Morgunblaðið - 15.06.1975, Síða 12

Morgunblaðið - 15.06.1975, Síða 12
 12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNl 1975 í í | | J í i I % Þrfr þátttakenda á ráðstefnunni „List til lækninga,“ t.f. vinstri Max Paterson, skðlastjóri, Ian Mae Diartnid, myndlistarmaður og kennari í art-þerapíu, og Joice Laing, myndlistarmaður og einn af frumkvöðlum art-þerapíu f heimalandi sfnu. Þau eru öll frá Skotlandi. Skilningur vaxandi á gildi art-þerapíu RÁÐSTEFNAN „List til lækninga“ og sýning í tengslum við efnið hefur verið í Norræna húsinu síðan á laugardag. Hafa þar verið flutt erindi og ýmsir sérfræðingar inn- lendir sem erlendir fjallað um art-þerapíu, eða list til lækninga, sem er mjög að ryðja sér til rúms og hljóta viður- kenningu, bæði sem lækningaaðferð við sjúkl- inga, aðstoð við endur- hæfingu, við unglinga með afbrota- eða atferlis- vandamál og fleiri sem einhverra hluta vegna hafa skerta tjáningar- getu. Max Paterson, skólastjóri Wellington-drengjaskólans í Skotlandi, þar sem dvelja af- brotadrengir á aldrinum 14—17 ára, er einn gesta og flutti hann erindi fyrsta dag ráðstefnunnar. Mbl. hitti Pater- son að máli, svo og Ian Mc Diarmid, myndlistarmann, sem hefur starfað við skólann í tvö ár og Jioce Laing, listakonu, með sérþjálfun í „psycho- therapíu“ og hefur hún unnið á geðsjúkrahúsum, í skólum fyrir atferlistrufluð börn og í fangelsum. Max Paterson sagði að í Skot- landi væru 26 skólar á borð við Wellingtonskólann er sinntu unglingum sem lent hefðu i erfiðleikum. Paterson sagði, að breytt viðhorf og aðferðir í uppeldismálum hefðu leitt til breyttra viðhorfa í starfs-. aðferðum skólanna og segja mætti að sl. fimm ár hefði bylt- ing orðið á þessu sviði. Hann sagði, að mikilvægt væri að hlúa að hverju barni og reyna að búa því það uppeldi og af- stöðu til umhverfisins, sem gerði því fært að takast á við lífsbaráttuna. Skilningur færi vaxandi á því að art-þerapia væri ein þeirra aðferða sem beita mætti og reynsla af henni hefði orðið mjög góð. Ian Mc Diarmid sem vinnur við art-þerapíu drengja í skólanum sagðist vilja benda á að art-þerapía ein sér væri ekki einhlít til að leysa allan vanda. Hún væri ekki einangrað fyrirbæri, held- ur yrði hún að haldast i hendur við aðra þá með- ferð, sem unglingurinn fengi og jafnvægi væri nauðsynlegt. Aftur á móti gæti art-þerapía gefið sérfræðingum visbend- ingu um, hvað innra með ungl- ingunum bærðist og hægt að taka afstöðu samkvæmt þvi. Mc Diarmid sagði að hafa yrði í huga að þau börn sem þarna ættu hlut að máli, teldu sig ger- samlega misheppnaða einstakl- inga. Þau kæmu frá erfiðum heimilum, þeim hefði fátt tek-- izt, hvort sem væri á heimiii, f skóla eða vinnu og þegar í Wellingtonskólann kæmi væri þetta ákaflega óhamingjusamt og ófullnægt fólk. Hann reyndi að sýna þeim fram á að þau gætu staðið sig á við hvern annan. Yrði að vona að það tækist, að minnsta kosti stund- um, og drengjunum væri hjálp- að að uppgötva hæfileika sína og öðlast sjálfstraust sem gæti siðar orðið þeim veganesti út í lífið. Sumir drengjanna hefðu vitaskuld enga trú á að þeir gætu tjáð sig með litum. Lögð væri áherzla á að art-þerapia væri ekki í því fólgin að skapa list, heldur fengi einstaklingur- „Skapandi þerapí er að mínu áliti mjög mikilvægt atriði í þjálfum fjölfatlaðra barna,“ sagði Trevor Jcavons, fyrirles- ari á ráðstefnu um List til lækninga, sem haldin er f Norr- æna húsinu. Jeavons er aðstoð- arskólastjóri skóla fyrir fjöl- fötluð börn í nánd