Morgunblaðið - 14.12.1974, Page 37

Morgunblaðið - 14.12.1974, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1974 37 Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jóhanna v Kristjönsdöttir þýddi / 74 Það er málið. Það var komið með manninn frá Líbanon nákvæm- lega eins og við gátum okkur til um. En hann ætlar ekki að aðhaf- ast neitt. Hún er á leiðinni til fundar við hann þessa stundina. Það munaði engu með hana, ég skaut mann við herbergisdyrnar sem hafði Schemismer-byssu til- búna. Hún segir að King hljóti að hafa sent hann og hún segir að hann hafi einnig myrt Dallas Jay, viðhald Huntleys og haldið það vera sig. Hann komst að því að hún vissi allt og hann vildi loka á henni munninum. Hún lét mig fá bréf til yðar og ég lofaði að hún mætti hitta kauðann og ég skyldi horfa í hina áttina. — Þú hefur staðið þig með sóma, Pete! Rödd Learys var ó- þekkjanleg, nú orðin hlý og vin- gjarnleg. — Ansans ári hefurðu stáðið þig vel. Nú hef ég sannar- lega eitthvað, sem ég get dengt á King. Og misstu ekki af henni, hvað sem þú gerir. Ég vil fá strák- inn. Ég vil láta koma með þau og láta þau standa augliti til auglitis við kvikindisorminn hérna. John Jackson. Leary lagði frá sér tólið og hellti kaffi í bolla handa sér. Hann hafði drukkið svo mikið kaffi þessar sfðustu klukkustundir, að honum fannst hann uppþembdur. Persónulega fannst honum óneitanlega þetta gott val hjá Cameron. En það var einkennilegt að Cameron hefði áform á prjónunum um að myrða mann sem fylgdi jafn skefja- lausri öfgastefnu til hægri og hann sjálfur hafði gert lengst af, þótt hann hefði söðlað um núna. Og enn sérkennilegra að maður eins og King hefði verið með i þessu. En stjórnmál voru eins og hjónabönd, gersamlega óútreikn- anleg, hugsaði hann. Honum var ekki til setunnar boðið. Hann reis á fætur. Nú var komin röðin að honum að ræða við Eddi King. Bílaröðin mjakaðist ofurhægt áfram. Peter notaði tækifærið og kveikti sér í sígarettu. Konur voru fáráðar, hugsaði hann. Það þurfti aðeins að strjúka þeim rétt og þá var hægt að fá þær til að gera hvaðeina. Eins og sá flóns- háttur í Elizabethu að trúa því að hann ætlaði að standa við orð sín og leyfa henni og morðingjanum hennar að komast á braut. Hann var eftirvæntingarfullur að sjá manninn. Að sjá hvað Elizabeth hafði fundið í þessum manni, sem skipti slikum sköpum. Það hlaut að vera kynferðislegs eðlis, hugs- aði Mathews. Hann vissi sjálfur, að honum hafði aldrei tekizt al- mennilega að vekja hana að þessu leyti. Hún hafði talað um ást og honum hafði orðið hálfórótt inn- anbrjóts. Það var svo augljóst að hún hafði trúað honum og stóð í þeirri sælu trú að hann ætlaði að leyfa þeim báðum að komast óáreittum í burtu. Hann elskar mig, hafði hún sagt og hún hafði trúað því. En hann var staðráðinn í því að i þetta skipti ætlaði hann ekki að láta hana sleppa. Elizabeth leit enn einu sinni á armbandsúr sitt og kallaði til öku- mannsins. — Getió þér ekki fundið ein- hverja aðra leið út á flugvöll. Það endar með því ég missi af vélinni. — Þér veróið þá ekki ein um það, fröken góð, sagði bílstjórinn og leit sem snöggvast á hana í speglinum. Hún virtist í uppnámi, en hann skeytti ekki nánar um það. — Það er engin önnur greiðfær- ari leið 1 dag. Hafið þér gleymt hátíðahöldunum? — Nei! Elizabeth hallaði sér þyngslalega aftur í sætinu og sagði í hálfum hljóðum. — Nei, hvernig gæti ég gleymt þeim... Kannski hafði Keller tafist eins og hún. Hann hafði lofað að fara i tæka tíð af hótelinu og til flug- vallarins og vera kominn þangað klukkan ellefu. Hversu lengi myndi hann bióa eftir henni. Eina klukkustund eða tvær. Hann færi ekki án hennar. Hann hlyti að trúa því að hún kæmi til fundar við hann, eins og þau höfðu ákveðið og hann hlyti að átta sig á, að eitthvað hafði tafið hana, sem hún hefði ekki getað ráðið við. Hún kveikti sér í sigarettu og fann að það var smáhrollur innra með henni. Ef Mathews hefði ekki komið, lægi hún nú liðið lík við splundraðar dyrnar á íbúð sinni, jafn dauð og arabiska stúlk- an, sem hafói