Morgunblaðið - 15.02.1975, Qupperneq 36
LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1975
Jltoggtmfrlitfrifr
RUGLVSinGDR
^t*-»22480
3W«r0unl)Ifil>il>
nUGIVSIilCflR
^^-»22480
Norglobal færir
sig suður á bóginn
Búið að brœða um 11 þús. lestir
NORSKA verksmiðjuskipið Norg-
iobai mun færa sig suður á bðg-
inn á eftir veiðiflotanum um
helgina. Að lfkindum mun skipið
leggjast við festar á svæðinu frá
Hornafirði til Vestmannaeyja, en
ekki þykir ósennilegt að þuð
muni leggjast fyrst undan Skaft-
árósum.
Norglobal var f gær búið að
taka á móti rétt um 13 þús. lestum
af loðnu og búið var að bræða
10.700 lestir. Er þvf sennilega
engin verksmiðja á landinu búin
að bræða eins mikið magn. Af-
köstin f gær voru orðin í kringum
1800 lestir miðað við sólarhring.
38 kr. fyrir
stórþorskinn
— og 25 kr. fyrir kílóið af ufsanum
Ntf ER verðútreikningi á flestum
tegundum bolfisks lokið og að
sögn Sveins Finnssonar, fram-
kvæmdastjóra Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins, verður verðið birt í
heild eftir helgina. Við þessa
verðákvörðun hafa átt sér stað
miklar breytingar frá þeirri síð-
Geirfinnsmálið:
Engar nýjar
upplýsingar
AÐ SÖGN Hauks Guðmundssonar
rannsóknarlögreglumanns í
Keflavík hefur enginn gefið sig
fram með nýjar upplýsingar í
Geirfinnsmálinu síðan ónefndur
aðili bauð þeim hálfa milljón, sem
gæti bent lögreglunni á lausn gát-
unnar. Boðið stendur enn; sá sem
kemur með upplýsingar sem
verða til þess að Geirfinnsmálið
leysist, fær 500 þúsund krónur
að launum. Fullri þagmælsku er
heitiö af hálfu lögreglunnar í
Keflavík. Lögreglan vinnur af
fullum krafti að rannsókn máls-
ins, en ekkert stefnumarkandi
hefur þó komið út úr þeirri rann-
sókn ennþá, að sögn Hauks.
ustu, fyrst og fremst vegna þess
að gæðaflokkum er fjölgað og
meiri áherzla verður lögð á að fá
stóran fisk, en hann er f lang
hæstu verði erlendis.
Þorskur er núna verðlagður í
þremur flokkum i stað tveggja
áður og er verðið þetta: þorskur
75 sm og lengri kr. 38 kr. kilóió
(hér er átt við 1. flokks fisk),
þorskur 54—74 sm. kr. 32 kílóið
og smáþorskur 43—53 sm kr. 19
kílóið. Aður var verðið á þorski
það, að fyrir fisk, sem var 57 sm.
og lengri voru greiddar kr. 30.25
pr. kg. og fyrir smáþorsk 20.55 kr.
pr. kg.
Fyrir ýsu, sem er 54 sm og
lengri verða nú greiddar kr. 32
fyrir kflóið og fyrir smáýsu
40—53 sm 19 kr. kílóið. Áður voru
borgaðar kr. 30.55 fyrir ýsukg af
stærðinni 50 sm og lengri og fyrir
smáýsu 20.15 kr.
Ufsinn er nú einnig settur í 3
stærðarflokka, og fyrir ufsa sem
er 85 sm. og lengri verða greiddar
25 kr. fvrir kílóið, fyrir ufsa af
stærðinni 54—85 sm. 20 kr. kílóið
og fyrir ufsa 53 sm. og styttri 14
kr. fyrir kílóið. Við síðustu verð-
ákvörðun var verð á ufsa 57 sm.
og yfir ákveðið kr. 19.70 pr. kg. og
fyrir ufsa undir 43 sm kr. 13.80
pr. kg.
Ljósmynd Ól.K.M.
NORÐURLANDARAÐ — Þessi mynd var tekin á fundi Forsætisnefndar Norður
landaráös í Alþingishúsinu í gærkvöldi.
30-40% sykurlækkun
á heimsmarkaðnum
Lœkkunar ekki að vœnta hér í bráð
TÖLUVERÐ lækkun hefur orðið
á heimsmarkaðsverði á sykri að
undanförnu. Nemur lækkunin
30—40% frá því sem sykurverðið
komst hæst, að sögn Ólafs Ó.John-
son, forstjóra O. Johnson & Kaab-
er, sem er stórinnflytjandi syk-
urs. Heimsmarkaðsverðið er þó
ekki komið niður í það verð sem
við Islendingar höfum keypt á
sykur og er því ekki að vænta
lækkunar hér I bráð a.m.k.
