Morgunblaðið - 15.02.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1975
23
Sjötuffur í dag:
Ketill Vilhjálmsson
bóndi í Meiri-Tungu
Sjötugur er í dag Ketill Vil-
hjálmsson, bóndi í Meiri-Tungu i
Rangárvallasýslu. Það er ótrúlegt
að hann Ketill í Meiri-Tungu sé
orðinn þetta gamall, þvf að í útliti
og allri hugsun er eins og hann sé
tfu til fimmtán árum yngri.
Ketill fæddist í Meiri-Tungu
hinn 15. febrúar 1905, sonur
Vilhjálms Þorsteinssonar
bónda þar, sem ættaður var frá
Berustöðum,og konu hans, Vigdis-
ar Gísladóttur, sem var ættuð
sunnan úr Höfnum. Ketill ólst
upp í föðurhúsum við bústörf, og
einnig reri hann nokkrar vertíðir
svo sem títt var þá um bændasyni.
Þá var hann um nokkurra ára
skeið vegavinnuverkstjóri.
Árið 1946 kvæntist Ketill Þór-
höllu Ölafsdóttur frá Götu í sömu
sveit, dóttur Ólafs Sigurðssonar
bónda þar og konu hans Sigríðar.
Hófu Halla og Kalli, eins og þau
eru venjulega kölluð, sfðan bú-
skap í austurbænum í Meiri-
Tungu. Ekki varð þeim hjónum
barna auðið, en hjá þeim hefur
alist upp systurdóttir Höllu, Jóna
Sveinsdóttir, og býr hún nú ásamt
manni sínum Gfsla Magnússyni og
börnum þeirra í nýbyggðu húsi í
Meiri-Tungu. Þá hefur faðir
Höllu, Ólafur, verið heimilisfast-
ur hjá Höllu og Kalla síðan hann
brá búi.
Þeir eru margir þúfnakollarnir
sem hafa orðiö að sléttu túni á
búskaparárum Kalla f Meiri-
Tungu. Næstum hvert einasta vor
hafa verið unnir nokkrir hektarar
lands, þannig að nú eru slétt tún
margfalt stærri að flatarmáli en
þau voru fyrir þrjátíu árum síðan.
Þetta er eingöngu að þakka gífur-
legum dugnaði og elju þeirra
hjóna. Bústofninn hefur undan-
farin tíu til tuttugu ár talið
25—30 mjólkandi kýr ásamt um
200 kindum, auk hrossa og ung-
viðis. Nú hafa yngri hjónin, Jóna
og Gísli, tekið við búinu að nokkr-
um hluta.
Ég sem þessar línur skrifa varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að vera
„í sveit“, — eins og sagt er —, hjá
þeim Höllu og Kalla, víst ein tíu
sumur. Þeir eru ófáir sem dvalið
hafa á sumrum í Meiri-Tungu, og
hygg ég að í mörgum þjóðfélags-
stéttum finnist einhver sem verið
hefur í sveit hjá Höllu og Kalla.
Mikið skelfing var alltaf spenn-
andi þegar átti að fara með féð á
fjall, eða þegar sleginn var fyrsti
hringurinn á Heimatúninu í
sláttarbyrjun. Já, manni leið
alltaf vel í Meiri-Tungu.
Fyrir utan þær ræktunarfram-
kvæmdir sem áður eru nefndar,
hefur Kalli alltaf átt í byggingar-
framkvæmdum. Hann hefur
endurnýjað útihúsin að mestu, og
er ekki aldeilis hættur að byggja:
I fyrra byrjaði hann á að byggja
við gamla bæinn og má heita að sú
bygging sé tilbúin. Við þá bygg-
ingu hefur Kalli notið mikillar
aðstoðar eins fyrrverandi „sumar-
stráks", Guðmundar K. Guð-
mundssonar, sem hefur tekið á
sig mikla aukavinnu þessa vegna
og á heiður skilið fyrir.
Lúmskan grun hef ég um að
fjölmennt verði í austurbænum í
Meiri-Tungu í dag og f kvöld, og
vfst er að vel verður veitt. — Eg
vil að lokum óska Kalla, — já og
Höllu líka, því að nú er víst
kvennaár —, til hamingju með
þetta merkisafmæli, og megi þau
bæta sem flestum árum við.
Guðmundur Gunnarsson.
— Skíðasíðan
Framhald af bls. 14
annað en þeir hafi staðið sig
eftir atvikum vel, þar sem þeir
höfðu yfirleitt slæm rásnúmer.
Yfirleitt frá 100—130. Arni
Óðinsson varð í eitt skipti 25. í
svigi, en yfirleitt voru strákarn-
ir í sætum frá 25—60. Arangur
var því góður eftir efnum og
ástæðum. Það ber að taka það
fram, að strákarnir voru allan
tímann á Volkswagen-
rúgbrauði, bíl, sem þeir höfðu á
leigu og óku frá stað til staðar.
