Morgunblaðið - 15.02.1975, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
19
Reidar B. Johansen.
Mjölinu blásið á milli
— Nú komið þið á Islandsmið
frá V-Afríku. Hvernig gekk
veiðin í hitanum þar?
„Við fórum á Afríkumið 28.
september s.l. og komum aftur
þann 20. janúar. A þessum tíma
tókum við á móti um það bil 40
þúsund lestum af makríl, en með
okkur í förinni voru 9 hringnóta-
skip. Veðrið á þessum slóðum var
og er alltaf mjög gott. Hitinn að
meðaltali um 20 gráður. Við höf-
um birgðageymslur fyrir 9 þús.
lestir af mjöli, sem er kögglað, og
2,5 þús. lestir af lýsi. Ef við reikn-
Ný-fundnaiandsmið með norsk-
um loðnubátum. Ekki veit ég hve
bátarnir verða margir en ég gæti
trúað um það bil 10. Noregur
mátti veiða þar í fyrra 60 þús.
lestir, Rússar 60 þús. lestir,
Kanadamenn að sjálfsögðu miklu
meira og aðrar þjoðir 20 þús.
lestir. Þar koma íslendingar helzt
til greina og komið gæti til mála
að Norglobal tæki á móti þessum
afla. (Nú hefur hinsvegar frétzt
að kvóti Norðmanna hafi verið
hækkaður til muna).“
Enginn frídagur
síðan í ágúst
— Þú ert fjölskyldumaður. Ert
þú ekki sjaldan með konu og
börnum?
„Frídag hef ég ekki átt siðan í
ágúst. Heima í Noregi á ég konu
og tvær dætur, auk þess sem við
eigum tvo hunda. Konuna hafði
ég reyndar með um daginn frá
Kaupmannahöfn til Kristiansand.
Aftur á móti veit ég ekki hvenær
ég fæ frí næst.“
Loftskeytamaðurinn á Nor-
global heitir Arne Kjell Zahl og
býr í Bodö, þar sem hann á konu
og litla dóttur. Auk þess sem Zahl
er loftskeytamaður sér hann um
bókhald skipverja, sem er ærinn
starfi. Hann segir okkur, að hann
sé búinn að vera 3 ár á Norglobal
og það lengi að hann sé orðinn
vanur þessum miklu fjarvistum.
— Hér er gott að vera, auk þess
sem kaupið er mjög gott og þess
Þorbjörn 2 GK siglir meðfram Norglobai.
það kemur fyrir reynir maður að
gera við þaó sjálfur."
Engin frístunda-
vandamál
— Hvernig notið þið ykkar frí-
stundir hér um borð?
Tvíþœtt starf
Reidar M. Johansen yfirvél-
stjóri ber þess merki að hann hafi
stundað sjóinn lengi. Við spurð-
um hann fyrst hve lengi hann
hefði verið á bræðsluskipinu.
„Hér hef ég verið í 10 mánuði, en
áður var ég á öðrum skipum og
gin f rístundavandamál
ikipverjar á Norglobal
• r æ
r
Arne n. /,ani lorisKeyiamauur viu læmn.
„Ef ég hef frístund, grip ég í
bók eða við setjumst nokkrir
saman og spilum. Hér er ma.
frábært bókasafn, borðtennis-
borð, tæki sem líkjast mini-golfi
og margt fleira, sem maður getur
stytt sér stundir við. En annars
má segja að hér höfum við engin
frístundavandamál. Þegar maður
fer hér um borð, hefur maður
áður gert sér grein fyrir hvernig
líf um er að ræða, en að sjálfsögðu
er það spennandi að standa á jörð-
inni á ný þegar maður hefur verið
úti á sjó í 5—6 mánuði. Lífið hér
er einnig tilbreytingarríkt. Þaó
gerist alltaf eitthvað nýtt á
hverjum degi og þegar vió erum
við Afríku fer maður í sólbað að
meðaltali í eina klukkustund á
dag, sem er góð afslöppun."
það mörgum gegnum árin. Það er
mikill munur að vera á Norglobal,
því mitt starf er hér bæði í vélar-
rúmi og í sjálfri verksmiðjunni,
þannig að ég hef nóg að gera þótt
legið sé fyrir föstu eins og nú er
gert.“
— Hvað vissir þú um Island
áður en þú komst hingað?
„Ekki get ég sagt að það hafi
verið mikið. Ég vonaði aðeins að
veðrið yrði gott og það hefur stað-
izt enn sem komið er að minnsta
kosti. Vinur minn er giftur ís-
lenzkri konu og mín vitneskja um
landið ykkar er komið frá honum.
