Morgunblaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1975
35
ÍMTAFRÍTTIR MORGIINRLAÐSIRIS
Sjónvarpsleikm’inn:
Stoke — West Ham
FLESTIR þeir, sem sáu sjón-
varpsleikinn s.l. iaugardag ljúka
upp einum munni um þá góðu
skemmtun sem þeir fengu við að
horfa á glæsilega knattspyrnu
sem Stoke City sýndi þá. 1 dag
sýnir sjónvarpið annan leik með
Stoke — sem að þessu sinni kepp-
ir við West Ham. Leikur þessi fór
fram 28. desember og lauk með
sigri Stoke 2—1.
Bjarni Felixson sagði að leikur
þessi hefði legið hjá Sjónvarpinu
nokkra hríð, og hefði átt að nota
hann sem varaleik, ef það brygð-
ist að leikur vikunnar kæmi á
réttum tíma. Þetta hefði svo gers't
nú. Ætlunin hefði verið að sýna
leik Leeds og Derby frá síðustu
viku, en hann myndi ekki berast í
tæka tið.
Margir munu sjálfsagt fagna
því að sjá heldur leik Stoke og
West Ham, en þegar þessi leikur
fór fram voru bæði liðin við topp-
inn á ensku 1. deildar keppninni.
Leikur Leeds og Derby sem fram
fór s.l. laugardag, lauk með jafn-
tefli 0-0, og þótti fremur tilþrifa-
lltill, þannig að sennilega er ekki
af miklu misst þótt hann verði
ekki sýndur strax.
Hljómskálahlaup
á sunnudag
HLJÖMSKALAHLAUP, annað í
röðinni fer fram á sunnudaginn
og hefst klukkan 14. Siðast þegar
hlaupið var mættu 66 unglingar
til leiks. Þeir, sem ætla að verða
með i þessu hlaupi eru beðnir að
mæta ekki seinna en klukkan
13.45.
Lið Stoke og West Ham voru
þannig skipuð í leiknum 28. des.
Stoke
Nr. 1
Nr. 2
Nr. 3
Nr. 4
Nr. 5
Nr. 6
Nr. 7
Nr. 8
Nr. 9
Nr. 10
Nr. 11
Shilton
Marsh
Pejic
Mahoney
Smith
Dodd
Conroy
Greenhoff
Hurst
Hudson
Salmons.
West Ham
Nr. 1 Day
Nr. 2 Coleman
Nr. 3 Lampard
Nr. 4 Holland
Nr. 5 T. Taylor
Nr. 6 Lock
Nr. 7 A. Taylor
Nr. 8 Paddon
Nr. 9 Gould
Nr. 10 McDowell
Nr. 11 Best.
„Old boys”
hjá Stjörnunni
„OLD boys“ æfingar í knatt-
spyrnu eru nú að hefjast hjá Ung-
mennafélaginu Stjörnunni í
Garðahreppi. Verða æfingar þess-
ar í Iþróttahúsinu Ásgarði á
föstudögum og hefjast kl. 22.00.
V1 kingur gegn IS
leika 1 blakmótinu
A morgun sunnudag verður úr-
slitakeppni 'lslandsmótsins 1 blaki
fram haldið. Þá leika Vfkingur og
ÍS og verður leikið I iþróttahúsi
Kennaraháskólans við Háteigsveg
og hefst leikurinn um kl. 16.30.
Búast má við hörkuleik því svo er
jafnan er þessi lið mætast og í
úrslitakeppninni I fyrra þurfti
Alþ jóða-hnef aleikasam-
bandið hefur ákveðið að viður-
kenna ekki leik Muhammads
Ali við Wepner 24. marz n.k.
sem baráttu um heimsmeist-
aratitilinn f hnefaleikum
þungavigtar. Fylgdi þessi
ákvörðun sambandsins i kjöl-
far kröftugra mótmæla sem
borizt höfðu víða að, sérstak-
lega frá Bretum, sem eru Ali
reiðir vegna þess að hann vildi
ekki mæta þeirra stjörnu,
Bugner.
