Morgunblaðið - 15.02.1975, Page 3

Morgunblaðið - 15.02.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975 3 Útflutningur iðnað- arvara dróst saman — jókst á ullarbandi og fiskilínum HEILDARÚTFLUTNINGUR idn- aðarvara árið 1974 nam 7.023.3 millj. kr. á móti 6.062.1 millj. kr. árið á undan. Þetta kemur f ljós í nýútkominni skýrslu Útflutnings- miðstöðvar iðnaðarins. Segir þar að af heildarútflutningi lands- manna nemi iðnaðarvöruútflutn- Júní og Hrönn á veiðar eftir tveggja mánaða stopp SKUTTOGARARNIR Júni og Hrönn munu halda til veiða eftir helgina, en togararnir, sem byggðir eru á Spáni og í Póllandi, hafa legið i höfn vegna bilana siðan í desemberbyrjun. Guðmundur Ingvarsson, skrif- stofustjóri hjá Bæjarútgerð Hafn- arfjarðar, sagði þegar við rædd- um við hann, að það segði sig sjálft að B.U.H. hefði tapað stórfé vegna þessara bilana, bæði vegna kostnaðar og veiðitaps. Það er að- alvél Júni, sem var biluð. Jón Ingvarsson hjá ísbirninum sagði að Hrönn hefði legið við bryggju síðan í desember, en þá bilaði aðalvinda skipsins. Nú hef- ur verið skipt um öxla i henni og gera menn sér vonir um að vind- an sé nú komin i fullkomið lag. ingurinn þetta árið 21% en hafi verið 25% 1973. Stærstu útflutningsflokkarnir eru: Al og álmelmi 4.788.5 millj. kr., vörur úr ull 769.1 millj. kr., niðursoðnar og niðurlagðar sjávarafurðir 491.2 millj. kr., loð- sútað skinn og vörur úr þeim 439.9 millj. kr. og kísilgúr fyrir 329.3 millj. kr. Af öðrum vöruflokkum má nefna að málning og lökk voru flutt út fyrir 75.8 millj. kr., fiski- línur og kaðlar fyrir 59.7 millj. kf. og pappaöskjur fyrir 36.8 millj. kr. í skýrslunni segir að ef ullar- vöruflokkurinn sé athugaður komi í ljós, að stærstu viðskipta- löndin séu: Sovétríkin með 308.7 millj. kr., Danmörk með 161.2 millj. kr. og Bandaríkin með 101.5 millj. kr. Þá segir að útflutningur á ullarlopa og bandi hafi aukist mikið á árinu eða úr 100 millj. kr. árið 1973 i 237 millj. kr. 1974. Er hér um 136% aukningu að ræða reiknað í ísl. krónum. Magnið hefur aukist á sama tíma um 53%. Þá hefur útflutningur á köðlum og fiskilínum aukist mjög mikið sl. ár og í fyrra voru flutt út 166 tonn fyrir 59.7 millj. kr., en árið 1973 nam þessi útflutningur 41.5 tonnum og 8.9 millj. kr. Af þessum 166 tonnum fóru 107 til Færeyja, 45 tonn til Danmerkur og 9 tonn til Noregs. Þess skal getið að hér er nær eingöngu um að ræða framleiðsluvörur Hamp- iðjunnar h.f. Stal ávísanaheft- inu frá þjófnum FYRIR nokkru var brotist inn í Isafoldarprentsmiðju og þaðan stolið tékkhefti frá starfsmanni prentsmiðjunnar. Daginn eftir var maður nokkur gripinn í Verzlunarbankanum þar sem hann var að reyna að selja falsaða ávísun úr þessu hefti að upphæð 70 þúsund krónur. Ekið á bíl FÖSTUDAGINN 14. þessa mánað- ar, um eða fyrir hádegi, var ekið utan í kyrrstæðan og mannlausan bil, bláan Fiat 132, á bifreíðastæði Framkvæmdastofnunar rikisins við Rauðarárstíg 31. Skemmdir eru á vinstri hliðarhurð. Það eru vinsamleg tilmæli að viðkomandi ökumaður gefi sig fram við rannsóknarlögregluna svo og vitni ef einhver eru. Þegar farið var að yfirheyra manninn kom í ljós, að hann hafði ekki á samvizkunni innbrotið i prentsmiðjuna, heldur hafði hann stolið heftinu frá þjófnum þegar þeir voru saman að skemmta sér á Hótel Esju nóttina áður. Vissi hann ekki betur en sá hefði feng- ið