Morgunblaðið - 15.06.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNl 1975
7
Hann
spyr
ekki
um
synd
Fyrir nokkru kom hingað til
lands hógvær gestur með mikil
vægt erindi. Þótt þarna væri á
ferð andlegt stórmenni, ó-
gleymanlegur persónuleiki, þá
var ekki einu sinni blásið í
þokulúður á flugvellinum við
komu hans eða brottför, hvað
þá að keyptur væri nýr bill til
þess að flytja hann milli staða.
Nei, við því var vart að búast,
þvi hvorki er hann þjóðhöfð-
ingi né pólitiskur leiðtogi, held-
ur kristinn píslarvottur, er
keyptur var laus
úr fangelsum kommúnista
í Rúmeníu. Það gripur mann
undarleg tilfinning að sitja
andspænis manni, sem hefur
orðið að liða sárustu kvalir og
sitja 14 ár i fangelsum fyrir það
að vera kristinnar trúar. Rúm
enski presturinn, séra Rich-
ard Wurmbrand, neitaði af-
dráttarlaust að þegja um trú
sína á Jesúm Krist sem frels-
ar^ og féllst aldrei'að hafna
þeirri skoðun, að „framar
ber að hlýðaGuði en mönnum."
Andspænis honum fiVinur mað-
ur, að trúin er mesta alvörumál
í heimi. Hann var tekinn og
færður í hlekki, settur í ein-
angrunarklefa 10 metra undir
yfirborði jarðar. Þar var hann
fyrst í þrjú ár. Allan þann tima
sá hann ekki dagsbirtu, ekki
stjörnu á næturhimni, ekki
barn. Hann sá aðeins kvalara
sína, kommúnistana, sem
neyttu allra tiltækra bragða til
þess að fá hann til að afneita
Jesú Kristi og veita viðtöku trú
þeirra á kerfið, þar sem maður-
inn ætlar sér sæti Guðs. Það
greip mann undarleg tilfinn-
ing, sambland af dýpstu aðdáun
ognokkurrisneypu.þegar hann
sagði sögu sína án nokkurrar
beizkju. Hann brosti glaður yfir
þeirri hugkvæmni sinni og sam-
fanganna, er hann var siðar
með i fangabúðum, þegar þeir
notuðu hlekkinasem hljóðfæri
við guðsþjónustu í klefanum.
Þeir slógu saman handjárnum í
takt við lagið. „Það hljómaði
býsna vel,“ sagði hann bros-
andi, lyfti höndunum, sló sam-
an úlnliðunum og söng hressi-
iega nokkur stef úr sálmi. Hann
er lifandi dæmi um mátt trúar-
innar í veikum manni. Þótt
hann ætti örðugt með að standa
lengi í ræðustólnum, vegna
líkamlegs vanmáttar af völdum
ofsókna, voru orð hans þrungin
þrótti og gleði yfir gæzku Guðs
og bjargfastri trú á nærveru
hins lifandi frelsara. Hvað olli
þvi, að andspænis honum fund-
um við tilnokkurrarblygðunar.
Hann sagði: „Mikið hljótið þið
að vera hamingjusöm i frjálsu
landi, þar sem þið getið lagt
rækt við trú ykkar, sótt kirkju
óttalaus við ofsóknir, lesið
guðsorð i heilagri ritningu óá-
reitt og gengið að borði Guðs og
neytt hinnar heilögu kvöldmál-
tiðar. Þið hljótið að vera ham-
ingjusöm hér á Islandi. En hvað
munduð þið gera, ef ykkur væri
ógnað með byssum og skipað að
afneita Kristi, skipað að hrækja
á mynd hans, og vissuð, að ef
þið ekki hlýdduð þeirri skipun
yrði ykkur misþyrmt og þið sið-
an skotin?" Höfum við nokkurn
tíma leitt hugann að því, að sú
stund getur runnið upp hér, að
við verðum að svara slikum
skipunum. Kommúnisminn
flæðir yfir heiminn og trygg-
ustu fylgismenn hans vita,
hvenær óhætt er að herða tök-
in. Hér á landi hefur hann yfir
sér frjálslyndisyfirbragð. Gagn-
vart kristinni trú neytir hann
hvers færis, sem gefst,
til að styðja
sundrungaröfl, afbrigðilegar
skoðanir gegn kristinni kenn-
ingu og kristnu siðgæði. Ýmsir
grandvarir og góðir menn trúa
málrófi kommúnista um sjálf-
stæðisást, mótmæla samstarfi
við vestræn lýðræðisríki og
þeim skyldum, sem sliku sam-
starfi hlýtur að fylgja. —En
hvern boðskap hafði séra Rich-
ard Wurmbrand að flytja ann-
an en þann að vara við þeirri
hættu, er stafar af framsókn
kommúnismans í heiminum og
þeim fjötrum, er hann leggur á
þjóðirnar. Hann flutti boðskap-
inn um guðdómlegan kærleika
Jesú Krists á hrífandi hátt.
