Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LaUGARDAGUR 19. APRlL 1975 „Dingeling” sagði gullið 1 kassanum Ingibjörg Jónsdóttir og Björn Guðmundsson. Björn Guðmundsson Reynhólum, 90 ára Ég var staddur hjá Spink I London á þriðjudaginn var. Var staddur í þeirri deild fyrir- tækisins, sem verzlar með nú- tímamynt, þ.e. mynt frá árinu 1934 og til dagsins í dag. Eg var svona rétt að gá að því hvort þeir seldu 50 krónurnar Is- lenzku frá 1973, og ef svo væri, þá á hvað. Við hliðina á mér lagði maður lítinn trékassa, svona álfka stóran og góðan vindlakassa, en úr allþykkum við, niður á búðardiskinn. Það klingdi innan í kassanum. „Dingeling“. ,jEg er hérna með nokkra gullpeninga, sem ég viidi biðja ykkur um að meta fyrir mig,“ sagði maðurinn. „Andartak" sagði ung búðar- dama, „ég skal sækja mann handa yður.“ Það var ekkert sérstakt við þetta atvik. Ég var staddur hjá Spink, og þeir taka að sér að meta peninga, list- muni, innbú og hvaðeina og hvar sem er f heiminum. Eg átti erindi fyrir Myntsafnara- félagið hjá Spink. Semsé að fá hjá þeim peningaseríu flokkaða í mismunandi gæða- flokka. Það er alltaf vandamál, sem ég reyndar hefi vikið að áður hér í þáttunum, að flokka rétt. Hjá Spink væri hægt að leita á náðir færustu sérfræð- inga heims og fá hjá þeim rétt- an kvarða. Til þess nú að kom- ast i þá deildina, sem útvegað gæti mér þessa peninga, þurfti ég að fara eftir ýmsum ranghöl- um og krókum og kom loks að lyftu, sem líklega er frá alda- mótaárinu, en hún virkaði ennþá greyið, en systir hennar, miklu nýlegri, var óvirk, að þvf er stóð á miða á hurðinni. Þeg- ar lokað hafði verið tveim grindum á lyftukassanum fór ég upp á þriðju hæð. Þar var allt fullt af fólki, í allstóru her- bergi. Ung stúlka sorteraði um- slög, eldri maður skoðaði mynt með stækkunargleri og bar stundum upp í Ijósið til að sjá peninginn betur. Annar raðaði eftir RAGNAR BORG glás af peningum á skrifborðið hjá sér, þungur á brún. Ég sett- ist á stól, framan við lúgu. Þar var bjalla og á spjaldi við hana stóð að nota skyldi bjölluna til að vekja á sér athygli. Ég starði svo lengi á mannskapinn þarna, að einhver sem framhjá mér gekk ýtti á bjölluna og að vörmu spori var kominn til mín ungur maður. Eg bar upp erindi mitt fyrir hönd Mynt- safnarafélagsins. Ungi maður- inn ráðfærði sig við eina 2 menn um þetta, en kom svo til mfn og sagði að þetta myndi Spink gera með gleði. Sfyldu þeir senda Mynt- safnarfélaginu peninga, sem væri rétt flokkað- ir f hina ýmsu gæðaflokka. Mættum við eiga von á þeim innan tfðar. Þetta er nú sosum ekki fyrsta sendingin, sem Spink hefir sent til Mynt- safnarafélagsins. Við höfum verzlað við þá frá því Mynt- safnarafélagið var stofnað. En Spink & Son, Ltd. eru aðeins eldri, rúmra 300 ára, stofnað 1666. Aðsetur firmans er I hjarta Lundúna og er f raun- inni skemmtan útaf fyrir sig að skoða f búðargluggana hjá þeim. Spink kaupir og selur mynt, medalíur, merki, heiðursmerki, stríðsmerki, stríðsmedalíur, stríðsheiðurs- merki og skreytingar af ein- kennisbúningum, peningaseðla og bækur um myntfræði og ailt þetta hvaðan sem er úr heimin- um. Spink gefur út bækur um öll ofangreind efni og verður nýjasta bókalisti þeirra til sýn is á næsta fundi Myntsafnara- félagsins. Bókalager Spink er einnig ágætur. Þeir taka að sér að kaupa mynt og muni á upp- boðum, sem haldin eru víða um heim. Tímarit þau er Spink gef- ur út eru: „The numismatic circular", fyrir mynt og meda- líusafnara. Kemur út.ll sinn- um á ári. „Octagon" sem fjallar um málefni allra deilda fyrir- tækisins. Kemur það út árs- fjórðungslega eins og tímaritin „Banknote quarterly“ og „The modern coin“. A kápusfðu þess síðast nefnda er meðal annarra peninga mynt af 10.000 króna gullpeningnum frá 1974. Inni í ritinu er þess getið að hann sé Framhald á bls. 29 Þann 23. febrúar sl. varð vinuf minn og fyrrum húsbóndi niræður. Grein um hann átti að birtast laugardaginn 22. febrúar, en virðist hafa gjörsamlega gufað upp. Björn fæddist í Reynhólum