Morgunblaðið - 15.02.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
5
Skákkeppni framhalds-
skólanna er hafin
SKÁKKEPPNl framhaldsskóla
er f skákheimili TR við Grensás-
veg og henni lýkur á sunnudag-
inn. Keppt verður f tveimur riðl-
um.
í 1. riðli keppa nemendur i
framhaldsskólum, semeru20 ára
og yngri. Sú sveit sem sigrar, hlýt-
ur að launum farandbikar gefinn
af Ríkisútvarpinu og minni bikar
til eignar. Þá hlýtur sveitin rétt
til að taka þátt i skákkeppni fram-
haldsskóla á Norðurlöndum.
Menntaskólinn í Hamrahlíð hefur
sigrað í þessum riðli frá upphafi.
1 2. riðli keppa sveitir sem ekki
uppfylla skilyrði 1. riðils. Hver
sveit er skipuð 5 aðalmönnum og
tveimur til vara. Skákstjóri verð-
ur Svavar G. Svavarsson.
Myndin er af sigursveit MH í
fyrra. Frá vinstri: Bjarni Braga-
son, Björn Halldórsson, Adolf
Emilsson, Kristján Guðmundsson,
Ómar Jónsson og Guðmundur
Arnlaugsson rektor skólans, sem
einnig er þekktur fyrir afskipti
sín af skák.
Tillaga um norræn
íþróttaverðlaun rædd á
Norðurlandaráðsþingi
Á 23. þingi Norðurlandaráðs í
Reykjavfk verður til umræðu til-
laga um norræn fþróttaverðlaun.
1 tillögunni er lagt til, að Norður-
landaráð sýni jákvæða afstöðu
sína til íþrótta með sérstökum
norrænum íþróttaverðlaunum
sem úthlutað verði árlega til af-
burðafólks á sviði íþrótta og þau
nái einnig til iþróttaleiðtoga.
Lagt er tif að verðlaunafénu verði
varið til eflingar á því sviði
íþróttamála, sem verðlaunahaf-
inn hafi mestan áhuga á, en jafn-
framt hljóti verðlaunahafinn per-
sónuleg verðfaun, t.d. listaverk.
I'Iutningsmenn tillögunnar eru
Anders Aune og Arne Nielsen,
Noregi, Mauno Forsman og Bror
Lilfquist, Finnlandi, Svend Horn,
Danmörku, Matthfas Á Mathiesen
og Jón Skaftason, fslandi, og Sven
Mellquist, Svfþjóð.
Menningarmálanefnd Norður-
landaráðs hefur skilað áliti um
tillöguna og er þar lagt til við
norrænu ráðherranefndina, að
hún undirbúi tillögur um aukið
norrænt íþróttasamstarf á víð-
tæku sviði og kanni möguleika á
norrænum íþróttaverðlaunum.
Frá Islandsdeild Norðurlanda
ráðs.
Saklausi svallarinn
suður fyrir heiði
Geldingaholti —13. febr.
UNGMENNAFÉLAG Gnúp-
verja hefur sýnt gamanleikinn
Saklausi svallarinn að undan-
förnu víðsvegar i Árnes- og
Rangárvallasýslum við ágæta
aðsókn og undirtektir. Tvær
sfðustu sýningar á þessum
spaugilega gamanleik verða nú
um helgina — hin fyrri á
Félagsgarði f Kjós laugardags-
kvöldið kf. 21 og síðasta sýning-
in verður svo í Félagsheimilinu
á Selt jarnarnesi á sunnudag kl.
15. Leikstjóri er Birgir Sigurðs-
son, skólast jóri og leikskáfd.
Leikstarfsemi hefur verið
mikil í Arnessýslu það sem af
er þessum vetri. í haust sýndi
Leikfélag Þorlákshafnar gam-
anleikinn £g vil fá mér mann,
Ungmennafélag Hrunamanna
sýndi Húsfreyjuna f Hruna og
var sú sýning haldin f tilefni
þjóðhátíðarinnar. Nú er Leik-
félag Selfoss að sýna Sjö stelp-
ur. Yfirleitt hefur aðsókn verið
ágæt að þessum sýningum, sem
sýnir vaxandi áhuga fólks á
þessari starfsemi og er það vel.
— Fréttaritari.
Smygl í
tveimur
farskipum
FYRIR nokkru fundu tollverðir f
Reykjavfk smyglvarning um borð
f Skógafossi, sem var að koma frá
Rússfandi eftir 52 daga útivist.
Voru þetta alls 144 fföskur af
áfengi, þar af 102 hálfflöskur.
Þetta var að mestu leyti vodki. Þá
fundust 1600 vindlingar og tveir
bjórkassar. Smyglið áttu stýri-
maður, bryti, matsveinn og há-
seti.
Þá komst upp smyglmál á Akur-
eyri fyrir nokkru. Var um að ræða
192 flöskur af 75% vodka og
nokkurt magn af kjötvöru. Smygl-
ið mun aðallega vera komið úr
Rangá og var það í eigu stýri-
manns sem var á skipinu s.l.
haust, en þá var varningnum
smyglað inn í landið. Nokkrir
menn munu vera viðriðnir þetta
mál.
OFT VAR ÞORF — EN NU ER NAUÐSYN
LÁTIÐ EKKI HINN
UMTALAÐA
l'TSÖLUMARKA1) FRAM IIJÁ YÐl'R FARA.
IIREINT ÓTRÚLEG K.|ÖR.
MIKIÐ
YÖRUÚRYAL
50—70%
afsláttur
n KARNABÆR
Útsölumarkaöur Laugaveg 66
Tiíiiií]
WICHMAHKp
□ IESEL
Framsýnir útgeröarmenn
líta ekki framhjá
Wichmann
1 4 skip eru buin
Wichmann AX vélum
og 50 skip öðrum
Wichmann vélum
Við óskum Ufsabergi hf., Vestmannaeyjum svo og Vestmannaeyingum
öllum til hamingju með þetta glæsilega skip.
Einnig óskum við Huginn hf., Vestmannaeyjum til hamingju með
systurskip Gullbergs.
Gullberg fór beint á loðnu og er nú með efstu skipunum. Efstir eru Gísli
Árni og Börkur NK auðvitað búnir Wichmann aðalvélum.
Ár eftir ár eru Wichmann skipin efst í flotanum. — Það segir mikla sögu
Útgerðarmenn. Hagkvæmur rekstur á útgerðinni kemur öllum til góða.
Leitið upplýsinga um Wichmann, við getum afgreitt vélar með stuttum
fyrirvara og á góðu verði.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGST AÐASTRÆTI 10A.
SÍMI 21565.