Hann vakti m.a. athygli á því,
að i hvert sinn, er syndugur
maður féll að fótum Jesú, þá
spurði hann aldrei um syndirn-
ar, hvað þær væru margar,
hvers eðlis þær væru eða
hversu stórar. Það virtist ekki
koma honum við, heldur hitt
hvort maðurinn iðraðist og
væri reiðubúinn að veita fyrir-
gefningu hans viðtöku í trú.
Jesús tekur á móti syndaranum
eins og faðirinn i dæmisögunni
um týnda soninn (guðspjall
þessa sunnudags). Hann breið-
ir út faðminn í von um að hik
og efi eyðist en traustið vakni
og þráin eftir nýju lifi,.eillfu
lffi í samfélagi við Guð. —Með
fögnuði lýsti séra Wurmbrand
þeirri dásamlegu reynslu í
fangelsinu, er engill Guðs birt-
ist honum og lyfti tjaldskör
Paradísar.svohannfékklitiðþá
dýrð er ekki verður með orðum
lýst og heyrði þá himnesku tón-
list, sem tók öllum hljómum
fram, er eyru hans höfðu num-
ið. 1 sárustu neyð lifði hann
dýrðlegasta atburð sinnar jarð-
nesku ævi. Hann skýrði frá
þessari reynslu á þann veg, að
það var ekki hægt að rengja orð
hans. — í annan stað vakti
hann athýgli á því, er postul-
arnir og lærisveinarnir höfðu
yfirgefið Jesúm á myrkri
hættustund og misst trúna um
hríð, að þegar þeir hittu hann
aftur upprisinn, er hvergi
greint frá því, að þeir hafi borið
fram afsökunarbeiðni. Enginn
þeirrasagði: „Fyrirgefðu, að ég
skyldi bregðast þér.“ Hvers
vegna? Það var vegna þess, að
af ásjónu hans stafaði birtu
kærleika og umburðarlyndis.
Þeir skynjuðu þegar fyrirgefn-
ingu hans, og fundu að orð voru
óþörf. Hann hafði látið lif sitt
til lausnargjalds fyrir marga og
sigrað synd og dauða. Honum
er ekkert ómáttugt og kærleik-
ur hans nær til allra manna,
sem ganga vilja inn í þann
geisla er frá honum fellur. Þá
er mönnum gefið þrek til að
standast hverja raun.—
Sr. Richard Wurmbrand
Rowenfa
Vöfflujárn
teflonhúð
Litur: Orange.
ÁRGERÐ 1975 — VÖNDUÐUSTU HJÓLHÝSA-
TJÖLD í EVRÓPU — ENGINN VAFI!
Eigum á lager tjöld á:
SPRITE 400
SPRITE ALPINE
EUROPE390
CAVALIER 440 GT
ÚTVEGUM TJÖLD Á ALLAR GERÐIR HJÓLHÝSA.
2 VERÐFLOKKAR.
LEITIÐ UPPLÝSINGA OG PANTIÐ TÍMANLEGA.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919
Fiat 125 P
sannaöi ótvírætt
getu sína við
íslenskar aðstæður
í Rally-keppninni
Pólski Fíatinn varð í
I 1. Rally-keppninni