Morgunblaðið - 31.12.1974, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1974
21
Longl Morö á kvenréttindaráöstefnu 3Fdðtty
5
frá Jordmokk, en nú verður hún
allt I einu annars hugar og missir
þráðinn. Maður gæti haldið að
stelpukindin væri dóttir hennar,
hún lætur sér svo umhugað um
hana og snýst i kringum hana
hverja stund. Og auðvitað kom Ia
Axelson sérstaklega ruddalega
fram í lestinni en ég verð nú að
segja það, svona með sjálfri mér,
að Betti átti skilið það sem hún
fékk! En þetta var kannski ekki
mjög heppileg eða jákvæð byrjun
á ráðstefnunni.
í hinum enda garðsins hefur Ia
Axelson einmitt verið að segja
tveimur konum frá atburðinum í
lestinni og hún sýnir ótvirætt
hæfileika sína sem blaðamaður í
frásögn sinni. Hlustendur hennar
tveir eru líka mjög áhugasamir.
Annar er fræg óperusöngkona og
Camilla Martin er sannarlega
glæsileg ásýndum. Hún hefur í
tilefni dagsins greitt hárið frjáls-
lega og er klædd aðskornum hvit-
um léreftskjól, og hún er hlý og
elskuleg i fasi og augun skipta
litum, þegar hún segir frá þessum
óvænta atburði í lestinni, hún
hefur ýmist horft á hana með
votti af ánægju og þórðargleði og
stundum eins og hálf gerðum ugg.
Ia sneri sér þó ekki til hennar,
heldur sessunauts hennar þegar
hún segir:
— Ég fullvissa ykkur um, að ég
hafði sekúndubroti áður ekki
minnsta hugboð um að ég myndi
lyfta hendinni og slá hana. Ég er
greinilega ekki almennileg. Ég
hef sennilega fengið högg á
höfuðið i bernsku eða ég hef rugl-
ast á því að skrifa alltof margar
greinar um velferðarþjóðfélagið.
Ég ætti kannski að tilkynna for-
föll og fara til Mallorca... og taka
ekki þátt í ráðstefnu um stöðu
konunnar...
Hún er föl og æstari en hún vill
viðurkenna með sjálfri sér. Ase
Stenius sér það strax — með
þjálfaðri eðlisávísan læknisins,
en hún brosir hlýlega til Iu og
segir:
— Já, þú ættir að taka þér veik-
indafri, en ekki vegna þess þú
hafir rekið hinni heittelskuðu
Betti einn utan undir. Ég er
hrædd um að fleiri klæi í fing-
jurna að fara að dæmi þínu.
— En, spyr Camilla, sem nýlega
er gengin i klúbbinn. — Hvers
vegna hafið þið kosið stúlkuna í
klúbbinn, fyrst engin ykkar getur
þolað hana?
Það er ósköp sjálfsagt að vera
eðlilgur og blátt áfram þegar Ase
Stenius er nærstödd. Hún hefur
glaðleg blá augu og mjúkt hár,
hún er hress í bragði, orðhvöt og
þó mjög kvenleg. Hvorki eigin-
maður, fjögur börn né umfangs-
mikil störf hafa sett mörk sín á
hana og þrótti hennar virðast eng-
in takmörk sett og sennilega er
hún sú eina af viðstöddum sóma-
konum, sem sjálf hefur saumað
fötin sem hún gengur I.
— Ja, segir hún með semingi.
— Það er vissulega spurning sem
á fullan rétt á sér. Og það versta
er, að ég hef átt hlut að þvi að hún
var kosin. Okkur vantaði fulltrúa
leirkerasmiða og Katarina var svo
áf jáð í að við tækjum hana í...
— Katarina, tautar Ia gremju-
lega — hún er með Betti Borg á
heilanum.
— Er hún góður leirkerasmið-
ur?
Ase Stenius svarar hreinskilnis-
lega:
— Ég hef ekki hundsvit á slíku.
En maðurinn minn er kennari í
Listaskólanum og hann álitur að
hún hafi ósvikna hæfileika. Og
reyndar bætir hún rólega við —
getum við ekki komið í veg fyrir
að einhver gangi f klúbbinn, af
þeirri ástæðu einni að okkur fell-
ur ekki við hana persónulega. Þá
væru víst ekki margar í klúbbn-
um.
