Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
Jón Steffensen
prófessor sjötugur
Aðrir munu mér færari að segja
frá lækningum og kennaranum
próf. Jóni Steffensen, sem er
sjötugur f dag, en I fáum línum
langar mig að minnast fræði-
mannsins og vfsindamannsins
Jóns Steffensens, sem um langt
árabil hefur sett mark sitt á rann-
sóknir um uppruna íslendinga og
rannsóknir á íslenzkri fornmenn-
ingu.
Próf. Jón Steffensen fæddist í
Reykjavfk 15. febrúar 1905, sonur
Valdemars Steffensens læknis og
Jenny konu hans. Var því nær-
tækt að hann veldi sér störf lækn-
isins, en læknisfræðinám stund-
aði próf. Jón við Háskóla íslands
og lauk þaðan prófi árið 1930.
Sfðan stundaði hann framhalds-
nám við erlenda háskóla og einnig
síðar á starfsferli sfnum, var um
tíma settur héraðslæknir í
Hvammstangahéraði og starfaði
síðan á Akureyri, en 1937 var
hann skipaður prófessor við Há-
skóla Islands f líffærafræði og
lffeðlisfræði, sem hann gegndi
þar til fyrir fáeinum árum að
hann sagði lausu starfi sfnu.
Hin löngu kennslustörf próf.
Jóns hljóta því að hafa áhrif á
fslenzka læknisfræði, en hinir
yngri læknar munu lfklega allir
hafa stundað nám hjá honum.
Hversu lengi svo sem þau áhrif
vara býður mér hugur, að lengur
muni vara þau störf, sem hann
hefur lagt af mörkum til rann-
sóknar á Islendingum fyrri tíðar
og hafa enda rannsóknir hans ver-
ið til mikillar glöggvunar á upp-
runa þjóðarinnar, líkamsvexti og
heilsufari í fornöld. Fór vel á þvf,
að glöggskyggn, læknismenntað-
ur maður fjallaði um rannsóknir
þess, sem áþreifanlegt er af for-
feðrum vorum.
Trúlegast finnst mér, að rann-
sóknirnar í Þjórsárdal 1939, þar
sem upp voru grafnir allmargir
fornbæir sem fóru í eyði við
Heklugosið 1104, hafi orðið til
þess að próf. Jón fór að sinna
mannfræðirannsóknum, en slíkt
gerir þó enginn nema hafa í sér
neista fræði- og vfsindamannsins.
Þarna voru aðstæður, sem tendr-
uðu neistann. Meðal þess, sem
þarna var rannsakað, var kirkju-
garðurinn að Skeljastöðum, þar
sem upp voru grafin bein nokk-
urra tuga Þjórsdæla hinna fornu,
þeirra sem byggt höfðu dalinn
fyrir 1104. Beinagrindurnar voru
með afbrigðum vel varðveittar og
veittu glögga vitneskju um
líkamsvöxt dalbúa, og þá væntan-
lega þjóðarinnar allrar, á þeim
tíma. Próf. Jón Steffensen var við
þessar rannsóknir með Matthfasi
Þórðarsyni þjóðminjaverði og
hann sá sfðan um frekari rann-
sóknir beinanna og skrifaði um
þau vísindalega ritgerð í bókinni
Forntida gárdar i Island, sem út
var gefin um rannsóknirnar. Ætla
ég, að sú grein sé hin fyrsta, sem
hann skrifaði um þessi efni.
Annað stórvirki, sem próf. Jón
Steffensen átti þátt í að Ieysa af
hendi, voru rannsóknirnar f.Skál-
holti 1954—55, er kirkjustæðiið
forna og hluti kirkjugarðsins var
grafið upp og rannsakað. Þar
dvaldist hann sumarlangt við
uppgröftinn og annaðist sfðan úr-
vinnslu þess mannfræðilegs efni-
viðar, sem þarna kom í dagsljósið.
Að auki hefur próf. Jón
Steffensen rannsakað allar þær
fornar beinagrindur, sem komið
hafa f ljós við rannsóknir Þjóð-
minjasafnsins á fornkumium og
fornum grafreitum. Er það hreint
ekki svo lftið þegar allt er saman
lagt, sem þannig hefur verið til að
moða úr fyrir mannfræðinginn
Jón Steffensen, enda hljóta þær
að vera orðnar ófáar stundirnar,
sem hann hefur eytt f mannfræði-
rannsóknir tslendinga til forna.
Ber þá jafnframt að hafa f huga,
að hann hafði stóru og umfangs-
miklu embætti að gegna og að
Einn hinna skjólriku dala
noróanlands er Fnjóskadalur,
enda víða skógi vaxinn. Þar hefur
jafnan þótt gott undir bú, er
sæmilega áraði og fannadyngjur
færðu eigi allt f kaf. Þar er kjarn-
mikið iand og sauðland gott.
1 miðri sveit útdalsins eru
Draflastaðir, þar sem eru víðar
lendur grasi grónar, en fjallshlíð
lyngi vaxin. A Draflastöðum hef-
ur verið byggó frá landnámstíð,
jörðin alla tíð bændaeign að talið
er, enda talin mikil og gagnsöm.
