Morgunblaðið - 14.12.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 14.12.1974, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974 Sigrún Sigurjóns- dóttír Minningarorð 1 öndverðum nóvember árið 1896 voru hjónin á bænum Kringlu í Grímsnesi nýflutt inn í hús sitt, eftir að hafa endurbyggt það að afstöðnum jarðskjálftun- um miklu, sem þá urðu, og sem voru svo mjög í hugum fólks um sunnanvert landið. Það mátti ekki seinna vera, að þau flyttu inn. Fáum dögum síðar eða þ. 7. nóvember fæddist þeim hjónunum Sigurjóni Gíslasyni og Jódísi Sigmundsdóttur, dóttir. Þetta var þriðja barn þeirra hjóna og var stúlkan skírð Sigrún. Hjónin Jódís og Sigurjón eign- uðust alls tíu börn. Öll voru þau fædd á Kringlu og öll ólust þau þar upp, þau er komust til fullorð- insára, en tveir drengir þeirra dóu ungir. Sigrún ólst upp í stórum systkinahcpi, og eins og gefur að skilja kom það í hennar hlut að létta undir fjölþætt störf á stóru heimili, þegar fram liðu stundir. Uppeldisárin hafa án efa mótað lífsviðhorf hennar og lyndiseink- t Eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET NIKULÁSDÓTTIR, Vitastíg 6A, HafnarfirSi, lést í Landspitalanum 1 2. desember. Vigfús Þorgilsson og börn. unn. Hún gekk hreint til verks í þess orðs fyllstu merkingu og var hreinskiptin varðandi menn og málefni. Laust eftir 1920 verða tímamót í ævi Sigrúnar, er hún kynnist eft- irlifandi manni sínum Jónasi B. Bjarnasyni frá Vallholti á Mið- nesi, en hann hafði þá ráðist sem kaupamaður i Grímsnesið. Þau felldu hugi saman og giftust árið 1926. Sama ár fæddist þeim fyrsta barnið, dóttirin Sólveig Jóhanna, ári síðar fæddist þeim önnur dótt- ir, Erla, og loks sonur, Sigurgeir, árið 1928. Lifa þau öll móður sína, ásamt fjórtán barnabörnum. Þau hjónin Sigrún og Jónas hafa litið björtum augum til fram- tíðarinnar, því þegar árið 1925 ráðast þau í að reisa nýbýlið Hóla- brekku á Miðnesi, þrátt fyrir þau kjör, sem þessi ár höfðu upp á að bjóða Húsið var reist á gömlu býli samnefndu. Á þessum árum var unnið hörðum höndum til sjávar og sveita á íslandi og átti það ekkert síður við um Miðnesið, þar sem landgæði eru ekki þau ákjós- anlegustu. Með dugnaði og þraut- seigju voru ýmsir örðugleikar yf- irstignir. Húsbóndinn var hag- virkur og hafði löngum mörg járn i eldinum, stundaði smíðar og fiskveiðar á eigin skipi jöfnum höndum, auk búskapar, studdur dyggilega af dugmikilli og hag- sýnni húsmóður. I Hólabrekku bjuggu Sigrún og Jónas til ársins 1945 og þar uxu börnin úr grasi. Árið 1945 selja þau bú sitt og flytja í næsta byggðarlag, þar sem þau keyptu hús, Rafnkelsstaði í Garði. Var + Móðir mín og amma, ÞÓRUNN ÞORSTEINSDÓTTIR, andaðist í Elliheimilinu Grund 1 2. þ.m. Gyða Tómasdóttir, Hafdís Þórólfsdóttir. + Konan mín og móðir okkar, RAGNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR, frá Stardal, Hellisgötu 1 6, andaðist að kvöldi 1 2. desember! Landakotsspítala. Guðmundur Þ, Magnusson og börn. t Móðir okkar MATTHILDUR KJARTANSDÓTTIR, Ásvallagötu 52 verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 16 desember kl. 10.30 f.h. Blóm vinsamlega afbeðin F.h. aðstandenda Börnin + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, KATRÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Þórufelli 14. Börn, tengdaborn og barnaborn Friðjón Jónsson kaupmaður Mrming þetta áfangi á leið þeirra til Reykjavíkur, en þangaó fluttu þau ári síðar og festu kaup á íbúð í Drápuhlið 5, þar sem þau bjuggu í tólf ár. Árió 1958 flytjast þau hjónin