Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRlL‘1975 7 Fyrstu kappreiðar sumarsins: FÁKUR og GUSTUR halda sameiginlegar vorkappreiðar MEÐ hækkandi sól færist stöðugt meira líf í starf- semi hestamanna. Hesta- mannafélögin eru nú sem óðast að undirbúa sumar- starfsemi sína, sem í flestum tilfellum byggir á kappreiðum, gæðinga- keppni, ferðalögum og í sumum tilfellum firma- keppni. Fyrstu kappreiðar sumarsins verða á skeið- velli Fáks að Víðivöllum sunnudaginn 4. maí n.k. Það eru hestamannafé- lögin Fákur í Reykjavík og Gustur i Kópavogi, sem standa sameiginlega að þessum vorkappreið- um og ber að fagna því að þetta keppnistímabil skuli hefjast með því að tvö stærstu félögin sam- einist um að nýta þá að- stöðu, sem verið er að byggja upp að Víðivöll- um. Á þessum vorkappreiðum verður keppt í 250 m skeiði, 250 m unghrossahlaupi, 350 m stökki, 800 m stökki og 1500 m brokki. Aðstandendur kapp- reiðanna hafa ákveðið að greiða ekki peningaverðlaun en veita þess I stað verðlaunapeninga. Þar sem hér er um að ræða fyrstu kappreiðar sumarsins er rétt að vekja athygli á sam- þykkt síðasta ársþings L.H. en þar segir: Þingið beinir þeim tilmælum til ailra aðildarfélaga að bann verði lagt við því að nota í keppni á hestaþingum afbrigðilegar járningar, kjúku- smeygja, lyfjameðferð o.s.frv. i þvi skyni að fá fram ýktan fóta- burð eða ganglag. Tillagan var samþykkt með 44 atkvæðum gegn 17. 1 samræmi við orðalag samþykktarinnar er ljóst að hvert hestamannafélag verður að taka afstöðu til þessarar samþykktar og ákveða, hvort hún skuli gilda á kappreiðum þess. FJORÐUNGSMOT haldið að Faxaborg 1 AKVEÐIÐ hefur verið að Fjórðungsmót hestamannafélaga á Vest- urlandi fari fram að Faxaborg á Hvitárbökkum dagana 4.—6. júlí n.k. A mótinu verða sýnd kynbótahross, sýndir gæðingar og fram 1 fara kappreiðar, þar sem keppt verður í 250 m skeiði, 1500 m brokki, 250 m folahlaupi, 350 m stökki og 800 m stökki. t auglýsingu i um mótið er heitið góðum verðlaunum. Áður hefur hér í þættinum verið bent á hversu mjög það er bagalegt að láta dragast að ákveða dagsetningu siíks stórmóts sem fjórðungsmót er. Vegna mikils fjölda kappreiða, sem fram fara á hverju sumri, er setið um hverja helgi. Hestamannafélögin hafa á síðustu árum haft tilhneigingu til að samræma kappreiðadagana, þannig að þær rækjust ekki á. Það verður því að gera þá kröfu til stjórnar Landssambands hestamannafélaga, að hún sjái til þess að ákvörðun um hvenær halda eigi hin ýmsu stórmót sé tilkynnt til hestamannafélaganna, þannig að þau geti tekið tillit til þess við dagsetningu kappreiða sinna. Þessi síðbúna ákvörðun um Fjórðungsmótið hefur orðið til þess að þegar hefur Hestamannafélagið Geysir ákveðið að halda kapp- reiðar sinar á Rangárbökkum sunnudaginn 6. júlí. Samkvæmt reynslu fyrri ára hafa kappreiðar á Rangárbökkum jafnan verið fjölsóttar og þá ekki síst vegna hins góða vallar, sem þar er. Þetta sama hefur einnig gilt um kappreiðar á fjórðungsmótum, þangað hafa komið mörg bestu kappreiðahross landsins. Vonandi verða þessi mistök mönnum áminning. umsjón: TRYGGVI GUNNARSSON Vilja peninga- verðlaun ÞÁTTURINN hefur fregnað að nokkrir einstaklingar i Reykja- vík og nágrenni hafi hafið undirskriftasöfnun meðal hestamanna, þar sem þeir fara fram á, að Hestamannafélagið Fákur láti af þeirri ákvörðun sinni að greiða ekki peninga- verðlaun á kappreiðum en af- henda þess í stað verðlaunapen-. inga til þriggja fyrstu hesta í hverju hlaupi. Telja þeir að með þvi að hætta greiðsiu peningaverð- launa sé brostinn grundvöllur fyrir þátttöku í kappreiðum félagsins. I áskorun sinni skora þeir á hestamenn að skrá ekki hross til þátttöku í kappreiðum félagsins meðan fyrrnefnd ákvörðun er við lýði. Ástæða þess að Fákur hætti að greiða peningaverðlaun var í fyrsta lagi sú, að i vióræðum um inngöngu hestamanna í Iþróttasamband Islands kom fram að bannað væri að greiða peningaverðlaun í keppnum aðila I.S.l. í öðru lagi er inn- komið fjármagn á hverjum kappreiðum ekki það mikið að mögulegt sé að greiða stórfé i verðlaun að dómi forráða- manna félagsins. Sörli suður Stóðhesturinn Sörli 653 frá Sauðárkróki er væntanlegur til Reykjavikur á vegum Ragnars Tómassonar og veróur þar fram í miðjan mai. Verður fólki gefinn kostur á að halda hryss- um undir hann á þessu tíma- bili. Þaðan fer Sörli aftur norður á Sauðárkrók en seinna i sumar, er ráðgert að hann verði á Torfastöðum