verið kyrkt. Þeir höfðu handtekið Eddi King. Og maðurinn sem hafði verið sendur til að ráða hana af dögum hafði sjálfur verið drepinn. Hún skildi að Huntley frændi hennar hafði haft á réttu að tanda. Hún hafði engan veginn verið örugg i íbúð Ég hafði ofnæmi fyrir allri vinnu nema innbrota- vinnu. sinni. Nú var engin hætta lengur sem að henni steðjaói, að eins að Keller. Mathews hafði gefið þeim tækifæri og hún grét nokkrum fögrum tárum af þakklæti til hans vegna veglyndis. En nú var málið að þeim Keller tækist að komast úr landi á næstu klukkutímum. Annars myndi Leary láta hand- taka þau bæði. Hann myndi ekki sýna neina vægð og miskunn. Nú fór aðeins að liðkast um umferðina. Kennedyflugvöllur var enn I átta milna fjarlægð. Hún hallaði sér fram og sagði enn á ný biðjandi við leigubílstjórann. — Gerið það fyrir mig að reyna að hraða yður, sagði hún. — Ég skal borga yður tvöfalt gjald. — Allt í lagi, sagði hann. — En ég hef ekki vængi, þér verðið að athuga það. Hann setti fótinn á bensingjöf- ina og jók hraðann. Martino Regazzi hélt á ræðu- blöðunum í vinstri hendi, en hann las ekki af blöðunum, heldur tal- aði hann beint inn i hljóðnemann: — Börn mín í Kristi, sagði hann hlýlega. — 1 dag er ekki aðeins hátíðisdagur hins mikla dýrlings heldur er þetta mikill dagur fyrir Bandaríkin og alla Bandaríkja- menn vegna þess að heilagur Pat- rekur kom til lands okkar svo sannarlega eins og hann bar að ströndum Irlands. Hann kom hingað í hjörtum innflytjend- anna, sem komu hingar knúnir af þörf og því óréttlæti sem ríkt hafði í heimalandi þeirra og rak þá á braut. Þeir komu hingað og leituðu frelsis. Leituðu nýs lifs. Lifs í guðstrú, von og kærleika og lifs í nýjum virðuleika. 1 hug- um Ira, þjóðar minnar, Itala og allra um gervallan heiminn hafa Bandaríkin verið land réttlætis og lýðræðis, sem guðstrúin hefur lýst upp og gert heimaland okkar allra. .. .Sjónvarpsvélarnar suðuðu og áfram hélt ræðu Regazzi. Hann talaði um óréttlætið og misréttið sem smám saman hefði skotið rót- um i hjarta sumra landa sinna í 'Bandaríkjunum og var ekki að klípa utan af fullyrðingum sinum. John Jackson sem sat ásamt eigin- konu sinni skammt frá prédikun- VELVAKANDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags. 0 Jólaljós í kirkjugöröum Asgerður Gísladóttir skrifar: ,,Fyrir nokkrum dögum las ég tilkynningu í Morgunblaðinu frá frú Guðrúnu Runólfsson þess efnis, að ekki hefði samizt um jólalýsingu á leiðum milli hennar og stjórnar Kirkjugarða Reykja- vikur, og því yrði engin lýsing á hennar vegum í Fossvogsgarði. Þessi jólalýsing er mér og mörg- um öðrum mikið áhuga- og til- finningamál. Ég hringdi því suð- ur i garð til að fá að vita nánar um þetta. Stúlkan, sem svaraði i símann, sagði, að engin lýsing yrði þar i ár. Mig langaði til að hafa tal af forstjóranum, en hann var þvi miður ekki við. Aðspurð sagðist stúlkan halda, að frú Guð- rún hefði leyfi lil að hafa ljósin í ár, en hefði viljað fá leyfi til fleiri ára. Nú langar mig, kæri Velvak- andi, til að biðja þig að vekja máls á þessu, ef umræður um þetta mál gætu orðið til þess, að borgaryfir- völd leyfóu raflýsingu i garðinum framvegis. Aður en þessi raflýsing hófst þarna suður frá höfðu margir reynt að hafa ljós frá bílaraf- geymum á leiðum ástvina sinna. Óvandaðir menn hirtu þá, svo ógerningur er að notast við þann útbúnað. Mér finnst það fagur siður hjá okkur íslendingum I svartasta skammdeginu að bera birtu að beði látinna ástvina okkar, á sjálfri ljóssins hátíð, jólunum. Vil ég þvi alls ekki að þessi góði siður leggist niður. Með þökk fyrir birtinguna og von um farsæla lausn á þessu viðkvæma máli. Ásgerður Gísladóttir.