svo i einbýlishús, er þau höfðu byggt við Þinghólsbraut 9 í Kópa- vogi, og hafa þau búið þar síðan. Hús þeirra og heimili allt ber glöggt vitni snyrtimennsku og samheldni þeirra hjóna beggja. Ótal ferðir að Hólabrekku á uppvaxtarárum mínum verða mér minnisstæðar og dvöl á heimili Sigrúnar um stuttan tima eða langan, og eru minningar um hana allar góðar. Að leiðarlokum er margs að minnast og margs að sakna frá samverustundum fyrri ára. Sigrún var að eðlisfari létt í lund og lífleg í fasi hvar sem hún fór. Það var fjarri huga hennar að fara á flótta undan lífinu og vandamálum þess, því með henni bjó mikil lifsgleði og lifsorka, allt fram á síðustu stundu. Hún átti við vanheilsu að stríða siðustu mánuði og fyrr á ævinni hafði hún lagst á sjúkrahús nokkrum sinnum. Þrótt og kjark hafði hún ávallt til þess að yfirstíga þá erfið- leika. Þess er skemmst að minnast, er hún kom í heimsókn til systur sinnar, fósturmóður minnar, er þá lá á sjúkrahúsi, og færði henni aó gömlum og góðum sið kaffi og pönnukökur, að með sér færði hún einnig ferskan andblæ og lífsorku, sem ávallt er verðmæt við slíkar aðstæður. Sigrún átti eftir að sjá á eftir þessari systur sinni um mitt sl. sumar, en sjálf lést Sigrún hinn 9. þ.m. á Borgar- spitalanum i Reykjavík. A einu ári hafa þrjár systur, dætur hjón- anna á Kringlu, þær Sigurbjörg, Geirþrúður og Sigrún, horfið af sjónarsviðinu. Sambúó þeirra hjóna Sigrúnar og Jónasar hafði varað rúmlega fimmtíu ár, og er þvi fráfall Sig- rínar þungbært eiginmanni henn- ar, svo og ástvinum öllum. En áfram snýst lífsins hjól og líf er Framhald á bls. 22 F. 26. ágúst 1904 D. 7. des. 1974 Með Friðjóni er fallinn í valinn einn af þeim Njarðvíkingum, sem um langan tíma hafa sett svip sinn á samfélagið í Njarðvíkur- hreppi. Friðjón er fæddur á Hellnum á Snæfellsnesi og ólst upp með móður sinni á nokkrum bæjum þar í sveit, en snemma mun hann hafa þurft að sjá um sig sjálfur og taka ungur ákvarðanir, sem ýms- um eldri mönnum þættu erfiðar í dag. Að því leyti hefst lífsganga hans á líkan hátt og fjölda þeirra Islendinga, sem nú eru óðum að týna tölunni. Friðjón flyst til Njarðvíkur árið 1921, og má segja að hending ein hafi ráðið þeirri ákvörðun, en hann mun ekki hafa haft um það áform að dvelja til lengdar þar — og ekki er ólíklegt að nálægð jökulsins hafi tíðum verið saknað — þó var þar nokkur bót, að Snæfellsjökul mátti greina við hafsbrún, ef vel viðraði, og eng- inn jökull er hreinni. Fyrstu ár sín I Njarðvikum stundaði Friðjón ýmis störf, en þó mest sjómennsku, en síðar hóf hann akstur vörubifreiðar og stundaði það starf um árabil, fyrst fyrir aðra, en siðar keypti hann bifreið og ók fiski og öðrum þungaflutningi milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Árið 1939 stofnar Friðjón verzlun ásamt Sigurði Guðmunds- syni i Þórukoti, og allt frá þeim tima hefir hann verió verzlunar- eigandi i Ytri-Njarðvík, nú síðast 1 átti hann Friðjónskjör, sem hann varð þó að selja á siðastliðnu sumri, er hann var þrotinn að heilsu og kröftum. Hér hefir verið stiklað á stóru, án þess að getið væri þeirra þátta, er helzt hafa mótað hamingju Friðjóns, en þar á ég að sjálfsögðu við fjölskyldú- líf hans, en þar var hann mikill gæfumaður. Friðjón stofnaði sitt eigið heimili með eftirlifandi konu sinni Jóhönnu Margréti Stefáns- dóttur frá Fossi í Grimsnesi árið 1938. Bústaður þeirra hefir lengst af gengið undir upphaflegu nafni, sem er Vellir en er nú Borgarveg- ur 8. Allir, sem til þekkja, kann- ast við