Eigi fjarri bænum eru heitar
laugar. Þar er og kirkjustaður, og
er kirkjan helguð hinum sæla
Pétri postula. Var kirkjan auðug
og átti margt góðra gripa, sem nú
eru margir á söfnum.
Á öndverðri þessari öid bjuggu
þar Karl Sigurðsson og kona hans
Jónasína Dómhildur Jóhannsdótt-
ir frá Vióivöllum í Fnjóskadal. —
Karl bóndi var sonur Sigurðar
Jónssonar á Draflastöðum og
auki hlóðust á hann önnur störf,
einkum á vegum Háskólans,
stjórnunarstörf og nefndarstörf,
sem kröfðust öll sfns tfma og um-
sýslu.
Próf. Jón hefur ritað margt um
rannsóknir sínar, bæði f fslenzk
rit og erlend. Er þar einkum um
að ræða erlend læknisfræði- og
mannfræðirit, en hér heima hafa
margar ritgerðir hans birzt í Ar-
bók fornleifafélagsins. Háskóli Is-
lands sæmdi próf. Jón heiðurs-
nafnbót fyrir vísindastörf sín fyr-
ir nokkrum árum að makleikum.
Annað áhugasvið próf. Jóns er
saga íslenzkrar læknisfræði.
Hann er gagnkunnugur sögu
læknisfræðinnar og hafði for-
göngu um stofnun Félags áhuga-
manna um sögu læknisfræðinnar.
Er nú eitt helzta áhugamál hans
að hið fornmerka hús i Nesi við
Seltjörn, þar sem fyrsti landlækn-
irinn bjó og lögð var undirstaða
að íslenzkri læknakennslu, verði
varðveitt sem þjóðareign og þar
komið upp safni um sögu læknis-
fræði á Islandi og að þar megi
jafnframt verða staður til rann-
sókna á sögu læknisfræði og
lækninga hér á landi. Hefur hann
f þessu skyni gefið stórgjafir til
þess að slfkri stofnun verði komið
upp þegar er kringumstæður
leyfa.
Kona próf. Jóns Steffensens,
Kristín Björnsdóttir frá Mýrar-
húsum, lézt fyrir fáum árum.
Heimili þeirra hjóna að Aragötu 3
var með afbrigðum smekklegt og
konu hans Helgu Sigurðardóttur
frá Veisu Þorsteinssonar. Meðal
annarra barna þeirra hjóna voru
Sigurður búnaðarmálastjóri og
Jóninna, er rak lengi Hótel Goða-
foss á Akureyri.
Þau hjón á Draflastöðum, Karl
og Jónasína Dómhildur, eignuð-
ust ellefu börn og komust upp nfu
þeirra. Meðal eldri barnanna er
Ingibjörg Karlsdóttir, fæddist 15.
febrúar 1905.
Ingibjörg hefur um áratugi rek-
ið matsölu og veitingarekstur með
bróður sínum Steingrími.
Móðir Ingibjargar og þeirra
systkina lést á besta aldri, og
máttu hin eldri systkinin á
Draflastöðum standa fyrir
heimilis- og búrekstri ásamt Karli
föður þeirra. Var Ingibjörg mjög
fyrir þeim systkinum. Mun hana
að ýmsu leyti hafa kippt f kynið
til Jóninnu föðursystur sinnar, er
var mikil atorkukona, vel lærð i
hússtjórnarfræðslu, sem mat-
Ingibjörg Karlsdóttir
Skíðaskálanum Hvera-
dölum — Sjötug í dag
glæsilegt að húsmunum og lista-
verkum, en starsýnast varð mér
þó á hið gullfallega og dýrmæta
bókasafn, sem próf. Jón hefur
lengi viðað að sér. Hann er bóka-
safnari af guðs náð, hefur safnað
ritum um náttúrufræði tslands og
læknisfræði, einkum hina sögu-
legu hlið, og mun safn hans vera
hið alfullkomnasta, sem hérlendis
er til á þessu sviði. Þar að auki er
frágangur þess með afbrigðum
fagur, valin eintök bóka og fagur-
lega bundin, og átti frú Kristfn
ekki sfztan þátt í því, en hún var
smekkvís með afbrigðum og batt
margar bækur manns sfns f for-
reiðslubók hennar ber vott um, og
rak með miklum myndarbrag
gistihús og fæðissölu á Akureyri.
Ingibjörg fór að heiman er Sig-
urður bróðir hennar tók þar við
búi. Eftir að hafa unnið í Reykja-
vík og safnað sér farareyris, hélt
hún til Svíþjóðar til að kynna sér
matreiðslu á sjúkrahúsum, og síð-
ar til Danmerkur.
Er hún kom heim, gerðist hún
matráðskona á Reykjahæli í
ölfusi og starfaði siðar við sjúkra-
húsið í Vestmannaeyjum.
Eftir að hún fór frá Vestmanna-
eyjum, hóf hún starf með Stein-
grími bróður sínum að hótel-
rekstri, en hann kynnti sér hótel-
rekstur vestanhafs.
