Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRlL 1975 Álandsey j asýningin strandaglópur í Osló LlKLEGA er það einsdæmi að sýning sé opnuð án þess að sýn- ingin sjálf sé viðstödd en allar horfur eru þó á því að svo verði þegar menntamálaráðherra opn- ar Álandseyjasýninguna í Norræna húsinu í dag og setur Guðmundur með- al þriggja efstu GUÐMUNDUR Sigurjónsson, Larry Evans, fyrrum skák- meistari Bandarikjanna, sem dvaldi á Islandi sem fréttamaður er heimsmeistaraeinvigið var haldið hér, og Miguel Quinteros frá Argentínu eru jafnir og efstir með fjóra vinninga eftir fimmtu umferð Louis D. Statham- skákmótsins i Lone Pine i Kali- forníu í gær, að því er AP- fréttastofan segir. Evans hefur tapað einni skák en unnið fjórar í röð, Guðmundur og Quinteros hafa unnið þrjár og gert tvö jafn- tefli. Sjötta umferðin verður tefld á sunnudag, og verður síðan tefll daglegatil fimmtudags. Piltur slasast Akureyri 1H. april Tveir sextán ára piltar á reið- hjóli urðu fyrir bíl á mótum Hafnarstrætis og Kaupvangs- strætis um hádegi í dag og köstuð- ust i götuna. Annar piltanna meiddist ekki, en hinn hlaut höfuðhögg og skurð á vanga, en þau meiðsli eru þó ekki talin al- varlegs eðlis. Sv.P. Albert Guðmundsson: Styð ekki rík- isstjórnina Á FUNDI borgar- stjórnar sl. fimmtudag lýsti Albert Guðmunds- son yfir því, aó hann hefði ekki tekið þátt í myndun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Sú stefna, sem ríkis- stjórnin hefði ákveðið í efnahagsmálum væri nákvæmt framhald af vinstri stjórninni. Þvi hefði hann í þingflokki sjálfstæðismanna tekið afstöðu til þessarar rikis- stjórnar i samræmi við afstöðu sína til vinstri stjórnarinnar. ÞANKASTM - þar með Alandseyjavikuna sem Norræna húsið gengst fyrir. Við- staddir verða um 200 íslenzkir gestir auk milli 20 og 30 Alands- eyinga sem til landsins áttu að koma í gærkvöldi. Sjálf Álands- eyjasýningin varð hins vegar strandaglópur I Ósló eftir þvf sem næst verður komizt. „Álandseyingar hafa lagt mikla vinnu og tíma í undirbúning á þessari sýningu, henni var komið fyrir í stórum gámi og send sjó- leiðina frá Alandseyjum fyrir um það bil sex vikum,“ sagði Þóra Kristjánsdóttir, umsjónarmaður sýninga Norræna hússins, þegar Mbl. leitaði frétta af sýningunni. „Fyrir um viku kom svo hingað til landsins ungur maður frá Álandseyjum til að setja upp sýn- inguna, en ekkert bólaði á send- ingunni þótt hún ætti að vera löngu komin með skipi." Þegar tekið var að grennslast fyrir um afdrif gámsins kom í ljós að hann hafði orðið eftir á hafnar- bakkanum í Gautaborg, þar sem islenzkt skip átti að taka hann. Þá var kominn miðvikudagur og þess vegna ákveðið að senda sýning- una samstundis með flugi. Það féll hins vegar niður þann daginn, ekkert flug var til landsins næsta dag og þess vegna var gámurinn sendur áleiðis til Óslóar frá Gautaborg til að koma sýningunni Framhald á bls. 31 Útlitið svart á lagmetismörkuðunum: Nauðsynlegt að tolla- ívilnanir EBE tald gildi — Vægast sagt er útlitið nokk- uð svart á okkar helztu lagmetis- mörkuðum og þó sérstaklega hvað varðar Efnahagsbanialagslöndin, en Islendingar hafa ekki enn fengið