heftið á heiðarlegan hátt. Fékk hann vin sinn til að falsa 10 ávísanir, en aðeins örfáar þeirra komust i umferð. Þegar maðurinn var handsamaður hafði hann fyrst þá sögu að segja, að hann hefði selt þeim sem hann stal heftinu frá hross á 70 þúsund krónur og hefði fengið greitt í ávisun, en lögreglan var fljót að komast að hinu sanna. Þessi saga ætti að minna fólk á það enn einu sinni að fara varlega með ávísanahefti sín, þvi þjófnað- ir á ávísanaheftum og misnotkun þeirra færist sífellt i vöxt. Sjjning í Norrœna húsinu: Ein myndanna á sýningunni I Norræna húsinu, — Eimskipafélags- húsið, horft f átt til Dómkirkjunnar. Myndin er máluð á árunum 1936—37. Myndir og sniíðisgripii’ Baldvins Björnssonar 1 dag verður opnuð í kjallara Norræna hússins sýning á mál- verkum og smíðisgripum Baldvins heitins Björnssonar gullsmiðs, sem látinn er fyrir þrjátíu árum. Baldvin Björnsson fæddist i Reykjavík árið 1879. Hann nam gullsmíði af föður sínum, Birni Árnasyni, en hélt til framhalds- náms i iðn sinni til Kaup- mannahafnar árið 1898. Þar var hann í sex ár og var þá í nánu vinfengi við íslenzka listamenn, sem þar dvöldust um leið, eink- um þá Ásgrim Jónsson og Einar Jónsson. Baldvin-bjó í Berlín á árunum 1902—1915, starfaði þar að gullsmiði. 1 Þýzkalandi kvæntist Baldvin Björnsson konu sinni, Clöru f. Bremme frá Leipzig. Arið 1915 fluttist Baldvin til íslands með fjölskyldu sina og tók þá að starfa aftur við gull- smíðar með föður sínum og bróður. Þeir feðgar höfðu á sinum tíma allmarga lærlinga. Sumir starfa enn að gullsmíði, meðal annarra þeir Leifur Kaldal og Kjartan Ásmundsson. Baldvin var búsettur í Vest- mannaeyjum á árunum 1923—1935 og málaði mikið á þeim tima. Hann hafði fengizt allmikið við málverk áður, en elzta mynd hans er frá árinu 1902 og er hún máluð í Þýzka- landi. Baldvin fór í ferðalög hér innanlands og málaði þá úti, en flestar mynda hans eru málað- ar innanhúss eftir minnis- teikningum. Það eru vinir og ættingjar Baldvins Björnssonar, sem standa að sýningunni. Sýningarnefnd skipa þeir Ösk- ar Gíslason, Leifur Kaldal, Kjartan Ásmundsson, Jó- hannes Jóhannesson og Karl Kvaran, en auk þeirra hafa syn- ir Baldvins, Björn Th., Haukur og Harald, tekið þátt í undir- búningi sýningarinnar. Tengdadóttir Baldvins, Fjóla Þorsteinsdóttir frá Laufási, hefur látið sér annt um að skrá verk hans og haida saman öðr- um gögnum um hann. Á sýningunni eru 73 myndir og 50 skartgripir. Sýningin er opin daglega og stendur hún til 23. febrúar. Gengisbreytingin: Hjartabíllinn hækk- aði um 1,3 milljónir HJARTABlLL Norðlendinga hækkaði heldur betur f verði við nýjustu gengisfellinguna, úr 4 milljónum í 5,3 eða um 1,3 milljónir. Verður nú að gera nýtt átak f söfnunarmálunum, en búið var að safna alveg upp f gamla verðið og 50 þúsundum betur. Sambandið hefur fram- leiðslu tilbúinna rétta — sérstaklega œtlaðir mötuneytum KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ Sam- bandsins á Kirkjusandi mun f byrjun maf mánaðar n.k. hefja framleiðslu á tilbúnum réttum. Byrjunarframleiðslan mun uppfylla þarfir hinna ýmsu mötuneyta á vegum samvinnu- fyrirtækja'í Reykjavík, en sfð- ar mun framleiðsla hefjast f stórum stíl og þá verða fram- leiddir mörg þúsund réttir á dag. Ef vel tekst til geta fyrir- tæki komið sér upp mötuneyti án mikils tilkostnaðar, þvf það eina sem