Morgunblaðið - 14.12.1974, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974
Ný
komið
Kjólaefni
glæsilegt úrval.
Riflað flauel
breiddir 70 sm, 90 sm, 1,50sm.
Allir litir.
Þórður Asgeirsson skrifstofustjóri:
Aðeins nokkur orð
— til bess að svara ósannindum í grein Óla
Aadnegardar um löndunarbannið á Blönduósi
Aðeins nokkur orð til þess að
svara ósannindum í grein Óla
Aadnegardar um löndunarbannið
á Blönduósi. (í Mbl. 12/12 ’74)
1. Ég sat ekki fund með honum
né öðrum „heimamönnum” 20.
febrúar 1974. Þar voru á ferð aðr-
ir menn úr ráðuneytinu, en þetta
skiptir engu máli þvi það er líka
ósatt að það hafi komið fram hjá
mér að við í ráðuneytinu höfum
ekki vitað af þvi, að til stóð að
setja upp verksmiðju á Blönduósi.
Ég hef átt mörg viðtöl við Óttar
Ingvason um þessar ráðagerðir og
það m.a.s. fyrir 20. febrúar 1974.
2. Það er ekki rétt að ég hafi
fyrst sagt forsvarsmönnum Sæ-
Slétt bómullar flauel
mikið úrval.
Buxnaterelyne
allir litir.
Náttfataflónel
rósótt, röndótt.
Straufrí sængurveraefni
Hjá okkur er úrvalið. Opið til kl. 6 í kvöld.
Egill Sacobsen
Austurstræti 9
Jóla-
markaðurinn
er í fullum gangi
Aldrei meira úrval af gjafavörum
á gömlu og góðu verði.
Blómaskáli Michelsen,
Hveragerði,
sími 99-4225.
rúnar og eigendum m.b. Nökkva
að þeir myndu fá veiðileyfi og
nokkrum dögum seinna að þeir
myndu ekki fá þau og það eru
jafn helber ósannindi að ég hafi í
Morgunblaðinu undrast yfir því
að forráðamenn Særúnar skyldu
ekki kanna það áður en þeir sóttu
um veiðileyfi, hvort þeir myndu
fá þau. Hins vegar varaði ég Óttar
Yngvason, í fyrrgreindum við-
tölum við hann, við því að setja
upp verksmiðju fyrr en hann vissi
hvort bátar hans fengju veiði-
leyfi.
3. Ég hef aldrei frætt menn á
því „að Djúpuvikurtrillan myndi
landa einhvers staðar". Leyfi
Flugöldunnar frá Djúpuvík var
eins og allra annarra Húnaflóa-
báta bundið þvi skilyrði að hún
landaði á ákveðnum stað eða sem
sagt á Skagaströnd.
Ég hirði ekki um að fara frekar
út í það hvort það var I raun og
veru gert að skilyrði að Húnaflóa-
bátar þ.m.t. m.b. Nökkvi og m.b.
Aðalbjörg lönduðu afla sinum á
ákveðnum stað og aflinn yrði þar
unninn. Um þetta hefur meir en
nóg verið skrifað, en ég bendi á að
skilyrði þetta er viðurkennt af
öllum öðrum Húnaflóabátum, 27
að tölu.
Sjálfsagt þyrfti þessum linum
að f jölga um tvisvar sinnum helm-
ing ef gefa ætti rétta mynd af
öllum þeim atriðum er Óli Aadne-
gard drepur á i grein sinni, en ég
hirði ekki um að ræða málið frek-
ar og ekki er víst að ég muni aftur
hlaupa til að svara röngum sök-
um, sem á mig kunna að verða
bornar. Embættismenn gerðu víst
lítið annað en að skrifa í blöðin ef
þeir tækju upp þá stefnu að svara
öllu sliku.
TOYOTA gæði í prjónavél
TOYOTA prjónavélin er framleidd samkvæmt gæðastaðli
TOYOTA verksmiðjanna
Hún er sterk:
Nálaborð TOYOTA prjónavélarinnar er
byggt úr ryðfríu stáli. Ekkert plast eða ál,
sem slitnar og orsakar ónákvæmni í prjóni.
Nálastýringar og nálafærslur í sleða eru úr
þykku stáli.
Festingar eru úr þykku stáli til að festa
vélina á hvaða borð sem er.
Hún er lipur:
•fc Sniðreiknirinn festist með tveim klemmum
og tengist með aðeins einni sveif.
■fa Brugðningskantur festist aðeins með tveim
skrúfum við aðalvélina.
■^ Léttur málmkassi, klæddur plasti, er utan
um vélina. Þegar vélin er ekki í notkun er
kassinn smekkleg taska utan um hana.
Hún er til í allt:
TOYOTA prjónavélin prjónar bæði slétt og
brugðið, einnig ofið munstur.
h TOYOTA prjónavélin prjónar eftir munstur-
filmum, sem færast í gegnum vélina og
stýra nálunum í öllu útprjóni, einlitu, tvílitu
og gataprjóni.
TOYOTA prjónavélin hefur innbyggt Zig-
Zag, sem gefur möguleika á skekktu
munstri bæði í einföldu og tveggja lita
prjóni. Ath. þetta er einsdæmi á einföldu
nálaborði.
'fc Með TOYOTA prjónavélinni er hægt að fá
sniðreikni. Þá er sniðið teiknað upp og síðan
seqir vélin til um hvenær á að taka úr
eða auka í.
TOYOTA prjónavélin prjónar í hring
og hún prjónar líka úr LOPA.
Eigum TOYOTA prjónavélar fyrirliggjandi
B. SIGURÐSSON,
Höfðatúni 2, símar: 22 7 1 6—25 111.
Félagslif
□ Gimli 597412167 = 2
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðinsgötu
6a á morgun kl. 20.30.
Sunnudagaskóli kl. 14.
Verið velkomin.
Sunnudagsgangan
15./12.
verður um Geldinganes.
Brottför kl. 1 3 frá B.S.Í.
Verð 300 krónur.
Ferðafélag íslands.
K.F.U.M. og K. Hafnar-
firði
Almenn samkoma á sunnudags-
kvöld kl. 8.30. Séra Jóhann Hlið-
ar talar.
Allir velkomnir.
Skrifstofa Félags
einstæðra foreldra
er opin mánudaga og fimmtudaga
kl. 3 — 7. Aðra daga kl. 1 —5.
Simi 11822._________________
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11: Helgunarsam-
koma. Kl. 20.30: Hjálpræðissam-
koma.
Sænski guðfræðingurinn
Ingimar Myrin taiar á báðum
samkomunum. Velkomin.
Systrafélag
Keflavikurkirkju
Jólafundurinn er i Kirkjulundi,
sunnudaginn 15. des. kl. 8.30.
Takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Víkingar
Kvennadeild Víkings heldur jóla-
bingó í Félagsheimilinu við
Hæðargarð laugardaginn 14.12.
kl. 20.30. Stjórnin.
K.F.U.M. — Reykjavík
Samkoma annað kvöld kl. 20.30.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, Mál-
friður Finnbogadóttír og Halldór
Reynisson tala.
Einsöngur. Allir velkomnir.