Bíllausir hefðu þeir ekki getað
tekið þátt í þessum mótum, þá
má skila þakklæti til Loftleiða
sem styrktu skíðamennina á
margvíslegan hátt.“
„Hvaðan koma helztu fjár-
framlög til SKl?
„Við höfum fengið 125 þús.
kr. frá Olympiunefnd Islands
og gerum okkur vonir um ann-
að eins.“
— Hvað er helzt á döfinni hér
heima?
„Fyrst og fremst eru það
punktamótin. Þau verða haldin
næstum því um hverja helgi að
páskum. Inn i þessi mót kemur
nýbreytni, því nú verða haldin í
fyrsta skipti í mörg ár punkta-
mót í stökki og verða þau hald-
in á Siglufirði og Ólafsfirði, en
það eru einu staðirnir sem hafa
upp á að bjóða einhverja að-
stöðu fyrir stökkmenn. Nú er
samt víða i athugun að koma
upp stökkaðstöðu. Þá leggjum
við núna áherzlu á að útskrifa
skíðadómara. Sem stendur eru
sárafáir hér með þessi rétt-
indi og ætlum við að lagfæra
þessi mál með því að
halda dómaranámskeið. Fyrsta
námskeiðið verður haldið á
Akureyri og síðan koma Isa-
fjörður og Reykjavik. Skiðamót
Islands verður haldið á Isafirði
um páskana og unglingalands-
mótið verður á Akureyri."
— Hvað fær skfðasambandið
mikinn ríkisstyrk?
„Á s.l. ári fékk sambandið
250 þús. kr. og standa vonir til
að styrkurinn hækki á þessu
ári, en erfiðast er að fá þessar
upphæðir útgreiddar."
— Væri ekki eðlilegra að SKl
fengi hærri ríkisstyrk en önnur
sérsambönd, þar sem ríkið
hefur miklu hærri tollatekjur
af skíðavörum en öllum öðrum
íþróttavörum til samans?
„Okkur fyndist eðlilegt að við
fengjum eitthvað á móti þess-
um miklu tollatekjum, en þetta
atriði er bara ekki lagt til
grundvallar þegar úthlutað er
til sérsambandanna.“
— Hverjar eru hinar föstu
tekjur SKt fyrir utan ríkis-
styrkinn?
„Þeir aðilar sem taka að sér
að halda Islandsmót verða að
borga 15 þús. kr. til sambands-
ins og þeir sem halda punkta-
mót borga 5000 þús. kr. Þá för-
um við venjulegar fjáröflunar-
leiðir. Þeirri hugmynd hefur
einnig verið hreyft, að SKl
fengi ákveðinn hundraðshluta
af aðgangseyri i skíðalyftur
landsmanna, jafnvel 1%, en
ekki'er vitað hvernig því máli
lyktar. Það er afleitt þegar tími
stjórnarinnar fer meir í að afla
fjár en að skipuleggja starfið.
Þetta ár hefur alveg mótast að
þvi að Olympiuár er framund-
an. I því sambandi fóru 12
skíðamenn til Frakklands á
stórsvigsnámskeið og tveir
skiðamenn hafa verið hjá
Magnúsi Guðmundssyni í
Bandaríkjunum. Einnig eru 4
göngumenn við æfingar í Nor-
egi, en þetta fólk fór allt á eigin
vegum til æfinga."
— Þeir eru sem sagt margir
sem hafa áhuga á að komast í
Olympíulið lslendinga?
„Já, ekki er hægt að neita
þvi, en lið okkar á Olympíu-
leikunum verður valið í sam-
ráði við Olympíunefnd Islands,
en formaður hennar er GIsli
Halldórsson, forseti ISI. Vissu-
lega verður nauðsynlegt að
velja Olympiulið ekki síðar en
um páskana. Þessir frægu leik-
ir verða nú haldnir á mjög
heppilegum stað, sem er Inns-
bruck i Austurriki, en sem
kunnugt er þá voru síðustu
leikir haldnir i Japan og var
það í fyrsta skipti, sem Islend-
ingar tóku ekki þátt i þeim.“
— Hefur ekki aðstaða til
skfðaiðkana batnað mikið víð-
ast hvar á landinu að undan-
förnu?
„Gifurleg og ör þróun hefur
orðið í lyftumálum meðal ann-
ars meó hjálp bæjarfélaga, en
sums staðar eru félögin ein að
verki. Hér i nágrenni Reykja-
víkur hafa risið nýjar lyftur i
Bláfjöllum og Skálafelli. Þá
hefur verið sett upp ný lyfta á
Akureyri og önnur á Húsavík.
Þá er vitað að í bigerð er að
setja upp lyftur á Dalvik og á
Siglufirði, en flestir helztu
skíðastaóirnir eru nú búnir að
koma sér upp ágætis aðstöðu.“
— Hver er óskadraumur
ykkar hjáSKl?