Astæðan fyrir því að sam-
bandið viðurkennir ekki leik-
inn, er frá þess hálfu sögð sú,
Keppni Ali við Wepn-
er ekki viðurkennd
að Wepner sé ekki í hópi 10
beztu hnefaleikara heimsins i
þungavigtarflokki, en slíkt
verði að vera skilyrði framveg-
is til þess að leikur heimsmeist-
ara geti talist vörn titils. Telur
sambandið að Wepner sé að-
eins 15. f röðinni á áskorenda-
listanum, en Ali bendir aftur á
móti á, að hann hafi verið f
áttunda sæti, er hann ákvað
keppnina við hann.
Miklar umræður urðu um
það f stjórn hnefaleikasam-
bandsins hvort svipta bæri Ali
heimsmeistaratitlinum fyrir
þessa ákvörðun sína. Niðurstað-
an varð sú, að slíkt bæri ekki að
gera að þessu sinni, heldur að-
eins veita honum ákveðna
áminningu. Jafnframt var svo
ákveðið að Wepner yrði ekki
viðurkenndur heimsmeistari
þótt svo ólíklega vildi til að
hann sigraði f keppninni.
Muhammad Ali hefur lftið
æft siðan hann varð heims-
meistari, og vekur það nokkra
furðu að hann skuli leggja út f
keppni nú, jafnvel þótt and-
stæðingurinn sé ekki talinn f
fremstu röð. Að undanförnu
hefur Ali ferðast um Afrfku-
ríki og haldið fyrirlestra þar
um hnefaleika og yfirburði
svarta kynstofnsins. Ætlar
hann að Ijúka ferð sinni með
því að heimsækja Suður-
Afriku. Þegar Ali var á það
bent að óvfst væri að hann
fengi að koma þangað, kvaðst
hann alls óhræddur. — Eg gef
bara þessum stjórnmálamönn-
um einn á glannann ef þeir
ætla sér að setja fótinn fyrir
mig, sagði hann.
fimm hrinur til að úrslit fengj-
ust.
Aóeins einum leik er lokið i
úrslitunum og sigraði ÍMA þá
Þrótt og hleypti það óneitanlega
spennu i mótið því sigur IMA kom
mönnum sannarlega á óvart og
eru þeir líklegir til að blanda sér í
toppbaráttuna. Segja má að allir
leikir séu úrslitaleikir því mörg
liðanna eru mjög jöfn að getu og
geta leikirnir farið á báða vegu,
og þessi leikur á morgun er það
sannarlega. I undankeppninni
Fær UMFN
var Víkingur eina liðió sem veitti
IS einhverja keppni, en þeir hafa
verið ósigrandi i vetur.
1 tilefni af fyrsta leiknum
Sunnanlands f útslitakeppninni
er rétt að rifja upp úrslitin í und-
ankeppninni, en þau urðu sem
hér segir:
IS
6-6-0 12-1 194-90 12
UMFL 6-4-2 9-4 169-121 8
Þróttur 6-4-2 9-5 175-144 8
Víkingur 6-4-2 9-7 207-191 8
UMFB 6-2-4 5-9 131-172 4
UBK 6-1-5 4-10 116-168 2
HK 6-0-6 0-12 44-180 0
hjáFH
— ÉG TALAÐl við Pat Quinn
núna f fyrradag, og þá staðfesti
hann, að hann myndi koma til
FH, sennilega um miðjan marz,
eða alla vega ekki seinna en f
marzlok, sagði Arni Agústsson,
varaformaður FH, f viðtali við
Morgunblaðið f gær, en þær frétt-
ir höfðu borizt að Quinn ætlaði
sér að svfkja FH-inga og væri
búinn að taka að sér þjálfun hjá
1. deildar liðinu Patrick Thistle f
Skotlandi.
— Það er að vísu rétt, sagði
Arni, — að Quinn þjálfar hjá
Patrick tvisvar í viku um þessar
mundir, á þriðjudögum og
fimmtudögum, en hann er með
óbundinn samning með þessa
þjálfun, og ætlar sér ákveðið að
koma. Það eru fyrst og fremst
persónuleg mál sem ráða því að
hann getur ekki komið alveg á
þeim tíma, sem ráðgerður hafði
verið.