En sem hún virðist í þann veg-
inn að útlisa þetta nánar kemur
ljóshærð kona fram á þrepin —
bláklædd kona sem brosið dauf-
lega, en það er engu líkara en
brosið nái ekki til augnanna.
Koma hennar virðist vekja mikla
hrifningu. — Þarna er Eva Gun
Nyren! Hún er alveg eins og þeg-
ar maður sér hana í sjónvarpi...
en mikið er hún mjó... og hún er
svo ungleg.
Louise Fagerman sem hefur
verið hálf ráðleysisleg og hjálpar-
vana, hrópar upp yfir sig af fögn-
uði.
— Eva Gun! Loksins! Ef þú bara
vissir hvað við höfum beðið
spenntar eftir þér!
En Ruth Zettergren hristir höf-
uðið og Ia Axelson andvarpar
þunglega. Ase Stenius hristir
hvorki höfuðið né stynur, enda
væri það ekki i samræmi við eðli
hennar og framkomu að öðru
leyti.
— Já, segir hún hreinskilnis-
lega. — Betti Borg er subba í
óeiginlegri og eiginlegri
merkingu, en þó er hún sönn í
sínum subbuskap. Aftur á móti
dytti mér aldrei í hug að treysta
Evu Gun. Hún er margföld í roð-
inu og maður veit aldrei hvar
maður hefur hana... hún er
valdasjúk og hættuleg.
Læknirinn lýkur úr bollanum
og segir hljómlausri röddu. —
Komið nú kæru vinir, þar er
bezt að við förum og heilsum
henni með virðingu, annars móðg-
ast hún.
Camilla kiprar sig eilitið i herð-
unum og finnur fara um sig
kuldahroll i sólinni. Hún veltir á
ný fyrir sér, hvernig henni datt I
hug á sinum tíma að samþykkja
að sitja þessa ráðstefnu.
Hún fer á mis við að vera
samvistum við Christer í tvo daga
— og hvað fær hún i staðinn?
Tvo leiðinlega daga með
fimmtiu konum, sem allar virðast
tortryggja hver aðra.
Tvo leiðinlega daga, þar sem
ekkert gerist.
Umræður, Fyrirlestrar og fyrir-
spurnir um kvenréttindi. Og
annað kvöld á hún að troða hér
upp og syngja fyrir þær. Og svo
allar máltfðirnar. Endalaust og
botnlaust kjaftæði um ekki neitt.
Ekkert annað.
Ekkert spennandi eða merki-
legt.
Og þó veit hún að það er einmitt
það sem hún vill. Hún vill ekki að
neitt gerist.
Morgunn
A laugardagsmorguninn eru
allir ráðstefnufulltrúar komnir til
leiks. Með næturlestum hafa
nokkrir komið, aðrir með einka-
bifreiðum eða áætlunarbílum.
Allt eru þetta glaðlegar aðsóps-
miklar konur og sú spenna, sem
VELVAKANDI
Velvakandi svarar ! síma 10-100
kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Dómsmál rædd
í Kastljósi
Eiríkur Jónsson skrifar:
„Eftir að hafa hlustað á þátt er
Vilmundur Gylfason annaðist i
sjónvarpinu 20. des. sl„ get ég
ekki lengur orða bundizt.
Hann kallaði fyrir Jón Thors og
Baldur Möller til þess að ræða
dómsmál. Baldur sagði, að hann
vildi ræða dómsmál yfirleitt, en
Vilmundur leyfði ekkert slíkt,
hann vildi aðeins tala um einn
mann og lét að því liggja að „kalla
Baldur fyrir í þriðja sinn“ út af
þessu máli. Baldur gerði sem eðli-
legt var athugasemd við þetta
orðalag. Eins og fréttamaður geti
kallað opinbera embættismenn
fyrir og skipað þeim að ræða að-
eins um einn mann og eitt mál
þegar fjöldi manna biður eftir
dómi án þess að hafa tekið út sína
fyrri dóma, eins og Jón Thors
benti réttilega á!
Það sem fólk furðaði sig mest á
þetta föstudagskvöld, var hvernig
fréttamaðurinn talaði um þetta
mál. Hann lét að þvi liggja að
þessi umræddi maður væri flækt-
ur i „tollsvikamálið" af því að
fyrirtæki hans hefur skipt við
heildsala sem er bendlaður við
þetta mál. E.t.v. hefur Vilmundur '
sjálfur keypt fatnað sem þessi
umræddi heildsali hefur flutt inn
og er þar af leiðandi eftir sinni
eigin röksemdafærslu „flæktur i
málið“.