við Cam- bridge f Englandi. — Skapandi þerapi hjálpar börnunum við að ná þroska og valdi yfir hreyfingum sinum. Ef þeim er fenginn blýantur krassa þau í fyrstu en smám saman fer krassið að fá á sig mynd er þau fá aukið vald yfir hreyfingunum. Það eru til ótal dæmi um hvernig skapandi þer- api hefur hjálpað fólki. Eitt þeirra er ung kona sem ekki gat tjáð sig með tungunni, auk þess sem hún var hjálparvana í hjólastól. Hún byrjaði á því að mála með priki með áföstum klút á endanum og upp frá þvi náði hún svo miklu valdi yfir hreyfingum sínum að nú getur hún tjáð sig með þvi að benda á orð á töflu. Rabbað við þátt- takendur á ráð- stefnunni „List til lækninga” inn útrás orku og tækifæri til ákveðins frelsis sem í því er falið að upplifa sjálfan sig á þennan hátt. Þegar drengirnir eru tregir að tjá sig með litum eða teiknun bendi ég þeim á að nota spraybrúsa og sprauta með ýmsum litum á veggi eða fleti. Það geta allir og það gefst ágæt- lega sem upphaf. Síðan tekur við flóknari meðferð þegar los- að hefur verið um fyrstu höml- urnar. Með því er auðvitað ekki sagt að vandamálin séu leyst á einu bretti, þótt unglingarnir fáist til að tjá sig með Iitum, en það geti kallað fram I börnun- um þarfa útrás. Paterson og Joice Laing sögðu að reynt væri að hafa sem nánasta samvinnu við foreldrana, því að margir væru viðkvæmir fyrir að senda börn sín á slfka skóla og fyndist það Trevor Jeavons. — Þerapí nýtur vaxandi skilnings og álits sem lækninga- og uppeldisaðferð, eins og sjá má á aukinni notkun þess á fyrstu stigum skólakerfisins. Það hefur auðvitað verið svolít- ið vandamál að sannfæra lækna, sem ef til vill er ekki vera eins konar fangelsi. Þvi væri starfsemin kynnt ítarlega hverju foreldri og reynt að láta foreldrana fylgjast reglulega með framvindu mála. Þeim bar saman um að stund- um virtust engar framfarir verða hjá unglingunum en síðan gerðist eitthvað, þannig að hömlur brotnuðu niður og þegar það gerðist væri lika mikilsvert að reyna að koma i veg fyrir að öfgar sköpuðust í hina áttina. Joice Laing hefur mikla sam- vinnu við Wellingtonskólann og kemur þangað að jafnaði að minnsta kosti einu sinni f viku til eftirlits, auk þess sem hún fer bæði í fangelsi og á geð- sjúkrahús og fylgist með skjól- stæðingum sínum. Hún situr fundi þar sem fjallað er um mál drengjanna og leggur á ráðin um meðferð i samráði við Paterson og aðra sem hafa með málin að gera. Paterson sagði að hann hefði farið í heimsókn á Upptöku- heimilið í Kópavogi og hrifizt mjög af þvi frjálslega og opna andrúmslofti sem ríkjandi væri þar. Hann væri snortinn af því hve forstöðumanni hefði tekizt að vinna trúnað unglinganna og það væri jákvætt að sinum dómi að hafa saman drengi og stúlkur, það gerði málin eðli- legri og einfaldari á margan hátt. Hann sagði að art-þerapía virtist sér ekki nauðsynleg á Upptökuheimilinu, þar sem hann hefði ekki séð að neinar verulegar hömlur hrjáðu þar unglingana en teiknun og málun væri í sjálfu sér alltaf gagnleg og þroskandi. Þau sögðust hafa boðið Kristjáni Sigurðssyni forstöðu- manni að koma i heimsókn til Skotlands og kynna sér málin þar og þau vonuðu að um gagn- kvæmar heimsóknir unglinga af slíkum stofnunum gæti enn- fremur orðið að ræða. öll létu þau í ljós hina mestu ánægju með ráðstefnuna hér i Norræna húsinu og töldu að hún hefði verið afar gagnleg vegna þess hve breið fylking sérkennara og sérfræðinga um þessi mál hefði mætt til leiks. Nauðsynlegt væri að fólk hittist og miðlaði