Morgunblaðið - 15.02.1975, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
Nokkrir erlendu fulltrúanna við komuna til Islands í gær.
Anker Jörgensen:
„ Vona að stjórnin
sitji sem lengst”
• „ÉG get ekki tjáð mig um þetta mál á þessu stigi.
Það er bezt að formaður dönsku sendinefndarinnar
geri grein fyrir þvf,“ sagði Anker Jörgensen, forsætis-
ráðherra hinnar nýju minnihlutastjórnar Jafnaðar-
mannaflokksins í Danmörku, við komuna til Keflavík-
urflugvallar f gærkvöldi er Morgunblaðið innti hann
eftir þvf hver væru að hans áliti mikilvægustu mál
þessa fundar Norðurlandaráðs f Reykjavfk. Þess má
geta til gamans að sá maður sem Jörgensen vísaði
þarna á er höfuðandstæðingur hans f undangenginni
stjórnarkreppu f Danmörku, Poul Hartling, fráfar-
andi forsætisráðherra.
Um það hvort hann teldi minnihlutastjórn sfna eiga
mikla möguleika á að sitja til langframa við völd,
sagði Jörgensen: „Það er engin leið fyrir mig að svara
þessu nú, en vissulega vona ég það og er nokkuð
Ljósmyndir Sveinn Þormóðsson.
rá komu erlendu
fulltrúanna
áþing
Norðurlanda
ráðs i gær
bjartsýnn."
Anker Jörgensen kvað það verkefni sem nú væri
brýnast fyrir ríkisstjórnina að hefjast handa við að
leysa væri hið mikla atvinnuleysi f Danmörku. En að
öðru leyti vildi hann sem minnst tjá sig um stöðu og
stefnu stjórnar sinnar sem raunar er ekki nema fárra
daga gömul. Jörgensen var einnig spurður um aðild
Danmerkur að Efnahagsbandalagi Evrópu, m.a. hvort
það væri erfiðleikum bundið fyrir Dani að vera bæði
aðilar að Norðurlandaráði og EBE. Hann kvað enga
örðugleika hafa komið upp f sambandi við það og
benti á að margt væri sameiginlegt með þessu tvenns
konar samstarfi.
Anker Jörgensen heldur heimleiðis af Norðurlanda-
ráðsfundinum á mánudagsmorgun. 0
í GÆR komu til landsins flestir þeirra 450 erlendu fulltrúa, sem
sitja þing Norðurlandaráðs í Reykjavík næstu daga. Þeirra á
meðal voru Anker Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur,
Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Trygve Bratteli,
forsætisráðherra Noregs. Kalevi Sorsa, forsætisráðherra Finn-
lands er væntanlegur á mánudag.
Fulltrúarnir komu með þremur flugvélum, fyrsti hópurinn kl.
9 í gærmorgun, en hinar tvær vélarnar komu um sexleytið
síðdegis. Var önnur þeirra nær fimm klukkustundir á eftir
Trygve Bratteli:
áætlun, sakir ýmissa tafa og bilunar.
„Samkomulagið við
EBE nothœft”
0 Trygve Bratteli, forsíetisráðherra Noregs, var að
því spurður hvort hann væri ánægður með samkomu-
lagið, sem gert hefði verið við EBE löndin, Bretland,
Frakkland og V-Þýzkaland um togveiðibannsvæðin
við Noreg og hverjar hefðu verið undirtektirnar
heima fyrir. Hann svaraði því til, að samkomulagið
væri nothæft og mikill meiri hluti norskra þingmanna
hefði samþykkt það. Sömuleiðis hefði það hlotið veru-
legan stuðning meðal hinna ýmsu aðila norska fisk-
iðnaðarins.
Bratteli sagði, að samningar stæðu yfir við fleiri
rfki; Jens Evensen hafréttarráðherra, sem nú væri f
New York að ræða við ýmsa hafréttarsérfræðinga
Búizt var við, að verðlaunaskáldið finnska, Hannu Salama,
yrði meðal farþega, en hann kom ekki. (sjá frétt). Poul
Hartling, fráfarandi forsætisráðherra Danmerkur sem tekur við
formennsku í dönsku þingnefndinni af Anker Jörgensen kemur
ekki fyrr en í fyrsta lagi í dag. Þá er K.B. Andersen,
utanríkisráðherra Danmerkur, væntanlegur á sunnudag, en
Eivind Bolle, fiskimálaráðherra Noregs, ekki fyrr en á mánu-
dag.
Blaðamenn hittu nokkra þingfulltrúa sem snöggvast á
flugvellinum og fara hér á eftir samtöl við þá.