Morgunblaðið - 15.02.1975, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
Jafnrétti að lögum er ekki ein-
ungis mál, er varðar konur, það
er mál, sem snertir hin frum-
stæðustu mannréttindi og hlýtur
því að vera mál beggja kynja og
um leið alls samfélagsins. Þetta
sjónarmið liggur til grundvallar
starfi Sameinuðu þjóðanna að
jafnréttismálum.
Aðildarríki þeirra eru á nær öll-
um þrónunarstigum — fré að-
stæðum svipuðum og nú eru á
íslandi og til staða þar sem konur
eru lagðar að jöfnu við búpening.
Tillögur S.Þ. til úrbóta eru þess
vegna margvfslegar — allt frá þvi
að vinna gegn ólæsi f heiminum
og til þess að koma á fundum og
skoðanaskiptum með konum,
sem náð hafa forystu á sviði þjóð-
mála.
Hér á landi heyrast raddír um,
að markmið S.Þ. með KVENNA-
ÁRI eigi ekki erindi til okkar, þar
eð lagalegum rétti íslenskra
kvenna sé ekki áfátt. Misrétti er
eigi að siður á ýmsum sviðum
þjóðfélagsins, svo sem á vinnu-
markaðinum, en þar er hlutur
kvenna mun rýrari en karla.
Árið 1975 hlýtur þess vegna að
verða ár áframhaldandi baráttu
fyrir útrýmingu mismununar,
samhliða þvi að meta að verðleik-
um það, sem þegar hefur áunnist.
TÍMARNIR breytast og menn-
irnir meö, svo segir gamalt
spakmæli. Stundum fylgist
þetta þó ekki að, mennirnir
breytast hægar en tímarnir. Þá
segjum vió að maðurinn eða
málefnió sé á eftir timanum.
Sú hefur t.d. orðið raunin á
um ýmis réttindamál kvenna
og afstöðu fólks til þeirra.
Samtök kvenna viða um heim
hafa um árabil leitast við að
breyta þessu.
Alltof margar konur viróast
þó eiga erfitt með að hrista af
sér doðann. Það er eins og þær
haldi að einhver ósýnileg
Grýla taki þær ef þær stigi út
fyrir beðið, sem þeim hefur
verið plantað i. „Og hvað á ég
svo sem að vera að blanda mér
í þetta,“ segir kannski einhver.
„Ekki vinn ég úti.“ Að vinna
„úti“, sem svo er nefnt er sjálf-
sagt og eðlilegt ef kona óskar
þess. En eins og til háttar í dag
um barnagæslu, nálgast það
óraunsæi að gera ekki ráð fyrir
nokkrum árum heima ef um
börn er að ræða. Það er engin
ástæða til að falla í andlegan
dvala eða taka upp hugsunar-
hátt langafa um stöðu konunn-
ar þess vegna. Og fáið endilega
ekki minnimáttarkennd þó að
húsbóndinn þurfi þá einn aó
annast aðdrætti. Unnuð þið
kannski ekki fyrir honum þeg-
ar hann var veikur eða við
nám?
Vinna utan heimilis leysir
ein sér engan vanda, fremur
en vinna á heimilinu. Konan
hefur unnið og þaó ósleitilega
frá þvi að sögur höfust. Það
hefur ekki gert hana frjálsa.
Ekkert getur gert hana frjálsa
nema hennar eigin sjálfstæða
hugsun.
Ragna Eyjólfsdóttir,
Kirkjubóli, Skutulsfirði,
N.-lsaf.s.
„Forvitin rauð“, 2. bl.
1. mai, 1973. Birt hér
með leyfi höf.
UMSJÓN: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Erna Ragnarsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir.
Hugleiðingar
kvennaár ? llUSmOOUr
Hvers
vegna
15
t tilefni KVENNAÁRSINS hefur póst- og símamálastjórnin
ákveðió að gefa út frfmerki.
Ef þér mættuð ráða: Mynd af hvaða íslenskri konu vilduð þér,
að væri á merkinu?
1.
2.
Sendið KVENNAARSdálkum Morgunblaðsins uppástungur,
merktar nafni yðar og heimilisfangi, fyrir 1. mars n.k.
Auðkennið svarið „I tilefni KVENNAARS".
ff
Núna i vikunni
hringdi kona nokkur í
eina af þjónustustofnun-
um Reykjavíkurborgar
og bar fram kvörtun.
Þegar stúlkan, sem hef-
ur umsjón með viðkom-
andi málaflokki stofn-
unarinnar útskýrói fyrir,
konunni, að kvörtun
hennar væri ekki á rök-
um reist, brást konan
hin reiðasta við og sagði:
„Get ég ekki fengið að
tala við einhvern karl-
mann þarna?“
ff
Veski stolið frá
konu í Glæsibæ
HINN 30. desember s.l. var kona
að skemmta sér í samkomuhúsinu
í Glæsibæ. Hún var með ljóst net,
föðrað að innan en í þvi var veski
hennar, snyrtidót og fleira. Hún
kom að borði þar sem fólk sat og
spurði hvort hún mætti leggja
netið frá sér á meðan hún dans-
aði. Fólkið sagði að það væri vel-
komið. Þegar konan kom til baka
var fólkið farið, enda dansleikur-
inn að verða úti. Netið lá þá á
gölfinu en veskið var horfið
ásamt ávisanahefti. Ur þessu
hefti hafa verið falsaðar nokkrar
ávisanir. Það eru tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar, að það fólk
sem sat við umrætt borð hafi þeg-
ar samband við rannsóknarlög-
regluna, því það kann að búa yfir
upplýsingum sem gætu bent til
þess hver var valdur að stuldin-
um.
AUGLÝSINGATEIKIMISTOFA
MYNDAMÓTA
Aóalstræti 6 simi 25810
HÖFUM TIL AFGREIÐSLU NÚ ÞEGAR:
CATERPILLAR D334TA
220 HÖ vió 2000 sn/mín. Stöðugt
álag.
6 strokka, með forþjöppu og loft-
kæli. Strokkur x slaglengd 4,75”x6”
Lausagangshraði 600 sn/mtn.
Vökvaskiptur niðurfærslugír
Twin Disc með niðurfærslu 4,5:1
CATERPILLAR D379TA
565 HÖ við 1225 sn/mín. Stöðugt
álag.
V8 með forþjöppu og loftkæli.
Strokkur x slaglengd 6,25”x8”
Lausagangshraði 500sn/mín.
HEKLA hf.
Laugavegi 170-172, — Sími 21240
Caterpillar. Cat, og CH eru skrásett vörumerki
Yinsœlfl
Halda borðið
frá Stfphðfi!
Fyrir afmæli, brúðkaup, fermingar o.fl.
Veró: 20-50 manns kr.1195.- pr. mann
50-100 ---- 1095.-'
Inniheldur:
Síldarrétti f#l Fiskrétti !•! 8 kjötrétti
Ostabakka •! Sósur og salöt
Pantiö tímanlega fyrír fermingar
Veítingahústö
SKIPHÓLL HF.
Strandgötu 1 ■ Hafnarfiröi ■ ® 51810