Að sögn Ólafs er sykurmarkað-
urinn mjög óviss sem stendur og
þróun mála hefur ekki orðið sú
sem ýmsir væntu. Spákaupmenn
keyptu mikið magn sykurs á háu
verði í von um að geta selt hann
til Bandaríkjanna, en sú von hef-
ur brugðist og Bandaríkjamenn
ekki enn gert stórinnkaup á sykri.
Hafa spákaupmennirnir margir
hverjir orðið að losa sig við sykur-
inn á mun lægra verði en þeir
óskuðu eftir. Þá eru framundan
stórkaup hjá ríkjum Efnahags-
bandalags Evrópu, sem ætla á
næstunni að kaup 250 þúsund
tonn af sykri, og Hollandi, sem
ætlar að kaupa 50 þúsund tonn.
Mun markaðurinn þá vær.tanlega
skýrast.
Aðspurður um kaffiverð á
heimsmarkaði sagði Ólafur, að
hann sæi ekki framundan hækk-
anir á kaffi og ekki heldur lækk-
anir. Kaffimarkaóurinn væri
miklu stöðugri en sykurmarkað-
urinn, því heil 7 ár liðu frg þvi
kaffiplöntunni væri plantað og
þar til uppskera fengist.
Rætt við Pól-
verja um sölu
á loðnumjöli
Matthías Bjarnason í viðtali við Morgunblaðið:
Eðlilegt að mikill hluti gengishagnaðar
gangi til greiðslu á gengistapi fiskiskipa
Þá verður gengisbreytingin útgerðinni hagstœð
SÚ staðhæfing forsvarsmanna
útgerðarinnar, að vandinn I út-
gerðinni sé óleystur þrátt fyrir
20% gengislækkun hefur að
vonum vakið nokkra athygli.
Morgunblaðið sneri.sér í gær
til Matthíasar Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra og leitaði
álits hans á þessu máli. Sjávar-
útvegsráðherra sagði;
— Ef hver grein sjávarút-
vegsins fyrir sig metur gengis-
breytinguna án hliðarráðstaf-
ana þá þýðir það, að þeir sem
selja útflutningsafurðirnar úr
landi mundu njóta algerlega
hagnaðarins sem verður af
gengisbreytingunni. Þess
vegna er nauðsynlegt að gera
tilfærslur innan hinna ýmsu
greina sjávarútvegsins. Sú
grein sjávarútvegsins, sem
verður fyrir mestum verð-
hækkunum af völdum gengis-
breytingarinnar, er útgerðin.
Ég hef séð haft eftir talsmönn-
um útvegsins, að fiskverðs-
hækkunin geri ekki meira en
standa undir þeim útgjöldum,
sem útgerðin verður fyrir af
völdum gengisbreytingarinnar.
Ég leyfi mér að fullyrða, að
þessi staðhæfing er röng hvaó
snertir bátaflotann almennt.
Þar gerir fiskverðshækkunin
að mínum dómi mun meira
fyrir útgerðina en sem nemur
hækkun á rekstrarvörum. Hvað
togarana varðar þá tel ég senni-
legt, að þeirra hlutur batni ekki
vegna þess, að þetta eru yfir-
leitt ný skip, sem miklar
erlendar skuldir hvíla á. En ég
vil benda á, að við síðustu
gengisbreytingu í september
var ákveðið að verja úr gengis-
hagnaðarsjóði 600 milljónum
króna til þess að greiða upp I
gengistap af lánum fiskiskipa-
stólsins. Jafnhliða þessu var
Framhald á bls. 20
Matthfas Bjarnason.
— UTLITIÐ um sölu á loðnumjöli
til Póllands er hreint ekki bjart
framundan, sagði Haraldur Har-
aldsson hjá Andra h.f., en fyrir
skömmu kom hann ásamt Sigurði
Sigurðssyni hjá Ólafi Gislasyni
h.f. úr viðræðuferð til Póllands,
þar sem þeir ræddu við pólska
mjölkaupendur.
Haraldur sagði að þessum við-
ræðum væri ekki lokið enn og
margt gæti því breytzt. En til
marks um ástandið, þá seldu Dan-
ir Pólverjum 17 þús. lestir af
loðnumjöli fyrir skömmu á verði
sem er í kringum 3.60 dollarar
proteineiningin.
S.R. á Siglufirði
borga 3,6 millj.
kr. í vikukaup
Siglufirði, 14. febrúar.
ÚITBORGAÐ kaup Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði í s.l.
viku var um 3.6 millj. kr., en núna
meðan á bræðslu stendur vinna
um 60 manns hjá fyrirtækinu.
Annan tíma ársins, þegar ekki er
brætt í verksmiðjunni nemur út-
borgað kaup um 600 þús. kr. á
viku.
— Fréttaritari