Morgunblaðið - 31.12.1974, Page 3

Morgunblaðið - 31.12.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974 3 Þjóðhátíðarnefnd 1974: IIM Að leiðarlokum.. BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi frá Þjóðhátióarnefnd 1974: Þjóöhátíðarnefnd 1974 vill við lok þjóðhátíðarárs gera nokkra grein fyrir störfum nefndarinnar og hinna Ijölmörgu aðila um allt land, sem lögðust á eitt að gera árið 1974 að eftirminnilegu ári i hugum þeirra kynslóða, sem nú byggja landið, ellefu hundruð árum eftir að það var fyrst numið samkvæmt skráðum heimildum. Ellefu alda afmælisins var fyrst minnst i ræðum forseta Islands, dr. Kristjáns Eldjárns, og Ölafs Jóhannessonar, forsætisráðherra, sem fluttar voru i útvarp og sjón- varp og birtar i blöðum við ára- mótin 1973/74, en fyrstu hátiða- höldin fóru fram á Melavellinum í Reykjavík á þrettándanum, en þar efndi þjóðhátíðarnefnd Reykjavikur til álfadans og brennu og flugeldasýningar i fallegu vetrarveðri, og var aðsókn mikil. Erfiðlega horfði um undirbún- ing, þegar jarðeldar komu upp i Heimaey síðast i janúar 1973 og var um tímæá ýmsum að skilja að ekki mundi ára til hátiðahalds. En allt fór þetta á betri veg. Vest- mannaeyingar og þjóðin öll sýndi mikla þrautseigju í þessum erfið- leikum, og var það Vestmannaey- ingum síst að skapi að leggja niður hátiðahöld í einhverjum mæli á meðan stætt væri, enda fór svo að undirbúningi var haldið áfram. Munaði þar mest um óhvikula forustu Ölafs Jóhannes- sonar, forsætisráðherra, sem lét aldrei neinn bilbug á sér finna hvað undirbúning hátiðahalds snerti. Vann hann þar í anda fyrr- verandi forsætisráðherra, þeirra dr. Bjarna Benediktssortar og Jó- hanns Hafstein, sem höfðu áður haft forystu um undirbúning há- tíðahaldsins samkvæmt viljayfir- lýsingum Alþingis allt frá því að Þjóðhátíðarnefnd var kjörin á Al- þingi árið 1966. Undirbúningur nefndarinnar miðaðist einkum að þrennu. I fyrsta lagi að standa á útgáfum og sýnishornum, i öðru lagi að undir- búa landnámshátíð á Þingvöllum og í þriðja lagi að aðstoða við undirbúning hátiða um allt land. Fyrstu hátiðarnar voru haldnar 17. júni i sumar á einum átta stöðum, auk þess sem fólk hélt upp á þennan afmælisdag lýð- veldisins að venju. Alls urðu land- námshátíðar tuttugu og fimm, en efnt var til þeirra siðustu í Vest- mannaeyjum viku ai ágúst, og var ekki á þeirri hátið að sjá, að þar hefði fólk orðið að flýja byggðina. Fyrir utan landnámshátíðir má telja til meiriháttar atburðar, að hringvegurinn um landið var opn- aður 14. júlí. Þá var efnt til mann- fagnaðar við Skeiðarárbrú. Annar og ekki minni atburður, hvað varðar sambúð lands og þjóðar, var samþykkt Alþingis á Lögbergi um stórfellda landgræðslu og gróðurverndaráætlun. Eitt af þeim málum, sem Þjóð- hátíðarnefnd 1974 ákvað að hrinda i framkvæmd samkvæmt samþykktum Alþingis, var bygg- ing sögualdarbæjar. Sá bær er nú i byggingu að Skeljastöðum i Þjórsárdal, og hafa Arnessýsla og stofnanir forustu um það verk, en sérstök