Morgunblaðið - 15.02.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
7
VERÐLÆ KK ANIR
í Bandaríkjunum
(Úr U. S. News & World Report)
TALSVERÐAR verðlækkanir
hafa orðið á ýmsum vörum
og þjónustu í Bandaríkjunum
að undanförnu. Þessi þróun
hófst fyrir jólin, og er tilgang-
ur kaupmanna — bæði
heildsala og smásala — sá
að minnka samdráttinn I við-
skiptum og koma í veg fyrir
óþarfa birgðasöfnun. Ná
þessar verðlækkanir til
margskonar viðskipta, allt frá
benzíni og flugfargjöldum til
fatnaðar og húsgagna.
Sem dæmi um lækkan-
irnar má nefna eftirfarandi:
Hver sá sem kaupir hit-
unar- og kælikerfi General
Electric í hús sitt, fær 60
dollara ávísun frá félaginu I
kaupbæti. Byggingarfélagið
Kaufman & Broad hefur
lækkað verð á nýjum húsum,
og býður kaupendum i
Michigan og New York ríki
sérstaka tryggingu gegn
tekjumissi. Yfirtekur félagið
allan kostnað af húsakaup-
unum í 22 mánuði ef
kaupandinn missir atvinnuna
vegna samdráttar í viðskipt-
um vinnuveitandans. Og
þeir, sem kaupa hús félags-
ins á Long Island fyrir 40
þúsund dollara eða meira, fá
3.500 dollara bíl í kaupbæti.
Ýmsar vörur, sem ekki
hafa lækkað i verði heldur
aðeins staðið í stað, eru nú
boðnar á gamla verðinu þótt
þær séu unnar úr betri efni
og vandaðri, þannig að kaup-
andinn fær meira verðmæti
fyrir peningana.
Ýmsir framleiðendur óttast
að settar verði nýjar verðlags-
ákvarðanir og eru því tregir
til að binda sig við lægra
verðlag en verið hefur. Hafa
þeir því gripið til ýmissa ann-
arra ráðstafana til að tryggja
kaupendum sínum betri kjör,
svo sem að taka á sig
kostnað við flutning og
geymslu, veita afslátt þegar
um mikið magn er að ræða,
og bjóða samninga til lengri
Timbur og fleiri byggingarvörur
hafa lækkað I verði.
tima þegar um afborganir er
að ræða.
Sem dæmi má hér nefna
að verksmiðja ein, sem
smíðar vélarhluta í bifreiðir,
vildi ekki lækka verðið á
þeim, en bauð helzta við-
skiptavini sínum, General
Motors, þess i stað að liggja
jafnan með nægar birgðir og
tryggja fljóta afgreiðslu. Á
þennan hátt gat GM
minnkað eigin birgðir og
dregið úr fjárfestingunni. [
stað þess að liggja með
birgðir til 90 daga, eins og
áður, nægja nú 30 daga
birgðir.
Þeir sem fylgjast vel með
auglýsingum geta oft gert
góð kaup. Að undanförnu
hafa birzt auglýsingar um allt
að 50-—60% lækkanir á
flugfargjöldum, matvöru,
íþróttatækjum, fatnaði, gólf-
teppum, lini, húsgögnum,
gluggatjöldum, skóm og
fleiri á ýmsum stöðum í
Bandaríkjunum. Innanlands-
flug á lengri leiðum er nú
orðið ódýrara, og lækkuðu
farseðlarnir um 25% 1.
þessa mánaðar. Þannig
kostar nú flugfar milli New
York og Los Angeles 291
dollara, en kostaði 388. Syk-
ur er víða kominn niður í 60
cent pundið, en kostaði í
nóvember 90 cent. Benzín-
verð er einnig á niðurleið, og
hefur lækkað um nærri 4%
frá því í ágúst, og þannig
mætti lengi telja.
Verðlækkun hefur einnig
orðið á ýmsum byggingar-
vörum. Þannig er til dærrýs
talið að furufjalir, 2x4 tomm-
ur, hafi lækkað um 22% á
síðasta ári, og viðarklæðn-
ing, sem kostaði 3,20 dollara
í fyrra, hefur lækkað um einn
dollar platan.