þarf er Iftill ofn til að hita upp matinn. — Það var ákveðið að fara út í þessa framleiðslu, þar sem vit- að er að bæði er þörf fyrir svona þjónustu og eins markað- ur, sagði Jóhann B. Steinsson, deildarstjóri Kjötiðnaðarstöðv- arinnar, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Undanfarið hafa verið keypt tæki og pláss það sem þessi deild fær skipulögð. I fyrstu verður stefnt að því að framleiða 14 mismunandi rétti, sem þýðir matseðill í tvær vik- ur. Síðar er svo áformað að vera með 21 rétt á boðstólum. Hann sagði, að maturinn yrði eldaður í nýlega endurbættum húsakynnum í kjallara kjötiðn- aðarstöðvarinnar, síðan pakk- aður i sérstakar umbúðir, kæld- ur og frystur. I byrjun er ein- göngu gert ráð fyrir, að réttun- um verði pakkað i stórar pakkn- ingar, með 8—10 skömmtum í hverri. Er þá gert ráð fyrir, að pakkningarnar verði hitaðar í sérstökum ofnum í mötuneyt- unum og matnum siðan deilt á diska. Einnig er áætlað að framleiða ýmsa rétti, sem fryst- ir verða i eins manns skömmt- um, bæði með sölu til smærri greiðasölustaða og til verzlana í huga. I nýútkomnum Sambands- fréttum segir, að byrjunarfram- leiðslan eigi að uppfylla þarfir hinna ýmsu mötuneyta á veg- um samvinnufyrirtækja í Reykjavík, m.a. í Sambandshús- inu, á Kirkjusandi, i Samvinnu- bankanum, hjá Teiknistofu sambandsins á Höfðabakka og fleiri stöðum. Arni Gunnarsson formaður söfnunarnefndar Blaðamanna- félags íslands, sem gengizt hefur fyrir söfnun til kaupa á hjartabil- um fyrir Sunnlendinga og Norð- lendinga, tjáði Mbl. i gær að hjartabill Norðlendinga væri brátt tilbúinn til afhendingar en undanfarið hefur verið unnið að frágangi hans úti i Noregi. Bjóst Árni við þvi, að bíllinn kæmi hingað til lands um miðjan næsta mánuð. Sem fyrr segir hafa safnazt alls 4.050,000 krónur, þar af 3,2 milljónir á Norðurlandi, 600 þúsund hafa ættingjar Snorra Sigfússonar fyrrum námsstjóra gefið og 200 þúsund krónur hafa borizt til Rauða kross íslands í Reykjavik. I verði bílsins, 5,3 milljónum, eru innifalin vönduð hjartatæki sem ekki þykir nauð- syn að hafa fyrst um sinn. Tækin kosta 600 þúsund krónur, svo ekki vantar þvi nema tæpar 700 þúsund krónur til að geta leyst bilinn út og greitt hann. Að sögn Árna var reynt að fá gjaldeyris- yfirfærslur vegna bilsins áður en gengið hækkaði, en það fékkst ekki fram. Slökkviliðið á Akureyri mun hafa umsjón með bílnum og starfsmenn liðsins aka honum. Er ráðgert að slökkviliðsmenn frá Akureyri fari til Reykjavíkur og læri meðferð bílsins hjá starfs- bræðrum sinum i Reykjavík. 14.400 lestir af loðnu til Eskifjarðar Togararnir fá góðan og fallegan þorsk Eskifirði 14. febr. í DAG er búið að landa á Eski- firði samtals 14.400 lestum af loðnu frá þvi i vertíðarbyrjun, og ennfremur losnar hér í dag 2000 lesta þróarrými og eru einhverjir bátar hér, sem biða eftir að landa i það. Margir bátar liggja hlaðnir hér við bryggju, sumir landa hér og aðrir i Norglobal. Góður afli hefur verið hjá Eskifjarðartogur- um að undanförnu og landað Hólmanes á*mánudag 170 lestun og Hólmatindur i gær 150—16( lestum. Er þetta mestmegnis stói og fallegur þorskur. Þá hefur afi i net glæðzt nokkuð og i morgur kom Sæljón með 25—30 lestir ai netafiski. Mikið er því að gera fiskverkun og unnið er fram é kvöld i frystihúsinu. — Ævar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.