Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.06.1975, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNÍ 1975 Ein af myndum Erros „Eða eins og Nðbelsskáldið minnti á f Þingvallaræðunni að bfllinn væri ljóð okkar tíma.“ Matthías Johannessen: □ DAGUR EI MEIR. H Ljóð 74. □ Myndir: Erro. □ Almenna bóka- félagið 1975. Það er aðeins sjaldan að skáld koma ti! dyranna eins og þau eru klædd með sama hætti og Matt- hías Johannessen gerir í Dagur ei meir. Um yfirbragð ljóðanna og Matthfas Johannessen. vinnubrögð skáldsins mætti rita langt mál, en þótt þau séu nýr landvinningur, eins konar land- nám í heimi fslenskrar ljóðlistar, er vert að minna á að Matthías hefur áður ort með líkum hætti, nægir að minna á Hversdagsljóð úr Mörg eru dags augu (1972) og skyld dæmi má lika tína úr fyrstu ljóðabókum hans. En nú er skref- ið stigið til fulls! Dagur ei meir hefst reyndar á fallega orðuðu ljóði í hefðbundn- um stíl: 1974. Um þetta ár fjallar öll bókin, eða tekur mið af þvi. Siðustu linurnar i 1974 segja okk- ur frá reynslu skáldsins af þessu merka ári: Það var st*m bjartur dagur kæmi og dveldi dálitla stund —og hnigi svo að kveldi. Á eftir 1974 kemur dálitið ljóð um tré „í hvítum snjópels", minn- ing um nýársdag 1974, en síðan hefst viðamesti kafli bókarinnar: Öljóð um 1. maí, samtals 26 ljóð. Nafn Ijóðsins er tilvisun í Jóhann- es úr Kötium, enda er hann oft á ferð í Dagur ei meir, skáld alþýð- unnar og byltingarinnar. Það er hann, sem fær Matthias til að yrkja um að „finna marx í land- inu/ og landið í marx“ og þannig mætti lengi telja. 1. maí gengur skáldið um bæinn og fylgist með því, sem fram fer. Það greinir tómahljóð ræðumann- anna, hræsnina, sem lýsir sér i rauðu fánunum, mótsagnirnar á borðunum. Það hefur samúð með gömlum verkamanni, sem kveikir í pipunni sinni og spyr: „hver var hann eiginlega/ þessi marx“ og i . ljóði er vanda skáldsins lýst eftirminnilega þótt Dagur ei meir sé ekki fyrst og fremst bók um skáld og skáldskap, heldur það, sem við getum kallað kviku þjóð- lífsins, alvarlega tíma í ljósi gam- ansemi og oft miskunnarlauss háðs: Það er ekkert spaug að vera ekki alþýðuskáld á þessum umrótatímum. Ekki les auðvaldið Ijóð otf hin kúí>aða stétt les ekki Ijóð nema um landið og náttúruna. Matthíasi tekst með undarlega ferskum hætti, þar sem í senn rikja óhugnanleg nálægð og viss fjarski, að sýna okkur 1. maí og það, sem að baki liggur. Sú aðferð hans að gera orð annarra, oft hinna fávísu, að sinum gæða ljóð hans vissri dýpt i umbúðaleysi þeirra. Gömul kona i frystihúsi vestur í bæ, sem segir að verka- lýðsleiðtogarnir séu bestu menn og lifi eins og aðrir á verkalýðn- um, gerist hinn mesti lifsspeking- ur. Hún segir að það sé mátulegt á þá ,,að vera að rífast þarna/ niðri í alþinginu“. Viðbót skáldsins fyllir út i myndina: Æ, þessl rumpulýður: sæljón með bolta á trýninu, fílar á einum fæti, tfgrisdýr og Ijónatemjarar sem heyja sálfræðilega baráttu f búrinu. Skáldið hefur aðeins þekkt einn menntaðan mann, bónda norður í Iandi, sem þekkti allar kindurnar sinar með nafni: „En eina bylt- ingin í lifi hans/ var þegar þing- maðurinn kom i heimsókn / að telja sauðina sina.“ Verkalýðsleiðtogar, þingmenn, atvinnukröfugöngumenn, há- skólafólk, prófessorar og skáld eru ekki þeir einu, sem brandin- um er beint að. Pétur þríhross lifir í ungum heildsala, sem vill- ist á útifundinn af Hressó og „við- urkennir ekki/ nema heilbrigð skáld/ þau sem yrkja/ um hið fagra og góða.“ Auðvitað heitir heildsalinn Rolf. Og hver þekkir ekki „albertguðmundsson", eina Bókmennllr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON þingmann „þessarar lánlitlu/ glistruplausu/ borgar." Komm- únistaskáldið elskar vitanlega Is- land „eins og íslenzka auðvaldið/ elskar alþýðuna á hátíðisdögum". 