Morgunblaðið - 15.06.1975, Page 2

Morgunblaðið - 15.06.1975, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNI1975 DAGSKRÁ þjóðhátíðar í Reykjavík á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður með líku sniði og undanfarin ár. Þjóðhátíðin hefst með samhljómi kirkju- klukkna í Reykjavík og síðan leggur Ölafur B. Thors, forseti borgarstjórnar, blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sig- urðssonar í kirkjugarðinum v/Suðurgötu. Þjóðhátíðinni lýkur moð dansskemmtunum við 6skólaí borginni Af nýjung- um í dagskrá þjóðhátíðar má nefna að boðið verður upp á siglingar í Nauthólsvík og fyrir hverri skrúðgöngu fer gömul slökkvibifreið. Þá verður dagskráin á Laugardalsvellin- um fjölbreyttari en áður. Eins og áður sagði hefst þjóð- hátíðin með athöfn í kirkju- garðinum v/ Suðurgötu en kl. 10.30 byrjar Lúðrasveit Reykja- víkur að leika ættjarðarlög á Austurvelli og Már Gunnars- son, formaður þjóðhátiðar- nefndar, setur hátíðina. Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, leggur blómsveig frá íslenzku þjóðinni á minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Forsætisráðherra, Geir Hall- grímsson, flytur ávarp og flutt verður ávarp Fjallkonunnar, sem að þessu sinni er Anna Kristín Arngrímsdóttir. Við at- höfnina á Austurvelli syngur Karlakór Reykjavíkur. Að lokinni athöfninni á Aust- urvelli verður guðsþjónusta i Dómkirkjunni. Sr. Ingvi Þór Árnason frá Prestbakka pré- dikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Ragnar Björnsson leikur á orgel. Ein- söngvari verður Magnús Jóns- son. Um morguninn kemur Barna- og unglingalnðrasveit Reykja- víkur að elliheimilum borgar- innar og leikur nokkur lög. Eftir hádegi kl. 13.15 hefjast jtrjár skrúðgöngur og verður safnazt saman á Hlemmi, Mikla- torgi og við Melaskólann. Frá Hlemmi verður gengið um Laugaveg og Bankastræti á Lækjartorg. Frá Miklatorgi verður gengið um Hringbraut, Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg og Lækjargötu á Lækjartorg. Frá Melaskólanum verður gengið um Birkimel, Hringbraut, Skot- húsveg, Tjarnargötu, Aðal- stræti og Austurstræti á Lækjartorg. I skrúðgöngunum leika lúðrasveitir og i farar- broddi hverrar verður gömul slökkvibifreið og eru þetta elztu slökkvibifreiðar landsins, sú elzta frá 1923. Skátar ganga undir fánum fyrir skrúðgöng- unum og stjórna þeim en skátar hafa alltaf sett svip á daginn og verða þjóðhátíðarnefnd til að- stoðar allan daginn. Að loknum skrúðgöngunum hefst á Lækjartorgi barna- skemmtun og er stjórnandi hennar Klemenz Jónsson en kynnir Árni Tryggvason. Þar leikur Lúðrasveit verkalýðsins. Halldór Kristinsson flytur eigin lög og leikkonurnar Soffía Jakobsdóttir, Þórunn Sigurðar- dóttir og Ásdis Skúladóttir flytja leikþáttinn Öskubuska. Sigmundur Örn Arngrimsson flytur barnavísur og Ketill Lar- sen skemmtir. Þá flytja Ieik- ararnir Róbert Arnfinnsson, Arni Tryggvason og Guðrún Stephensen gamanþáttinn Fatan lekur. I Laugardal hefur aðstaða til hátiðarhalda batnað mjög síðustu ár en að lokinni skemmtuninni á Lækjartorgi hefjast hátíðarhöld i Laugar- dal. I Laugardalssundlauginni verður sundmót en á Laugar- dalsvellinum verður fjölbreytt dagskrá. Fram fer úrslita- keppni á 17. júnimótinu i frjáls- um íþróttum og boðhlaup drengja í 5. aldursflokki. Fim- leikaflokkur frá Karlstad i Sví- þjóð verður með sýningu. Þá fer fram stórleikur í knatt- spyrnu og eigast þar við lið skipuð annars vegar gömlum Frömurum og hins vegar úr- 1975 17 JUNI valslið skipað ýmsum heims- þekktum, landsþekktum, inn- lendum og erlendum köppum. Framarar hafa fengið að láni einn mann og er það Helgi Daníelsson, sem verður í mark- inu, en