Upplýsingar þessar eru
. hafðar eftir bandaríska viku-
ritinu U.S. News & World
Report, sem einnig birtir
, eftirfarandi töflu um lækkun
í á ýmsum vörum frá því verð-
lagið var hæst á árunum
! 1973 — 74:
Hæst 1973— 74 Núna Lækkun
Óhreinsaður sykur, Ib. (453 gr) 63 c 39 c 37%
Nautaskrokkar, 100 Ib. $ 55,10 $ 35,26 36%
Hveiti, skeppan (35,2 Itr.) $ 6,12 $ 4,04 34%
Korn, skeppan $ 3,95 $ 3,10 22%
Soyabaunir, skeppan $ 11,57 $ 6,f0 46%
Svinaskrokkar, 100 Ib. $ 59,80 $ 37,85 37%
Kókó, Ib. $ 1,31 89 c 32%
Kjúklingar, Ib. 74 c 42 c 43%
Ull, Ib. $ 3,09 $ 1.18 62%
Baðmull, Ib. 93 c 40 c 57%
Brotajárn, tonnið $ 155 • $ 80 48%
Kopar, Ib. 87 c 69 c 21%
Tin, Ib. $ 4,67 $ 3,73 20%
Silfur, únsan (28,35 gr) $ 5,91 $ 4,25 28%
Þorlákshöfn 3ja til 5 herb. íbúð óskast til leigu. Einhver fyrirframgreiðsla, ef óskað er. Uppl. í síma 71 547 Reykjavík. Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Slmi 53044.
Volga Af sérstökum ástæðum er til sölu Volga '73. Ekinn 35.000 km. Góður einkabíll. Upplýsingar í síma 36489. Grilltæki óskast Ýmis eldhústæki óskast i lítið grill, notuð eða ný. Tilboð sendist til Morgunblaðsins merkt: „Grilltæki — 9658" fyrir 20 febrúar næstk.
Rennilásarog hnappar í miklu úrvali. Haraldur Árnason Heildverzlun Sími 1 5583. Fiskverkendur til sölu eru 2 færibönd úr áli 5—6 m löng og 1 úr járni. fyrir bein ca. 9 metrar. Upplýsingar í sima 34576.
Stýrimaður og háseti óskast á 60 tonna bát frá Rifi. Upplýsingar i síma 93-6709. Til leigu 200 fm geymsluhúsnæði i Elliða- árvogi. Góð aðkeyrsla og aðstaða á lóð. Upplýsingar i sima 34576.
Vil kaupa bát 10—30 tonna. Þarf að vera útbúin með rafmagns handfæra- rúllum. Upplýsingar í sima 41 526. 2R0t{5mtí>lní>tt> nucivsincnR ^-«22480
Vestmannaeyingar og aðrir kaupendur og velvildarmenn ársrits Vest- mannaeyja, Bliks. — Vinsamlegast notið gíró- seðlana hið fyrsta og ritið verður sent ykkur um hæl. Utgefandinn, sími 91-53431.
Árshátíð íslenzka bifreiða og vélhjólaklúbbsins verður haldin í Glæsibæ, í kvöld. Miðar fást í Verzlun Hannesar Ólafssonar, Dunhaga 23 og á skrifstofunni að Laufásvegi 75, (áður tjalda- leigan) og við innganginn. Borðhald hefst kl. 7. Mætum allir. Skemmtinefnd Í.B. O.V.
r '" ' ' ' ^
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN — SAS flugfélagið
ÚTSÝNARKVÖLD
AUSTURLANDAHÁTÍÐ
í Súlnasal Hótel Sögu
sunnudaginn 16. febrúar
--------------------------------------------------------\
•jf Kl. 19.00 — Husið opnað — Svaladrykkir og
lystaukar.
if Kl. 19.30 — Hátíðin hefst: Ijúffengir blandaðir
Austurlandaréttir (Verð aðeíns kr. 895.)
kl. 20.30 — Ævintýraheimur Austurlanda: Kvik-
myndasýning frá Thailandi.
■Á Fegurðarsamkeppni: Ungfrú ÚTSÝN 1975 —
forkeppni.
if Stórkostlegasta ferðabingó ársins: 2 Útsýnarferðir
til sólarlanda og 2ja vikna ferð til Austurlanda.
Verðmæti vinninga samtals ca. 400 þúsund kr.
if Nýstárlegt skemmtiatriði á austurlenzka vísu.
if Dans -— Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar.
J
Missið ekki af þessari óvenjulegu, glæsilegu en
ódýru skemmtun.
Ath. að veizlan hefst stundvíslega og borðum
verður ekki haldið eftir kl. 1 9.30.
Iryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudegi frá
kl. 1 5.00 í síma 20221.
VERIÐ VELKOMIN — GÓÐA SKEMMTUN:
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN — SAS flugfélagið
V_______________________________________________2