i Biskups- tungum. Þá er vitað að fyrst i maí verður Gustur 680 frá Hólum í hesthúsum Fáks í Reykjavík. Gustur stóð efstur í flokki 5 vetra stóðhesta á landsmótinu s.l. sumar. Hvar Gustur verður seinna í sumar, hefur ekki enn verið ákveðið. Þátturinn óskar eindregið eftir því við forsvarsmenn hrossaræktarsambanda og félaga og eigendur stóðhesta, að þeir láti þáttinn vita um hvar hinir einstöku stóðhestar verða staðsettir I sumar. Upp- lýsingar um staðsetningu þeirra ættu að geta auðveldað fólki val á stóðhestum. L.H. leigir húsnæði LANDSSAMBAND HESTAMANNAFE- LAGA HEFLR NÍJ TEKIÐ A LEIGU SKRIFSTOFUHERBERGI AÐ Hverfis gölu 76. Skrifstofuherbergi þetta r á sömu hæð og skrifstofa Jóns Brynjóifssonar. En L.H. hefur á undanförnum árum notið skrifstofuaðstöðu hjá honum. Ætlunin er að I skrifstofuherbergi þessu verði aðstaða fyrir fundi stjórnar og nefnda L.H., geymsla fyrir gögn sam- bandsins og starfsaðstaða ritstjóra hests- ins okkar. Ekki verður unnt að halda opinni skrifstofu þarna vegna þess að L.H. hefur ekki yfir að ráða starfsmanni. Astæða er til að fagna þessum áfanga f sögu L.H. en hestamenn verða áfram að horfa á eftir reiðskjótanum. sem fer með góðar tillögur og hugmyndir, því stjórnar- menn og aðrir nefndarmenn L.H. hafa ekki ótakmarkaðan tíma til að sinna þessu áhugamáli sínu. Það hlýtur því að vera von hestamanna, að innan ekki langs tfma geti Lll. ráðið sér starfsmann, sem gæti sinnt hinum fjölmörgu verkefnum, sem óneitanlega bfða úrlausnar hjá hesta- mönnum. Með þessu er þó ekki verið að segja, að sambandið sé óstarfhæft ráði það ekki yfir starfsmanni, þvert á móti má örugglega virkja betur félaga hesta- mannafélaganna f starfi fyrir L.H. Sumarbústaður óskast til leigu í ágúst. Sími 50502. Óskum eftir 3ja—4ra herb. ibúð fyrir 1 5. mai. Góð umgengni Upplýsingar i sima 1 2953 eftir kl. 5 e.h. Eldhúsinnrétting til sölu. Innbyggðir klæðaskápar og overlockvél og hraðsaumavél að Víðimel 64, sími 1 5104. Sníð og saumakona óskast á lítið verkstæði. Þarf að vera vandvirk. Upplýsingar í síma 50974 laugardag — sunnudag frá kl. 6—8 e.h. Ungt par með 4ra ára gamalt barn óskar eftir 2ja — 3ja herb. íbúð. Góðri umgengni og skilvísri greiðslu heitið. Erum á götunni. Uppl. i sima 35916. Nokkrir góðir hestar og hestefni til sölu. Eyvind- armúla, Fljótshlíð, Sími um Hvols- völl. Jón Þórðarson. Ytri-Njarðvík Til sölu 2ja herb. ibúð. Hagstætt verð. Eigna- og Verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik simi 92-3222. Til sölu Eigum eftir örfá barna og unglinga skrifborðsett. Tb. undir bæs og málningu. Opið i dag og á morg- un. Smíðatofan Hringbraut 41, heimasimi 42032. Til leigu í Vogahverfi Verzlunarhúsnæði, undir lager eða léttan iðnað. Verzlunarhæð 50 fm og 30 fm i kjallara. Tilboð leggist inn á Mbl. merkt: „Fyrirfram- greiðsla — 6854". fyrir 25. april. Húseigendur athugið Steypuframkvæmdir. Steypum gangstéttir, heimkeyrslur og bíla- stæði. Leggjum gangstéttarhellur, girðum lóðir, o.fl. Uppl. í síma 71381. Fataskápar fyrirliggjandi. Bæsaðir eða tilbúnir undir málningu. Einnig skrifborðs- sett, svefnbekkir, pírahillur og m.fl. Nýsmíði s.f., Auðbrekku 63, Kóp. sími 44600. Húsgagnaviðgerðir Viðgerðir á gömlum húsgögnum bæsuð og póleruð. Vönduð vinna. Húsgagnaviðgerðir, Knud Salling, Borgartúni 1 9, simi 2391 2. Óska eftir miðstöðvarkötl- um með innibyggðum spírölum eða spíralgeymum og tilheyrandi kynditækjum, ekki eldri en 7 ára. Flestar stærðir koma til greina. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Stað- greiðsla — 6687”. fHergtmbtaMþ í s>mnRGFniDnR I mnRKflfl voflR SHAO-LIN — KEMPO sjálfsvörn— æfingar. Okinawa-kerfi. Upplýsingar í síma 16207. Skrifstofustúlka óskast Tryggingafélag vill ráða stúlku til ritara og bókhaldsstarfa (vélbókhald). Vélritunarkunnátta áskilin. Umsóknum ásamt uppl. um menntun og fyrri störf sé skilað til Mbl. fyrir 24/4 1975 merkt: „Ritari 7399". Arður til hluthafa Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Samvinnubanka íslands h.f. þann 1 2. apríl s.l., greiðir bankinn 1 2% arð p.a. af innborguðu hlutafé fyrir árið 1974. Arðurinn er greiddur í aðalbankanum og útibúum hans gegn framvísun arðmiða ársins 1 974. Athygli skal vakin á því að réttur til arðs fellur niður, sé hans ekki vitjað innan þriggja ára frá gjalddaga. Reykjavik, 14. apríl 1975 Samvinnubanki Islands h.f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.