aðrir kunnir menn í því liði verða Haukur Óskarsson, Reynir Karlsson, Karl Berg- mann, Cíuðmundur Óskarsson, og Dagbjartur Steingrímsson o.fl. Urvalsliðið er skipað ýms- um kunnum mönnum en í liðinu eru Heimir Guðjónsson, Arni Njálsson, Bjarni Felixson (rauða ljónið), Helgi V. Jóns- son, Tony Knápþ, landsliðs- þjálfari, Garðar Arnason og Gunnar Guðmannsson, Miðtrfó- ið skipa þeir Ríkharður Jóns- son, Albert Guðmundsson, Ellert Schram, Örn Steinsen og Joe Gilray, þjálfari Vals. Ibúum Reykjavikur verður boðið í siglingu á bátum Sigl- ingaklúbbsins Sigluness og Siglingaklúbbsins Brokeyjar í Nauthólsvík kl. 17 á þjóð- hátíðardaginn. Er þetta nýjung og vill þjóðhátiðarnefnd hvetja fólk til að vera vel klætt. Dagskrá þjóðhátíðar í Reykjavík lýkur svo með kvöld- skemmtunum við sex skóla i borginni. Þessir skólar eru: Austurbæjarskóli, Breiðholts- skóli, Langholtsskóli, Mela- skóli, Arbæjarskóli og Fella- skóli. Hljómsveitir leika fyrir dansi á þessum stöðum en ekki er gefið upp við hvaða skóla hver hljómsveit Ieikur en hljómsveitirnar eru: Ragnar Bjarnason, Ernir, Eik, Asgeir Sverrisson, Brimkló og Dögg. Á miðnætti verður hátiðinni slitið en að sögn þjóðhátiðarnefndar er ekki talið rétt að láta skemmtanirnar standa lengur, þar næsti dagur er almennur vinnudagur. Þeir sögðu einnig að við þessa tilfærslu á kvöld- skemmtununum, sem áður voru í miðbænum, hefði yfirbragð þeirra batnað til muna. I samvinnu við félög íbúa í Arbæjarhverfi og Breiðholti verður efnt til síðdegisskemmt- ana i þessum hverfum. I Árbæja^þverfi eru það Kven- félag Árbæjarsóknar og Iþróttafélagið Fylkir, sem i samvinnu við þjóðhátíðarnefnd standa fyrir skemmtuninni. Skrúðganga hefst á Árbæjar- túni og verður síðan gengið um Rofabæ að Árbæjarskóla. Þar verður skemmtun og flytur Guðmundur Þorsteinsson, sóknarprestur, hátíðarávarp og flutt verða atriði úr barna- skemmtun á Lækjartorgi. A íþróttavellinum verða íþróttir og leikir. I Breiðholti eru það Fram- farafélag Breiðholts III, Iþróttafélagið Leiknir og Kven- félagið Fjallkonurnar sem standa i samvinnú við þjóð- hátiðarnefnd fyrir hátiða- höldum. Skrúðganga verður frá endastöð S.V.R. í miðju Hóla- hverfi, síðan verður gengið um Vesturberg að Fellaskóla og þar hefst skemmtun. Hjálmar W. Hannesson, menntaskóla- kennari, flytur ávarp og sr. Hreinn Hjartarson, verður með helgistund. Fluttur verður leik- þáttur af barnaskemmtuninni á Lækjartorgi, þá verður dagskrá á íþróttavellinum. A blaðamannafundi með þjóðhátíðarnefnd kom fram, að nefndin vonaðist til að þessi þjóðhátíðardagur yrði sann- kallaður þjóðhátíðardagur og fólk gætti þess að ganga snyrti- lega um. Formaður þjóðhátíðar- nefndar nú er Már Gunnarsson en framkvæmdastjóri Kolbeinn Pálsson. Dagskrárstjóri er Klemenz Jónsson. Merki þjóð- hátíðardagsins gerði Astmar Ólafsson, teiknari, og hafði hann að fyrirmynd listaverk Asmundar Sveinssonar, Móður jörð. Alþjóðleg Mstaverka- miðlun á íslandi Gefur hann Islandi listaverk fyrir hundruð milljóna krrtna Kaupmannahöfn, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Braga Krist jónssyni. VlÐKUNNUR danskur lista- verkasali, Gunnar Mikkelsen, er væntanlegur til Islands I heim- sókn hinn 28. júnl næstkomandi. Ferð hans til landsins er gerð I þeim tilgangi að kanna aðstæður á þvi að stofnsetja á íslandi al- þjóðlega listaverkamiðlun, sem jafnframt hefði útibú í Kaup- mannahöfn og viðar i Evrópu, svo sem Hollandi og Belgiu. Ætlar hann að ræða við ráða- menn listamála og listasafna á Islandi og ennfremur að kynnast þjóð af eigin raun. Gunnar Mikkelsen er einn mikilvirkast listaverkasali á Norðurlöndum og hefur um Iangt skeið rekið umfangsmikla