Morgunblaðið - 15.06.1975, Síða 13

Morgunblaðið - 15.06.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JUNl 1975 13 Frímerki Ragnar Borg, formaður Myntsafnara- félags tslands, afhendir Haildóri E. Sigurðssyni Forsetapeningana til 9f7^* m'nningar um sýninguna FRlMERKI -----1 — ’75. Á milli þeirra stendur Konráð Axelsson. Sameiginleg sýning mynt- og frímerkjasafnara MYNT- og frímerkjasýningin FRlMERKI — 75 var opnuð I gær af samgöngumálaráðherra, Halldóri E. Sigurðssyni, I Haga- skóla í Reykjavík. Þetta er sam- eiginleg sýning Landssambands ísl. frímerkjasafnara og Myntsafnarafélags Islands og sögðu forráðamenn féiaganna við opnun sýningarinnar, að það væri von og ósk þeirra að nánara samstarf mætti verða milli félag- anna i framtfðinni. Sýningin stendur til sunnudagskvölds 15. júnf en þar eru sýndir hlutar úr f jölmörgum einkasöfnum. Þetta er í annað skipti, sem frímerkjasafnarar halda sýningu í þeim tilgangi að fá úr því skorið, hvort einkasöfnin eru hæf til þátttöku í sýningum erlendis, en þar er nú hvarvetna gerð sú krafa, að söfnin hafi áður hlotið a.m.k. silfurverðlaun á sýningum í viðkomandi landi. Þeir, sem hljóta slík verðlaun á þessari sýn- ingu, öðlast m.a. rétt til að keppa ásýningu i Kaupmannahöfn. 1976 og f Pennsylvaniu í Banda- rikjunum. Meðal sýnenda á þessari sýn- ingu eru 7 gestir frá Færeyjum, sem sýna 12 söfn í 21 ramma. A meðan færeysku frímerkja- safnararnir dvelja hitta þeir islenzka frimerkjasafnara. Þau söfn Færeyinganna, sem hljóta silfurverðlaun eða hærri öðlast meðal annars rétt til þátttöku á mótinu í Kaupmannahöfn og bentu forráðamenn sýningar- innar á að ánægjulegt væri að geta með þessu stuðlað að vexti og viðgangi frimerkjasöfnunar i Færeyjum. Þetta er fyrsta sameiginlega sýning L.I.F. og Myntsafnara- félags Islands. Samtals eru sýndar myntir i 24 römmum og kennir þar ýmissa grasa, bæði eru þarna seðlar og myntir. Forráða- menn Myntsafnarafélags Islands afhentu Halldóri E. Sigurðssyni, samgöngumálaráðherra, eintak af Forsetapeningunum, sem gefnir voru út á þessu ári, til minningar um sýninguna. I ávarpi, sem Halldór E. Sigurðsson flutti við opnun sýningarinnar, kom m.a. fram að póststjórnin hefur alltaf kappkostað að eiga sem bezt samstarf við safnara. Þá gat hann þess að nýlega hefðu Samtök bandariskra frímerkjablaða- manna veitt póststjórninni árlega viðurkenningu fyrir góða fyrir- greiðslu og er tsland 7. landið, sem hlýtur þessi verðlaun. Ársþing Landssambands ísl. frimerkjasafnara verður haldið í dag kl. 2.00 í Hagaskóla. Á meðan á sýningunni stendur starfar sér- stakt pósthús i Hagaskóla. NÝR MARKAÐUR — Bræðurnir Bjarni Ásgeir (t.v.) og Kristján Ingi Jönssynir i nýjum blóma- og grænmetismarkaði Garðshorns. Garðshom hefur opnað nýjan blóma- og grænmetismarkað GRÓÐRARSTÖÐIN Garðshorn hefur opnað nýjan blóma- og grænmetismarkað á svæði sinu á horni Hafnarfjarðarvegar og Sléttuvegar. Markaðurinn er í 200 fermetra húsnæði sem nýbúið er að reisa. I jafnstórum kjallara undir verzlunarhúsnæðinu er vinnuaðstaða og geymslur. A þessum nýja markaði verða á boðstólum afskorin blóm, sumar- blóm, trjáplöntur, pottablóm, skreytingar og allar aðrar algeng- ar blómavörur. Aherzla verður lögð á að hafa ætíð á lager tilbúna ódýra blómvendi. Þá verða þarna til sölu allar algengustu tegundir grænmetisvöru. Markaðurinn var opnaður á fimmtudaginn í slðustu viku og framvegis verður opið alla daga vikunnar frá klukkan 10 til 22. Eigandi Garðshorns er Bjarni Ásgeir Jónsson garðyrkjubóndi. Þött hann sé aðeins 23 ára gamall hefur hann rekið Garðshorn um þriggja ára skeið, en áður voru Þorgrímur Einarsson garðyrkju- bóndi