„Hann er að við getum verið
með fastráðinn þjálfara fyrir
landslið okkar. Því miður
standa fjarlægðir enn mikið í
vegi fyrir því að við getum
mikið tekið þátt i erlendum
keppnum, en við verðum að
leggja þvi meiri áherzlu á
keppni okkar hér heima og
norrænu greinarnar, stökk og
ganga, þurfa að koma betur inn
í myndina. — Þ. Ó.
— Sjómanna-
síðan
Framhald af bls. 24
áður um nóttina. Ekki heldur
þetta áfall dró úr baráttu
kjarkinum, heldur tóku menn
til að af auknum krafti og
sem óþreyttir væru að moka
og ausa. Mennirnir brögðuðu
hvorki vott né þurrt í þrjátíu
tima og baráttan var allan
tímann hörð og sleitulaus, þó að
hún væri tvisýnust um nóttina
og fram yfir hádegi á sunnu-
daginn. Enginn maður mælti
æðru orð allan þennan tíma eða
svo hefur sagt mér sannorður
maður, sem þarna var um borð,
og er það einnig samhljóða því,
sem Sveinn hefur eftir sínum
sögumönnum, nema Steini í
Lindinni, frægur maður fyrir
sjókulda sinn, hafði orð á því
um nóttina, þegar hásetarnir
voru að búa sig til að brjótast
aftur í skipið til verka, að það
tæki því ekki — þar sem einu
gilti, hvort maður dræpist
afturí eða framL — Ég hitti á
förnum vegi á dögunum einn
skipverjana af Agli. Hann var
um tvítugt þegar þetta var.
Ekki segist hann minnast þess,
að sér hafi orðið ýkja mikið um
meðan á þessu stóð, þó að hann
gerði sér hættuna ljósa „—
enda var ég þá ungur —“ en
aldrei kvaðst hann myndu
gleyma þessu veðri og það sagð-
ist hann ekki telja að neinn
gerði, sem var á Halamiðum í
Halaveðrinu. Enginn þeirra
manna sem margir sáu hann
svartan bæði áður og eftir,
muna annað eins veður.
Aldrei hefur nokkur fiski-
floti verið jafnvel mannaður og
íslenzki togaraflotinn á þessum
tima.
Þóra Magnúsdóttir
80 ára 8. febr. si
Endurminningarnar knýja á,
þegar góðvinkona min stendur á
merkum tímamótum. Það var á
árunum 1934 eða ’35 að ég tók
eftir glæsilegri konu á götum
Akureyrar, en þá hafði ég sest þar
að. Ekki vissi ég í fyrstu hver
þesssi kona var, en maður hlaut
að taka eftir henni á fallegum
íslenzkum búningi með franskt
sjal. Það sópaði sannarlega að
þessari konu og fljótlega fékk ég
að vita að þetta var frúin í Fagra-
skógi, gift Stefáni Stefánssyni
lögfræðingi, sfðar alþingismanni.
Seinna varð ég svo lánsöm að
kynnast frú Þóru og eignast vin-
áttu hennar, sem aldrei hefir
neinn skugga borið á.
Oft sátum við hjónin stórar
veislur á heimili þeirra hjóna
sem ætíð voru haldnar með
miklum myndarbrag. Á þessum
tímamótum langar mig til að
þakka Þóru fyrir öll elskuleg-
heitin bæði fyrr og síðar. Hún lét
aldrei veður eða færð hamla sér
ef hún ætlaði að gleðja mig með
nærveru sinni og bæði það og
annað frá hennar hendi fæ ég
aldrei full Þakkað.
Innilegar hamingjuóskir frá
mér og börnum mínum.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Rýmingarsala
Seljum nokkuð lítið gölluð raðstóla- og horn-
sófasett með miklum afslætti. Höfum einnig
ódýra svefnbekki og skrifborðsett.
Opið í dag laugardag.
iMÝSMíen SFc
Auðbrekku 63, simi 44600.
SKIPSTJÓRA- OG
STÝRIMANNAFÉLAGIÐ
ALDAN
Aðalfundur verður haldinn að Bárugötu 1 1 í
dag kl. 14.
Stjórnin.
Safamýri
Vönduð, tæplega 100 fm íbúð á 4. hæð til
sölu. Tvennar svalir, sér hiti, mjög gott útsýni.
Upplýsingar i síma 36492.
BREIÐHOLTSBÚAR ATHUGIÐ
NÝTT — NÝTT
Munið kalda borðið hjá okkur. Tilvalið í ferm-
ingarveizlur. Höfum einnig mikið úrval af snitt-
um og smurðu brauði.
Sendum heim.
NÝ-GRILL,
Völvufelli 1 7,
sími 71355.
Sjúkrahús á Neskaupstað
Tilboð óskast i að reisa og gera fokhelda Sjúkrahúsbyggingu á
Neskaupstað.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri og Bæjarskrifstofu Neskaup-
staðar, gegn skilatryggingu kr. 10.000.—
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri 1 1. mars 1 975, kl. 1 1:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTtJNI 7 SÍMI 26844