fjárveiting til byggingar bæjarins var samþykkt af Al- þingi. Reist var að sumrinu fyrir atbeina nefndarinnar steinsúla á Ingólfshöfða til minningar um landtöku Ingólfs Arnarsonar. Auk þess má nefna, að á þessu ári hefur á Alþingi verði samþykkt þingsályktunartillaga um bygg- ingu sjóminjasafns í Hafnarfirði. Fyrir liggur að reisa þjóðarbók- hlöðu hið allra fyrsta. Af helstu útgáfum á árinu má nefna upphaf útgáfu Sögu Is- lands, útgáfu Stofnunar Arna Magnússonar á öllum handritum Landnámabókar í einu veglegu bindi og endurútgáfu Þjóðlaga- safns séra Bjarna Þorsteinssonar. Auk þess voru haldnar þrjár stórar sýningar í Reykjavík, auk ýmissa sýninga úti á landi. Fyrsta sýningin ver „Islensk myndlist í ellefu hundruð á“ að Kjarvals- stöðum. Hún var haldin á vegum Listahátíðar með stuðningi Þjóð- hátiðarnefndar 1974 og sóttu hana um 25 þús. manns. Þann 19. júli var opnuð Þróunarsýning at- vinnuveganna i Iþróttahöllinni. Sýningin stóð i mánuð os sóttu hana um 40 þúsund manns. I haust var svo opnuð sögusýningin „Island — Islendingar" — að Kjarvalsstöðum. Hana sóttu um 25 þús. manns, en skólafólki var boðið sérstaklega á þá sýningu. Þá má og nefna, að leikhús borgarinnar sýndu leikrit um mitt sumar og var góð aðsókn að þeim, en til tíðinda taidist, að leikritið Jón Arason eftir Matt- hias Jochumsson, var flutt á land- námshátiðinni að Hólum hinn 23. júli i sumar. Þjóðhátiðarnefnd 1974 vill að leiðarlokum þakka öllum þeim fjölmörgu, sem með starfi sinu, áhuga og framkomu sinni á há- tíðarstundu lögðu sitt af mörkum til að árið yrði eftirminnilegt. Ekkert nema sameiginlegt átak allrar þjóðarinnar dugði til að gera afmælið verðugt þeirrar ris- miklu minningar, sem íslend- ingar varðveita um lif þjóðarinn- ar í ellefu aldir. AÐ VENJU munu allmargar brennur loga út gamla árið og heilsa hinu nýja. Brennurnar nú eru þó talsvert færri en þær voru í fyrra, en þá hafði daginn fyrir gamlársdag verið sótt um leyfi fyrir 21 brennu en nú aðeins 14. Borgarbrennan við Kringlumýrarbraut verður mesta brennan og verður kveikt í henni klukkan 21,45 á gamlárskvöld. Ennfremur verður kveikt í brennu við fþróttavöllinn vestan Austurbergs í Breiðholti á sama tíma. Hér fer á eftir listi yfir þær brennur, sem tilkynntar höfðu verið lögreglunni um miðjan dag í gær. Verið getur að tilkynningar um fleiri brennur hafi borizt eftir það, en þær eru ekki með í þessari uppíalningu. 1. Borgarbrenna við Kringlu- mýrarbraut 2. Sörlaskjól við hús nr. 1. 3. Móts við Hvassaleiti 101 4. Við EUiðavog og Skeiðar- vog. 5. Við fþróttasvæði í Hraunbæ 6. Móts við Háaleitisbraut 111. 7. Við Bólstaðarhlíð, sunnan Kennaraskólans 8. Við Holtaveg og Kleppsveg 9. Móts við húsið nr. 44, Sörla- skjóli 10. I Fossvogi móts við Bjarma- land 14 11. A íþróttavelli vestan Austurbergs 12. Vestan Réttarbakka, norð- an Breiðholtsbrautar 13. Vestan Stekkjabakka. norð- an B.P. bensinstöðvar 14. Við Ægissfðu móts við hús nr. 56.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.