þá vinsamlegu hlýju, sem þar hefir ávallt rikt, og hefir hió fagra heimili þeirra borið glæsi- legan vott um samheldni og rausnarskap húsráðenda, enda hafa Njarðvíkingar og aðrir gestir þar skemmtilegar stundir og not- ið fölskvalausrar gestrisni. Börn þeirra hjóna, sem öll eru efnis fólk, eru: Katrín f. 1937, en hún er gift Pálma Viðari Öskarssyni, bif- reiðarstjóra, Sigríður f. 1944, gift Þórhalli Guðmundssyni, bifreiða- stjóra, og Smári f. 1950, en hann er heitbundinn Jenný Lárus- dóttur. Auk barna sinna ól Friðjón upp að nokkru son Jóhönnu af fyrra hjónabandi en nafn hans var Karl Oddgeirsson, en hann lést fyrir allmörgum árum, en hann var mikill efnismaður. Mun það hafa verið meira áfall fyrir Friðjón en ýmsa grunar, þótt hann léti ekki mikið á því bera. Hitt er svo jafn- víst, að hann hefir af fremsta megni styrkt ekkju Karls, Elínu Þórðardóttur, og börnin hennar fjögur, en góðvild og hjálpsemi voru þeir þættir í fari Friðjóns, sem ég tel að hafi einkennt hann einna mest. Friðjón var enginn hávaðamað- ur, en allir, sem til hans þekktu, vissu að hann var óskiptur í skoðunum sinum, og drengskapur i orði og verki voru hans aðals- merki — en stundum má draga I efa, að slikt aðalsmerki sé hentugt fyrir verzlunarmann. — Hann hefði þó síðastur manna sagt frá þvi, þótt hann tapaði á trú sinni á heiðarleikann, en hann var svo oróvar að ég heyrði hann aldrei hallmæla neinum, þó vissi ég til þess að honum var stundum heitt í hamsi. Að leiðarlokum er mér efst í huga, er ég minnist þessa vinar míns, sú hljóóláta vinsemd, sem einkenndi allt hans viðmót, enda var hann sérlega vinsæll. Friðjón tók ekki mikinn þátt I félagsmál- um, enda var ekki mikill tími aflögu frá erilsömu starfi, sem oft mun hafa krafist 14 til 16 stunda vinnudags, en þó var hann einn af stofnendum Lionsklúbbs Njarð- víkur og einn af virkustu félögum þess klúbbs, og var hann heiðurs- meðlimur klúbbsins síðustu árin. Um leið og ég kveó þennan látna heiðursman og bið honum Guðs blessunar vil ég senda mín- ar innilegustu samúðarkveðjur til eiginkonu, barna, tengdabarna og barnabarna. Ingólfur Aðalsteinsson Kveðja frá Lionsklúbbi Njarð- vfkur. Friðjón Jónsson var einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Njarð- víkur árið 1958. Hann starfaði Framhald á bls. 22 + Við þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför JÓNS ARINBJÖRNSSONAR, Hraunbraut 44, Kópavogi. Steinunn Jónsdóttir, Sigfús Halldórsson, Sigurgeir Jónsson, Hrafnhildur Kjartansdóttir, Sigþrúður Arinbjörnsdóttir, ba rnabörn og þeirra fjölskyldur + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vonarhug við andlát og jarðarför GUÐRÚNAR EINARSDÓTTUR, Laugum Einnig þeim sem heiðruðu minningu hennar með minningargjöfum. Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarliði Sjúkrahúss Selfoss fyrir góða aðhlynningu í veikindum hennar svo og öllum þeim er glöddu hana með heimsóknum. Valgerður Matthiasdóttir Marel Jónsson, Magnús Einarsson, Jón Einarsson, Jónína Jónsdóttir, Eyþór Einarsson, Guðborg Aðalsteinsdóttir, Ingimundur Einarsson, Lilja Guðmundsdóttir, Einar Kr. Einarsson, Guðrún Gísladóttir, Barnabörn og barnabarnabörn. + Hugheilar þakkir færum við öll- um þeim er sýndu okkur hlýhug og hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa SVEINBJÖRNS ÖGMUNDSSONAR, veggfóðrara og dúklagningamanns Þorbjörg Jónsdóttir Jóhanna og Raymond Dominger Halley Sveinbjörnsdóttir og Kristján Guðmundsson Börn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.