árd. Há- messa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 siðd. Grensássókn Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Sr. Halldór S. Gröndal. Kársnesprestakall Barnaguðsþjónusta í Kárs- nesskóla klukkan 11 árd. Guðs- þjónusta i Kópavogskirkju kl. 2 síd. Fjölskyldumessa með helgi- leik barna. Sr. Árni Pálsson. Digranesprestakall Barnaguðsþjónusta i Víghóla- skóla kl. 2 síðd. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11 árd. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Langholtsprestakall Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr. Árelius Nielsson. Guðsþjón- usta kl. 2 síðd. Sr. Árelius Níelsson. Aðalfundur safnaðar- ins að iokinni messu. Öska- stundin kl. 4 sfðd. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Laugarneskirkja Messa kl. 11. — Athugið breyttan tf-ma. Jólasöngvar fyrir börn og fullorðna. — Stuttur helgileikur. Barnakór úr Laugarnesskóla undir stjórn Daníels Jónassonar söng- kennara. Sr. Garðar Svavars- son. Dómkirkjan Messa kl. 11 árd. Sr. Öskar J. Þorláksson. Messa kl. 2 siðd. Sr. Þórir Stephensen. Barnasam- koma kl. 10.30 i Vesturbæjar- skólanum við Öldugötu Sr. Þór- ir Stephensen. Stokkseyrarkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. Árbæ j ar prest akal I Guðsþjónusta í Árbæjar- kirkju kl. 2 sd. Athugið breytt- an messustað. Af óviðráðan- legum orsökum fellur barna- samkoma i Arbæjarskóia niður. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Frfkirkjan Hafnarfirði Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Aðventukvöld kl. 8.30 siðd. Fjölbreytt efnisskrá. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Fríkirkjan Reykjavfk Barnasamkoma kl. 10.30. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2 síðd. Sr. Þorsteinn Björnsson. Breiðholtsprestakall Guðsþjónusta í Breiðholts- skóla klukkan 2 síðd. Barnakór Laugarnesskóla syngur. Barna- samkoma í Breiðholts- og fella- skóla kl. 10.30 árd. Sr. Lárus Halldórsson. Ásprestakall Barnasamkoma kl. 11 í Laugarásbíói. Messa á sama stað klukkan 1.30 síðd. Sr. Grimur Grimsson. Hafnarf jarðarkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Sr. Garðar Þorsteinsson. Fíladelf ía Reykjavfk Safnaðarguðsþjónusta kl. 2 siðd. Almenn guðsþjónusta kl. 8 siðd. Neskirkja Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Sr. Jóhann S. Hlíðar. Félagsheimilið Seltjarnarnesi Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr. Jóhann S. Hlíðar. Keflavíkurkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Björn Jónsson. I nnri-N j arðvf kurkirkj a Messa kl. 2 siðd. (Þess er vænzt, að væntanleg fermingar- börn mæti ásamt foreldrum sín- um). Sr. Björn Jónsson. Háteigskirkja Lesmessa kl. 9.30. Barnaguðs- þjónusta kl. 10.30. Séra Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2 Séra Jón Þorvarðsson. Elliheimilið Grund Messa kl. 14. Séra Sveinn Ög- mundsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Sigluf jarðarkirkja Messa kl. 2 síðdegis. — Sóknarprestur. Bústaðakirkja Barnasamkoma kl. 11 árdegis. Guðsþjónusta kl. 2 sið- degis. Sr. Ólafur Skúlason. Hallgrfmskirkja Fjölskyldumessa kl. 11 árd. — Helgileikur verður fluttur í guðsþjónustunni. Sr. Ragnar Fjaiar Lárusson. Guðsþjónusta kl. 4 síðd. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson messar. Altarisganga. Kirkjukaffi eftir messu i Safn- aðarheimilinu á vegum Kristi- legra skólasamtaka og Kristi- legs stúdentafél. Sóknarprest- ar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.