Morgunblaðið - 14.12.1974, Side 16

Morgunblaðið - 14.12.1974, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974 UPP SKAL ÞAÐ Sjálfboðaliða Draumur að rœtast Með fjárstuðningi og mikilli sjálfboðavinnu er nú lang- þráður draumur að rætast. Betur má ef duga skal vantar til ýmissa starfa, laugardagkl. 13.00. Ný sérútgáfa á Lilju Eysteins BOKAUTGAFAN Stafafell hefur s<)n hafi ort Lilju um árið 1350 og sent frá sér nýja sérútgáfu á Lilju Eysteins Asgrímssonar, munks. Útgáfuna annaðist Gunnar Finn- bogason, cand. mag. Talió er, að Eysteinn Asgrims- Gunnar M. Magnúss er elzta þekkta handritið af Lilju frá 14. öld (Bergsbók) og prýða myndir af siðum handritsins þessa nýju útgáfu. Gunnar Finnbogason skrifar formála fyrir bókinni og einnig eru birtar skýringar með hverju erindi, en þau eru 100 talsins, ort undir hrynhendum hætti, sem sið- an hefur verið nefnt Liljulag, enda „öll skáld vildu Lilju kveðið hafa“. Teikningu á band og titilblað útgáfunnar gerði Bjarni Jónsson, listmálari, en bókin var prentúð í Steindórsprenti og bundin inn hjá Nýja bókbandinu. Bókin er 114 blaðsiður að stærð og gefin út í sama smábrotinu og ýmsar aðrar perlur, sem Stafafell hefur gefið út. Helgi Einarsson i verzlun sinni. Ljósm. Mbl. Emelfa. Ný verzlun með gler- og kristalvörur frá Italíu Bærinn á strönd- inni í endurútgáfu BÓKAÚTGÁFAN SETBERG hefur gefið út nýja útgáfu á sögu Gunnars M. Magnúss. Bærinn á ströndinni, sem fyrst kom út árið 1939. Teikningar Tryggva Magnússonar eru og prentaðar með þessari útgáfu. Bærinn á ströndinni ber undirtitilinn Saga úr lífi Jóns Gunnarsonar, sem eraðalsögu- hetjan ásamt Guðrúnu Lukku, en þau eru bæði 12 ára þegar sagan hefst og hefur verið komið fyrir á bænum á strönd- inni. Sagan er ætluð jafnt börnum og unglingum og sem fyrr er mikill fengur að teikningum Tryggva. Bókin er 1 35 bls. að stærð og er prentuð í Setbergi. NVLEGA opnaði Helgi Einarsson verzlun með kristal- og glervörur að Skólavörðustfg 4. Helgi var áður með húsgagnaframleiðslu f Brautarholti og húsgagnaverzlun að Laugavegi 164, en nú hefur hann eingöngu snúið sér að gler- og kristalvörunum og opnað þessa verzlun á Skólavörðustfgnum. Kristallinn sem Helgi býður upp á er frá Feneyjum. Hann er litaður og settur saman úr mörg- um einingum, þannig að ljósbrot eru á hina margvíslegustu vegu. Kristallarnir eru frá fyrirtækinu Murano á Italiu, sem er það stærsta sinnar tegundar þar I landi. Framleiðir fyrirtækið aðal- lega vasa, skálar, glös, bakka, kertastjaka, lampa og jafnvel skúlptúr. Allir þessir hlutir eru handunnir og því engir tveir eins. Þá býður Helgi einnig glervöru sem nýlega er farið að vinna, að undirlagi listamannsins Cozzutti Natale. Hann fær listamenn til að Hj'álpar- tæki HÖFUM FYRIRLIGGJANDI ÚRVAL AF TÆKJUM TIL ENDURHÆFINGAR til notkunar í heimahúsum og á stofnunum. Einnig tæki til þess að létta lömuðum störfin heimafyrir og á vinnustað. REMEDIA HF\ lækningatækjaverzlun, Miöstræti 12. S. 27511 — 27632. gera myndir, sem hann síðan mál- ar á glerið með sérstakri aðferð. Er glerið hitað í 800 gráður, mynstur og form þrykkt á og síðan er myndin máluð og auk þess stundum skreytt gulli og silfri. Eru þannig gerð málverk, skálar og ýmislegt fleira. Tregt hjá Vest- fjarðaskipum AÐ því er segir f yfirlitsfrétt skrifstofu Fiskifélags fslands f Vestfirðingafjórðungi, þá voru gæftir sæmilega góðar í nóvem- ber en tregfiski allan mánuðinn, bæði hjá línubátum og togurum. Greinilegt sé, að ennþá hafi eng- inn fiskur gengið á Vestfjarða- mið, og ástandið að þessu leyti mjög svipað og var um sama leyti á sfðasta ári. Heildaraflinn i mánuðinum var 3.804 lestir, en var 3.717 lestir á sama tima i fyrra. Afli línubát- anna varð 2.024 lestir í 421 róðri eða 4.8 lestir að meðaltali i róðrL Er það sami meðalafli og í fyrra, en þá var línuaflinn 2.151 lest I 448 róðrum. 1 mánuðinum stunduðu 30 bát- ar bolfiskveiðar, 23 reru með linu, en 7 stunduðu togveiðar. — Afla- hæsti línubáturinn var Tálkn- firðingur frá Tálknafirði með 140.8 lestir í 24 róðrum. Af tog- skipum var Bessi frá Súðavík aflahæstur með 335.8 lestir i 4 veiðiferðum, en Bessi var einnig aflahæstur i sama mánuði i fyrra. Sumargjöf berst gjöf SIGRÍÐUR Þorláksdóttir, sem nú dvelst á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund, hefur fært Barnavina- félaginu Sumargjöf veglega pen- ingagjöf til minningar um dóttur sina, Ebbu Þorláks, sem dó á 6. aldursári, 20. maT 1936. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu frá Sumargjöf. Stjórn Sumargjafar metur mik- ils gjöf þessa og þann hug sem a<5 baki liggur. Færir stjórnin gefand- anum innilegar þakkir og árnaS- aróskir. Stjórnin hefur ákveSiS, aS gjöf- in renni til MenntunarsjóSs Sumargjafar, sem m.a. er ætlaS aS stuSla aS þvi, aS unnt sé aS veita talkennslu þeim bömum á heimilum Sumargjafar, sem þess þurfa. 5000 ferða- r menn og Is- lendingar í meirihluta 1 nóvembermánuði s.l. komu alls 4958 ferðamenn til landsins, þar af voru útlendingar 2220, en Islendingar 2738. Það fer því ekki milli mála, að landinn er dugleg- ur við að ferðast enn. Langflestir voru útlendingarnir frá Banda- rikjunum eða 1029, 195 komu frá Stóra-Bretlandi, 169 frá Svíþjóð, 150 frá Danmörku og frá Vestur- Þýzkalandi 124. Frá örðum þjóð- um komu færri en 100 ferða- Framhaldsaðalfundur: Framhaldsaðalfundur Heimdallar S.U.S. verður haldinn laugardaginn 14. desember n.k. i Miðbæ við Háaleitisbraut kl. 1 4.00. Dagskrá: 1. Kjör í fulltrúaráð Heimdallar fyrir starfsárið 1 974—1 975. 2. Afgreíðsla stjórnmálaályktunar. 3. Önnur mál. Félagar eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Sjálfstæðisféiag Garða- og Bessastaðahrepps Aðalfundur félagsins verður haldinn að Garðaholti mánudaginn 16. desember kl. 21. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Hitaveitumál. Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri flytur erindi og svarar fyrirspurnum. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.