þar tollaívilnanir vegna af- stöðu Þjóðverja til okkar í land- helgismálinu, sagði Örn Erlcnds- son, forstjóri Sölustofnunar lag- metis, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Örn sagði, að japanski markað- urinn væri nú alveg lokaður vegna efnahagskreppu þar. Þar væri aðalmarkaðurinn fyrir niðursoðna loðnu, en þangað seld- ist ekkert sem stæði. Hvað Rúss- landsmarkaðinn snerti, þá ættu íslendingar ekki til þá tegund lag- metis, sem Rússar vildu. Það væri síld og hún væri ekki til i augna- blikinu. Þá spurðum við Örn hvort ekki væri sæmilegur markaður fyrir kavíar. Sagði hann, að kavíarinn hefði að mestu leyti verið seldur til landa Efnahagsbandalagsins, en nú væri þar erfitt um vik vegna afstöðu V-Þjóðverja til Is- lendinga i landhelgismálinu og er það okkar erfiðasti þröskuldur nú og leysist ekki fyrr en við fáum umsamdar tollaívilnanir. — Það er aðeins einn bjartur punktur fram undan og hann er sá, að aðeins þriðjungur ársins er liðinn en okkar aðalsala fer ávallt fram síðari hluta árs, sagði hann. Ljósm. Mbl.: Guðfinnur Slökkviliðsmenn kljást við brunann f Bflaverkstæði Grindavfkur. Milljónatjón er Bílaverk- stæði Grindavíkur brann Grindavík, 18. apríl. KLUKKAN rúmlega 10 f morgun kom upp eldur f Bfla- verkstæði Grindavfkur að Vfkurbraut 1. Bifreiðaverk- stæðið hefur verið starfrækt f gamalli söltunarstöð, og f við- byggingu var verbúð. Einn sjó- maður hafði þar herbergi og var á sjó þegar eldurinn kom upp. Miklar skemmdir urðu á húsunum og eru þau talin ónýt. 1 verkstæðisbyggingunni voru 5 fólksbflar og 1 Willys-jeppi, sem brunnu þar ásamt tækjum, vörulager og verkfærum. Allt þetta er talið ónýtt. Eldurinn brauzt út þegar verið var að logsjóða undir fólksbifreið. Sæmilega vel gekk að slökkva eldinn þrátt fyrir slæmar aðstæður. Auk vatns var dælt sjó á húsin. Nokkuð háði slökkvistarfi hve margt barna dreif að og tafði fyrir slökkviliðsmönnum. Tjón í þessum eldsvoða skiptir milljónum króna. Guðfinnur. Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm. BJÖRGUNARSKIPIÐ Goðinn hélt af stað til Englands um kl. 16 í gær með togarann D.P. Finn f togi. Gert er ráð fyrir, að ferðin til Hull taki 7—8 daga. Engir menn eru um borð f togaranum, og er hann dreg- inn, cins og heitir á máli sjómanna, sem „dautt skip“. Rækjumiðin í Axarfirði ekki minni en í Amarfirði LtTIÐ hefur frétzt um rækju- veiði f Axarfirði sfðustu daga, en sem kunnugt er fundust þar góð Hafnargjöld innheimt eftir nýrri gjaldskrá Reglugerð óbirt enn NOKKRAR af höfnum iandsins munu hafa tekið f notkun nýja gjaldskrá, þrátt fyrir að hún hafi ekki verið auglýst f stjórnartíð- indum, eins og vera ber lögum samkvæmt. Flestir munu hafa greitt eftir þessari nýju gjaldskrá án þess að fara orðum um þetta, en þeir eru til sem ekki eru alls- kostar ánægðir. Morgunblaðið hafði f gær samband við Gunnar Guðmundsson, hafnarstjóra í Reykjavík og formann Hafnar- sambands sveitarfélaga, og spurði hverju þetta sætti. Gunnar sagði, að þann 4. marz s.l. hefði samgönguráðherra stað- fest hina nýju gjaldskrá, en þá hefðu verið gefin fyrirheit um að reglugerð um hana yrði birt fljót- lega. Hafnarsjóðir