Morgunblaðið - 19.04.1975, Qupperneq 32
JHargimlbMib
nucivsincnR
<g,„-*2248D
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1975
Miklar sovézkar flotaœfingar:
Þotur varnarliðs höf ðu 140
skipti afskipti af herflugvélum
ALANDSEYJASVNINGIN
STRANDAGLÓPUR — I dag
setur menntamáiarádherra Álandseyja-
viku í Norræna húsinu en að fjarstaddri
sýningu þeirri, sem vera átti burðarás
þessarar viku. Sýningarmunirnir urðu
nefnilega strandaglópar f Gautaborg
fyrir handvömn flutningsaðila þeirra og
raunar er ekki séð fyrir endann á þvf
hvenær sýningin nær loks til landsins.
En um hrakfarir Álandseyjasýningar-
innar má lesa nánar á bls.2.
— í nágre> ni Islands síðustu daga
SOVÉZKl norðurflotinn, sem aðsetur hefur á Kola-
skaga, hefur hafið meiriháttar flotaæfingar á Norður-
Atlantshafi í námunda við ísland og samkvæmt upplýs-
ingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, hafa eftirlits-
þotur frá Keflavíkurflugvelli a.m.k. 40 sinnum orðið að
hafa afskipti af sovézkum herflugvélum, sem flogið hafa
inn í flugvarnarsvæði varnarliðsins í þessari viku.
Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk í
gær hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.hefur varnar-
liðið aukið mjög eftirlitsflug á svæðinu í kringum tsland
og á hafsvæðinu í námunda við landið vegna hinna
stórauknu umsvifa sovézka flotans og flugvéla á hans
vegum við Island.
og kafbátar ásamt birgðaskipum
farið frá heimahöfnum á Kola-
skaga og úr öðrum sovézkum
höfnum víðs vegar um heimínn.
Jafnhliða flotaæfingunum á
Norður-Atlantshafi hafa lang-
drægar sovézkar herflugvélar
verið á ferð á svæðinu milli ís-
Framhald á bls. 31
1 Reuter-skeyti frá I.ondon
i gær segir, að um-
fang flotaæfinga Sovétríkjanna,
sem hófust sl. mánudag, hafi
komið sérfræðingum á óvart.
Skip frá Bretlandi, Bandaríkjun-
um, Hollandi og Italíu fylgjast nú
þegar með flotaæfingunum og í
athugun er, að sérstök flotadeíld
NATO-ríkjanna fylgist einnig
með þeim. hetta eru taldar mestu
flotaæfingar Sovétríkjanna í 5 ár
og þáttúr flugvéla í þeim er meiri
en áður.
Talsmaður varnarliðsins sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að meiriháttar flotæfingar
færu nú fram á vegum sovézka
flotans i grend við Island og væru
þessar æfingar þáttur í heræfing-
Einn þekktasti blaðamaður
heims upplgsti 1967:
Farafonov KGB-
niósnari í Stokkhólmi í 8 ár
um, sem ná um heim allan og er
talið, að 200 sovézk herskip muni
taka þátt I þeim og jafnvel enn
fleiri áður en æfingum þessum
lýkur.
Talsmaður varnarliðsins sagði,
að síðan Tass-fréttastofan hefði
tilkynnt hinn 10. april s.l., að
meiriháttar heræfingar væru í að-
sigi, hefðu fjölmörg stór herskip
Biðskák h já Friðrik
TlUNDA umferð skákniótsins í
Las Palnias á Kanaríeyjuni var
tefld í ga'rkvöldi. 1 þessari uni-
ferð tefldi Friðrik við Spánverj-
ann Visier, en skákin fór í bið, og
átti að tefla biðskákina síðar f
ga’rkvöldi. Ekki var vitad um
stöðuna þegar blaðið fór I prenl-
un. Ljubojevic tók forystuna á ný
í ga-r, þegar hann vann Fern-
andez og er nú nieð 8 vinninga.
Sviinn Ulf Andersson og Fetro-
sjan sömdu um jafntefli i gær,
ennfremur þeir Pomar og
Mecking. Ilinsvegar vann Hort
Tatai. Biðskákir urðu hjá Debarn-
ot og Bellon, Rodriguez og
Framhald á bls. 31
Tók síðan við þýðingarmeira njósnahlutverki
sagði C.L. Sulzberger í New York Times
EINN þekktasti blaðamaður
heims, U.L. Sulzberger, hjá New
York Times, skýrði frá því þegar
á árinu 1967 að hinn nýi sovézki
sendiherra á lslandi, Gcorgi
Farafonov
Nikolaevich Farafonov, væri
njósnari, sem starfað hefði á veg-
um KGB. Eftir að upplýst hafði
verið, að nafn Farafonovs væri á
skrá yfir sovézka njósnara, sem
birtist í bók er út kom á síðasta
ári og nefnist KGB — leynileg
störf sovézkra njósnara, gerði
Morgunblaðið ráðstafanir til þess
að afla frekari upplýsinga um
feril Farafonovs m.a. með aðstoð
erlendra blaða, svo sem New
York Times, og Berl-
ingske Tidende. Nú hefur
Morgunblaðið fengið upplýsingar
um, að á árinu 1967 skrifaði C.L.