upplýsingum og reynslu, enda stöðugt að koma nýtt og nýtt fram sem að gagni gæti komið mörgum hópum einstaklinga. um fötlun undarlegt. Læknar verða að líta málin raunsæjum augum, og það er mjög erfitt að mæla ár- angur þerapíu. En þetta er minnkandi vandamál. — Mesta vandamálið er að fá fólk, sem ekki er fatlað, til að ná eðlilegu sambandi við fatl- aða og umgangast þá eðlilega og með skilningi. Fatlaðir virð- ast öðruvísi aðeins hið ytra, en það eru mjög fáir sem ekki hafa eitthvað til að bera. Fólk, og ég hef hitt margt, forðast að hugsa um fötlun, þar til það kannski eignast fatlað barn eða fatlast sjálft, og það getur komið fyrir alla. — Ég er mjög ánægður með þessa ráðstefnu og ég álít að ísland geti gengt mikilvægu hlutverki 1 þessum málum. Þetta litla þjóðfélag skapar góð- an jarðveg til þróunar á nýjum hugmyndum upp úr skapandi þerapíu, sem slðan má miðla okkur hinum. Þessum málum er vel á veg komið hér á Islandi og nýi skólinn hérna er stór- kostlegur hlutur. Fólk forðast að hugsa Björn Sigurðs- son, netagerðar- meistari 80 ára Björn Sigurðsson, netagerðar- meistari, fæddist að Hellum í Reynishverfi, Mýrdal, 16.6.1895. Hann fluttist á unglingsárum með foreldrum sínum að Hrífunesi I Skaftártungu, þar sem hann tók virkan þátt í starfi ungmenna- félags sveitar sinnar. Hann fluttist til Reykjavíkur upp úr 1930, stundaði sjó- mennsku um árabil, bæði á bátum og togurum og vann við netagerð, lengst af hjá Birni Benediktssyni, netagerðarmeistara. Árið 1940 gekk Björn að eiga Ingunni Kristjánsdóttur og skömmu síðar hlaut hann réttindi sem netaverðarmeistari. Þau hjón hafa átt heimili f Reykjavík allan sinn búskap. —V. Benedikt Bogason, verkfræðingur: Lokaorð- sending til Árna Johnsen Það hefur oft hvarflað að mér og fleirum, hversu lausum höndum sumir blaðamenn geta tekið á sannleika og staðreyndum. Oft byggist það á litlum tíma blaðamannanna, eða stuttum tíma til að setja sig inn í viðkomandi vandamál, sérstaklega á okkar litla ís- landi. Nú vil'ég ekkert fullyrða um stöðu Á.J. almennt i þessum efnum fram yfir það, sem ég hef áður sagt, en mér finnst raunalegt, að hann skuli með hreinum útúrsnúning klina á mig full- yrðingu um þá óstéttvisi, að ég hafi í grein minni i Mbl. 12/6 s.l. klint á mina „kollega ', að þeir væru ræningj- ar, frekar en ég leyfi mér að fullyrða að blaðamenn séu slikir. Hins vegar þakka ég Á.J. fyrir að kalla mig ekki orðrétt: „verkfræði- eða tækniræningja" i grein sinni i Mbl. 13/6, þó að hann leyfi sér að dylgja sliku að sumum „kollegum" mínum. Þetta eina i fyrstu málsgrein Á.J. lýsir í stórum dráttum dragandi-i-land hans eftir frumhlaup hans i Mbl. fyrr. Skilgreining hans á rökföstum stað- reyndum er „pip'. Þetta nútimaorð hans hlýtur að mótast hjá honum af hans fjölmörgu áhugamálum, sem leiðir að sjálfsögðu til skorts á þekk- ingu á þrengri tæknimálum Hann dylgjar um, að einhverjir vondir menn hafi bent mér á þessar frægðargreinar hans i Mbl. 7. og 1 1. júní 1 975. Ég skal fúslega viðurkenna, að ég er löngu hættur að nenna að lesa Eyja- peyja-greinar Á.J., með fullri virðingu fyrir Vestmannaeyingum, en sá sem benti mér á þessar endemisgreinar Á J var heiðarlegur Vestmannaeying- ur, ennþá búsettur á SV-landi. Ég vil að lokum óska Á.J. alls hins bezta í leik og starfi og vona að upp- byggingarstarfið i Vestmannaeyjum gangi sem bezt Ég tel að órökstutt „píp” um við- kvæm málefni sé engum til góðs. Benedikt Bogason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.