0 Er allt satt
og rétt, sem
stendur á prenti?
Síðar spyr hann embættismenn-
ina: „lesið þið ekki blöðin, hafið
þið ekki séð „Vísi“ i dag“. Er
þroski mannsins ekki meiri en
svo, að hann ætlast til, að menn
séu dæmdir eftir því hvað ein-
hver blaðamaður skrifar í blaðið
sitt. Hann er greinilega ekki i
réttu þjóðfélagskerfi eða uppi á
réttum tíma. Þetta var hægt i
Rússlandi á dögum Stalins. Blöðin
fengu upplýsingar um hvað átti
að skrifa um þá menn sem Stalin
vildi gera að sakborningum, siðan
voru sakborningum sýnd blöðin
ef þeir þrjóskuðust við að „játa“:
„þarna sérðu í Prödvu góurinn,
þú ert þjófur, svikari og hættu-
legur þjóðfélaginu". Þetta hélt
maður að væri ekki hægt hér
heima.
Fyrir nokkru kom það í ljós
eftir ýtarlega rannsókn hjá opin-
beru fyrirtæki hér á landi, að
yfirvinna yfirmanna var óeðlilega
mikil, svo að það myndi ekki vera
í mannlegu valdi að framkvæma
hana, enda vissu allir hlutaðeig-
endur að hún var ekki til nema á
pappirum. Það er hægt að stela á
margvíslegan hátt, aldrei hefur
Vilmundur ýjað að þvi að láta
dæma þá menn sem þarna er um
að ræða aldrei minnzt á spillingu í
sambandi við þessa menn, en það
er einn maður sem hann vill koma
I fangelsi, hvað sem það kostar.
(„Auk þess legg ég til að
Karthagó verði lögð í rúst“). Fyrr
ætlar hann ekki að hætta að
„kalla menn fyrir“.
Það virðist svo sem Vilmundur
sé haldinn, svo ég gripi nú til
útlends orðs, (en Vilmundur
slettir titt útlendum orðum i sjón-
varpsþáttum sínum) „mega-
lomania“ þ.e. þegar fólk ýkir sín
eigin áhrif og völd. Hann notar
sér fréttamannsaðstöðu sina til
þess að hamast gegn einum manni
og fjölskyldu hans eins og
„maldetti banditti", og furðar
fólk sig mest á því að hið hlut-
lausa sjónvarp skuli gefa frétta-
manni svo frjálsar hendur til þess
að níða niður og svívirða einn
mann þó hann hafi e.t.v. gerst
brotlegur við lög.
Eirfkur Jónsson.“
Við spurðum Vilmund Gylfason
álits hans á þessum reiðilestri, en
hann sagðist ekki sjá ástæðu til að
fara að fetta fingur út í það, sem
fram kemur í bréfinu.
Hins vegar verðum við að lýsa
aðdáun okkar á því hvað bréfrit-
arinn er kjarnyrtur og kann vel
að gefa hlutunum nöfn, — þetta
er bara eins og í bókinni góðu um
Guðföðurinn og Mafíuna.
% Áramót
Það hefur vist ekki farið fram
hjá neinum, að þetta Herrans ár
er nú á enda, og svo sannarlega
hefur það verið viðburðarikt bæði
hér í návíginu og á fjarlægum
slóðum.
Á árinu hefur náttúru- og
veðurfar verið frábærlega hag-
stætt i aðra röndina, en í hina
hefur ekki verið á landsmönnum
tekið með neinum vettlingatök-
um. En þannig skiptast á skin og
skuggar þannig hefur það alltaf
verið og þannig verður það alltaf.
Þrátt fyrir þetta er það sem
betur fer i mannlegu eðli að
vonast alltaf eftir hinu bezta og
vita að allt hefur sinn endi, bæði
gott og illt.
Við þessi áramót sem önnur
verða fyrirætlanir og góður ásetn-
ingur vist á svipaðan veg og á
öðrum slikum tímamótum. Sumir
hætta að reykja um hver einustu
áramót, nákvæmlega eins og sum-
ir byrja í megrun á hverjum
mánudegi. Á sama hátt ákveða
líklega margir að vera viðmóts-
þýðir og geðgóðir á nýja árinu og
halda sér svo á mottunni í viku.
Þá sækir í sama farið, og þannig
gengur allt i hring.
En er á meðan er.