En eitt er víst að það er fallegt
— alla vegana Austfirðirnir —
annað hef ég ekki séð.“
Elzti maðurinn um borð i
Norglobal er Jon Holtan yfirstýri-
maður, hann verður 60 ára á
næsta ári, og segist þá ætla að
hætta á sjónum, enda kominn á
eftirlaun þá. Hann er þegar búinn
að ákveða hvernig hann ætlar að
eyða elliárunum. Nú þegar er
Holtan búinn að byggja sér lítið
hús á eyju einni skammt utan við
Sandefjord, þar sem hann býr. —
Þar ætla ég að dvelja og slappa af
og veiða fisk í soðið.segir hann.
Hvalfangari í 30 ár
Þegar við spurðum hann hvern-
ig æviferill hans væri sagði
hann m.a.: „Það er stutt saga þvf
ég hef verið hvalveiðimaður meiri
hlutann af mínu lífi. Ég var ung-
ur maður 1932 en þá fór ég fyrst á
hvalveiðar og á þeim hætti ég
ekki fyrr en 1964, þegar Norð-
menn hættu hvalveiðum."
Framhald ábls. 27
um með, að við höldum að jafnaói
1500 lesta afköstum á sólarhring
þann tíma, sem við erum á is-
landsmiðum, þá fyllum við mjöl-
geymslurnar á 35 dögum, en
enginn vandi er að losa úr skipinu
yfir í önnur skip. Mjölinu er
blásið á milli. Afurðirnar sem
Norglobal framleiðir eru yfirleitt
góðar, en skipinu var breytt í
bræðsluskip fyrir 4 árum, en áður
var það málmflutningaskip og var
mest í flutningum frá Narvik í
Noregi suður á bóginn.“
— Er hægt að taka á móti loðnu
í slæmum veðrum?
„Já, við höfum mjög góðan út-
búnað til þess að skipin geti losað
i slæmum veðrum, og veðrið má
vera nokkuð slæmt ef loðnubát-
arnir eiga ekki aö geta losað. Við
munum að sjálfsögðu fara héðan
frá Reyðarfirði um leið og loðnu-
flotinn færir sig meira vestur á
bóginn.“
— Hvers vegna er skipið ekki
notað núna á loðnuvertíðinni í
Noregi?
„Við þessari spurningu á ég
ekkert svar. Þegar við förum
heim munum við stanza þar í
nokkra daga, en halda síðan á
vegna er maður hér. Margir okkar
eru t.d. að byggja heima, og eru
hér þess vegna.
Hef séð fjölskglduna
í 3 daga s.L 7 mánuði
—Þú hefur væntanlega verið á
fleiri skipum en Norglobal?
„Já, það hef ég, áður en ég kom
hingað var ég búinn að vera á
þremur skipum og vorum við
mest í Asíusiglingum. Mesti
ókosturinn við að vera hér, er að
sjá sina fjölskyldu jafn sjaldan og
raun ber vitni. Síðustu 6—?
mánuðina hef ég aðeins séð konu
mina og dóttur í 3—4 daga heima
í Bodö.“
— Er það ekki rétt, að þið séuð
með mjög sterkt senditæki?
„Það er 1300 kw og þannig tæki
eru í flestum okkar nýjustu
flutningaskipum. Það er ákaflega
þægilegt að vera með slík tæki
þegar maður er á fjarlægum miö-
um, fyrst og Jremst sparar það
mikil útgjöld, auk þess sem við
getum talað oftar heim en ella.
Þessi tæki bila sára sjaldan og ef
1. stýrimaóur Norglobal á
heima í Harstad i Norður-Noregi
og segir hann okkur að hann heiti
Norvald Nicolaisen, og frá Har-
stad væru 3 á skipinu. — Gott
væri að vera á þessu skipi, ef
miðað væri við önnur skip, sem
hann hefði verið á, en hann hefði
bæði verið á flutninga- og fiski-
skipum. Hins vegar væru tóm-
stundirnar fáar og færi frítiminn
aðallega í að sofa og borða.
Notar menntunina
Nieolaisen sagði, að hann hefði
verið á sjó að mestu síðan hann
var 14 ára gamall, en nú væri
hann 32 ára. Um tíma hefði hann
t.d. verið stýrimaður á loðnubát
og sér hefði þótt gaman að þeim
veiðiskap. Síðast hefði hann verið
á loðnu árið 1971 og þá hefði
báturinn sem hann var á fengið
45 þús. hektólítra, en mest ber
hann 250 tonn. — En þar sem ég
hef menntun til að sigla stórum
skipum, þá finnst mér sjálfsagt að
nota hana.
Skilvindusamstæðan. Hér standa 9 Alfa Laval skilvindur f röð.