Morgunblaðið - 14.12.1974, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974
31
TOLLSVIKAMALIÐ
VEGNA frétta f fjölmiðlum, um
tollsvikamál það sem upp hefur
komið, hafa fyrri eigendur tfzku-
verzlunarinnar Casanova, Stefán
Ág. Magnússon og Finnbjörn
Finnbjörnsson beðið Mbl. að
koma eftirfarandi á framfæri:
I fréttatilkynningu frá toll-
stjóra um málið er sagt, að Á.H.
Magnússon og verzlunin Casa-
nova hafi fegnið kæru vegna 22
vörusendinga, að upphæð 9—10
milljónir. Þetta er alrangt. Hið
rétta er, að A.H. Magnússon á 21
sendingu, en á einni sendingu
kemur nafn Casanova fram á
flugfylgibréfi vegna misskilnings
erlendis, og hefur sendandi vör-
unnar þegar skýrt tollstjóra frá
þvi. Aðrir pappírar varðandi
þessa sendingu eru á nafni Á.H.
Magnússonar og höfðu verið
greiddir í banka i hans nafni.
Allar vörur sem ekki koma frá
heildsölum voru leystar út af
verzluninni á eðlilegan hátt, og
verzlunin hefur aldrei móttekið
vörur án greiðslu á viðkomandi
stöðum (banka, tolli og flug-
frakt.). Hefur svo verið gert bæði
fyrir og eftir eigendaskipti.
Mbl. hafði samband við Björn
Hermannsson tollstjóra vegna
þessa máls. Hann sagði, að þetta
tollsvikamál væri mjög marg-
slungið og erfitt að greina sundur
einstaka þætti þess. Mál Á.H.
Magnússon og Casanova hefðu
verið svo samofin, að þau hefðu
verið nefnd í einu, einnig með
það i huga, að Asgeir H. Magnús-
son er nú einn eigenda Casanová.
Hvað varð um myndina Brekkukotsannál?
GERÐAR hafa verið ítrek-
aðar tilraunir til að fá kvik-
myndina Brekkukotsannál
sýnda fyrir nemendur
Tækniskóla Islands og
Menntaskólans við Hamra-
hlíð. Skáldsaga Halldórs
Laxness, Brekkukots-
annáll, er lesin í bók-
menntanámi í þessum skól-
um og er kvikmyndin því í
nánum tengslum við
námið. Þrátt fyrir mjög
góða viðleitni ýmissa aðila,
sem um málið fjalla, hefur
myndin ekki fengizt sýnd
vegna einkennilegrar þrá-
kelkni leikara. Þessi neitun
er því furðulegri, þar sem
myndin er gerð fyrir al-
mannafé.
Almenningur á kröfu á
því að fá skýringu á, hvers-
vegna myndin hefur ekki
verið sýnd nema einu sinni
og hvers vegna íslenzkum
skólum er meinað að nota
hana I kennslu sinni. Leik-
húsin hafa reynt að laða
námsfólk að leiksýningum,
en hvers vegna má
ekki sýna þvi íslenzka kvik-
mynd? Hér með er skorað
á framleiðendur og leikara
að gefa skýringu á því
hvers vegna myndin er
bönnuð almenningi.
Nemendur Raungreinadeildar
Tækniskóla Islands.
ÞRR ER EITTHURÐ
FVRIR RLLR
Sunnudaginn 15. desem-
ber opnar Fanney Jóns-
dóttir málverkasýningu að
Klausturhólum f Lækjar-
götu 2.
Fanney dvaldi f Kaup-
mannahöfn um sex ára
skeið og stundaði þar list-
nám. Hún hefur ekki hald-
ið sýningu áður á verkum
sfnum.
Á sýningunni eru um 40
olfumálverk, mörg þeirra
unnin á þessu ári. Sýning-
in verður opin framundir
jól og er aðgangur ókeypis.
Ný kjörbúð
á Hólmavík
Hólmavík, 10. des. 1974.
1 DAG opnaði Kaupfélag Stein-
grfmsfjarðar f Hðfmavfk (K.S.H.)
nýja verzlunardeild — vefnaðar-
vörudeild — á efri hæð f kaup-
félagshúsinu. Deifdin er kjörbúð
og bætir mjög úr brýnni þörf
kaupfélagsins fyrir aukið
verzlunarrými.
Allmiklar breytingar standa nú
yfir á verzlunarhúsnæði kaup-
félagsins og er opnun þessarar
nýju deildar einn liðurinn í þeim
breytingum. Ætlunin er að breyta
verzluninni allri i form kjörbúða.
Þar sem hin nýja vefnaðarvöru-
deild er nú voru áður skrifstofur
kaupfélagsins, sem nú hafa verið
fluttar á nýjan stað í húsinu, en
þar var áður ibúð kaupfélags-
stjórans.
Kaupfélagsstjóri í Hólmavík er
Jón E. Alfreðsson, en verzlunar-
stjóri er Einar Þórir Sigurðsson.
Auk verzlunarinnar rekur
kaupfélagið tvö frystihús, tvær
rækjuvinnslur, beinamjölsverk-
smiðju og saltfiskverkun.
Andrés.
LIAtíl
MER
EYRA
THi UNEAR SOUND
„Linear" þýðist á íslensku
sem, flatt eða beint. Það
sem sérfræðingar EPI eiga
við, þegar þeir hrósa sér af
„The Linear sound of EPI"
er að línurit tekið af EPI
hátölurum er flatt eða
beint strik á því tónsviði,
sem gefið er upp með við-
komandi hátalara. Sér-
fræði.ngar EPI gera þær
kröfur, að hátalarar þeirra
skili nákvæmlega því sem
inn á þá er sett, þ.e. geri
hvorki í því að ýkja né rýra
þá hljóma, sem þeir koma
til skila
Með EPI ert þú skrefi nær
raunveruleikanum.
Ersafiiarií
KaiaCTtitn
Er safnari í fjölskyldunni?
Þá býöst þér sérstakt tækifæri
í ár. Þú getur gefiö honum
mynt af sérunninni sláttu
(proof coins) í jólagjöf.
Tvo silfurpeninga æ
925/1000 aö skírleika M
(sterling silfur). m
Mynt þessi er gefm út A
í tilefni af 1100 ára
afftiæli byggöar t
á íslandi, og er hún^m/ *
enn fáanleg hjá
bönkum, spari- {
sjóöum og helstu jg^
myntsölum.
Verö peninganna p
í gjafaöskju W
er kr. 4.000.-
K.
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
HAFNARSTRÆTI 10
1000 kr.
500 kr.
Bakhlið
Faco
Hliómdeild
Laugavegi 89
sími 13008