Arni sagði, að unz Quinn kæmi,
sæi Daníel Pétursson, íþrótta-
kennari og knattspyrnumaður
með FH, um þjálfun liðsins. Þá
sagði Árni ennfremur að FH-
ingar stefndu að því að leika
heimaleiki sína i Kaplakrika
næsta sumar, og þá á malarvelli.
— Það þarf raunar að gera svæð-
inu mikið til góða, áður en hægt
verður að leika þarna, sagði Arni,
— en við höfum góðar vonir um
að það takizt. Misheppnist það
hins vegar er það ætlun okkar að
reyna að semja við Njarðvíkinga
og leika okkar heimaleiki á gras-
vellinum þar.
Árni sagði, að vonir stæðu til
þess að FH-ingar fengju í vor aó-
stöðu til þess að æfa á grasi, en
slíkt væri mjög mikils virði fyrir
liðið, sem yrði að leika a.m.k.
annan.hvern leik sinn á grasvelli i
sumar.
10« þúsund? Meistaramót
í Garðahreppi
ÞAÐ ERU ekki bara stigin tvö
sem eru f húfi hjá UMFN þegar
þeir ganga til leiksins gegn IR í
dag. Meðal áhangenda liðsins hef-
ur farið fram áheitasöfnun að
undanförnu, og hefur hún gengið
vel. Sigri UMFN f dag, munu þeir
fá á annan hundrað þúsund kr. frá
áhangendum sfnum. Slfkt væri
kærkomið félaginu sem sennilega
hefur ekki úr of miklu að spila
fremur en önnur félög.
Það er þvf mikið í húfi fyrir
liðsmenn UMFN í dag. Þeir geta
stöðvað sigurgöngu IR í mótinu,
og um leið aukið möguleika á
sigri sínum í mótinu — og bætt
álitlegri fúlgu f sjóðinn.
gk.
FRJÁLSÍÞRÖTTADEILD Ung-
mennafélagsins Stjörnunnar i
Garðahreppi býður öllum Garð-
hreppingum að horfa á fyrsta Is-
landsmeistaramótið í frjálsum
íþróttum sem fram fer í íþrótta-
húsinu nýja, Ásgarði, í dag. Það
verða drengir og stúlkur sem
reyna með sér og auk þeirra
munu svo nokkrir af beztu há-
stökkvurum iandsins keppa sem
gestir.
Keppnin hefst kl. 14.00 i dag og
verða keppnisgreinar eftirtaldar:
Stúlkur: Hástökk, langstökk án
atrennu.
Drengir: Hástökk, langstökk án
atrennu, þrístökk án atrennu, há-
stökk án atrennu og kúluvarp.
Glímudeild kvenna
MERKUR viðburður verður f ís-
lenzkri glfmusögu f dag, en þá
stofna Ármenningar fyrstu
glímudeildina fyrir konur sem
um getur í þessari þjóðarfþrótt
Islendinga gegnum aldirnar.
Er það vel til fundið að gera
slíkt núna á kvennaárinu, og ef að
likum lætur munu ungar stúlkur
notfæra sér það tækifæri sem
býðst til glímuiðkana. Þótt glímu-
íþróttin viróist í fljótu bragði
vera fremur við hæfi karla, ættu
stúlkur ekki siður að geta stundað
hana en t.d. júdó, sem er að verða
mjög vinsæl íþróttagrein hjá
kvenfólkinu.
Stofnfundur glimudeildarinnar
verður í Iþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar kl. 16.00 i dag.
Halldór
þjálfar
Stjörnuna
3. DEILDAR-LIÐ Stjörnunnar
í Garðahreppi hefur nú ráðið
sér þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil. Er það hinn
gamalkunni knattspyrnugarp-
ur úr Val, Halldór Halldórs-
son. Mun Halldór þjálfa meist-
araflokk og 2. flokk félagsins.
Einn bezti leikmaður Stjörn-
unnar undanfarin ár, Guó-
mundur Ingvason, hefur nú
ákveðið að skipta um félag og
mun hann leika með KR næsta
sumar. Guðmundur hefur leik-
ið marga unglingalandsleiki og
var m.a. í hinu sigursæla Faxa-
flóaúrvali á árunum.