Velvakandi óskar öllum lesend-
um sínum farsældar á komandi
ári, og þakkar samskipti á því
gamla.
gGSP SlGeA V/öGA £ iiLVimi
Oá Á V£S50 ÁW VÍWÓOVÍ W YIB^ÍU
\<AO?HÁ\<KUN\WA ‘bSN W VlÖVOM
WOKKoKWf\M/l £KK\
WÓ VI(JW/)K09
nóbEW VIÆKKON
Á SWMVBWI LV5/K
Wí'NOKKbRNI/as\WN
f\VLÍ\Tf Á%„QómAm
on6o£ vmmm
KOYl^oT llL ÚÁLmA
n]r ' 1 Framhald
---- ÖKdK afbls.20
(Nú kemur veikleikinn á
svörtu reitunum hjá svörtum
glöggt í Ijós, svartur er
varnarlaus).
20. — b5, 21. Df6+ —
Kg8, 22. Hd6 — Re7, 23.,
Hed1 — Hf8, 24. Dd4 —
Hc7, 25. Rf6+ — Kh8,
26. Hd8 — Dxc3, 27.
Hxf8+ — Kg7, 28. Rh5 +
og svartur gafst upp.
Vísindasjóður
fær hús að gjöf
Hjónin Elfn Pálsdóttir og Egill
Hallgrfmsson, fyrrv. kennari, Báru-
götu 3 f Reykjavfk, afhentu stjórn
VfsindasjóSs hinn 30. desember
1974 gjafabréf fyrir húseigninni
Bárugötu 3, Reykjavfk, ásamt
eignarlóS og nokkrum húsbúnaði, en
eignin verSur afhent eftir lát þeirra
MarkmiSiS meS gjöfinni er aS
VfsindasjóSur bjóSi erlendum eSa
innlendum vfsindamanni aS dveljast
f fbúS f húsinu um lengri eSa
skemmri tfma, en aS öSru leyti verSi
húsiS nýtt f þágu VísindasjóSs og
sjóSnum og starfsemi hans verSi þar
meS búin starfsaSstaSa.
Egill Hallgrímsson var mikill
áhugamaSur um stofnun vfsinda-
sjóSs hér á landi á sfnum tfma.
Kvaddi hann nokkra vfsindamenn til
fundar hinn 15. aprfl 1955 til um-
ræSna um þaS mál, og meS þvf
komst mál þetta á nýjan rekspöl, var
frumkvæði Egils og áhugi mjög
mikilvægur fyrir framgang málsins,
en stofnun Vísindasjóðs var ráðin
með lögum frá 1957. Egill
Hallgrfmsson hefir ætfð látiS sér
annt um gengi sjóSsins og sýnt mik-
inn skilning á gildi vfsindastarfsemi
fyrir fslenzka þjóS.
Þessi stórgjöf hjónanna Elínar
Pálsdóttur og Egils Hallgrfmssonar
er mjög mikilvæg fyrir VfsindasjóS
og gerir honum m.a. kleift að leggja
út á nýjar brautir I starfsemi sinni
auk þess sem sjóSnum verður búin
starfsaðstaða, sem við hæfi er. Þessi
stórmerka gjöf lýsir frábærum skiln-
ingi á gildi Vísindasjóðs, og á því að
bæta aðstöðu gistikennara og
annarra gistirannsóknarmanna til
starfa hór á landi. Metur stjórn Vfs-
indasjóðs mjög mikils þessa höfðing-
legu gjöf og flytur gefendum alúðar-
þakkir fyrir hana.
(Fréttatilkynning frá stjórn Vís-
indasjóðs).
(vandervell)
^•^Vélalegurm
BENSÍNVÉLAR
Austin
Bedford
Vauxhall
Volvo
Volga
Moskvitch
Ford Cortina
Ford Zephyr
Ford Transit
Ford Taunus 12M, 1 7M,
20M
Renault, flestar gerðir.
Rover
Singer
Hilman
Simca
Skoda, flestar gerðir.
Willys
Dodge
Chevrolet
DIESELVÉLAR
Austin Gipsy
Bedford 4—6 cyl.
Leyland 400, 500, 680.
Land Rover
Volvo
Perkins 3, 4, 6 cyl.
Trader4, 6 cyl.
Ford D, 800 K. 300
Benz, flestar gerðir
Scania Vabis
Þ. Jónsson & Co.
Skeifan 17.
Simi 84515 — 16.