“ 0 Þankabrot eftir lestur greinar Guð- rúnar Jacobsen Karlakarl skrifar: Trúlega væri það skynsamleg sparnaðarráðstöfun að loka Háskóla íslands. Of margir af nemendum skólans stunda niður- rifsstarfsemi og hvers vegna ætt- um við að gefa með slikum? Að ráða sálfræðing til aðstoðar þessu fólki væri, held ég, vita tilgangs- laust. Eftir því sem ég þekki til nútíma sálfræðinga virðist mér starf þeirra einkum fólgið i því að finna út vandamál handa fólki og svo að naga á sér neglurnar. Við gætum líka sparað okkur lögreglulið og jafnvel alla þá, sem fást við sakamál, því skálmöld er nú skollin á og verður ekki stöðv- uð fremur en sú tízka að vera í hnéháum stígvélum inni i upp- hituðum húsum og pilsum sem ná rétt niður fyrir sitjandann, í frosti og norðanstormi. Ekki fær hinn almenni borgari leiðréttingu mála sinna þótt hann verði fyrir tjóni af völd- um annarra. Ekki eru menn látnir sæta ábyrgð fyrir skaða eða tjón, sem þeir valda öðrum. Ég þykist hafa komið auga á óbrigðult ráð til að venja fólk af þessum ósóma. Ráðið er þetta: Foreldrar beri ábyrgð á gerðum barna sinna meðan greitt er með þeim af al- mannafé. Tjónvöldum sé gert að bæta skaðann að fullu. Þeir geta unnið af sér skuldina á lokuðu vinnuhæli, ef ekki vill betur til. Þeir hafa sjálfir fyrirgert rétti sinum til að fá að ganga lausir. Karlakarl.“ Það væri nú heldur einföld lausn að loka Háskólá Islands vegna þess að fáeinir bröltarar haga sér ósæmilega af óvitaskap. Það gengur heldur ekki að reyna ekki að sjá allan skóginn fyrir nokkrum hrlslum og þess vegna er varasamt að dæma alla háskólanema eftir bíóliðinu í út- varpinu 1. des. Svo þyrfti lika að skoða hvort viturlegra sé að reyna að gripa á þessu máli af skilningi og lempni eða þá hafa í huga þjóðráðið gamla, að með illu skuli illt út drifa. # 1 hverju átti aðstoðin að felast? S.l. miðvikudag birtist hér i dálkunum bréf frá Unni Kristjánsdóttur þar sem hún greindi frá viðskiptum sínum við húsgagnaverzlunina Bláskóga hér í borg, en þar hafði hún fest kaup á sófaborði með marmaraplötu. Hafði borðið brotnað er Unnur færði það til á gólfinu hjá sér og var þar með ónýtt. Hafði henni ekki tekizt að fá verzlunareigand- ann til að bæta sér tjónið. Eigandi Bláskóga var spurður álits á kvörtuninni og sagði hann, að verzlunin hefði verið reiðubú- in til að veita Unni aðstoð við að lagfæra borðið, en hún hefði ekki tekið því boði. Sama dag og bréfið ásamt um- sögn verzlunarstjórans birtist hafði Unnur samband við Velvak- anda, og sagðist telja rétt að fram kæmi i hverju tilboð verzlunar- innar um aðstoð við viðgerðina á borðinu hefði verið fólgið. Unnur sagði: „Verzlunareigandinn sagði, að fengi ég mann til að gera við lappirnar á borðinu, gæti hann bent mér á mann, sem e.t.v. væri fáanlegur til að líma borðplötuna saman, en væri það ekki hægt, þá skyldi verzlunin panta nýja plötu fyrir mig og gæti ég fengið hana á heildsöluverði. Sem sagt, — verzlunin átti ekki að bera eina krónu af þessu rúm- lega þrjátíu þúsund króna tjóni, sem ég hafði orðið fyrir þarna, heldur ætlaði fyrirtækið aðeins að sleppa smásöluálagningunni á hina nýju borðplötu.“ 82 bátar á rækjuveiðum frá Vestfjörðum SAMKVÆMT yfirliti skrifstofu Fiskifélags Islands á tsafirði hef- ur rækjuveiði f Vestfirðingaf jðrð- ungi gengið vel f haust og er heildaraflinn orðinn álíka mikilf og á sama tfma í fyrra, en þess ber þö að gæta, að bátarnir eru nú nokkru fleiri. 1 nóvember s.l. stunduðu 82 bát- ar rækjuveiðar frá Vestfjörðum, og varð heildaraflinn 840 lestir. Er heildaraflinn á vertíðinni þá orðinn 1.746 lestir, en var á sama tima í fyrra 1.813 lestir, en þá stunduðu 72 bátar veiðar. Frá Bíldudal voru gerðir út 14 bátar og var afli þeirra I nóvem- ber 68 lestir, en í fyrra var aflinn hjá 11 bátum 91 lest. Aflahæsti báturinn er Svanur með 7,7 lestir. Frá verstöðvum við Isafjarðar- djúp reru 55 bátar og fengu alls 474 lestir, en í fyrra var aflinn hjá 49 bátum 433 lestir. Aflahæsti báturinn er Gullfaxi með 16,3 lestir og Sigurður Þorkelsson með sama aflamagn. Frá Hólmavík og Drangsnesi reru 13 bátar og fengu 298 lestir. Aflahæsti bátur- inn er Snarfari með 26,1 lest. LESIÐ eru oxul|iun|a. DflCLECfl LJOS & ORKA OPIÐ TIL 6 L I T A Ð A R P E R U R J 0 L A S E R r l u R I PÓSTKRÖFU LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJOS & ORKA Siióurlan(lsbrautl2 sími S4488

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.