25. ljóð sýnir okkur kannski betur en önnur ljóð í Óljóð um 1. maí hve verkalýðshreyfingin er andvaralaus, að ekki sé talað um hina „kúguðu stétt/ háskólans", marxistana, lenínistana og maó- istana. Frétt í útvarpinu frá alþjóðlegum samtökum, sem berj- ast fyrir mannréttindum um allan heim, skýrir frá þvi að móðir ungs sovésks skálds, Búkovskí, hafi i bréfi beðið um aðstoð við að losa son sinn úr fangelsi. Land „frels- is, jafnréttis og bræðralags" hlustar ekki á orð móður, sem vill bjarga sjúkum syni sinum frá bana, ungum manni, sem ekki hefur fallið inn i kerfið. I þessu ljóði ris rödd skáldsins hæst og brýnir til baráttu, sem enginn má gleyma 1. mai. Þar sem mannrétt- indi eru fótumtroðin og hersýn- ingar eru settar á svið til að sýna fólki hve það er ósjálfbjarga gegn valdinu á sinum eigin hátiðisdegi, leynist óvinur sem er jafn háska- legur og auðvaldið i sjálfbirgings- hætti sinum gagnvart kröfum fólks um betri kjör. Því skulum við ekki gleyma nema Novostí sé þegar orðin okkar andlegi leiðtogi og þá þurfum við heldur ekki á skáldum, sem yrkja um gras, að halda, samanber 23. ljóð. Fósturlandsins freyja (innskot fyrir minni húsmóðurinnar) er framlag skáldsins til kven- réttindaárs; Ur bæjarlifinu (eftir syni mína) er ort i anda þess orðaleiks, sem stundaður er með góðum árangri viða í bókinni og einnig i Ljóðum fyrir börn i Mörg eru dags augu; Fjallkoiiuljóðið 17. júní fjallar um tískuorðið „hlutveruleikann“; Kosningar lýsa degi þegar „allir eru/ í góðu skapi,/ lika maðurinn/ með hey- sátuna á höfðinu" og allir eru i framboði nema guð, sem prest- arnir tala svo mikið um; Kóngur- inn kemur (Sólskin og orðuregn) segir frá því þegar „allir eru hé- gómlegir/ og hamingjusamir/ eft- ir innræti sínu og áfram mætti halda að tleja upp ljóð þar sem víða er komið við og hreinskilni skáldsins og kjarkur koma þeim á óvart, sem ekki þekkja það, enda eru ljóð þess ekki i hverri skóla- bók. Ur Goðsögu (brot) er til- brigði við samnefndan Ijóðaflokk Matthiasar, sem birtist í Fagur er dalur (1966), en nú er skáldið mun skorinorðara og fáorðara en áður: „Við/ þessi indæla blekking." Þjóðhátið, ljóðaflokkur með 16 ljóðum, er í líkum tón og Óljóð um 1. maí. Þar er i senn brugðið á leik með ýmis tákn nútímans eins og bilinn „ljóð okkar tíma“ og önnur úr forneskju, sótt i Eddu- kvæði eins og Matthíasi er svo títt. Hér yrkir sá formaður Þjóð- hátíðarnefndar 1974, sem við sá- um ekki á sjónvarpsskerminum, en þar birtist hann nýklipptur, velgreiddur og snyrtilegur til fara að venju. Hann fer úr sparifötun- um i Dagur ei meir, eins og hann hefur orðað það sjálfur. 28. ágúst — Agústínusarmessa hefur áður birst i Eimreiðinni (3. tölublaði 1974) og vegna þess að ég hef fjallað um það ijóð í Morgunblaðinu ætla ég ekki að fjölyrða um það, en fá ljóð held ég að lýsi skáldi sínu betur, enda tel ég það til tiðinda í íslenskum bók- menntum. Þar er sá sársauki kom- inn, sem við þekkjum öll eða höf- um að einhverju leyti kynnst. Sama dag og rætist úr þjóðmálun- um og margir eru bjartsýnir er dauðinn á ferli, og dauði eins er ekki alltaf annarra brauð, heldur minnir okkur á hinn brothætta heim, sem við lifum í og getum ekki flúið. Bökinni lýkur á hefðbundnu ljóði eins og hún byrjaði. I því eru m.a. þessar eftirtektarverðu Iín- ur: Hér sit ég og sem og skrifa og sæki minn þrótt f það Iff sem fæstum er lagið að lifa Dagur ei meir er að minum dómi þáttur I þeirri gagnbyltingu ljóðsins, sem hlaut að koma að. Hún er ekki ort fyrir eilífðina, heldur það líf, sem við hrærumst öll í. Hún er ort af manni, sem ekki tók við orðu frá Bessastöð- um, en á skilið þá einu orðu, sem er nokkurs virði. Þeirri orðu verð- ur það skáld sæmt, sem lætur engan bilbug á sér finna, en er trútt sjálfu sér og uppruna sinum. Myndir Erros í Dagur ei meir eru bókarskraut þótt þær beri þess nokkur merki að vera eftir listamann, sem dvalist hefur lang- dvölum erlendis. Þetta er óvenju vönduð útgáfa ljóðabókar, en hvað, sem um hana verður sagt, er þetta bók handa þeim, sem lesa ljóð og líka handa þeim, sem ekki lesa ljóð. Get útvegað allar stærðir af sænskum stálgrindarhúsum og boga- skemmur á mjög hagstæðu verði. Stuttur afgreiðslufrestur. Allar uppl. veitir Eðvarð Benediktsson, box 91 28, sími 72907.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.