og Sigriður kona hans eig- endur stöðvarinnar og þau stofn- uðu hana og byggðu upp. Skreyt- ingamaður verður Kristján Ingi Jónsson, bróðir Bjarna. Þess má geta hér til gamans, að faðir þeirra, Jón V. Bjarnason, er einnig garðyrkjubóndi að Syðri- Reykjum í Mosfellssveit. Eru þeir feðgar allir lærðir garðyrkju- menn. Fjölbreytt efni Sögu 1974 SAGA, tímarit Sögufélags- ins, fyrir árið 1974 er ný- komið út. Ritstjórn þess annast Björn Sigfússon, Björn Teitsson og Einar Laxness. Guðmundur Karl sýn- ir á Kjarvalsstöðum Af efni ritsins má nefna grein eftir Björn Þorsteinsson um Guðna heitinn Jónsson prófessor, Meistari Brynjólfur byggir ónstofu eftir Hörð Ágústsson, I ríkisráði eftir Gisla Jónsson; Arni Þórðarson, Smiður Andrés- son og Grundar-Helga eftir Einar Bjarnason, Bréf Valtýs Guðmundssonar til Skúla Thoroddsens, fyrri hluti, í umsjá Jónas Guðnasonar, Nokkrar- athuganir á kenningum Einars Pálssonar um trú og- landnám Islands til forna eftir Kolbein Þorleifsson, Andmæli við doktors- vörn Aðalgeirs Kristjánssonar um Brynjólf Pétursson eftir Björn Þorsteinsson. Loks má nefna ritfregnir og rit- aukaskrá um sagnfræði og ævi- sögur, sem Ingi Sigurðsson tók saman. Sögufélagið var stofnað 1902, einkum til eflingar rannsókna á sögu Islendinga eftir siðaskipti. I GÆR, laugardag 14. júní opnaði Guðmundur Karl Ásbjörnsson, listmálari, málverkasýningu á Kjarvalsstöðum. A sýningunni eru 92 verk og eru flest þeirra máluð á Reykjanesskaganum og mörg i Bláfjöllum. Guðmundur hóf að mála fyrir alvöru árið 1959 en hafði áður fengizt litillega við málun. Siðast sýndi Guðmundur Karl 1973 á vegum Björgunar- sveitarinnar Stakks í Keflavik og þar á undan árið 1971 i Þýzka- landi i boði borgarstjórnarinnar i MiiIIheim. 1 Reykjavík sýndi hann siðast árið 1966 og þá í sýn- ingarsalnum I Klúbbnum. Árið 1960 fór Guðmundur til ítalíu eða nánar tiltekið til Flórens og tók þar próf frá Ríkis- listaháskólanum 1964. Þaðan fór hann haustið til Barcelona á Spáni og lét innrita sig í listaskóla til að læra viðgerðir á málverk- um. Þarna fékk hann innsýn í verk gömlu meistaranna. Á opnunardaginn, í dag kl. 16.00 verður á sýningunni sérstök dagskrá, sem nefnd er ljóðatón- list. Flytjendur eru Geirlaug Þor- valdsdóttir, Ieikkona, sem les ljóð eftir íslenzk nútímaskáld við undirleik þeirra Ásdísar Þor- steinsdóttur á fiðlu og Janet Pechar, en þær eru báðar úr Sin- fóniuhljómsveitinni. Sýningunni lýkur 22. júní n.k. og er hún opin milli kl. 14 og 22 á helgum dögum og 16 til 22 á virkum dögum. Góóa ferö tíl Græníands FLUGFÉLAG LOFTLEIÐIfí /SLA/VDS Til Kulusuk fljúgum viö 5 sinnum i viku meö Fokker Friendship skrúfuþotum okkar. Feröirnar til Kulusuk, sem er á austur- strönd Grænlands, eru eins dags skoðunarferðir, iagt er af staö frá Reykja- víkurflugvelli, að morgni og komiö aftur aö kvöldi. I tengslum viö ferðirnar til Kulusuk bjóöum við einnig 4 og 5 daga ferðir til Angmagssalik, þar sem dvalið er á hinu nýja hóteli Angmagssalik. Til Narssarssuaq, sem liggur sunnarlega á vesturströnd Grænlands, er flogið 4 sinnum í viku frá Keflavíkurflugvelli meö þotum félaganna eöa SAS. Flestir þeir sem fara til Narssarssuaq dvelja þar nokkra daga, en kostur gefst á lengri dvöl ef vill. í Narssarssuaq er gott hótel meö tilheyrandi þægindum, og óhætt er aö fullyrða aö enginn veröur svikinn af þeim skoöunarferöum til nærliggjandi staða, sem í boöi eru. í Grænlandi er stórkostleg nátturufegurð, og sérkennilegt mannlíf, þar er aö finna samfélagshætti löngu liöins tima. Þeir sem fara til Grænlands í sumar munu örugglega eiga góöa ferð. sem feróast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.