og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Þorbjörgu Jónasdóttur og Guðmundi Jóhannessyni. Eftir áð Guðmundur var orðinn ekkjumaður réðst hann sem ráðs- maður til föður míns, séra Eyjólfs Kolbeins að Melstað, en séra Kolbeins andaðist 1. mars 1912, aðeins 46 ára að aldri. Öslitin vináttubönd mynduðust milli móður minnar og Guðmundar, og þannig Iágu leiðir okkar Björns og hans ágætu konu, Ingibjargar Jónsdóttur, saman. Björn ólst upp i foreldrahúsum, stundaði nám við Flensborgar- skóla, dvaldi þó í heimabyggðinni á sumrum, nema smátíma, sem hann starfaði sem lögregluþjónn í Hafnarfirði. Árið 1916 kvæntist Björn sinni ágætu konu, Ingibjörgu Jóns- dóttur frá Huppahlíð. Þau hófu búskap að Kollufossi, fluttust síðan í Lækjarbæinn, þaðan að Neðra Núpi, síðan að Þverá í Núpsdal, uns þau fluttust á æsku- heimili Björns, Reynhóla. Þar bjuggu þau uns starfskraftar tóku að dvína, er þau afhentu yngsta syninum jörðina. Sl. sumar andaðist svo mín góða vinkona og húsmóðir Ingibjörg á 83. aldursári og veittist mér sá Framhald á bls. 13. Sveinafélag pípulagningamanna Aðalfundur félagsins verður haldinn í Tjarnar búð, Vonarstræti 10 lauqardaainn 26. apríl n.k. kl. 2 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Reikningar fyrir árið 1974 liggja frammi í skrifstofu félagsins að Freyjugötu 27 föstudag- inn 25. apríl kl. 5 — 7 e.h. _ ., . Stjorn/n. HUGINN F.U.S. Garðahreppi Almennur félagsfundur verður að Lyngási 12, þriðjudaginn 22. apríl n.k. kl. 8:30 stundvíslega. Fundarefni: Gunnar Sigurgeirsson ræðir um hreppsmálin. Guðmundur Hallgrímsson ræðir um starfsemi BYGGUNG og væntanlegar lagabreytingar á næsta aðalfundi. Kosning 2ja fulltrúa á Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér nýja félaga. Stjórnin. SUS FUS Stefnir Er ríkisstjórnin á réttri leið. Samband ungra sjálfstæðismanna og FUS Stefnir i Hafnarfirði efna til almenns umræðufundar um stjórnmálaástandið. Fund- urinn verður haldinn mánudaginn 21. april kl. 8.30 i Hamars- koti i Skiphóli, Hafnarfirði. Framsögu hafa Markús Örn Antonsson, Þorsteinn Pálsson og Jón Magnússon. SUS FUS Stefnir. Auglýsing um lögtaksúrskurð í Selfosshreppi S.k.v. úrskurði sýslumanns Árnessýslu dags 14. apríl 1975 var uppkveðinn lögtaksúrskurð- ur vegna gjaldfallinna ógreiddra fasteigna- gjalda ársins 1975 og vegna gjaldfallinna ógreiddra fyrirframgreiðslu útsvara, aðstöðu- gjalda og kirkjugarðsgjalda ársins 1 975. Lögtök s.k.v. úrskurði þessum geta farið fram 8 dögum frábirtingu þessarar auglýsingar. Sveitarstjóri Selfosshrepps. MEÐ BÍLFERJU TIL NORÐURLANDA „M/V Smyril" Ferðist ódýrt með nýtízku ferju til meginlands- ins. Viðkoma I Færeyjum á leið til Bergen Brottför frá íslandi 21/6, 28/6, 5/7, 12/7, 19/9, 26/7, 2/8, 9/8, 16/8, 23/8. Tekið á móti pöntunum. ^ ^ . FERÐA§KRIFSTOFA RfKISINS Simi 11540 — 25855. „pmMws f/ íbúð til leigu á einum glæsilegasta stað borg arinnar. íbúðin er á jarðhæð, þrjú herbergi, eldhús og bað ásamt aðgangi að þvottahúsi. Tilboð ásamt upplýsingum um fjölskyldustærð sendist Morgunblaðinu merkt: „Útsýni 6946". SKIPAUTCíCRÐ RIKISINS M /s Hekla fer frá Reykjavik mánudaginn 28. þ.m. austur um land í hring- ferð. Vörumóttaka: már.udag og til hádegis á miðvikudag til Aust- fjarðahafna, Þórshafnar, Raufar- hafnar, Húsavíkur og Akureyrar. Akranes Húseignir til sölu 5 herb. hæð við Vesturgötu, efri hæð í steinhúsi ásamt risi sem innrétta má. Sérkynding með rafmagni. Sér þvottahúsaðstaða. Eignarlóð, hagkvæmir greiðslu- skilmálar. 4ra herb. hæð i steinhúsi við Vesturgötu ásamt bílskúr. Teppi, nýleg eldhúsinn- rétting, nýtt gler, eignarlóð. 4ra herb. íbúð á neðri hæð i steinhúsi við Vest- urgötu, eignarlóð. Einbýlishús við Melteig. Stór eignarlóð með mjög fallegum trjágarði. Gæti verið tvær íbúðir, mjög glæsileg efri hæð ásamt geymslurisi. Nýtt gler. Neðri hæð, 4 herb. og eldhús, sér inngangur. Uppl. gefur Hermann G. Jóns- son hdl. Heiðarbraut 61, Akra- nesi, simi 1890 eftir kl. 7.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.