Lengst af hafa þau systkinin
veitt forstöðu Skfðaskálanum i
Hveradölum, en höfðu um skeið
matsölu f V. R. og síðar í Breið-
firðingabúð. Reka nú Brauðskál-
ann í Reykjavík. Hefur rekstur
þessi gengið vel hjá þeim og fólki
fallið vel að skipta við þau.
Ingibjörg er hagsýn dugnaðar-
kona, góðviljuð, ósérhlifin og
rausnarleg með afbrigðum. Hún
hefur gengið einhuga að starfi og
verkefni daganna. En til slíkra
starfa þarf líka lipurð og fúsleika
að greiða götu, fólks, oft á ýmsa
vegu. Þann umgengishæfileika að
gera bón margra og eiga festu í
skapgerð jafnframt því. Þá er að
stjórna fólkinu er vinna skal og
kunnargott band. Þar var gæfa í
ranni og göfugt umhverfi og
miklu er nú skipt er frú Krisfn er
frá horfin.
Þjóðminjasafn Isiands á próf.
Jóni Steffensen mikið að þakka.
Lengi hafa starfsmenn safnsins
leitað til hans með allt, sem að
rannsókn beina lýtur, þeirra sem
komið hafa upp við rannsóknir,
og hefur hann ævinlega verið
skjótur til liðsinnis. Hefur áhugi
hans á mannfræði sffellt verið
vakandi og hefur ekki þurft að
nefna tvisvar að fá greindan
kjálka eða hnútu til kyns eða ald-
urs. — Hið sama má segja um
störf hans fyrir Fornleifafélagið.
Hann hefur verið því haukur f
horni og þótt starfsemi þess gangi
hljóðlítið fyrir sig beinist hún eik-
um að því sviði, sem stendur
hjarta próf. Jóns næst, að gefa út
rit sitt um fornmenningu og
menningarsögu tslendinga. Var
það mikið happ að fá próf. Jón til
formennsku f félaginu er
Matthfas Þórðarson féll frá.
Ég óska próf. Jóni Steffensen
til hamingju með daginn og vona,
að enn eigi hann eftir að stinga
niður penna um fslenzka mann-
fræði, enn eftir að bæta fáséðu
kveri f bókaskápa sína og eigi
eftir að sjá fræðastofnun um sögu
læknisfræði og læknismenntunar
á tslandi rfsa og það áður en langt
um lfður.
Þór Magnússon
hafa allt í réttum sniðum, því
ávallt má búast við gestum og
gangandi eins og það var orðað i
fyrri daga.
Ingibjörg Karlsdóttir eignaðist
eina dóttur barna, Erlu Gunn-
laugsdóttur, sem búsett er í
Reykjavík, gift Birgi Thomsen.
Eiga þau þrjú mannvænleg börn,
sem eru ömmu sinni til mikillar
gleði. Ingibjörg hefur þvi á marg-
an hátt verið lánsöm um ævina.
Þau systkin hafa unað sér vel í
Skiðaskálanum, sem hefur stund-
um minnt þau á æskudaga, þó
margt sé ólíkt með lendunum í
Fnjóskadal og Svínahrauni.
Pétur Þ. Ingjaldsson.
» A,f V 1 i\á K\K\T W V Ék\i K\K \kk\i K\K\ * ®
llftmTiWtl ll l\r \f I t V W 1 \ )l \ V t H
Telpa óskast til sendiferða á skrifstofu blaðsins. Vinnutími frá kl. 9 12. M orgunblað ið Bygginga verkfræðingur Byggingaverkfræðingur með tveggja ára starfsreynslu óskar eftir atvinnu sem fyrst. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 21 . febrúar merkt: „Byggingaverkfræðingur — 6597”. 1. vélstjóra og háseta vantar á 75 lesta bát til netaveiða frá Þorlákshöfn. Vélin er ný 460 h. Cummins. Uppl. 1 simum 00-3724, 99-1426 og um borð i m/b Árnesingi, sem verður við Grandagarð laugardag og sunnu- dag.
Tvo háseta vantar Matreiðslumaður Reglusamur ungur matreiðslumaður með meistararéttindi ósk- ar eftir starfi sem fyrst. Hefur mikla reynslu og góð meðmæli. Starf úti á landi kemur vel til greina. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Matreiðslumaður — 9661” fyrir 25.2. '75.
strax á 65 tonna netabát frá Eyrarbakka, sem er byrjaður veiðar. Upplýsingar í. síma 99-3395 og 99- 3360. Stúlka Stúlka óskast nú þegar til bókhalds og skrifstofustarfa. Þarf að búa yfir staðgóðri þekkingu á bókhaldi og bókhaldsstörfum. Nokkur málakunnátta æskileg auk vél- ritunarkunnáttu. Þarf að geta unnið sjálf- stætt. Eiginhandar umsóknir sendist Mbl. fyrir 21. n.k. merkt: „Rösk 6598".
2. vélstjóri 2. vélstjóra eða mann vanan vélum vant- ar á góðan 80 rúmlesta netabát frá Stykkishólmi. Uppl. í síma 83058 Reykjavík. Trjáklipping — áburðardreifing Þórarinn Ingi Jónsson, sími 74870.