hefðu víða far- ið að nota hina nýju gjaldskrá, enda var hér um líf eða dauða hafnanna að tefla, sagði Gunnar. Siðan sagði hann, að í Reykjavík hefði enginn hreyft neinum mót- mælum og eftir því sem bezt væri vitað yrði reglugerðin birt á næstu dögum. Sótt var um þessar gjaldskrárhækkanir í nóvember s.l. rækjumið fyrir skömmu. Vitáð er að bæði Kópaskersbúar og Hús- víkingar hafa mikinn áhuga á þvf að nýta þessi mið. Ættu þau ekki sfzt að geta komið fbúum á Kópa- skeri f góðar þarfir, þar sem atvinnulíf hefur verið fábrotið þar undanfarin ár. Morgunblaðið hafði f gær samband við Unni Skúladóttur, fiskifræðing, og spurði hana hvort búið væri að rannsaka þessi mið frekar. Unnur sagði, að rannsóknar- báturinn Dröfn væri að koma af miðunum i Axarfirði, en ekki hefðu borizt nánari fréttir úr leið- angrinum. Ekki væri vitað með vissu hve stór miðin væru og hve mikinn afla mætti þar fá. Þó mætti segja, að þau væru ekki eins stór og rækjumiðin í Húna- Framhald á bls. 31 -þO VERDUR AP TREVSTA LAKN- INUM, SOLLA MfN. RA0ER EKKI A& K0MA HEIMSENPIR Ljósm. Mbl.: Sig. F. Björnsson BREZKA björgunarskipið Life- line hélt út úr Húsavíkurhöfn eftir hádegi f gær á strandstað Hvassafells. Hefur það nú lagzt fyrir festar um 400 metra frá skipinu. Hjörtur Hjartar fram- kvæmdastjóri Skipadeildar S.I.S. sagði f gær, að skipið væri mjög vel útbúið, með sterkum vindum og dráttartækjum. En það tæki samt sem áður nokkra daga að ná skipinu á flot, en vonandi héldist veðurblíðan, sem nú væri fyrir norðan. — Myndin er af Lifeline í Húsavíkurhöfn. Vestfjarðasjómenn semja SAMKOMULAG hefur orðið f kjaradeilu sjómanna á Vestfjörð- um og samdist um 11% kaup- hækkun, sem að sögn Guðmundar Guðmundssonar, formanns út- vegsmannafélagsins á Vestfjörð- um, er samhljóða þeirri hækkun, sem samið var um hér syðra, en sjómann felldu í atkvæðagreiðslu um síðustu helgi. Engar breytingar verða því á kjörum sjómanna á Vestfjörðum að öðru leyti en því, að þessi kauphækkun kemur inn nú. Hins vegar kemur nú inn í samninga vestra skiptaprósenta, sem er hálfu prósenti hærri en skipta- prósenta annars staðar á landinu. Þar mun hins vegar ekki vera um kjárabreytingu að ræða, þar sem það hefur tíðkazt undanfarnar vertíðir að greiða hálfu prósenti hærri hlut á Vestfjörðum. Þessi háttur er því nú viðurkenndur í samningum. Þá má geta þess að akkorðs- breyting hækkar um 27%, en í reynd mun það heyra til undan- tekninga, að mönnum sé greitt Framhald á bls. 31 Hópur utan til að fylgjast með Friðrik UM MIÐJA næstu viku fer 20—30 manna hópur frá Tafl- félagi Reykjavíkur til Las Palmas á Kanarfeyjum. Við- staðan þar verður ekki löng, aðeins fimm dagar og aðal- erindið er að fylgjast með þremur sfðustu umferðum skákmótsins á Las Palmas en þar teflir sem kunnugt er Frið- rik Olafsson stórmeistari. Jafnframt munu skákáhuga- mennirnir njóta sólar eins og kostur er á, en þeir hafa kom- izt að mjög hagstæðum samn- ingi við ferðaskrifstofuna Sunnu um þessa ferð. Mun þetta vera f fyrsta skipti sem hópur manna héðan fer utan gagngert til að fylgjast með skákmóti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.