lista- verkamiðlun og sölu í Kaup- mannahöfn og víðar i Evrópu. Hann er einnig þekktur fyrir hið mikla einkasafn sitt af þekktum málverkum eftir heimskunna listamenn og ennfremur á hann margar myndir, sem listfræðingar hafa deilt mjög um. Meðal annars á hann listaverk eftir alla fræg- ustu eldri listamenn Dana og líka eru i safni hans myndir eftir Van Gogh, Emil Nolde, Corot, Turner og marga fleiri. Aðdragandi komu listaverka- salans er sá. að í jan. sl. hafði fréttaritari Morgunblaðsins i Kaupmannahöfn viðtal við Gunnar Mikkelsen, sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 19. jan. s.l. Síðan hefur sú hugmynd verið að þróast með listaverkasalnum að hann flytti hluta af starfsemi sinni til tslands og e.t.v. allt einkasafn sitt. Hefur hann enn- fremur haft á orði þar sem hann á enga lögerfingja — þótt hann sé enn á besta aldri — að gefa allt hið mikla safn sitt af málverkum og öðrum listgripum til Islands, ef honum litist vel á land og þjóð. Það mun ekki fjarri lagi að einka- safn Gunnars Mikkelsens sé 600—800 milljóna króna virði. Það er því vonandi að lista- verkasalanum lítist vel á þjóðina og landið og þess að vænta að viðkomandi aðiljar veiti honum þær upplýsingar, sem hann þ’arf til að geta myndað sér skoðun í þessu einstæða máli. DAGSKRÁR útvarps og sjónvarps fyrir mánu- dag eru á bls. 24 í blað- inu í dag. Viðræður BHM og fjármála- ráðherra ekki hafnar enn VIÐRÆÐUR Bandalags háskóla- manna við samningsaðila sinn, fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, hafa ekki hafizt enn, en samkvæmt upplýsingum Jóns Rögnvaldssonar, formanns kjara- ráðs BHM, hafa viðræður enn ekki verið ákveðnar. Bjóst hann þó við að þær myndu hefjast á næstunni. Togaradeilan: „Talað saman” „ÞAÐ er talazt við, meira get ég ekki sagt,“ sagði Jón Sigurðsson, forseti Sjómannasambands Is- lands, þegar Morgunblaðið náði tali af honum, þar sem hann var á fundi hjá sáttasemjara 1 togara- deilunni. Gert var hlé á sáttafundinum i fyrrakvöld kl. 11 og mættu menn aftur til fundar endurnærðir kl. 10 í gærmorgun. Matarhlé var síðan gert um 12-leytið en tekið til við fundarhöld að nýju kl. 2, sem stóðu enn þegar Mbl. fór í prentun. Að því er Guðlaugur Þorvaldsson, einn af sátta- nefndarmönnum, tjáði Morgun- blaðinu, hafði ekkert sáttatilboð komið enn fram en „viðræður eru í gangi". Konungur sendi þakkarskeyti ER FLUGVÉL Karls Gústafs Svíakonungs var á leið með hann heim til Svíþjóðar að lokinni ís- landsheimsókninni, sendi konungur svohljóð- andi skeyti til forseta Is- lands: „Á heimleið yfir Norð- ur-Atlantshaf sendi ég forseta Islands og íslenzku þjóðinni hlýjar þakkir fyrir stórfenglega gestrisni og mikla vinsemd sem ég varð aðnjótandi í heimsókn minni til íslands. Karl Gústaf.“ 30 íslenzkir iðnaðarmenn í Noregi: Fengu ekki laun sín og voru reknir TUTTUGU af þrjátfu iðnaðar- mönnum, sem störfuðu við smfði olfuborpalla hjá norska fyrirtækinu Aker Verdal eru komnir heim vegna þess að þeir fengu ekki greidd laun sfn, eins og upphaflega var um samið. Segir f frétt frá NTB- fréttastofunni, að fslenzku iðnaðarmennirnir 30 eigi um 300 þúsund norskar krónur inni hjá sænska fyrirtækinu Inter-Thor, sem réð mennina til starfa við rafsuðu hjá Aker Verdal. Rannsóknir á starfsemi fyrirtækisins hafa svo leitt í Ijós, að fyrirtækið er ekki skráð. tslendingarnir hafa leitað eftir lögfræðilegri aðstoð við að fá leiðréttingu sinna mála. Islendingarnir þrjátfu komu til Verdal með loforð um laun sem voru 31 kr. norskar á klukkutímann, en fljótlega komu í Ijós erfiðleikar við launagreiðslur. Eftir að hafa einu sinni gert dagsverkfall Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.