Sulzberger grein I New York
Times, þar sem hann skýrir m.a.
frá því, að Georgi Nikolaevich
Farafonov sem þá starfaði í
sovézka sendiráðinu I Finnlandi
hafi um 8 ára skeið verið njósnari
fyrir KGB I Svfþjóð. Jafnframt
segir Sulzberger í grein þessari,
að fram hafi komið á sjónarsviðið
i Vestur-Evrópu ný tegund
sovézkra njósnara er gegni veiga-
miklu hlutverki og séu I beinum
tengslum við alþjóðadeild
sovézka kommúnistaflokksins.
Sulzberger nefnir nöfn fjögurra
þessara njósnara og einn þeirra
er Farafonov, nú sendiherra
Sovétríkjanna á tslandi.
Tveimur dögum eftir að grein
Sulzbergers birtist var um hana
fjallað I Berlingske Aftenavis
(síðdegisblaði Berlingske Tid-
ende sem nú er hætt að koma út)
Framhald á bls. 31
BUR segir upp kaup-
tryggingu 100 manns
A þriðja hundrað manns hefur verið sagt upp
Stóru togararnir stöðvast nú
hver af öðrum vegna verkfalls
undirmanna, og fyrirsjáanlegt er
að vinna i þeim frystihúsum, sem
A-þýzkur skipslæknir strýk-
ur af togara í Rvíkurhöfn
Komst til Kaupmannahafnar með vél FI
SKIPSLÆKNIRINN á austur-
þýzka togaranum Bertolt Brecht,
sem legið hefur í Sundahöfn í
nokkra daga, sjrauk af skipinu í
fyrradag og eftir þeim upplýs-
ingum, sem Morgunblaðið gat
aflað sér hjá Útlendingaeftirlit-
inu í gærkviildi, mun maðurinn
hafa komizt úr landi til Kaup-
mannahafnar með áætlunar-
flugvél Flúgfélags lslands I gær-
morgun. Ekki höfðu borizt nánari
fréttir af manninum I gærkvöldi,
þegar biaðið fór í prentun.
Tveir a-þýzkir togarar liggja nú
í Sundahöfn, Bertolt Brecht og
Peter Nell, báðir frá Rostock. Sá
fyrrnefndi kom hingað s.l. þriðju-
dag en hinn í gærmorgun, en
skipin hafa verið á veiðum á djúp-
slóðum. Samkvæmt upplýsingum
Arna Sigurjónssonar hjá Útlend-
ingaeftirlitinu hafði skipstjóri
Bertolt Brecht samband við
lögregluyfirvöld I Reykjavík kl. 9
í gærmorgun og tilkynnti, að einn
skipverjanna, skipslækninn,
vantaði um borð, en hann hafði
átt að vera mættur á miðnætti í
fyrrakvöld.
— Við hófum þegar eftir-
grennslan eftir manninum, sagði
Árni, og var leitað um allt.
Ennfremur var farið í gegnum
farþegaskrár flugfélaganna og á
Framhald á bls. 31
byggja rekstur sinn að mestu á
afla þessara skipa, stöðvast I
næstu viku. Nú þegar hefur verið
sagt upp kauptryggingu fastráð-
ins starfsfólks hjá Kirkjusandi
h.f. og hjá Isbirninum h.f. 1 gær
var svo kauptryggingu eitt
hundrað starfsmanna hjá Bæjar-
útgerð Reykjavíkur sagt upp, en
kauptryggingunni þarf að segja
upp með viku fyrirvara. Með upp-
sögn B.Ú.R munu frystihús nú
vera búin að segja upp kauptrygg-
ingu hjá nokkuð á þriðja hundrað
manns.
Ásgeir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, sagði í samtali við
Morgunblaðið i gær, að fyrirtækið
hefði sagt upp kauptryggingu T00
manns í gær, sem væru með fast-
ráðningu. Stór hluti þessa hóps er
kvenfólk, en bilstjórar hjá fyrir-
tækinu eru einnig með fastráðn-
ingu.
Hann sagði, að vinna yrði í
frystihúsi B.Ú.R. alla næstu viku,
en eftir það yrði hún lítil þar sem
fyrirtækið væri aðeins með einn
bát i viðskiptum. Hinsvegar
myndi vinna ekki falla niður við
skreiðar- og saltfiskverkun. Þar
væri nóg að gera við að umstafla
og pakka.
Alls vinna hjá fyrirtækjum
B.Ú.R. um 250 mann og á togur-
um fyrirtækisins eru um 100
Framhald á bls. 31
Eldur á Akureyri
Akureyri 18. apríl.
IKVIKNUN varð hjá gleraugna-
verkstæðinu Geisla á þriðju hæð
Amarohússins í Hafnarstræti kl.
16.20 í dag. Eldurinn mun hafa
komið upp í ruslafötu, en barst
þaðan i gleraugnaspangabirgðir
verkstæðisins og brunnu þær og
bráðnuðu að mestu á augabragði,
enda flestar spengurnar úr plasti.
Af þessu varð mikill hiti og reyk-
ur, sem lagði að einhverju leyti
inn í vörugeymslur Amaro h.f., en
þó mun tjón þar hafa orðið óveru-
legt og reykinn lagði ekki um
húsið að öðru leyti. Tjón á varn-
ingu hjá Geisla h.f. varð hinsveg-
ar mikið. Starfsfólk í húsinu hafði
slökkt eldinn að mestu þegar
slökkviliðið kom.
Sv.P.